Leita í fréttum mbl.is

KOMNIR 5 FLOTTIR KETTLINGAR Í HEIMINN...3 FÆDDUST FYRIR KL 23 ÞANN 24 NÓV EN 2 EKKI FYRR EN MILLI 02:30 OG 03:00 SEM SÉ 25 NÓV..

BLIDA IMG_0508Er loksins að hafa mig upp í það að setja myndir af 5 krúttlegum kettlingum og stoltri mömmu sem var að vísu þokkalega rugluð í þessu í 2 daga á eftir.

En það er sú sem hvarf kasólétt í 2 mán í sumar og birtist svo ekki aftur fyrr en í lok ágúst..   bumbunni fátækari og engir kettlingar.. Hélt að hun væri afturgengin þegar hún birtist á glugganum grenjandi, grindhoruð og rennandi blaut  í ógeðslegri rigningu..

En fæðingarferlið hófst um kvöldmat á laugardagskvöldið þann 24 nóv.. og ég var ekki viðstödd fæðingu þessarra fyrstu 3  en ég var að vinna í bænum...

BLIDA OG BÖRNINSvo var ég farin að örvænta...búið að panta 5 kettlinga en einungis komín þrjú stykki um miðnætti og bólaði ekki á fleirum þó svo ég fyndi fyrir þeim utan á kviðnum á henni...

Allt í einu ákvað mín sko að það væri kominn tími á þessa tvo en þá var kl 2:30  og það kom hvitur og orange/bleikur strákur...

og hún malaði nú bara á meðan.... ( greinilega hörð af sér eins og "amman" Cool) svo bólar á einum svörtum og hvítum..

Þá vandaðist málið hann kom öfugur og mín bara malar og gerir ekkert annað... 

ég hélt að ég myndi slíta ræfilinn í sundur þegar ég var að reyna að ná honum út..    100_6752

Hún var heldur ekki að hafa mikið fyrir að hreinsa úr andlitinu á honum svo ég gerði bara munn við munn við hann og þá andaði hann og mjálmaði.. 

 En núna er hún orðin voðalega mikil mamma og ber nafn með réttu "Blíða"..kurrar og murrar jafnt á mig og kettlingana...

en hún er nú samt svolítið mistæk í því hvað hún er ekki pen við að leggjast hjá þeim..

hlassar sér ofan á þá svona hér og þar... 100_6754

 

 

 

En hér sjáið þið gersemirnar.. 3 stelpur og  2 strákar...eftir minni skoðun.. Tveir síðustu voru strákar...100_6768-1Síðasta myndin er tekin 27 nóv.. Á eftir að setja inn fleiri myndir af þeim... 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingju. Mikið er móðirin og börnin falleg.

Takk Agný mín fyrir tölfupóstinn. Hann var yndislegur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 29.11.2007 kl. 21:45

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Til hamingju rosa flottur hópur hjá henni. :)

Ester Sveinbjarnardóttir, 1.12.2007 kl. 23:55

3 identicon

Til hamingju, Inga og Keli !

Falleg fjölskylda, þarna. Í gærkveldi, skömmu fyrir miðnættið, varð Emelía okkar léttari, að einum, enn sem komið er. Heldur betur frjósemi, í dýraríki spjallsíðuhafa og vina, því Kassí hennar Önnu Karenar gaut, jafnframt einum.

Beztu kveðjur, í Borgarnes og í ríki Eydana / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 21:33

4 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

já flottir kettlinga  er þá ekki mekki að gera þessar dagar að hugsa um kisu gangi þér vil

Gulli Dóri

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 5.12.2007 kl. 22:51

5 Smámynd: Lára Þórisdóttir

hæ og til hamingju með kettlingana. hlakka til að koma og sjá þá alla áður en þeir fara eitthvað annað;) 

Lára Þórisdóttir, 6.12.2007 kl. 10:18

6 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Þetta er náttúrulega æðislegt! Til hamingju.

Gunni Palli kokkur 

Gunnar Páll Gunnarsson, 10.12.2007 kl. 21:55

7 Smámynd: halkatla

oh hvað þetta er æðisleg fjölskylda til hamingju elsku Agný  þetta er yndislegt, ég bara sá þetta ekki fyrren núna og segi bara hjúkk að ég næ að kommenta, hafið það sem best  (mamman líkist pínulítið henni Stjörnu, fyrstu kisunni minni sem ég fékk þegar ég var 11 ára)

halkatla, 14.12.2007 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband