Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLMENN.....veitir kanski ekki af hjá sumum ;-) en vona samt að svo sé ekki...

                  AÐEINS FYRIR KARLA!!!!!!!

Athugasemd: Námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið.
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi: 


                 FYRRI DAGUR.......

HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT?

Skref fyrir skref með glærusýningu.

KLÓSETTRÚLLUR - VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM? 

Hringborðsumræður

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI..

Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)

DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?

Pallborðsumræður - nokkrir sérfræðingar

AÐ TAPA GETUNNI.

Að missa fjarstýringuna til makans - Stuðningshópar 

LÆRA AÐ FINNA HLUTI.

Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi - Opin umræða

                             SEINNI DAGUR...

TÓMAR MJÓLKURFERNUR: EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?

Hópvinna og hlutverkaleikir

HEILSUVAKT: ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM..

PowerPoint kynning


SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST.

Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar.


ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?

Ökuhermir

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM: GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA.

Fyrirlestur og hlutverkaleikir

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR.
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.


AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR.

Komdu með dagatalið þitt í tímann


AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR.
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.
Jæja ...þá hafið þið það ...það eru alltaf  til  námskeið fyrir allt....Cool

FLEIRI SKRÍTIN SKÝ.....MORE STRANGE "CLOUD´S"...

Ég ákvað að fara og taka myndir af  fleiri skrýtnum skýjum og skýjafari um kvöldmatarleitið. Það var að vísu ekki sama litadýrðin og í gær en allir litir eiga sinn sjarma..Þessar myndir eru allar teknar í garðinum hjá mér en hann er hannaður af náttúrunni en ekki skrúðgarðafræðingum..

100_5550100_5551

Sést í krossinn á kirkjuturninum, mismikið að vísu eftir því hvar maður stendur en maður hlýtur að vera blessaður í bak og fyrir..100_5557..... Ætlaði að setja fleiri myndir inn teknar á sama tíma en kerfið  blogg kerfið var sko ekki vinna nema á hraða snigilsins eða minna en það. Set hinar inn seinna.


MYNDIR AF UNDARLEGUM SKÝJUM.. STRANGE CLOUDS -KANSKI FELUSKÝ FYRIR UFO ? ?

Ég varð að æða út og taka myndir af þessum undarlegu skýjafyrirbrigðum og líka flottu sólarlagi en var úti alveg um miðnætti....

Ég læt þessar myndir sem ég smellti af allar hérna (fæstir virðast skoða myndaalbúm)100_5512 

Mynd 1.  Er tekin af lóð Grunnskólans.....ég varð að hafa allan pakkann á við öll elementin...með á myndinni..tré = jörð, sjó = vatn, sól = eldur , himinn/ský = loft.

 

 

Mynd 2. og mynd 3. Zoomaði inn stærsta skýið og svei mér þá að maður haldi bara ekkiþað geti verið UFO i felum þarna. Woundering  Meira að segja nokkur UFO..svona eins og  "móðurskip"og hin séu "dverg"skip.100_5515100_5513

Þetta er áfram við Grunnskólann..en déskoti er maður mikill klaufi að setja myndir inn hér svo að vel fari, ef ég væri að prjóna peysu þá held ég að ég væri sko næstum því búin að rekja hana alla upp..100_5522.100_5521

 Best að halda áfram að troða myndunum hér en ég held að endi með því að ég hafi skipulagt kaos..GetLost

100_5516100_5523

100_5524100_5520

100_5525

100_5530

100_5532100_5536

100_5537100_5538

100_5539100_5540

100_5544100_5545

100_5546100_5548

Vona að þið hafið gaman af þessum myndum.... 10 fyrstu myndirnar eru teknar frá skólanum nokkrar við merki Borgarness og af því...Restin er tekin úti í Brákarey..

 


TVÖFELDNI Í SAMBANDI VIÐ LYF .......

2.26accidentalStephen Pizzo November 16, 2004

 FDA gaf nýverið út viðvörun á RU-486, lyfinu sem er notað til að framkalla læknisfræðilegt fósturlát - eftir að 2 konur létust af annars flokks sýkingu, eftir að hafa tekið fóstureyðinga pilluna til að binda endi á þeirra meðgöngu.

En það var ekki fyrr en 27.000 manns höfðu dáið af völdum hjartaáfalls og slags, orsökun af töku gigtarlyfsins Vioxx, áður en FDA skipaði að það skyldi tekið af markaðinum.

 

Hvers vegna þetta ósamræmi?

Stephen Pizzo telur að það hafi mikið með það að gera hverjir græða á herferðinni í sambandi við lyfjagróða. Stephen Pizzo er fyrrum hermaður og rithöfundur fjölda bóka, þar á meðal New York Times mestsölu bókarinnar The Looting of America's Savings and Loans, sem var tilnefnd til Pulitzer. The Food and Drug Administration = FDA  er ekki beinlínis þekkt fyrir að vera " Jón spæjó" sem mætir fyrstur á staðinn.

" Hægur" og "varkár" er þeirra milli nafn - hægur til að samþykkja almenn lyf, sem gætu minnkað góða stóru lyfjafyrirtækjanna, varkár í því að segja eða gera eitthvað sem gæti skaðað "metsölu" þessara fyrirtækja.

Líkin þurfa fyrst að hrannast upp áður en FDA kippir gróðavænlegum lyfjum af markaðinum...   Sem gerir tilkynningu FDA 15 nov "04 svo óvejulega. Andlát konu einnar í Jan. síðastlíðnum olli því að FDA gaf út viðvörun á þessa svokölluðu "fóstureyðingar" pillu, RU - 486. Dauði konunnar var ekki í beinu sambandi við notkun pillunnar, heldur sýkingar sem kom eftir á. Þetta var einungis í annað tillfellið sem var tilkynnt um, eftir notkun RU - 486.  Samanborið við viðbrögð (Innskot Agný -eða skorts á viðbrögðum væri kannski réttara að segja. ) og aðgerða gagnvart metsölu gigtarlyfi Merck´s Vioxx. Viðvaranir í sambandi við það lyf er búið að flæða um heiminn í meira en 2 ár - viðvaranir sem FDA hunsaði. Sú pilla virkaði mjög vel í því sambandi við að losa fólk við verki, (Innskot Agný- fólk er jú verkjalaust þegar það er dautt)sérstaklega þá 27.000 aðila sem létust af völdum Vioxx. En Vioxx hafði "smá" aukaverkanir: hjartaáföll og slag .

Hversvegna tók það FDA svona langan tíma áður en þeir kipptu Vioxx af markaðinum? Kæmi þér það á óvart að peningar hefðu eitthvað með það að gera?  Jafnvel þó að það lægju beinharðar sannanir fyrir því að lyfið ylli þúsundum dauðsfalla á hverju ári?

Og öfugt, hversvegna var FDA svo fljótt að gefa út viðvörun á RU - 486, einungis byggt á 2 dauðsföllum sem ekki höfðu beint samband við það lyf?

Merck var/er stór styrktaraðili fyrir GOP ( Grand Old Party Republicans) og þeir ganga úr skugga um það að ráðnir séu þrýstihópar með sterk tengsl við herbúðir Bush.

Á meðan, RU -486 lét ekkert af hendi rakna... Þar að auki er fyrirtækið ekki einu sinni ameriskt heldur franskt..

(Kaninn er ekkert voða hrifinn af litlum stuðningi Frakka í sambandi við innrásina Írak... Innskot Agný).

Fyrirtækið hefur verið skotmark andstæðinga fóstureyðinga alveg frá því að RU - 486 kom á markað... Kristnir fóstureyðinga andstæðingar hafa haft nokkurn árangur í að skerða aðgengi að lyfinu, jafnvel í sambandi við læknisfræðilegar rannsóknir á öðrum möguleikum lyfsins og notkun þess.

Árangurinn varð sá að FDA hefur bannaði innflutning á RU - 486 frá 1989 til 1993.

 Andstæðingarnir hafa líka ýtt úr vör viðskiftabanni við franskt lyfjafyrirtæki Roussel - Udaf; dótturfyrirtæki þess er þýskt fyrirtæki, Hoechst A.G. ; sem og þeirra dreifingaraðili í USA og hafa hótað (heimtað) viðskiftabanná öll þau lyfjafyrirtæki sem auðvelda aðgengi á RU - 486.

En RU- 486 er það öruggt og virkt að notkun þess hefur stöðugt færst í vöxt í USA.

Þá kom endurkosning George W. Bush’s og hinir "sann"kristnu fengu sinn rétt... Einungis 2 vikum eftir kosningar sendi FDA frá sér viðvörum um RU- 486.. (tilviljun eða plott?  Innskot Agný.) George segist alltaf vilja sjá/skoða " góð vísindi" áður en að hann tekur erfiðar ákvarðanir í þeim málum.

Látum okkur sjá:  Merck halaði inn á hverju ári um 5 biljónir dala vegna sölu á Vioxx Merck lét hluta af gróðanum ganga til styrktar endurkosninga herferðar Bush og annarra GOP frambjóðenda til endurkosninga.. Skilgreining á GOP = Grand Ole' party synonomous for the Republican Party.  GOP: Grand Old Party (Republicans) GOP is an acronym for grand old party.  (Allt í allt, dældu lyfjafyrirtæki miljónum í mismunandi kosningasjóði; tveir-þriðju af því fóru til Rebublikana.)

FDA vissi í 2 ár að það væru til óhyggjandi sannanir fyrir því að Vioxx væri að valda dauða sumra neytenda þess, en gerðu samt ekkert.

Það var ekki fyrr en líkin voru orðin 27.000 og það var orðið ljóst að ekki var hægt að fela þau (líkin) lengur...að FDA skipaði Merck að taka Vioxx af markaðinum.

Fyrirtækið sem framleiðir RU - 486 er erlent og þessvegna eki leyft samkvæmt bandarískum lögum að styrkja kosningabaráttu í USA.

 Kosningasjóður Bush og GOP hefur ekki og mun aldrei fá eyri af sölu RU - 486. Ólíkt Vioxx, er RU-486  ótrúlega öruggt - öruggara en Vioxx er alveg víst.. og miklu öruggara en ólöglegar fóstureyðingar.

Dauði tengdur notkun RU- 486 var 1 af 200.000 samanborið við dauða 1 af 3.000 af völdum ólöglegra fóstureyðinga.

Þú sérð hvað er að ske hér?  Viðvörun FDA á RU- 486 var til að sýna þeim kristnu að þeir gerðu sko rétt í því að endurkjósa Bush.. Hann er sko maður sem kann að launa greiðann.... Hann stendur sko með þeim... Hann er einn af þeim..

Og ágóði þeirra "rétt"trúuðu er sko bara rétt að byrja að skila sér.

http://www.tompaine.com/articles/double_standards_on_drugs.php 

Þýðandi Agný.


Læknanemar fá eina gjöf á viku frá lyfjafyrirtækjum. Lyfjafyrirtæki útdeila fríðindum til lækna. Er það siðlaust af læknum að þiggja þau?

 drug-companies-2Þriðja árs læknanemar fá að meðaltali eina gjöf á viku eða sækja einn fund eða taka þátt í einhverri starfsemi sem að  lyfjaframleiðendur fjármagna.

Nemarnir fullyrða að þessi markaðsstening hafi ekki þau áhrif á þá að þeir verði eitthvað jákvæðari gagnvart vörum viðkomandi fyrirtækja, en rannsóknir sýna að þessi atriði og gjafir hafi áhrif á hvaða lyf þeir komi til með að skrifa upp á þegar þeir eru útskrifaðir.

  Yfir 80% héldu að þeir ættu rétt á þessum gjöfum.

  Í ný afstaðinni rannsókn var nafnlaus spurningarlisti  sendur til yfir 1.000 þriðja  árs læknastúdenta í 8 ólíkum skólum. Yfir 93% af nemunum var boðið eða krafðir af eldri læknum til að taka þátt í það minnsta einu matarboði á viku á kostnað lyfjafyrirtækja.58% nemanna töldu að gjafirnar hefðu ekki áhrif á starf þeirra.

Nærri 70% af nemunum töldu að þessar gjafir myndu ekki hafa áhrif á rekstur/starf starfsfélaga sinna.Tilhneiging var hjá nemunum að álíta að skólafélagar  þeirra væru líklegri til að verða fyrir áhrifum en þeir sjálfir yrðu.Yfir 80% héldu að þeir ættu rétt á þessum gjöfum.  Flestir nemarnir vissu ekki hvort að skólinn hefði einhverja stefnu í sambandi við að þiggja gjafir lyfjafyrirtækjanna.

Meiri líkur á að tiltaka viss lyf handa sjúklingi.

Rannsóknaraðilarnir komust að þeirri niðurstöðu að áhrif lyfjafyrirtækjanna gerðu það að verkum að nemarnir yrðu líklegri til að skrifa upp á eða fyrirkipa tiltekin lyf  handa sjúklingum, og að nemarnir þyrftu fræðast meira um það hvernig þeir eiga að takst á við gegnsýrðar auglýsinga herferðir.

 

Þessi rannsókn var partur af þema tölublaðs Journal frá American Medical Assosiation um læknisfræðilega menntun. Aðrar rannsóknir sýndu fram á það að standi  nemarnir  margar vaktir, þá eru þeir eins óhæfir í sínu starfi eins og væru  þeir drukknir.

Þeir eru líka  illa þjálfaðir til að takast á við sjúklinga frá hinum ýmsu menningarsvæðum.

http://www.mercola.com/2005/sep/22med_students_get_one_gift_a_week_from_drug_companies.htm 

Medical Students’ Exposure to and Attitudes About Drug Company Interactions A National Survey http://jama.ama-assn.org/cgi/content/short/294/9/1034  

Drug Companies Woo Medical Students: Study http://www.forbes.com/lifestyle/health/feeds/hscout/2005/09/06/hscout527820.html 

Lyfjafyrirtæki útdeila fríðindum til lækna. Er það siðlaust af læknum að þiggja þau?

http://msnbc.msn.com/id/7575967     20 april 2005.

By Robert Bazell Correspindent NBC News.

Dr. Arnold Kassanoff segir að besta gjöfin sem að han hafi fengið frá lyfjafyrirtæki, hafi verið ferð fyrir hann og frúna til Monaco 1982.

 Hvað hélt hann að fyrirtækið vildi fá í staðinn fyrir ferðina? “ Ja, ég vissi að þeir höfðu fundið upp lyf sem var bylting”. sagði Kassanoff. Og það var þetta lyf sem að þeir vildu að hann ávísaði til sinna sjúklinga. Kassanoff segir að gjafir frá lyfjafyrirtækjum – venjulega smáir hlutir eins og töskur, pennar, máltíðr- byrji strax í læknaskóla.

“ Frá þeim tíma er þér innrætt þetta”, sagði hann.

http://www.newstarget.com/003541.html

 Þegar við förum til læknis þá ætlumst við til þess að fá óhlutdræg ráð og kanski lyfseðil með einhverju sem geti hjálpað okkur.

http://www.healthfactor.info/002032.html  

Samt sem áður eyða lyfjafyrirtæki tugum miljóna dollara árlega í þeim tilgangi að sannfæra lækninn þinn til að ávísa þeirra lyfjum.

Hvernig geturm við þá vitað að læknirinn okkar sé að framkvæma með okkar hag að leiðarljósi en ekki  hag billion dollara lyfjarisanna?

Það er málið : Við getum það ekki!

Svipaðar greinar er líka að finna hér

http://www.newstarget.com/001895.html

en þar er yfirskriftin þessi:

Nýjar rannsóknir sýna að 94% af fullyrðingum markaðsetningu hafa  rauninni enga undirstöðu.

Frétta úrdráttur:

Þegar læknar fá dýrar gjafir og bakgreiðslur (mútur) lyfjafyrirtækjanna  þá verður umhyggjan fyrir sjúklingnum ekki í fyrirrúmi.

http://abcnews.go.com/Health/PainManagement/story?id=352367&page=1 

Þýð.Agný.


Vinsælt krabbameinslyf tengt hjartabilun., drepur frumur hjartavöðvans.

post-6-1154795923Vinsælt krabbameinslyf tengt hjartabilun.
Krabbameinslyfið Gleevec getur skemmt hjartað. Rannsókn staðfestir það að 10 hvítblæðis sjúklingar sem tóku Gleevec mynduðu alvarlega hjartabilun.
Rannsóknin leiddi í ljós að lyfið drepur frumur í hjartavöðvanum.

Novartis: Þörf á fleiri rannsóknum.
Gleevec (líka selt undir nafninu Glivec) heildar sala þess um allan heim var $1.2 billion fyrstu sex mánuði 2006.
Framleiðandi þess, Novartis lyfjasamsteypan heldur því fram að fleiri rannsókna sé þörf til þess að skilja að fullu hugsanlega hættu.

Læknar þurfa að vera meðvitaðir.
Höfundur rannsóknanna sagði að hann vildi vekja áhættu Gleevec og samsvarandi lyfja, þannig að læknar væru vakandi fyrir mögulegum vandamálum.           http://www.mercola.com/2006/aug/8/popular_...art_failure.htm

Nature.com July 23, 2006
http://www.nature.com/news/2006/060717/full/060717-19.html
Chicago Sun-Times July 24, 2006
http://www.suntimes.com/output/health/cst-nws-cancer24.html
Þýð.Agný.


BRANDARAR....kitl fyrir hláturtaugina...

BÍLABRANDARI.

Nú segir af Henry Ford bílakóngi. Henry deyr og fer rakleiðis til himna.

 

Við hlið himnaríkis heilsar Lykla-Pétur honum og segir:

Jæja, þú hefur nú verið sniðugur og góður strákur, og uppfinning þín,færibandið í bílaiðnaðinum, hún gerbreytti heiminum.

Í þakklætisskyni geturðu farið um að vild hér í himnaríki og hitt hvern sem er.

Henry hugsar sig um og segir svo:

Mig langar að hitta Guð sjálfan. Og Pétur fer með Henry að hásætistróninum og kynnir hann fyrir Guði.

Henry spyr guð síðan: Þegar þú fannst upp konuna - hvað varstu þá að  hugsa?.

Guð spyr á móti: Hvað meinarðu? -  

Sko, segir Ford, það eru nokkir meiriháttar hönnunargallar á  uppfinningu þinni.

1. Það er alltof mikil frambygging.

2. Hún talar alltof mikið á miklum hraða.

3. Viðhald og viðgerðarkostnaður er ógurlega mikill.

4. Hún þarfnast stöðugt endurmálunar og snyrtingar.

5. Hún er í ólagi 5-6 daga á fjögurra vikna fresti.

6. Afturendinn vaggar alltof mikið til og frá.

7. Inntakið er alltof nærri púströrinu.

8. Höfuðljósin eru oftast alltof lítil.

9. Eldsneytiseyðsla er alveg hrikaleg.-

Hmm, svarar guð, bíddu augnablik og fer yfir í hvelfinguna þar sem ofurtölvan er, slær inn nokkur lykilorð og bíður eftir niðurstöðum. Á skömmum tíma prentar tölvan út skýrslu og guð les hana.

Hann snýr sér síðan að Ford og segir:

Það getur vel verið að uppfinning mín sé gölluð en samkvæmt þessum upplýsingum þá "aka" miklu fleiri minni uppfinningu en þinni.GrinToungeLoL

ERU TÖLVUR KVENKYNS EÐA KARLKYNS?

Prestur nokkur hafði oft velt því fyrir sér hver­s­ kyns tölvur væru.

Til þess að fá svar við þessari spurningu setti hann upp tvo hópa tölvusénía.

Annar hópurinn saman­stóð af konum, en hinn hópurinn af karl­mönnum.

Hvor hópurinn um sig átti að ákvarða hvort tölvur ætti að kalla kar­kyns eða kven­kyns.

Hver hópur átti að gefa upp 4 ást­æður fyrir niður­stöðum sínum. 

Kvenna­hópurinn sagði að tölvur væru karl­kyns vegna:

1. Til að ná at­hygli þeirra þyrfti að kveikja á þeim (turn them on).

2. Þær hafa mikið af gögnum, en vita samt lítið.

3. Þær eiga að hjálpa manni að leysa vanda­mál en þær eru oft vanda­má­lið.

4. Um leið og þú skuld­bindur þig einni, gerir þú þér grein fyrir að ef þú hefðir beðið að­eins lengur hefðir þú getað fengið þér nýrra módel.  

Karla­hópurinn sagði að tölvur væru kven­kyns vegna:

1. Enginn nema höfundurinn skyldi innvortis rök­fræði þeirra.

2. Hið frum­stæða tungu­mál sem þær nota til að hafa sam­skipti við aðrar tölvur er óskiljan­legt öllum öðrum.

3. Jafnvel þín smæstu mis­tök eru geymd í lang­tíma minni hennar til að geta nálgast seinna.

4. Um leið og þú skuld­bindur þig einni þá ertu farin að eyða drjúgum hluta tekna þinna í   ýmsan auka­búnaðGrinToungeLoL 

10 RÁÐ TIL AÐ VIÐHALDA FÝLU.

Talaðu ekki við neinn sem gæti verið upplífgandi.

Lokaðu öllum gluggum og andaðu að þér fúlu lofti.·

Pældu í því hvað þú átt bágt – miðað við alla hina.·

Farðu seint að sofa – þá verður svo ljómandi fúlt að vakna.·

Hentu tannburstanum – og fýlan verður áþreifanleg.·

Úðaðu í þig sælgæti – og fýlan breytist í ósvikið þunglyndi.·

Segðu já þegar þú meinar nei.·

Hreyfðu þig sem minnst – annars hressist þú of mikið.·

Ákveddu að öllum sé illa við þig – og hefndu þín á þeim.

FJÓRAR TEGUNDIR KARLA.

Hann sem ekki veit og veit ekki að hann veit ekki. Hann er flón. Forðist hann.

Hann sem ekki veit og veit að hann veit ekki. Hann er einfaldur. Kennið honum.

Hann sem veit og veit ekki að hann veit. Hann er sofandi. Vekið hann.

Hann sem veit og veit að hann veit. Hann er gáfaður. Fylgið honum.

 

BRÉF FRÁ MÖMMU TIL SONAR.

Kæri sonur !!!

Aðeins nokkur orð til að láta þig vita að ég er enn á lífi.

Ég rita þetta mjög hægt því ég veit að þú ert ekki fljótur að lesa.

Þú munt ekki þekkja húsið okkar aftur þegar þú kemur heim !! Við erum flutt.

Pabbi þinn hefur fengið nýtt starf, hann hefur verið settur yfir fjögurhundruð manns,

hann er sláttumaður í kirkjugarðinum.

 

Diddi frændi þinn drukknaði í síðustu viku í wiskytanki í Dublinarbrugghúsinu.

Vinnufélagar hans reyndu að bjarga honum en frænda þínum tókst að hrekja þá í burtu.

Lík hans var brennt en það tók þrjá daga að slökkva eldinn.

 

Ég fór til læknis um daginn og fór pabbi þinn með mér.

Læknirinn setti slöngu upp í mig og sagði að ég mætti ekki opna munninn í tuttugu mínútur.

Pabbi þinn keypti tækið þegar í stað!!! Það rigndi aðeins tvisvar í síðustu viku, fyrst í þrjá daga og síðan í fjóra.

Á mánudaginn var svo hvasst að hænurnar verptu sama egginu fjórum sinnum.

Við fengum bréf frá Líkvaldi grafara og hann segir að ef síðasta afborgun vegna útfarar ömmu þinnar verði ekki greidd innan þriggja daga verði hún grafin upp.

Þín elskandi móðir ætlaði að senda þér þúsund krónur en því miður var ég búin að loka umslaginu. Þúsund kossar.GrinToungeLoL


" GÓÐ" ÆRI eða " GÓÐ " ÆÐI....

Það er ansi kaldhæðnislegt að hlusta á seðlabankastórann..hann virðist  engan veginn vera fær um að setja sig í spor þeirra sem minna mega sín í þessu landi sem á jú að sögn að vera okkar allra sem á því búum, en ekki fárra útvalda toppa.
En eftir skilgreiningu geðlækna myndi hann flokkast siðblindur... mér finnst allavega lýsingin inni á doktor.is passa nokkuð vel við hans framkomu og framkvædir nú sem fyrr...þar sem hann getur ómögulega séð neitt rangt við sína tvöföldu framkomu..og framkvæmdir....
Þetta er lýsingin inni á doktor.is
en þeir sem eru það eru sjálfmiðaðir og sjálfumglaðir einstaklingar
(svona ég um mig, frá mér til mín...persóna),
"eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og að taka tillit til þeirra,
eiga erfitt með að taka gagnrýni og sjá öllu jafna enga ekki sök hjá sjálfum sér"
og hafa lítið innsæi í eigið sálarlíf..


Miðað við þessa upptalningu þá er ekkert skrítið að hann sjái ekkert athugavert við það að honum séu úthlutað launahækkun á mán sem er 100.000 kallinum minna en það sem öryrkjar mega hafa á einu ári í laun á almennum vinnumarkaði á einu ári án þess að bæturnar skerðist.
Hann hefur jú ekki úr nógu að moða karlgreyið.. dry.gif er hann ekki "bara" með tæplega 2 miljónir á mán???????

Málið er að versni nú heilsan enn hjá þeim sem reynir að vinna ( en vinnuveitendur virðast nú frekar vilja mállausa útlendinga í vinnu hjá sér en öryrkja eða eldri borgara) og hefur lent í því að bæturnar hafi skerðst og getur svo ekkert unnið árið sem skerðingin kemur inn á, þá er það ekki fyrr en árinu þar á eftir sem leiðréttist aftur...
Þetta fyrirkomulag gerir það að verkum að einstaklingar sem geta kanski unnið létta vinnu og stuttan vinnutíma en vita samt kanski aldrei hvort heilsan leyfi að þeir mæti næsta morgun leggja hreinlega ekki í að sækja um vinnu og hafi þeir vogað sér það þá er það sjáldnast að vinnuveitandann vilji þannig einstakling í hóp sinna starfsmanna.....
Þetta er nú bara staðreyndin.

Svo talar hann um að "við" ( HVAÐA VIÐ..MÉR ER SPURN...) þurfum nú að sýna aðhald má segja í sömu andrá og hann tekur við 200.000 kallinum....ég hræki á svona hræsnara mad.gif

Það er löngu sannað að hann telur sig vera mörgum hæðum ofar en allir aðrir þegnar landsins.
Hann sér ekkert athugavert við það að hinn almenni borgari /verkamaður er jafnvel með undir því sem nemur launahækkuninni sem að hann fékk....
Það eru ekki bara öryrkjar og eldri borgarar sem að ná ekki endum saman yfir mánuðinn....

Nei því miður hefur Davíð karlinn ekki enn hætt að stjórna út fyrir sitt valdsvið..en núna má segja að hann setji ofan í við sínar eigin aðgerðir og verk sem að hann kom á þegar hann var forsetisráðherra.....hann hefur sko ekki minni á við gullfisk ..nema eftir því hvað kemur sér betur fyrir hann hverju sinni....

En það er þar fyrir utan varla  lengur neitt lýðræði hér á landi nema á ppapírum og það fyrir nokkra sérvalda toppa í valdaklíkunni.
Það eru ekki lengur þrjár stéttir hér á landi, heldur bara tvær en það er hástétt og lágstétt, millistéttin er ekki lengur til eftir því sem ég fæ best séð..

En þetta land sem við búum í gerir sig jú út fyrir að vera þvílíka gnægtanna land á alþjóða vettvangi, það er ekki nema von að hingað flykkist fólk frá öllum löndum heims í von um sneið af "góð"æris kökunni, en réttara væri að kalla það "góð"æðis, sem að hann bakaði af rausnarskap sínum á meðan hann stýrði þjóðarskútunni....

Vonandi að restin af kökunni standi ekki í honum....en hann kann allavega að skammta sér stærri sneið en hinir "gestirnir" eiga að fá, og sumir verða algjörlega út undan og fá ekki einu sinni smá flís, varla að hrynji molar af "góðæris" kökunni á gólfið fyrir smælingjana að tína upp ...

Það var /er sko venjan ( allavega þaðan sem ég er) að gestgjafinn bjóði gestunum að fá sér "sneið" áður en hann skammtar sér, en það þykir dónaskapur ef að gestgjafinn skammtar sér helminginn af kökunni áður en að hann býður gestunum...

En þannig er landinu búið að vera stjórnað alltof lengi eins og ég lýsi hér að ofan og ég held að sé kominn tími til að þessir fyrrum forsetisráðherrar geti ekki átt bókað sæti í í bankastjórastól Seðlabankans þegar þeim "þóknast" að eftirláta öðrum forsetisráðherrastólinn ...
.
Alltof mikil spilling er látin viðgangast hér á landi, en hún er ekki mest hjá þeim sem minnst mega sín, heldur hjá þeim sem fara með völdin og fjármagnið í þessu landi... 
ÞAÐ SANNAST SKO ENN OG AFTUR AÐ ÞAÐ ER SKO ALLS EKKI ÞAÐ SAMA "SÉRA " JÓN OG "BARA" JÓN  HÉR Á LANDI .....ÓNEI EKKI ALDEILIS....
Þó að "ný"stjórn hafi verið mynduð þá er stór hluti hennar búinn að verma alþingisstólana alltof lengi.  Ég er ekki að kaupa nein loforð um eitthvað sem á að koma til framkvæmda svona  einhvern tímann á þessum 4 árum,  og öllu jafna  hefur það ekki verið fyrr en rétt fyrir kosningar sem á að fara að standa við öll gefnu kosningaloforðin, en eiga samt yfirleitt ekki þá heldur að
koma til framkvæmda fyrr en að afstöðnum kosningumGetLost...
Vona bara að hinir nýju meðlimir á alþingi gleymi sér ekki af sælunni einni saman yfir því að hafa
nú loksins komist í "sandkassann" og eiga nú loks að fá að leika við hina og stjórna leiknum ..
Ég vil sjá loforðin framkvæmd en ekki bara sem eitthvert orðagjálfur í fréttayfirlýsingum...
Í upphafi var jú orðið...... en hvað með efndirnar.....?

ÝMIS GULLKORN og VISKUSETNINGAR.

Angel in the sky.Fyrirgefning  breytir  ekki því liðna, en hún stækkar framtíðina. 

Kvartaðu ekki yfir eymd heimsins, farðu heldur og bættu úr henni.

Fernt er til gott í heimi hér: gamall viður í arineld, gamalt vín til að

dreypa á, gamlar bækur til að glugga í og gamlir vinir sem treysta má.

Af öllum þeim gæðum sem okkur veitir viturleg forsjá til ánægjuauka er

 vináttan dýrmætust.

Ástlaus erum við dauðleg, ódauðleg þegar við elskum. 

Nýkviknuð ást er ólgandi og villt, með aldrinum verður hún tær og stillt.

Ef þú átt 2 peninga skaltu kaupa brauð fyrir annan og blóm fyrir hinn, brauð til þess að lifa á og blómið til þess að lífið sé þess virði að því sé lifað.

Fólk notar peninga sem það á ekki til þess að kaupa hluti sem það hefur ekkert með að gera, til þess að ganga í augun á fólki sem því er ekkert um gefið..

Allir eiga tvennskonar vini: Þá sem eru við hendina þegarþú þarft á þeim að halda og þá

 sem eru við hendina þegar þeir þurfa á þér að halda.

Gifting er happdrætti þar sem maðurinn hættir frelsi sínu, og konan hamingju sinni...

Aðal munurinn á drengjum og fullorðnum mönnum er verðmunurinn á leikföngunum þeirra.

Maður móðgar konu horfi maður of mikið á þær og særir þær horfi maður ekki nóg á þær.

Á flugi sýnast sumir sem ernir, en reynast svo vera  kjúklingar er þeir lenda.

Karlmenn með skalla eru þeir sem þora ekki að standa upp í hárinu á konunni sinni, og

verða því að vaxa upp úr eigin hári..

Það má þekkja mann betur á því sem hann segir um aðra, en því sem aðrir segja um hann.

Það er ósiðlegt að fórna orðstír náunga síns  til þess eins að vera skemmtilegur.

Það sem fólk segir um þig á bak er staða þín í þjóðfélaginu.

Það eru til konur sem eru næstum því eins miklar kjaftakerlingar og karlmenn

Karlmaður rægir óvini sína, kona rægir vinkonur sínar.

Sá sem ætlar að segja sannleikann, segir mikið í stuttu máli.

Þegar slúðursögur verða gamlar breytast þær í goðsögn.

Kjaftakerling segir aldrei ósatt  -  geti sannleikurinn valdið jafn miklu tjóni.

Munurinn á fréttum og sögusögnum felst í því hvort þú segir þær eða heyrir þær.

Orðrómur er fréttaþjónusta hinna minni máttar.

gberinn gerir útaf við heiðarlegt fólk með hvísli.

Sá sem flytur þér fréttir af öðrum, flytur öðrum fréttir af þér.

Talaðu um aðra og þú ert kjaftakind, talaðu um sjálfan þig og þú ert öllum til ama.

Munurinn á frétt og slúðursögn felst í því hvort þú hækkar eða lækkar röddina.

Enginn þykist hafa áhuga á slúðursögum – en samt virðast allir njóta þeirra.

Sár eftir hnífstungu getur gróið en sár vegna söguburðar ekki.

Almenningur trúir hverju sem er – nema sannleikanum.

Syndin á sér mörg verkfæri, en lygin er handfangið á þeim öllum.

Tortryggnin heldur að sannleikurinn sé lygi, trúgirnin heldur að lygin sé sannleikur.

Mesti lygari heimsins heitir : ,, Fólk segir.“

Ár renna í eina átt, söguburður í margar áttir.

Enginn fer með kjaftasögur um um leyndar dyggðir annarra.

Söguburður snertir ekki hina dauðu, en getur valdið dauða þeirra sem lifa.

Talaðu ekki um sjálfan þig í samkvæmi, það verður gert þegar þú ert farinn.

Fólk trúir hverju sem vera skal, sé því bara hvíslað.


SOY er ekki heilsubætandi fæða..

soy ruled no health food

 

 

Heilbrigðisráðuneyti Israel sendi nýlega frá sér  beiðni til heilsuráðgjafa um að þeir mæltu ekki með neyslu á soy fæðu nema í hófi.

 

 

 

 

 

Þeir mæltu líka með því að fólk forðaðist algjörlega að gefa kornabörnum soy formula .   

 Hundruðir rannsókna tengja SOY við kvilla / röskun eins og:

Meltingar vandamál.

Truflun á starfsemi skjaldkirtilsins.

Athyglisbrest  (ADD) og  ofvirkni (ADHD)

Elliglöp

Æxlunar vandamál

Krabbamein

Plöntu ostrogen eru sökudólgurinn. (orsakavaldurinn) 

Israelska ráðuneytið byggði sínar ráðleggingar á niðurstöðum frá nefndum  næringafræðinga, barnalækna og oncologists og annarra sérfræðinga sem hafa eytt meira en ári í að skoða fáanleg sönnunargögn.

 

 

Þeir komust að þeirri niðurstöðu að ostrogen  í soy  (plöntu hormon sem samsvarar estrogen) geti verið skaðlegt.

Þeirra ráðleggingar eru í samræmi við þær sem settar voru fram af landlækni Bretlands og  bresku manneldis  samtökunum. 

Nefndin upplýsti þetta:

Fullyrðingar um að soy létti einkenni breytingaskeiðsins eru mótsagnakenndar.

Soy plöntu ostrogen valda aukinni hættu á brjóstakrabbameini.

Soy plontu ostrogen getur líka minnkað frjósemi karla.

 

Þeir uppgötvuðu þó að hafi verið sýnt fram á að soy  lækki kólestról í blóði, þá sé  það engin sönnun  fyrir því að það minnki hættuna á hjartasjúkdómum. 

Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að sannairnar fyrir óhollustu soy yfirgnæfðu mögulegt notagildi þess.

Þýð. Agný.

http://www.mercola.com/2005/aug/30/soy_ruled_no_health_food.htm

Mothering August

http://www.mothering.com/sections/news_bulletins/august2005.html#soy

Soy Formula Kills Three Babies

http://www.mercola.com/2003/nov/26/soy_formula.htm

Death by Veganism
http://www.soyonlineservice.co.nz/articles/veganism.htm


Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband