Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

Pólitikín sú lóðatík og umhverfi hennar ekkert breyst síðan 2005 samkvæmt þessu...

Þá hefur enn eitt árið runnið sitt skeið..

Þá er víst nýtt ár gengið í garð enn á ný.. Ég var að lesa yfir það sem ég hef skrifað  annarsstaðar frá því í lok des 2005 um það sem snýr að blessaðri politíkinni..þeirri lóðatík.. Merkilegt hvað ekkert hefur breyst þar á einu ári..Það er svo sem gott að geta gengið að sumum hlutum vísum..ár eftir ár.
Þetta skrifaði ég 30 des.2005..sé ekki betur en að allt sé eins núna í lok ársins 2006.. Eini munurinn er jú bara ártalið.
Læt þessi skrif mín fylgja hér.
Þá fer þessu blessaða ári (2005) senn að ljúka..

Misjafnt hefur sennilega árið verið hjá okkur öllum. Sumum gott ár öðrum því miður ekki. En svona er þetta jú bara.. Við endum flest öll með þá ósk í hjarta að nýja árið verði betra en það sem er að ljúka..

En ég verð að viðurkenna að politískt séð þá finnst mér nú ansi mikið hafa borið á misræmi í loforðum og efndum hjá ráðamönnum þjóðarinnar og ansi mikill munur á því hvað þeim finnst eðlilegt að hinn almenni íslendingur eigi að vera með í laun miðað við þá sjálfa..
Meðan stór hópur fólks á að sætta sig við um 100.000kr á mán þá finnst þeim sjálfum ekkert athugavert við að vera með á bilinu 500.000 og ríflega miljón á mánuði í laun.......nú eða x millur...hvað er það á milli "vina"...

Þannig að ég reikna með að margir endi ekki árið með neitt alltof fallegum hugsunum til þessara aðila sem sjá ekkert athugavert við það að fá hátt í mánaðar laun, það sem eru árstekjur öryrkja/ellilífeyrisþega og annarra minnihlutahópa.
Það eru greinilega orðnir miðað við þennan mikla launamun 2 þjóðfélagshópar í landinu, en það er hástétt og lágstétt.
Það er ekki lengur orðið til millistétt en það var það jú einu sinni...
Svo eiga þessir aðilar enn lengri frí en hinn almenni íslendingur allt út frá gömlum lögum sem voru jú barn síns tíma, þ.e. á meðan að meiri hluti alþingismanna voru bændur..
Þeir þurftu jú að komast í sauðburðinn á vorin og þinglok miðuð út frá því.
Upphaf þings á haustinu tóku mið af því að þeir þyrftu nú að klára að smala og slátra áður en þing var sett..
Svo miðast jú jólafríið við fengitíma blessaðar sauðkindarinnar.. Það þarf jú að "hleypa" til svo að fæðist fín og flott lömb.. Þannig að jólafrí alþingismanna er jú í reynd "fengtíma" frí.
Hverju skyldu alþingismenn vera að "hleypa til" í dag?

En væri nú ekki eðlilegt að henda þessum lögum út?
Ekki síst vegna þess að það er eiginlega bæði búið að útrýma bændum og rollum? Það finnst mér allavega...
Þetta finnst mér að eigi að vera ein af lagabreytingum á nýju ári.
Það er að alþingismenn sitji jafn lengi á þingi og börnin okkar á skólabekk og þeir komi saman aftur á sama tíma og skólarnir byrja og að jóla og páskafrí hjá þeim séu jafn "stutt" og er hjá börnunum okkar..
Finnst það helvíti hart að þeir ætlast til af yngstu kynslóð landsins meira en af sjálfum sér ..
Svo þegar þetta lið kemur saman núna eftir jólafrí þá fer mestur tíminn fram að kosningum að lofa gjörðir stjórnarinnar frá síðustu kosningum og rakka niður hina...
Komið með nýja kosninga/loforða svika þulu, sem við jú flest gleypum allt hrátt..enn á ný..
Minni okkar er ekki lengra en þessi 4 ár..öll gömlu /sömu loforðin gleypa flestir hrátt...aftur og aftur...
En ég verð að segja að Davíð var klókur..hann kann sko á minni eða óminni okkar íslendinga.. Hann hafði vit á því að labba út akkúrat núna og rétta Halldóri stýrið á þjóðarskútunni...
Þannig að við munum bara eftir Halldóri við stýrið á skútunni þegar hún sökk...
Fyrsti stýrimaður býður jú yfirleitt eftir því að fá tækifæri til að verða skipstjóri á skútunni..
En það er svolítið ljótt af skipstjóranum að rétta honum stýrið er skútan er við að steyta á skeri og er að stranda...
En það getur enginn vænt Davíð um heimsku...margt annað en ekki það...
þannig að ég tel að sjálfstæðisflokkurinn eigi þegar upp er staðið eftir að græða á útgöngu Davíðs..en framsókn tapa..því langtíma minni fólks er jú svo lélegt..
Það mun bara muna eftir Halldóri í vor þegar að verður kosið...
Tek það fram að ég er hvorugum þessum flokkum hlynnt...Finnst venjulega sama skítafýlan að báðum...

Politískt séð er ég ekki ánægð með árið 2005..en þetta lið hefur jú að vísu staðið sig nokkuð vel í einu..en það er að svíkja lítilmagnann og traðaka á honum á skítugum skónum alveg upp í kok..
Réttara nota þann hóp sem fótaþurrku...Segi bara svei attan...Devil

Þannig að ég er reið fyrir hönd þeirra sem minna mega sín hér á landi..
Það þýðir ekki fyrir þetta lið að koma með einhverjar fallegar innihaldslausar lofrullur fyrir mig núna við lok þessa árs.
Það væri held ég mál til komið að þessir aðilar segi minna og standi við öll fallegu loforðin um betri tíð og blóm í haga handa lítilmagnanum, sem þeir telja okkur trú um að sé að renna upp.. jórtra á sömu tuggunni ár eftir ár og æla upp aftur sem belja í fjjósi...

Alltaf 1. jan hvert ár...sama gamla þulan..því miður gleypa flestir það hrátt.. aftur og aftur..
Agný.
sem átti ágætt ár en ég ætla ekki að þakka ríkisstjórninni það..
Læt hér fylgja vísu sem ég gerði fyrir um 20 árum síðan..greinilega lítið breyst síðan...
Stjórnin segir, allt þeir geri gott,
skattar, tollar og gjöld.
Viskunni ei það beri vott,
vandamálin sem hún er völd.

KETTLINGARNIR STÆKKA OG STÆKKA...MYNDIR

Þá læt ég loks verða af því að setja inn fleiri myndir af nýjustu meðlimum kattafjölskyldunnar. Þeir tútna sko út þó að Gosi eldri bróðir þeirra sé nú duglegur við að stela sér sopa með þeim..

101_0818101_0820101_0821101_0824101_0831101_0845101_0854101_0857101_0865101_0866101_0870

Ja og hjálpa mömmu að þrífa systkinin og svona stundum heldur hann að þetta seu mýs sem eigi að leika sér við..Ég var nú stundum smeik um að honum dytti í hug að éta þau svona fyrst...


KETTLINGAR 6 STK. FÆDDUST 15 & 16 NÓV. 2008 MYNDIR

101_0788Jæja ..þá er aftur orðinn kattahrúga hér..heil 6 kríli...3 strákar og 3 stelpur ..samkvæmt minni kyngreiningu ...

101_0795101_0790101_0789101_0791En Mátulega búin að fá heimili fyrir öll úr hinum hollunum tveimur.. 

Sótu gekk nú betur að koma þessum í heiminn en í sumar en samt smá "slys"..hún var ekki búin að slíta á milli sín og kettlingsins þegar henni datt í hug að hoppa úr þokkalegri hæð og niður á gólf og kettlingsgreyið datt á gólfið..

En hann lét sko aldeilis heyra í sér við þá meðferð ..og varð ekki meint af en blæddi slatta...Hann er eins og Ljóni sem var fyrsti í hollinu á undan með það að kunna að mjálma og þá meina ég sko hávært mjá strax nýfæddir..

En mátúlega búin að fá heimili fyrir öll úr hinum hollunum tveimur.. 

Sem betur fer er víst búið að biðja um úr þessu holli þannig að ég er mjög fegin að þurfa ekki að láta svæfa þau.

Hér fáið þið að sjá myndir af þeim og þau eru öll nema ein læðan gul en ein er mjög lík mömmunni á litin og hinar læðurnar tvær eru með hvítan annan framfótinn upp á herðablað og hin með hvítan blett á bakinu..Hinir  þrír  eru högnar.....og einn af þeim svona meira orange en hin sem eru öll með þennan beige lit ..

 

 


Kisubörnin öll búin að fá heimili...eins gott áður en næsta holl kemur....

Er enn með 6 stk kettlinga ..3 læður og 3 högna...

Svartur og hvítur högni kallaður Pési fæddur 20 júlí.101_0422

101_0421 101_0423  101_0318101_0355

 

Grá og hvítur högni kallaður Gosi fæddur 20 júlí.101_0294

 101_0301101_0564101_0489101_0526101_0530

Bleikgrá og hvít læða kölluð Kola (kolóttur nebbi) fædd 20 júlí líka

. 101_0313101_0556101_0284101_0557101_0561

Svo er það hún Doppa fædd 2.ágúst.

 101_0509101_0533101_0549101_0554101_0555

Þetta er svo Skari hann er fæddur 2 ágúst. 

 101_0429101_0432101_0434101_0457101_0504

101_0505101_0530101_0539101_0542101_0517

 Þetta hér er svo Júlla eða Jello svolítið misjafnt hvað ég kalla hana. Hún er fædd 2 ágúst

 101_0438                

.101_0506101_0473101_0507101_0446101_0402101_0508101_0540101_0541101_0293101_0481

 Þau eru öll blíð og kelin og fyrir löngu síðan farin að nota sandkassa og borða allt..Vandamálið er að mamma þeirra eldro er bomm aftur..Frownog trúlega hin líka en eins gott að láta taka úr sambandi og sennilega fóstureyðing um leið.....

 101_0491101_0328101_0495101_0497101_0498101_0499

101_0500101_0513101_0514101_0521101_0526

 


,, VAR ÞAÐ ÞESS VIRÐI ÞÚ VÍKINGUR ÚTRÁSARINNAR"?

Sálmur   

greed2

Var það þess virði
þú víkingur útrásarinnar
að láta land þitt að veði
svo legið þú gætir á allsnægtabeði
og kjamsað á ávöxtum ágirndar þinnar?


 
ATT2Var það þess virði
að veðsetja allt sem er dýrast
hneppa þjóð þína í helsi
hrifsa burt stolt hennar,

manndóm og frelsi
svo aleinn þú fengir í höllum að hírast?


 
landbuna_arkerfiVar það þess virði
að veita þér allt sem þú þráðir
ánetjast gleði og glaumi
gjálífið þreyja í óminnisdraumi
– uppskeru njóta, þó engu þú sáðir?


 
money_tree5

Var það þess virði
að verða svo sjúklega ríkur
– að eignast allt þetta glingur?
Er ekki í hjarta þér dulítill stingur?
Því sá á jú ekkert, sem yndið sitt svíkur.

(HÖF. ÓKUNNUR)


KATTARFJÖLSKYLDAN...Myndir..

Læt hér inn myndir af kettlinga hrúgunni...sem bráðvantar heimili svo ég þurfi ekki að láta svæfa þauCrying.......En svolítið fyndið að mamma eldri kettlinganna, hún Sóta, er ekkert að böggast yfir því þó að kettlingarnir hennar Blíðu smelli sér á spena hjá henni með hennar eigin eða bara ein og sér..má segja að þær séu " babysitter" hvor fyrir aðra eins og sést hér á myndunum..Þarna er það að vísu Blíða...

101_0016101_0018101_0030

5 þau elstu eru löngu orðin kassavön og sjálfstæð, eru öll einstaklega mannelsk..Þau eru öll komin með nöfn..Algjör keludýr og malmaskínur....Hin þessi yngri eru í þjálfun og komin vel á veg..Sem betur fer eru þau öll mjög námsfús...

101_0001101_0002101_0003101_0004101_0005

101_0006101_0007


DÖMUR. .....RYKIÐ HVERFUR EKKI.. EN DAGARNIR LÍÐA OG ÆFIN...

MUNDIÐ...image003.LAG  AF  RYKI  VERNDAR  VIÐINN  UNDIR  ÞVÍ...

HÚSIР VERÐUR  HEIMILISLEGRA  ÞEGAR  ÞÚ  GETUR  SKRIFAÐ „ ÉG ELSKA ÞIG“  Í  RYKIÐ  Á HÚSGÖGNUNUM.

 

ÉG  VAR  VÖN  EYÐA MINNST  8. TÍMUM  HVERJA  HELGI TIL ÞESS VERA VISS UM image001AÐ ALLT VÆRI FULLKOMIÐ    EF AÐ EINHVER  SKYLDI KOMA ÓVÆNT  Í HEIMSÓKN“ ... 

  LOKUM  UPPGÖTVAÐI   EG AÐ ÞAÐ KOM ENGINN Í HEIMSÓKN ..ÞAÐ VORU  ALLIR ÚTI AÐ SKEMMTA SÉR!!!

image004JÆJA.., EN  ÞEGAR   FÓLK  KEMUR  Í  HEIMSÓKN, ÞÁ  ÞARF ÉG EKKI AÐ ÚTSKÝRA ÁSTANDIÐ Á HEIMILINU ....

ÞEIR  HAFA  MEIRI  ÁHUGA  Á   HEYRA  UM  ÞÁ  HLUTI  SEM  ÉG  HEF VERIÐ   GERA  Á MEÐAN ÉG VAR  ÚTI Á LÍFINU  OG  SKEMMTA MÉR!!image006

 image005EF   ÞÚ  HEFUR  EKKI  UPPGÖTVAÐ  ÞETTA  ENNÞÁ ,

ÞÁ  SKALTU FARA  AÐ ÞESSU HEILRÆÐI:

LÍFIÐ  ER STUTT.  NJÓTTU  ÞESS!!!!!

ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR...

image007EN ÞAÐ EKKI MIKILL TÍMI  TIL;   AÐ  FÁ  SÉR  BJÓR , SYNDA  Í  ÁM  OG KLÍFA  FJÖLL , HLUSTA  Á   TÓNLIST OG  LESA  BÆKUR ,  FAGNA  MEÐ  VINUM  OG  LIFA  LÍFINU...

 ÞURRKAÐU  AF EF ÞÚ VERÐUR...EN  VÆRI  EKKI  BETRA AÐ MÁLA  MYND  EÐA  SKRIFA BRÉF, BAKA SMÁKÖKUR  EÐA  KÖKUR  OG  SLEIKJA SKEIÐINA,   EÐA SÁ FRÆI.   

HUGLEIDDU  MUNINN Á MILLI  ÞESS SEM ÞÚ VILT EÐA ÞARFT...

ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR,   EN  HAFÐU Í HUGA  AÐ ELLIN  KEMUR  MEÐ  SÍNU  GRÁU HÁR  OG HÚN  ER  EKKI  ALLTAF GÓÐ...

ÞURRKAÐU   AF  EF ÞÚ VERÐUR ...EN  HEIMURINN  BÍÐUR  EFTIR ÞÉR ÞARNA  ÚTI... MEÐ SÓLSKINIÐ  Í  AUGUM ÞÍNUM,  VINDINN Í HÁRI ÞÍNU, FLÖGRANDI  SNJÓKORN,  FÍNGERÐUR REGNÚÐI...

ÞESSI  DAGUR  KEMUR  EKKI AFTUR...OG  ÞEGAR  ÞÚ  FERÐ  – OG  ÞÚ VERÐUR AÐ FARA...ÞÁ MUNT ÞÚ SJÁLF SKAPA MEIRA  RYK!!

DEILDU  ÞESSU  MEÐ ÖLLUM  ÞÍNUM  GÓÐU  VINUM SEM ERU Í ÞÍNU LÍFI...

ÉG GERÐI ÞAÐ...

ÞAÐ ER EKKI ÞAÐ SEM ÞÚ SAFNAR,  HELDUR ÞAÐ SEM ÞÚ SÁIR,  SEM SEGIR TIL UM ÞAÐ HVERNIG LÍFI  ÞÚ  HEFUR  LIFAÐ..

 P.S.

AÐ VÍSU ER BÆÐI HÚSIÐ OG ÉG RYKFALLIN NÚNA...BÚIN AÐ VERA MEÐ LUNGNABÓLGU, BARKABÓLGU  OG BARA NAME IT...RÁM EINS OG GÖMUL KRÁKA.. Í NOKKRAR VIKUR.

MEÐ HÚSIÐ FULLT AF KÖTTUM  12 STK SAMTALS......9 KETTLINGUM  SEM BRÁÐVANTAR HEIMILI....

100_9951100_9959100_9952

5.  EIGA "AFMÆLI"  Í DAG ....OG ERU FARIN AÐ KLIFRA UPP ÚR BÆLINU OG SKOÐA HEIMINN... AUMINGJA SÓTA ER ALVEG RINGLUÐ VIÐ AÐ FYLGJAST MEÐ ÞEIM...

ÞETTA FER AÐ VERÐA HÉR EINS OG HJÁ GUÐRÚNU Á. SÍMONAR...JA REYNDAR MINUS SÖNGINN...

SVO ERU  HÉR 4. STK SEM FÆDDUST  BLÍÐU 2. ÁGÚST..."PABBINN" KÍKTI Í HEIMSÓKN ÞEGAR MAMMAN SKRAPP ÚT...AÐEINS AÐ REYNA AÐ SIÐA "BÖRNIN"...OG  SINNA "FÖÐUR"  HLUTVERKINU...

100_9851100_9924100_9931

100_1334-1HÉR ERU SVO MYND AF FRÍÐU  (mömmu Blíðu en hún er eins og sést þokkalegur Bengali..en því miður komin yfir móðuna miklu...)

HÉR ER SVO HANN "AULA" BÁRÐUR (AULA VIÐBÓTINA FÉKK HANN EFTIR AÐ HANN MISSTI SKOTTIÐ..) EN HANN ER SKO EINSTAKLEGA SPES KATTARDÝR....

100_2066-1

100_1520-1

ÞESSAR MYNDIR ERU AF BLÍÐU ÞEGAR HÚN ER UM 1 ÁRS ....AÐ "GÁ TIL VEÐURS"

100_3504

100_3505

HEILRÆÐI   DAGSINS  FYRIR  20. ÁGÚST.

Verkefnið verðu að  fjalli  þegar  þú hefur það fyrir framan þig í heilu lagi.   Ef  þú brýtur það niður í smærri einingar, sem auðveldara er að ráða við, verður mikið léttara að ljúka því og láta það ekki dragast..


KETTLINGAR..4 BÆTTUST VIÐ 2. ÁGÚST...ÞANNIG NÚNA 9 KETTLINGAR Á HEIMILINU..HJÁLP!!

100_9661Jæja .það fjölgaði í kattafjölskyldunni aðfararnótt 2. ágúst..bættust 4.stk við í 100_9662100_9701100_9706100_9727

hópinn þegar Blíða gaut.. þannig að núna eru 9 kettlingar á heimilinu.  Það gekk vel hjá henni ..ekkert vesen ..enginn kom afturábak.. eins gott...

Hún fékk 3 læður og 1 högna en er akkurat öfugt hjá Sótu, 4 högnar og 1 læða.. Högninn er sá sem er  svartur og hvítur (sá sem er meira svartur)Þessir eru ekki með sama litinn og fyrra gotið nema ein læða sem er með sama lit og pabbinn...

En mig  er farið að vanta fjölskyldur fyrir þessar dúllur svo ekki þurfi að svæfa þau ...

Set líka myndir hér af "pabbanum" 100_9585þegar hann kom í heimsókn til hinnar barnsmóður sinnar, hennar Sótu....Reyndar kom hann líka í heimsókn eftir að Blíða gaut..Hún urraði á hann fyrst en 100_9586100_9588100_9590100_9596svo "kysstust" þau...Verð að játa að ég veit ekki fyrr til að högnar haldi svona tryggð við barnsmæður sína..ekki allt karlkyn svo trygglynt...


KETTLINGARNIR STÆKKA OG STÆKKA. MYNDIR.

100_9425100_9315Já það vantar ekki að þetta eru algjör krútt...en þetta er nú að verða svolítiðextreme stór kattafjölskylda ekki síst þar sem von er á öðru holli100_9409 100_9423100_9431...Þannig HJÁLP... einhverjir sem vilja gefa þessum dúllum heimili og hugsa vel um þá líka er vel þegirð svo að ekki þurfi að svæfa þau. 

Sá sem fyrstur kom í heiminn er sko the king of the jungle..100_9433hann kunni sko að segja mjá og ekkert smá hátt dags gamall...

Þannig að hann hefur sko karakter en hin svo sem líka en ekki svona ákveðið og kanski frek...The king er búinn að opna augun...merkilegt  hvað þetta er 100_9512 100_9514100_9515100_9513bráðþroska...The King er beige og hvítur.   Þau eru að vísu 3 með þann lit. Mamman er komin af Bengali köttum en þeir mala ekkert smá hátt og meira svona mjárr..mjurr og ruurr en Sóta mamma þessarra er ekkert mikið að tala við kettlingana...100_9584 Amman og langamma kettlinganna hefðu báðar getað gengið sem hreinir bengalir á móti þær voru báðar með réttu litasamsetninguna. Því miður erfðu þessir ekki þann lit en sýnist á öllu skemmtilega karakterinn.  The King er sá eini sem á afmæli 19 júlí af þessu holli. Hin eru 20 júlí..
En hann er sem sé rétt viku gamall og ég man ekki eftir svona dugnaði og hann sýnir hér af neinum kettlingum sem fæðst hafa hjá mér..

Hvað þá að mjálma með rödd eins og fullorðinn...En hann er á litinn nákvæmlega eins og pabbinn,

IMG_0040en sá vill búa hér líka þó að hann sé heimilisköttur..

Pabbinn er líka algjör kelurófa ætlar alveg að éta mann og leggur loppurnar á kinnarnar á manni...Ég á allavega rosa erfitt með að vera vond við ketti sem vilja skríða í skjól inn í þvottahúsið hjá mér..En þetta fer sko að verða gott ;-)..með kattastóðið... Maður fer að verða eins og Guðrún Á Símonar var...svona kattalega séð ..ekki sönglega...Núna eru hin svona að opna augun hvert af öðru en það er annar eins og The King á litinn en heldur minni sem ætlar greinilega að keppa við The King... ´


5 KETTLINGAR BÆTTUST VIÐ KATTAFJÖLSKYLDUNA 19 OG 20 JÚLÍ...

100_9227Er búin að vera að reyna að koma myndum og skrifum um þetta nokkrum sinnum..en þetta HotSpot dæmi hjá símanum er ekki alveg búið að vera að gera sig hérna ´Laugaveginum ....

 100_9240

100_9231En geri eina tilraun enn og vona að skrifin týnist ekki út í ca fimmta skifti...100_9239

 100_9249100_9241

 

 

 

100_9256100_9255100_9254 100_9259

Hvað Hvað um það....hér getið séð myndir af nýjustu meðlimum kattafjölskyldunnar...en svo er hin læðan líka 100_9290bomm og trúlega koma þeir kettlingar í heiminn í næstu viku eða um 100_9291verslunarmannahelgina og miðað við lúkkið á læðunni þá reikna ég með 5 stykkjum þar líka...

...ÞANNIG...CA 15 100_9294STK - 20 VERÐA ÞÁ Á FERÐINNI....FrownKanski ég flytji bara að heiman...spurning...það eru 4 högnar og ein stelpa í þessu holli... Læðan er beige á litinn..rosa pen dama...og fámálug....Högnarnir eru beige/white..gray/white...black/white...og það vantar sko ekki hljóðin(óhljóðin) í hann ..en sé hann eins og pabbinn í öðru en lúkkinu/litnum ..þvílíkt knús og smúts dýr...

En minn kvóti á "flækingsköttum "og "flækingskörlum" er sko gjörsamlega uppurinn..... En kettir þó skömminni skárri...af tvennu illu.. Þannig no more stray man or cat!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband