Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

HJÓNAKORNIN OG MISSKILNINGURINN....verri en enginn skilningur ;-)

 
husband-and-wife-in-bed-funny-cartoon-photo
ELSKULEG  EIGINKONA  MÍN.
Á síðstliðnu ári hef ég reynt að hafa mök við þig 365 sinnum  Frown.
 
Hefur heppnast 36 sinnum sem er að meðaltali 1 sinni á 10 daga fresti .
 
Fylgjandi listi útskýrir afhverju ekki oftar....
 
 
54 skifti voru rúmfötin hrein, 
17 var orðið of framorðið,
49 skifti varstu of þreytt,
20 skifti of heitt,
15 skifti þóttistu sofa,
22 skifti höfuðverkur,
17 skifti hrædd um að vekja barnið ...
16 skifti varstu of sár...
12 skifti ekki rétti tími mánaðarins..
19 skifti þurftiR ÞÚ of snemma á fætur ....
9 skifti varstu ekki í stuði..
7  skifti sólbrennd..
6 skifti að horfa á mynd seint ...
5 skifti vildiru ekki rugla nýja hárgreiðsluna...
3 skifti sagðiru að nágrannarnir gætu heyrt í okkur .
9 skifti, sagðir að mamma þín gæti heyrt .... 
Af þeim 36 skiftum sem ég hafði árangur sem erfiði var hann ekki sérlega fullnægjandi  því að:
6 skifti þá lástu bara "þarna" 
8 skifti minntir þú mig á sprunguna í loftinu ..
4 skifti sagðir þú mér að drífa það af 
7 sinnum varð ég að vekja þig til að segja þér að ég væri "búinn"  ....
1 skifti var ég hræddur um að ég hefði meitt þig því að ég varð var við hreyfingu ... GetLost 
 
HÉR  ER  SVO  SVAR  EIGINKONUNNAR. .....
Elskulegi eiginmaður:
Ég held að þú hafir ruglast svolítið  Cool. 
Hér eru ástæðurnar fyrir því að þú fékkst ekki meira en þú gerðir:
 
5 sinnum komstu fullur heim og reyndir að r... kettinum  GetLost
36 sinnum komstu ekkert heim 
21 skifti "fékkstu" það ekki ...
33 skifti "fékkstu" það of snemma ...
38 skifti varstu að vinna yfirvinnu
19 skifti linaðist hann áður en hann komst inn ...
10 skifti fékkstu krampa í tærnar....
29 sinnum þurftir þú snemma á fætur til að fara í golf ....
2 sinnum hafðir þú lent í slag og verið sparkað í "kúlurnar" ....
.4 sinnum lenti "greyið" í rennilásnum of festist ...
3 sinnum varstu með kvef og lak úr nefinu á þér ....
2 sinnum varstu með flís í fingri ....
20 sinnum var löngunin horfin þegar þú komst heim eftir að vera búinn að langa allan daginn....
6 sinnum "fékkstu" það við að lesa dirty bók ....
98 skifti varstu upptekinn við að horfa á fótbolta, körfubolta og fleira í þessum dúr í TV   
Þau skifti sem að okkur "tókst" það, bara svo þú vitir :  
Ástæðan að ég lá hreyfingarlaus var vegna þess að þú " hittir" ekki og varst á fullu í lakinu...  ég var ekki að tala um sprunguna í loftinu, heldur að spyrja hvort þú vildir að ég væri á bakinu eða krjúpandi... 
það skifti sem þú fannst hreyfingu var vegna þess að þú rakst við og ég var að reyna að ná andanum ... Joyful
P.S.

Þannig að það er greinilegt að mikið er fólk lagið að misskilja og rangtúlka og útkoman eftir því eins og sést hér best Tounge

Agný.


Hvað finnst okkur ljótt og hvað ekki?.. Ja eða "má ekki".

Hvað ljótt og hvað ekki? Eða má ekki?
Er það ekki einmitt það sem þetta val sem er sagt að skapari oss hafi gefið okkur?
Að velja og hafna hvað okkur finnst um þetta og hitt? 
Þannig að það sem mér finnst fallegt getur þér fundist ljótt og öfugt.

Skoðana ágreining kalla sumir það þá.

Satt, auðvitað er það ekkert annað en mismunandi túlkun hvers og eins,

á sama hlut og aðstæðum hverju sinni.

En hvort að mín skoðun /túlkun sé sú eina sanna / rétta, er ekki málið.

Heldur hvað viðkomandi túlkar og skilur hið innra með sér. það er akkúrat það sem að mínu mati er tilveruréttur og hvers og eins og snýst um, en það er að fá að hafa sína eigin túlkun og skoðun á hlutunum.
Hvað með Einstein sem var rekinn úr skóla fyrir það að hann skildi og túlkaði alla hluti öðruvísi en þá var gert??   Hvers vegna erum við þá að apa eitthvað upp eftir honum í dag ,sem var algjör idiot að mati kennara hans á sínum tíma?( það má enginn vera gáfaðari en kennarinn..)
Jú , af því að bæði menn og tímar breytast. 
Hvað með Kopernikus og að jörðin var sögð flöt en hann sagði að hún væri hnöttótt?

Hvað er búið að drepa marga fyrir að hafa fylgt sinni eigin sannfæring?

Þó svo að það séu engin rök til fyrir henni,  með eða á móti?

 

Reynum bara öll að þora að vera við sjálf, upp á gott og vont, þó svo maður sé álitinn þvílíkt fífl, af því að maður þorir að standa upp og segja sína skoðun, þó að hún passi engan veginn við þjóðfélagið í dag.

Þjóðfélagið í dag er ekki þjóðfélagið á morgun!!!!!!!!!!!Kveðja Agný.

Teen Screen - National Fraud, þetta video og viðtal verðið þið að sjá!

 Það nýjasta hjá kananum er það að fara að láta öll börn /unglinga fara í "greiningu" fyrir geðsjúkdómum..þessi könnun / greining er fjármögnuð af lyfjafyrirtækjunum...eftir því sem ég skildi..er nema von að allir séu að bryðja geðlyf.. dry.gif

Horfið hér á myndina og hlustið
http://www.youtube.com/watch?v=RfU9puZQKBY

Hér er síðan sem sýnir þetta allt líka

Spurningarnar eru flestar í þessum dúr:
Hefur þú einhverntímann fundið til ótta fyrir því að gera eitthvað fyrir framan hóp af fólki?
Hefur þú einhverntímann fundið fyrir ótta?


Hver hefur ekki fundið fyrir þessu segi ég nú bara!!
Allir sem svara þessu með já,  eiga það á hættu að vera skikkuð til að éta geðlyf!!
Er þetta það sem við viljum að verði gert hér á landi líka?
Við erum nú þegar komin framúr kananum í Ritalin notkun..eigum heimsmetið þar..
við erum svolítið "meta" sjúk ( kanski ætti að setja alla hér á landi á lyf við þeirri "sýki" GetLost)
Held að við þurfum að vera á varðbergi í sambandi við þessi mál....
"það er of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í"
Agný.

VELVIRK BÖRN. ...EKKI OFVIRK...

Hvað eru "velvirk" börn spyrja kanski margir.
Í mínum huga eru það börn sem eru forvitin, spyrja spurninga, vilja vera mikið á hreyfingu, þurfa mikla athygli , eru tilfinningarík og láta sínar tilfinningar í ljósi hvort sem er um gleði eða reiði að ræða.
Þeim nægja heldur ekki svör sem eru “bara” eða “af því” eða “þú færð að vita þetta þegar þú verður fullorðin/nn."  
 
ritalin1Þetta eru einstaklingarnir sem spyrja oft okkur fullorðna fólkið “óþægilegra” spurninga, vilja fá að vita allt, en fyrir rest hætta þau að spyrja þegar þeim er aldrei svarað.
Má kanski segja missa móðinn og þá kemur leiði og þeim finnst kanski enginn tilgangur með því sem þau eiga að læra.
 

Þessir einstaklingar búa svo kanski yfir vissum sérgáfum sem fá aldrei notið sín eða er hlúð að því að í dag er mikið meira gert af því að allir eiga að vinna meira en minna hópvinnu í skólum /leikskólum.

 
Það er ekki síður mikilvægt að einstaklingurinn læri að vinna sjálfstætt og taka sjálfstæðar ákvarðanir út frá eigin ályktunum en að þau læri mest megnis að vinna í hóp.
Þegar út í heim fullorðinna er komið þá er maður ekki alltaf í hópvinnu en kanski meiri hætta á að manneskjan kunni ekki að vinna sjálfstætt, einmitt af þessari ástæðu að það er lögð of mikil áhersla á að vinna alltaf verkefni í hóp í skólum í dag.
Þeim sem gengur verr að læra græða vísu á hópvinnunni ,en þau sem eru klár þau fá aftur á móti ekki notið sín.
Má kanski segja að sá aðili sé sá sem er “kennarinn” þar.
 
Því miður virðist hið svokallaða velferðarkerfi okkar ekki gera ráð fyrir þessum einstaklingum sem ég vil kalla "velvirk" í dag.
Það eiga allir að passa inn í eitthvað fyrirfram kerfis staðlað box. (Eða í Ritalin box)..
Ef að viðkomandi gerir það ekki,þá er það einstaklingurinn sem eitthvað er að en ekki kerfið sem er gallað.
Í rauninni virðist vera gert í því að móta börnin okkar að kerfinu en ekki kerfið að þeirra þörfum eða hæfileikum. Það eiga allir að verða “meðal” Jón.

Þessi velvirku börn eru þau börn sem er verið að greina í dag unnvörpum sem ofvirk/hvatvís og oftar en ekki með athyglisbrest líka.

 Þó svo að börn hafi ekki alltaf mikla athygli fyrir því sem þeim finnst ekki skemmtilegt þá er það ekki athyglisbrestur.

Við fullorðna fólkið sýnum því sem okkur finnst leiðinlegt ekki mikla athygli eða hunsum það,

en það leyfist okkur af því að við erum jú fullorðin.
En börnin okkar mega það ekki. Ef að þeim finnst eitthvað leiðinlegt eða erfitt þá er mjög fljótt sagt að þau séu með athyglisbrest.
Ofvirk, ef að þau geta ekki setið kyrr og fylgst með öllu af einbeitni sem að kennarinn segir. Að vísu byrjar það ekki bara í skóla sem að börn eiga að sitja kyrr og hlusta.
Það er svo sem ekkert að því að börn læri það, en að úrskurða þau ofvirk ef að þau geta ekki alltaf setið kyrr er aðeins of mikið til ætlast af þeim að mínu mati.

Barnið er heldur ekki alveg með sama tímaskyn og við fullorðnu. Þeim finnst mjög oft 10 min sem 1 tími.

Það að ætlast til að börn á leikskólaaldri og fyrstu árum í grunnskóla sitji kyrr lengur en 15 mín getur verið alltof langt. Það sé í raun eins og 40 min hjá okkur fullorðnu.
Getum við fullorðna fólkið setið graf kyrr á fyrirlestri sem stendur í 40 min?
Hlustað allan tímann með fullri einbeitingu á það sem fyrirlesarinn segir?
Ég er allavega farin að iða mér í sætinu.. þoli líka illa að sitja svona lengi, fæ verki í skrokkinn..
 
Getur það ekki oft verið sama skýringin með börnin okkar?
 Þeim sé illt í líkamanum en kunna ekki að útskýra það en geta þessvegna ekki setið kyrr.

Þar að auki eru kennarar /uppalendur misgóðir í því að koma kennsluefninu / uppfræðslunni til skila og svo líkar börnum líka misvel við kennarana sína alveg eins og okkur fullorðna fólkinu líkar misvel við yfirmenn okkar.

Já og kennurunum líkar líka misvel við börnin, alveg eins og sumir yfirmenn leggja sína undirmenn í einelti á vinnustaðnum..

Þessir einstaklingar nenna heldur kanski ekki alltaf að hlusta á þig frekar en þú á þá.
Þessir velvirku einstaklingar skapa kanski meiri vinnu fyrir foreldra/uppalendur og kennara en hin börnin sem eru svona “þægilega meðfærileg”.
 
Þjóðfélagið hér á landi er í raun ofvirkt en ekki börnin okkar!
Það eiga allir að vera á fullu í lífsgæðakapphlaupinu en fyrir vikið verður lítill tími fyrir börnin okkar sem eiga jú síðar meir að erfa landið.
 
Velvirk börn :
eru mjög oft skapandi og hæfileikaríkir einstaklingar en þau fá kanski ekki þá örvun eða hvatningu sem þau þurfa til að virkja hæfileikana. Það getur skapað leiða hjá þeim og þá minnkar athyglin að sama skapi.
 
Hvernig væri að fara að virkja hæfileika einstaklingsins meir frekar en að gera í því að troða öllum í sama boxið?
Kanski verða blessuð velvirku (vel að hafa velvirk í einu orði sem mótvægi við ofvirk) börn engir gleðipinnar ef að þeirra þörfum er aldrei mætt...
En þau eiga að aðlaga sig að kerfinu að öllu leyti.
 
En að vísu mætti líka kalla þessi börn "hæfileikarík og skapandi" en hvar fá þau útrás fyrir það nema eftir einhverjum föstum kerfum og skorðum?
Einhverntíman var talað um það að "sniða sér stakk eftir vexti" en í dag sýnist mér að sníða eigi öll börn eftir fyrirfram ákveðnu sniði.
Það væri eins gott að tískan væri alveg jafn fast mótuð og sniðið sem að börnin okkar eiga að vera sniðin eftir. 
Svo er annað, það hefur enginn tíma í öllu þessu endemis "góðæri" sem nú á að vera svo mikið...
Ég tel persónulega að þetta svokallaða góðæris kjaftæði hafi kallað á þetta að einhverju leyti. Það vilja jú allir fá bita af "góð"æris kökunni..ja kanski réttara að kalla það "góð" æðis... 
 
Allir verða hálf óðir að einhverju leyti í að elta "góð"æris kálfinn.
Allir/flestir vilja eiga flottari hluti en nágranninn, fara til útlanda, eiga nýjan bíl eða helst fleiri en einn...

Því miður þá gleymist oft að skammta og skifta tímanum á milli þess sem aflað er og þeirra sem að maður segist nú vera að gera þetta allt fyrir..leggja þetta allt á sig.

Þannig að enginn hefur tíma til að sinna börnunum eða ala þau upp og kenna þeim.
Það væri kanski ekki svo vitlaus hugmynd að ráða " ömmu" og því ekki "afa" líka inn á heimilin, til þess að kenna börnunum hin ýmsu gildi mannlífsins annað en það sem þau læra af stjónvarpinu eða tölvuleikjum.
 
Það er örugglega nóg af eldra fólki sem hefði fullan áhuga á þessu, heldur en að hanga inni á elliheimili, jafnvel fullfrísk en þjóðfélagið er bara búið að "parkera" þessum einstaklingum.
Eða troða þessum elstu borgurum í annað box í þjóðfélaginu.
 
Því ekki að skoða þessa hugmynd?
Hún er ekki vitlausari en margt sem blessaðri ríkisstjórninni hefur dottið í hug um dagana...
Eini munurinn sýnist mér vera orðinn á elstu og yngstu þegnum landsins að þeir eru í sitt hvoru ferkantaða  "boxinu". ......
Agný sem þolir ekki box/kassa.

« Fyrri síða

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband