Leita í fréttum mbl.is
Embla

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

HJÁLP..4 kettlinga vantar heimili..2 strákar og 2 stelpur..Myndir

100_2607.jpg 100_2605.jpg 100_2608.jpg

 

Þau fæddust 15 maí og eru algjörar dúllur...Öll orðin kassavön og éta og drekka þó þeim þyki enn góður sopinn hjá mömmu.. Mala og kurra og mjög kelin.. Rúfus heitir sá rauði ..Alexander er mikið hvítur og gra/svart bröndóttur en stelpurnar eru þrílitar og heita Doppa og Loppa...

 En málið er að það er sko von á fleiri kettlingum næstu daga og miðað við að Sóta virðist sko vera að springa þá er alveg pottþétt að það koma fleiri en 4 stk og síðast átti hún 6...

Þannig...en ok..veit að ég þarf að vara að taka læðurnar úr sambandi og pabbann líka....en þessi blöndun virðist samt gefa einstaklega geðgóða, blíða og kelna ketti og mannelskandi.. 

þEIR SEM HAFA ÁHUGA SENDIÐ MÉR EMAIL EÐA SKRIFIÐ HÉR... 

100_2669.jpg

 

100_2609.jpg

100_2611.jpg 100_2612.jpg 100_2613.jpg 100_2615.jpg 100_2685.jpg 100_2686.jpg 100_2687.jpg 100_2688.jpg 100_2689.jpg 100_2679.jpg 100_2681.jpg 100_2682.jpg 100_2673.jpg 100_2674.jpg img_0708.jpg 100_2610.jpg

KETTLINGAR FÆDDIR 15 MAÍ 2009 Myndir ef einhvern langar í kettling...

Jæja þá hefur enn einu sinni fjölgað í katta fjölskyldunni hér...Þær eru að þessu til skiftis en sem betur fer komu bara 4 hjá Blíðu ..hún virðist halda sig við þá tölu en hún eignaðist 4 stk 2 ágúst 2008..

Sóta eignaðist 5 stk 19 og 20 júlí 2008 og svo aftur 23 og 24 nóv 2008 heil 6 stk...en allur þessi hópur eignuðust ný heimili og vona ég bara að allir séu sáttir...

Hér sjáið þið allavega myndir af nýjustu meðlimunum... en það eru 2 stelpur sem eru svona skrautlega litar, en hitt 2 strákar og sonur minn er búinn að gefa þeim nöfn og heitir sá gulbröndótti Rúfus og sá sem er mikið hvítur og svar/grábröndóttur heitir Alexander...

Hér er fyrri daman að koma í heiminn... 

IMG_0586

 En erum ekki alveg með það á tæru hvað við eigum að kalla dömurnar en aðra vill sonur minn kalla Loppu því hún er með stórar loppur og treður þeim í fésið á manni..

 Hina vill hann kalla Doppu en hún er með svartar doppur á nebbanum..

 

 

 

 

                                                                Hér er svo Rúfus kominn í heiminn  

IMG_0587 IMG_0588

 

 

 

IMG_0589

 

IMG_0593

 

 


 

 

 


 

 

 

 

 

 Hér er svo seinni daman komin í heiminn.

IMG_0599

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér hefur svo Alexander bæst í hópinn..þreytt mamma þarna..

 

IMG_0600

 

Læðurnar eru algjörar kelurófur og byrjuðu að mala um leið og þær opnuðu augun, strákarnir eru enn aðeins tilbaka en eru samt byrjaðir að mala og öll blíð en það er þá bara eins og hefur verið  í öll hin skiftin sem læðurnar hafa gotið ..

 

 

 

 

Hér verið að fá sér mjólkurdreitil.. 

IMG_0602

Allir byrjaðir að mala svona snemma og mjög mannelsk og vilja láta vera með sig en enn sem komið er þá eru það dömurnar sem hafa fengið meiri athygli því þær eru kröfuharðari Wink..

 

 

 

 

 

 Blíða heldur vel utan um börnin sín..

IMG_0604

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér þurfti mamman að skreppa frá og þau eru

dags gömul..

IMG_0610
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 HÉR ERU ÞAU FARIN AÐ STÆKKA..
 
IMG_0722
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
IMG_0729
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
HÉR ER HÚN LOPPA KELURÓFA 
                                                                                                          
IMG_0732 IMG_0736 IMG_0745 IMG_0754 IMG_0755 IMG_0766 IMG_0767 IMG_0768 IMG_0769 IMG_0770 100_2356 100_2358 100_2362 100_2363 100_2369 100_2357

ÞETTA ER SKO ALTÆKUR KÆRLEIKUR! Ég fæ tár í augun.Video

Ég varð bara að að setja þetta video hér. Það segir sko meira en nokkur orð um að kærleikur á sér engin landamæri og ekki bundinn við neitt eða heftur af neinu, nema þá helst af fordómum okkar mann"skepnunnar".

Þetta myndbrot hér af dádýrskálfi og kettlingi segir allt sem segja þarf um það.

Njótið velHeart

 

 

 


LÍFSINS LÆRDÓMUR..

 Ég er þakklát/ur öllumsem hafa komið fram við mig af hörku,  þeir hafa kennt mér að vera mildur og hugulsamur.

Sem hafa vanmetið mig og talið lítilsvirði, þeir hafa kennt mér að standa með sjálfum mér.

Sem töldu mig einskis verðugan, þeir hafa neytt mig til þess að leita að fjársjóðnum innra með mér.

Sem komu fram við mig á ólöglegan hátt, þeir hafa kennt mér að vera einlægur.

sem aldrei hafa sýnt mér væntumþykju, þeir hafa sýnt mér mikilvægi kærleikans.

Sem öfunduðu mig, börðust við mig og særðu,þeir hafa kennt mér sjálfs gagnrýni og varkárni.

Sem aldrei hafa veitt mér neina athygli, þeir hafa kennt mér að  koma fram við alla án fordóma.

Sem sært hafa mína virðingu, þeir hafa kennt mér að veita fyrirgefningu.

Sem aldrei tóku eftir því að ég væri hjálpar þurfi,þeir hafa kennt mér að leita hjálpar og stuðnings.

Sem hafa yfirgefið mig og skilið eftir einan,þeir hafa kennt mér hvað raunveruleg vinátta er. 

Sem hafa hindrað mig og bælt,þeir hafa kennt mér að verja sjálfan mig.

Sem hafa valdið mér sársauka og sorg, þeir hafa kennt mér að þekkja andstæðu þjáningar, huggunar.

Sem hafa tekið þátt í þessu, hafa gefið  lífi mínu merkingu og tilgang.

Ég ber þakklæti til hvers og eins ykkar. 

Þið eruð ástæðan fyrir því hvernig  og hversvegna ég hef lært svona mikið, og kennt mér að skilja hvað   er mikilvægt fyrir mig í dag og að vera fær um að gefa það allt frá mér!


BLAND Í POKA...

xmas_pud_318615 Jæja ...þá eru þessi blessuð jól loksins komin sem maður kanski bæði hlakkar til og kvíðir fyrir.. Akkurat svona "bland í poka"...Alltaf ætlar maður að vera búin að gera x þetta og x hitt nógu tímanlega fyrir "þessi" jól...

Hlakkar til að setjast loks niður og snæða góðan mat með fjölskyldu og vinum..og dýrunum sínum.. Svo að gefa og þiggja hinar ýmsu gjafir, sem þurfa ekki endilega að vera x tuga/hundraða þúsund kalla virði nú eða x miljóna eða x miljarða eins og hjá vissum "útrásar" gaurum...(giljagaurum)...En "mín" jólastemming er, að þegar búið er að gefa og þiggja, að setjast með bók, konfekt og kaffi (og sígó...suss ekki segja frá..) og flatmaga í sófanum...hafa kveikt á kertunum og reykelsi...En þessi jól get ég ekki flatmagað..rifbeinadraslið sér fyrir því

funny-santa Kvíðir fyrir að vera nú ekki búinn að öllu sem maður setti á "gera þetta" listann...Ja ..ég kláraði allavega ekki minn..ég get að vísu notað rifbeinsbrot sem orsakavald í þetta sinnGetLost...Ég er loks farin að skilja það að ég á ekki að vera að príla í stigum rétt fyrir jól...En ég verð að játa að verkirnir eru það þokkalegir að ég vildi alveg vera laus við svoleiðis afsökun .....Það er allavega nokkuð pottþétt að ég dansa ekki inn í nýja árið um þessi áramót..og .ég elska að dansa.Crying. Verð líka að afþakka faðmlög og knús...ég sem er svo mikið fyrir knús..ja það verður þá að fara  mjöööög varlega að mér..ekki nein kraftajötna faðmlög ...sussu nei...

dreamsComeTrue30 Jamm...svo ætlar maður líka að vera búinn að kaupa gjafirnar löngu fyrir jól...réttast er að kaupa engar gjafir fyrr en eftir áramót á útsölunum...og halda þá svona "gefa og þiggja" dag.... Gott tilefni líka til að hitta vini og ættingja oftar...Jólin geta þá loks fengið að vera svona hátíð eins og alltaf er verið að syngja og segja.." kærleiks- og friðar jól"...

Ég læt hér fylgja svona hin og þessi heilræði, orðatiltæki, hugleiðingar.. brandara.. svona eitthvað andlegt "bland í poka" ....það verður að hafa balance í því sem maður treður í kroppinn af góðgæti...verður líka að næra sálartetrið....

DÝRMÆTUSTU  GJAFIRNAR  SEM  ÞÚ  GETUR  GEFIР ÁSTVINUM ÞÍNUM  ERU FALLEG  ORÐ  OG GJÖRÐIR,  SAMÚÐ,  FYRIRGEFNING,  ÞAKKLÆTI,  SKILNINGUR  OG  VIÐURKENNING...

LEIÐIN  AР VISKUNNI  OG  HAMINGJUNNI  ER  INN´ Á  VIÐ. GERÐU  ÞAÐ EKKI AР MARKMIÐI  AР VERÐA  HAMINGJUSAMUR,  VERTU  HELDUR  HAMINGJUSAMUR  FYRIR  MARKMIÐIN..

AUGNABLIKIР ER  ÞAР EINA  SEM  VIР EIGUM  MEР VISSU...

ÞÍN  ÆFI  ER  EITT  ANDARTAK , EITT  UNDURSAMLEGT  NÚ.  OG  ANDARTAKSINS  EILÍFT  LÍF  ÁTT ÞÚ..

EINA  GLEÐISTUNDIN  SEM  OKKUR  ER  ÖRUGGLEGA  GEFIN  ER HÉR  OG  NÚ,  ANDARTAKIР SEM  VIР HRÆRUMST  Í  HVERJU  SINNI..

ÁSTIN  VILL  FYRST  OG  FREMST  GLEÐJA  AÐRA,   EN  EIGINGIRNIN  VILL  FYRST  OG  FREMST  GLEÐJA  SJÁLFAN  SIG..

SÁ  SEM  EKKI  KANN  EÐA  GETUR  TEKIР Á  MÓTI  GJÖFUM  ÁSTARINNAR,  GETUR HELDUR  ALDREI  LÆRT AР ELSKA.

BREYTTU  SÁRSAUKANUM  Í  SIGUR  OG  MISTÖKUNUM  Í  MÁTT..

BÆNIN  ER  ANDARDRÁTTUR SÁLARINNAR..
HVAÐ EINA  SEM  VERT  ER  AР SKILJA,  ER  Í  FYRSTU  SEM  RÁÐGÁTA.
AР LEITA  VISKUNNAR  ER  VITURLEGT,  AÐ HALDA  AР MAÐUR  HAFI  ÖÐLAST  HANA  ER  HEIMSKULEGT..
VIР PLÖNTUM  EKKI  TRJÁMM FYRIR  OKKUR HELDUR  FYRIR  BÖRNIN  OKKAR..
EF  ÞÚ  LEYFIR  EINHVERJUM  AР REITA  ÞIG  TIL  REIÐI,  HEFUR  ÞÚ  LEYFT  HONUM  AР SIGRA ÞIG..
HVORUGT  ER VARANLEGT,  AÐ TAKAST  OG  MISTAKAST.
ÓTTASTU  EKKI  ÓTTANN -- EN  HLÝDDU  HONUM  EKKI  NEMA  Í  ÓTTALEGUM  AÐSTÆÐUM..
HIР ,, TRÚLEGA  ÓTRÚLEGA"  ER BETRI  KOSTUR EN  HIР ,, ÓTRÚLEGA  TRÚLEGA".
ALLA  ÆFINA  REYNUM  VIÐ AÐ LEYNA  MISTÖKUM OKKAR,  NEMA  LISTAMENNIRNIR   SEM  VELJA  ÚR  SÍNUM  OG  HALDA  SÝNINGAR..

AUÐMENN  VERÐA  ALDREI  SVO  RÍKIR  AР ÞEIR  ÓTTIST  EKKI  UM  AUÐÆFI  SÍN..

BRANDARAR

BETRI SAMVISKA.

Þau voru á leiðinni heim eftir dansleikinn. Kalli, ef þú leitar á mig, æpi ég.  Ha,ha, æptu bara. það er ekki nokkur sála í mílu fjarlægð. Nei´, ég veit það , en ég hef betri samvisku, ef ég veiti einhverja mótspyrnuCool

AÐ FARA NIÐUR.

- Læknir, ég vildi gjarnan biðja þig um að færa niður kynlöngunina hjá mér, sagði sjötugur karl sem var nýgiftur einni tvítugri . Færa niður?  Það var svei mér einkennileg bón.  ,, Ekki svo mjög . Sjáðu til..hún er öll í höfðinu á mér kynlöngunin og þessvegna villdi ég færa hana neðar, þar sem ég get haft meiri ánægju og gleði af henni!!!CoolTounge

LÉTTUR.

-Mig langar að vita eitthvað um framtíðina, sagði unga, feimna konan við spákonununa.  Látum okkur nú sjá . Maður mun koma inn í líf þitt fljótlega, mjög ungur maður.  Segðu mér  hvernig hann lítur út. ,, Það einast sem ég get séð , er að hann vegur aðeins 2,8 kg."Blush

HEYRT Á KVENNAKLÓINU:

Hvernig var hann sá sem þú fórst með heim í gærkvöldi? -Eins og fyrsti vetrarsnjórinn. Kalda,, týpan"?  Nei, hann ,, kom" óvænt og alltof fljóttTounge


SKÓLAKERFIÐ EINS OG AGNÝ VILL HAFA ÞAÐ.

Þetta hér skrifaði ég fyrir rúmum 3 árum síðan.....Passar það ekki nokkuð vel við ástandið í dag? Þar sem við erum skylduð í skóla í 10 ár af ríkinu..., þá á RÍKIÐ( við) AÐ BORGA GRUNNSKÓLANN!Mar 18 2005, 3:44 Í sambandi við grunnskóla sem allir eru skyldaðir til að vera í af ríkinu, þó svo sumir hætti fyrr en honum er lokið, oft vegna eineltis.

Það sem mér finnst rangt er þetta:
Það átti ALDREI að setja grunnskólana á sveitarfélögin, þar sem einstaklingurinn er SKYLDAÐUR af ríkinu
 
til að vera í grunnskóla í 10ár, þá á ríkið sem er náttúrulega við öll sem búum hér á landi þó svo oft látum við sem ríkið sé eitthvað batterí sem reki sig sjálft að standa straum af þeim kostnaði , öll viljum við jú að börnin okkar mennti sig eða eins og sagt var í gamla daga "verði að manni."
Ef við viljum á einhvern hátt hafa jafnræði og jafnvægi þá er menntun á jafnréttisgrundvelli óháð búsetu og mannfægð eða vöntun á góðum kennurum, ekki tækið til þess að svo megi verða.


Annað sem mér finnst að mætti alveg skoða og ég tel að þegar upp verði staðið myndi skila þjóðarbúinu meiri arði en það er af þessum forsendum sem ég gef hér:
Það er mikið atvinnuleysi, ungt fólk fær ekki vinnu , það á ekki/hefur ekki réttinda til atvinnuleysisbóta ,hefur heldur ekki efni á að fara í skóla þó að vilji væri fyrir hendi.

Hvað haldið þið að þetta fólk komi til með að leiðast út í eða lenda í.?
Kanski þetta margumrædda vændi ?
Dópneysla /sala.? Rán og innbrot.?
 
ER það þetta sem við viljum sjá?

Því hvar á liðið að fá peninga ef engin er vinnan og ekki hægt að fá bætur nema frá féló.
Það sem mér persónulega finndist réttara að gera,  því ég tel að það kæmi betur út fyrir þjóðfélagið í heild þegar upp yrði staðið er þetta:

Að ríkið myndi borga einstaklingum fyrir að vera í skóla eftir að grunnskólanámi lýkur.
Það myndi þýða það að þegar atvinnuástand batnar þá væru til einstaklingar sem eru menntaðir
 
en ekki búnir að mæla göturnar og í ýmsu misjöfnu jafnt konur sem karlar.
Það yrði að mínu mati ódýrara fyrir ríkið þegar til lengri tím er litið.
Þessir einstaklingar myndu síður leiðast út í það sem ég taldi upp fyrr og þetta fólk yrði þjóðfélasvænni þegn heldur en sá sem hvorki hefur haft menntun eða vinnu.

Það nefnilega kostar ekkert smá fyrir ríkið ef að eru sífelld innbrot, sem skapar þörf á stærri fangelsum, fleiri meðferðarheimili fyrir þá sem lenda í eiturlyfjaneyslu, meiri félagslegan og fjárhagslegan stuðning fyrir þá sem leiðast út í vændi og meiri lyfja og lækniskostnaður myndi örrugglega verða líka.

Þannig að ég tel að það myndi spara stórlega til lengri tíma litið og við eiga til fólk sem gæti gengið inn á vinnumarkaðinn þegar atvinnuástand yrði gott, þegar það kæmi þetta virkilega svokallaða góðæri.
 
Þeir sem eru búnir að vera án atvinnu í langan tíma, hafa jafnvel aldrei fengið vinnu eftir að grunnskóla
  er lokið, eru ekki einstaklingar sem vinnuveitendur vilja fá í vinnu því miður.
Þá myndu atvinnurekendur frekar leita eftir erlendu vinnuafli.( þekki það persónuleg þar sem ég hef átt fyrirtæki með mínum x).

Ég veit ekki betur en að i Danmörk sé það þannig að ríkið borgi einstaklingum " laun" á meðan þeir eru í námi eftir grunnskólanámi er lokið.
 

Þetta tel ég að sé það sem við Íslendingar ættum að taka upp eins og Danir frændur okkar.
En þetta er jú bara mín hugmynd um hvernig þjóðfélagið megi breytast, til hins betra að mínu mati þegar á heildina er litið.
Kveðja Agný.
Oct 18 2003, 20:30

Kæri .....
Það sem ég átti við með því að ungmenni fengju borgað fyrir að vera í skóla, þá átti ég EKKI við til háskólanáms.
Heldur þeirra sem fara í fjölbraut, verkmenntaskóla eða menntaskóla. Það yrði síður til að þessir einstaklingar tækju sér pásu frá námi sem oft vill verða of löng eða það löng að viðkomandi hefur sig ekki upp í það að fara í nám síðar meir. Þetta myndi líka skapa meira jafnræði og jafnvægi milli einstaklinga ef þessi háttur væri hafður.
Ég gaf líka þær forsendur að væri mikið atvinnuleysi að þá myndi þessi aðferð skila betri þjóðfélagsþegnum út í þjóðfélagið síðar, heldur en ef að viðkomandi einstaklingar mældu göturnar og lentu í hinu eða þessu.

Þannig fólk vilja engir atvinnurekendur fá og atvinnurekendur vilja heldur ekki einstaklinga sem eru búnir að vera á atvinnuleysisbótum lengi. Þetta fólk gengur ekki fyrir í vinnu, ég hef verið í fyrirtækjarekstri og þó að vantaði mannskap þá leitar þú eftir fólki annars staðar fyrst áður en þú fórst að skoða þá sem eru skráðir á atvinnuleysisskrá. Þannig er bara raunveruleikinn í þessu!!!

Það eru nú ansi margir eilífaðarstúdentar í háskólum bæði hér og annars staðar og tel ég að ef að þeir fengu laun á meðan sé ekki rétt. Sumir myndu líta á það sem ágæta vinnu að vera endalaust í skóla og falla kanski
 
reglulega í þessu eða hinu til að vera " áfram á launum " en stúdentinn og verkmenntabrautir eru síður til þess fallnar að ofnota það.

Annað það eru ansi margir sem hafa ekkert það góð fjárráð þó svo kanski þú þekkir það ekki, 
og eiga kanski mörg börn að það er hægra sagt en gert að kosta ungmennin til náms og ekki er neitt auðvelt í dag að fá vinnu þennan stutta tíma sem er núna frá að skóla lýkur að vori og byrjar svo aftur um 25 ágúst.

Þó að einstaklingurinn fái vinnu þá er það ekki mikið sem viðkomandi fær í vasann frá miðjum júni til miðs ágústs.  Yfirleitt líka lélega launað og langlægstu taxtarnir og svo ef að er atvinnuleysi þá getur þú bara gleymt því að þú fáir vinnu því að það eru ekki óharðnaðir unglingar sem vinnuveitendur vilja þá fá , yfirleitt hæfari einstaklingum þannig séð, úr að velja þegar svoleiðis ástand er. Hver heldur þú annars að sé ástæðan fyrir öllum þessum erlendu aðilum í fiskivinnu hér á landi .....? Fróðlegt væri að lesa um þína skoðun á því.

En er samt nokkuð viss að mínar og þínar skoðanir eru svart og hvitt í þeim efnum sem öðrum ....  

Kveðja Agný. 

Kæri ........
Í sambandi við fiskivinnuna þá veit ég það frá íslendingum sem ég þekki í fiskivinnu, nánar til tekið suður með sjó eins og sagt er
  að fiskverkunareigendur og útgerðir vilja ekki íslendinga í vinnuna í dag á þeirri forsendu að þeir eru að borga erlendu aðilunum um það bil helmingi lægra á timann en íslendingurinn á rétt á.
Þannig að það kemur víst fyrir að íslendingum er oft vísað frá en á sama tíma sóttur til útlanda vinnukraftur.
En þetta er fínt , svo skeður það sama og skeði í danmörk um "74-75 ég bjó þá úti, en það er að þá kom upp atvinnuleysi
en ekki mikið og þá heyrðist sko í Dönunum þetta " forbannede fremmede arbejdere kom og stjal vores arbejde." = ,,Helvítis útlendingarnir komu og stálu vinnunni okkar....


Málið var bara það að vinnan sem útlendingarnir voru í var drullu versksmiðjuvinna sem Danirnir vildu ekki sjá og í raun nákvæmlega það sama og er hér nú í sambandi við fiskivinnuna.
En það eru í raun bæði Dönum og okkur Íslendingum sjálfum um að kenna að ástandið varð og er svona.
En við erum bara flest okkar alltof góð í því að ásaka og skella skuldinni á annað eða annað.
En í sambandi við þessa konukind sem þú vísar í þarna í restina, þá myndi ég ekki telja hana með fulle fem
  ekki fjóra einu sinni, það er nú hægt að vera heimskur en SVONA forheimskaður..... nei fjárinn að ég trúi því.
Kveðja Agný.

 Kæri/kæra .........
Það sem þú segir hér, er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil að einstaklingar fái " laun " á meðan skólanámi stendur eftir að grunnskólanámi líkur.

Til að gefa þessum aðilum tækifæri til að halda áfram námi. Annað sem myndi ske þá líka að það væru fleiri störf í boði fyrir aðra aldurshópa á móti þeim sem héldu áfram námi í staðinn fyrir að fara út á vinnumarkað þarna strax að grunnskóla loknum. En hvort að öllum fyndist þessi eða hin störf nógu góð er svo önnur saga.

Ég er bara svo gamaldags að ég tel að vera atvinnulaus til lengri eða skemmri tíma sé bæði mannskemmandi  og sálardrepandi. Margir hafa t.d. framið sjálfsmorð vegna þessa. Heilsu almennt hrakar sem leiðir til lyfjagjafasérstaklega þá þunglyndislyfja.

Þannig að ég vísa aftur í það sem ég sagði í byrjun greinarinnar,en það er að til lengri tíma litið ef horft yrði á alla kostnaðarliði / útgjöld fyrir ríkið sem koma af atvinnuleysi, heilsuleysi og sjálfsmorðum því að þetta hefur aukin útgjöld fyrir aðstendendur allra aðila sm tengjast þeim sem lenda í þessu.
Á móti segi ég að til lengri tíma litið kæmi betur út fyrir alla og ríkið ( sem er við!!!!) ef farið yrði að borga nemendum " laun " það er að segja tilvonandi nemendum í fjölbraut, verkmenntaskóla og menntaskóla að þá myndi hinn útgjaldaliðurinn lækka og ég segi aftur....  við myndum fá einstaklinga út í þjóðfélagið eftir að námi í framhaldsskóla lýkur sem síður hefðu leiðst út í óreglu og eitulyfjaneyslu og annað miður gott. Sem sé þegna sem væru færari að koma út á vinnumarkaðinn en þeir sem hefðu mælt göturnar allan tímann.....Báðir þessir kostir kosta okkur skattborgarana x mikið....en í hvorn hópinn viljum við að aurarnir okkar fari?

En það er alltaf meiri hætta á að einstaklingar leiðist út í þetta sem ég taldi upp,  ef viðkomandi hefur hvorki vinnu eða er í námi. Það þurfa allir að fá útrás fyrir sína orku sem öllu jöfnu fer í nám og vinnu,  en ef þú hefur hvorugt,  þá fer hún bara í eitthvað miður gott.
Má kanski líkja þessu við þetta " betra er slæm athygli en engin".
Kveðja Agný.
 Kæri ..........
Ég lenti í því þegar ég er tæplega tvítug og að koma fyrst út á vinnumarkað að vinna hjá fyrtæki sem var stórt þar sem ég bjó. Málið er að það svindlaði verulega á launum síns starfsfólks og ef að einhver sagði eitthvað við eigendurna, þá var svarið á þá leið að viðkomandi gæti bara farið, það væri nóg um aðra sem vildu fá vinnu. Það var mikið af konum sem áttu börn sem unnu þarna og þær þorðu ekkert að gera eftir þessi svör.

Svo fór ég í félagið sem við vorum í og kvartaði undan röngum launatöxtum og þá var mér sagt að þetta færi í " skúffuna" og ég spyr hvað væri verið að meina, en var þá sagt að það væri þangað sem kvartanir á hendur þessu fyrirtæki færu.
Þannig að stór fyrirtæki stjórna ansi miklu í minni bæjarfélögum og fólk þorir oft ekki að rísa upp út af því. En þetta leiðréttist ekki fyrr en konurnar fóru í vinnustopp fáum árum seinna, en ég efast um að þær hafi fengið leiðréttingu " aftur í tímann".En við höfðum launa leiðréttingu fram.....Ég var ekki í fullri vinnu þar þá...það var bara aukavinnan mín..
Kveðja Agný.
ly

fjaframleiðen Stuðningshópar og félög fyrir aðstandendur ADHD,


KETTLINGARNIR STÆKKA OG STÆKKA...MYNDIR

Þá læt ég loks verða af því að setja inn fleiri myndir af nýjustu meðlimum kattafjölskyldunnar. Þeir tútna sko út þó að Gosi eldri bróðir þeirra sé nú duglegur við að stela sér sopa með þeim..

101_0818 101_0820 101_0821 101_0824 101_0831 101_0845 101_0854 101_0857 101_0865 101_0866 101_0870

Ja og hjálpa mömmu að þrífa systkinin og svona stundum heldur hann að þetta seu mýs sem eigi að leika sér við..Ég var nú stundum smeik um að honum dytti í hug að éta þau svona fyrst...


KETTLINGAR 6 STK. FÆDDUST 15 & 16 NÓV. 2008 MYNDIR

101_0788 Jæja ..þá er aftur orðinn kattahrúga hér..heil 6 kríli...3 strákar og 3 stelpur ..samkvæmt minni kyngreiningu ...

101_0795 101_0790 101_0789 101_0791 En Mátulega búin að fá heimili fyrir öll úr hinum hollunum tveimur.. 

Sótu gekk nú betur að koma þessum í heiminn en í sumar en samt smá "slys"..hún var ekki búin að slíta á milli sín og kettlingsins þegar henni datt í hug að hoppa úr þokkalegri hæð og niður á gólf og kettlingsgreyið datt á gólfið..

En hann lét sko aldeilis heyra í sér við þá meðferð ..og varð ekki meint af en blæddi slatta...Hann er eins og Ljóni sem var fyrsti í hollinu á undan með það að kunna að mjálma og þá meina ég sko hávært mjá strax nýfæddir..

En mátúlega búin að fá heimili fyrir öll úr hinum hollunum tveimur.. 

Sem betur fer er víst búið að biðja um úr þessu holli þannig að ég er mjög fegin að þurfa ekki að láta svæfa þau.

Hér fáið þið að sjá myndir af þeim og þau eru öll nema ein læðan gul en ein er mjög lík mömmunni á litin og hinar læðurnar tvær eru með hvítan annan framfótinn upp á herðablað og hin með hvítan blett á bakinu..Hinir  þrír  eru högnar.....og einn af þeim svona meira orange en hin sem eru öll með þennan beige lit ..

 

 


Kisubörnin öll búin að fá heimili...eins gott áður en næsta holl kemur....

Er enn með 6 stk kettlinga ..3 læður og 3 högna...

Svartur og hvítur högni kallaður Pési fæddur 20 júlí. 101_0422

101_0421   101_0423   101_0318 101_0355

 

Grá og hvítur högni kallaður Gosi fæddur 20 júlí. 101_0294

  101_0301 101_0564 101_0489 101_0526 101_0530

Bleikgrá og hvít læða kölluð Kola (kolóttur nebbi) fædd 20 júlí líka

. 101_0313 101_0556 101_0284 101_0557 101_0561

Svo er það hún Doppa fædd 2.ágúst.

  101_0509 101_0533 101_0549 101_0554 101_0555

Þetta er svo Skari hann er fæddur 2 ágúst. 

  101_0429 101_0432 101_0434 101_0457 101_0504

101_0505 101_0530 101_0539 101_0542 101_0517

 Þetta hér er svo Júlla eða Jello svolítið misjafnt hvað ég kalla hana. Hún er fædd 2 ágúst

  101_0438                 

. 101_0506 101_0473 101_0507 101_0446 101_0402 101_0508 101_0540 101_0541 101_0293 101_0481

 Þau eru öll blíð og kelin og fyrir löngu síðan farin að nota sandkassa og borða allt..Vandamálið er að mamma þeirra eldro er bomm aftur..Frownog trúlega hin líka en eins gott að láta taka úr sambandi og sennilega fóstureyðing um leið.....

  101_0491 101_0328 101_0495 101_0497 101_0498 101_0499

101_0500 101_0513 101_0514 101_0521 101_0526

 


Góður ráðgjafi hehehe ....

Hjón nokkur fóru til ráðgjafa eftir 20 ára hjónaband. Þegar ráðgjafinn spurði hvað væri að, hóf konan raust sína og var mikið niðri fyrir.

Í góða stund hélt hún áfram og kvaðst vera einmanna, afskipt, í ástlausu sambandi og taldi allar raunir sínar í þau 20 ár sem þau hefðu búið saman.

Þegar ráðgjafanum fannst nóg komið stóð hann upp og gekk fram fyrir skifborð sitt, bað konuna að standa upp og kyssti hana innilegum kossi. Karlinn varð ekki þetta litla hissa og konan settist niður eins og í leiðslu.

Ráðgjafinn sagði: ,,Þetta er það sem konan þín þarf á að halda. Þetta verðurðu að gera að minnsta kosti þrisvar í viku. Getur þú gert það?".

Maðurinn svaraði að bragði: ,,Ja, ég get skutlað henni hingað á mánudögum og miðvikudögun, en á föstudögum er ég upptekinn við að veiða". LoL
 
 


Næsta síða »

Nota bene

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BEAR MARK OF THE BEAST!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... ingaorama@gmail.com   

CHEMTRAILS OR?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

"Better to know little about a lot..than much about one thing" http://alvaran.com/forum/ http://ingaorama.vodspot.com.vodspot.tv/ http://vodpod.com/ingaorama http://www.twitter/INGAORAMA

Nýjustu myndir

  • ...100_2216-3
  • ...umama_urinn
  • ...cine_937812
  • ...1_28vaccine
  • ...kraine_dees

Nýjustu myndböndin

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

How Healing Becomes A Crime 1of 3

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband