Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

FÓLKSFJÖLGUNAR STJÓRNUN: Leynilegar ófrjósemisaðgerðir á konum í Uzbekistan

Secret Sterilization of Women in Uzbekistan for Population Control

http://holyhormones.com/holy-hormones-honey-the-greatest-story-never-told/secret-sterilization-of-women-in-uzbekistan-for-population-control/

April 21, 2012 By Leslie Carol Botha Leave a Comment

Uzbekistan's policy of secretly sterilising women

http://www.bbc.co.uk/news/magazine-17612550

[Leslie Carol Botha: Hneyksli- hversvegna ekki gelda menn? 

Skera af þeim getnaðarliminn?   

Stríð gegn konum heldur áfram að vera beint gegn þeim saklausu. Hversvegna eru það konur sem eru taldar sem búfénaður nú á dögum og á barneignar aldri?]

Læknar hafa tjáð BBC að Uzbekistan sé með leynilegt verkefni í gangi til að gera konur ófrjóar- og hefur talað við konur sem voru gerðar ófrjóar án þeirra vitundar.

LEYNILEG STEFNA STJÓRNVALDA Í UZBEKISTAN UM ÓFRJÓSEMISAÐGERÐIR Á KONUM

 

 

An Uzbek woman and child

Adolat hefur sláandi útlit, hljóðláta rödd og leyndarmál sem hún skammast sín mjög mikið fyrir. Hún veit að það sem kom fyrir hana er ekki hennar sök, en hún getur ekki að því gert en að vera haldin sektarkennd.

Adolat kemur frá Uzbekistan, þar sem lífið snýst um börn og stórar fjölskyldur eru skilgreinging á persónulegum árangri. Adoalat lítur á sjálfa sem misheppnaða.

„ Hvað er ég eftir það sem kom fyrir mig?“ segir hún um leið og hún strýkur hár dóttur sinnar, stúlkunnar sem breytti lífi Adolat þegar hún fæddist.

„ Mig dreymdi alltaf um að eignast fjögur-tvær dætur og tvo syni- en eftir að ég eignaðist seinni dóttirina gat ég ekki orðið ófrísk,“ segir hún.

Hún fór til læknis og uppgötvaði að hún hafði verið gerð ófrjó eftir að yngri dóttir hennar var tekin með keisaraskurði.  ,, Ég var í sjokki. Ég grét og spurði: ´En hversvegna? Hvernig gátu þeir gert þetta?´

Læknirinn svaraði: ,, Þetta eru lög í Uzbekistan.“

Opinberlega eru ófrjósemisaðgerðir ekki lög í Uzbekistan!


En sönnunargögn sem BBC  hefur safnað gefa til kynna að stjórnvöld í Uzbekistan séu búin að vera með áætlun í það minnsta 2 ár um að gera konur ófrjóar vítt og breytt um landið, oft án þeirrar vitundar.

Erlendir fréttamenn eru ekki velkomnir í Uzbekistan, og seint í Febrúar á þessu ári vísuðu  stjórnvöld mér burtu úr landinu.

Ég hitti Adolat og margar aðrar konur frá Uzbekistan í Kazakhastan nágrannalandi þeirra, í nokkuð öruggu umhverfi. Ég safnaði einnig gögnum símleiðis og gegnum email, og í upptökum kom ég þeim út úr landinum með  hraðboða.

Engin kvennanna vildi gefa upp þeirra raunverulega nafn,  en þær  komu frá ólíkum stöðum í Uzbekistan og sögur þeirra eru í samræmi við það sem læknarnir og heilbrigðisstéttin í landinu sögðu mér.

 „ Ár hvert er okkur kynnt áætlun. Öllum læknum er sagt hversu mörgum konum er ætlast til að  við látum hafa getnaðarvarnir og hversu margar það eru sem á að gera ófrjóar.“ sagði kvensjúkdómalæknir frá höfuðborg Uzbekistan, Tashkent.

,, ÖLLUM LÆKNUM ER SAGT HVERSU MARGAR KONUR EIGI AÐ GERA ÓFRJÓAR- ÞAÐ ER KVÓTI segir kvensjúkdómalæknir í Uzbekistan.

Eins og allir læknar sem ég talaði við, kom hún fram undir nafnleynd.

Það að tala við erlendan réttamann gæti þýtt fangelsisdóm, í landi þar sem pyntingar í gæsluvarðhaldi eru algengar.,, Það er kvóti, Minn kvóti er 4 konur á mánuði ,“ ´sagði hún.

Tvær aðrar lækna heimildir gefa til kynna að þrýstingurinn sé sérstaklega mikill  á lækna í dreifbýlasta hluta Uzbekistan, þar sem ætlast er til af sumum kvensjúkdómalæknum að framkvæma allt að 8 ófrjósemisaðgerðir á konum í hverri viku.

„ Einu sinni eða tvisvar í mánuði, stundum oftar, kemur hjúkrunarkona frá heilsugæslu staðarins heim til mín til að reyna að fá mig til að fara í þessa aðgerð“, segir þriggja barna móðir í Jizzakh sem er svæði í Uzbekistan

„ Núna er þessi aðgerð ókeypis, en seinna muntu þurfa að borga fyrir hana, svo að þú ættir að fara í hana núna“, sagði hjúkrunarkonan við móðurina. Önnur móðir segir að hún hafi haft undarlega verki og miklar blæðingar í marga mánuði eftir að hún átti son sinn. Þegar hún fór í sónarskoðun uppgötvaðist það að móðurlíf hennar hafði verið fjarlægt.

„ Þau sögðu bara við mig, ´Hvað hefur þú með fleiri börn að gera? Þú átt nú þegar tvö,“ sagði hún. BBC safnaði svipuðum vitnisburði frá Ferghana Valley í Bukhara héraðinu og tveimur þorpum nálægt höfuðborginni Tashkent.

Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðisráðuneytinu, er ófrjósemis aðgerðar áætlunin ætluð til að stjórna vaxandi íbúafjölda í Uzbekistan, sem opinberlega er talinn vera um 28 miljónir. Sumir lýðfræðingar eru efins, vísa þó í þann mikla fjölda fólks sem hefur flutts til landsins síðan í síðustu talningu árið 1989, þegar íbúarnir voru í kringum 20 miljónir.

„ Við erum að tala um tugir þúsunda af konum sem er verið að gera ófrjóar vítt og breitt um landið,“ segir Sukhrob Ismailov, sem rekur vinnuhóp sérfræðinga (Expert Working Group), eina af mjög fáum óháðum stofnunum ( ekki ríkisrekin) sem reknar eru í Uzbekistan

Árið 2010, stjórnaði vinnuhópur stofnunarinnar sjö-mánaða langri könnun fagólks, og safnaði sönnunargögnum um 80.000 ófrjósemisaðgerðir á því tíabili, en það er engin leið til þess að sannreyna þær tölur, sumar aðgerðirnar voru jú framkvæmdar án vitundar sjúklingsins.

Frá fyrstu tilfellum þvingunar ófrjósemisaðgerðanna er skýrt frá árið 2005, af Gulbakhor Turaeva- meinafræðingi  sem vann í borginni Andijan, sem tók eftir því að komið var með leg ungra heilbrigðra kvenna í líkhúsið þar sem hún vann.

Eftir að hafa safnað sönnunum um 200 ófrjósemisaðgerðir sem gerðar voru  án leyfis, leitaði hún þær konur  uppi sem legið hafði verið fjarlægt úr, og fór í fjölmiðlana með uppgötvanir sínar og krafði yfirmann sinn um útskýringar. Í staðinn ráku þeir hana.

Árið 2007 var Turaeva fangelsuð, sökuð um að smygla andstöðu bókmenntum inn í landið. Eins og svo margir aðrir, þá neitaði hún að koma í viðtal fyrir þessa tilkynningu vegna ótta um öryggi sitt og barna sinna.

Árið 2007 skýrði einnig nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sem vinnur gegn pyntingum,  (United Nations Committee Against Torture ) frá nauðungar ófrjósemisaðgerðum og legnámi í Uzbekistan, og fjöldi tilfellanna leit út fyrir að lækka.

En samkvæmt heimildum frá fagólki, gáfu stjórnvöld í Uzbekistan út beina tilskipun árin 2009 og 2010 til heilsugæslustöðva um að vera með þann tækjabúnað til staðar til að geta framkvæmt umbeðnar  ófrjósemis skurðaraðgerðir ..

Árið 2009, voru læknar frá höfuðborginni einnig sendir til dreifbýlanna til að auka/kynna framboð ófrjósemisaðgerðar“þjónustunnar“...Það eru sannanir fyrir því að þá hafi fjöldi ófrjósemisaðgerðanna aukist aftur..

 „ Samkvæmt  pappírunum þá á ófrjósemisaðgerð að vera gerð með vilja konunnar, en konur eiga í rauninni ekkert val,“ sagði eldri læknir frá sjúkrahúsi héraðsins, sem bað um nafnleynd.

„ Það er mjög auðvelt að ráðskast með konu, sérstaklega ef að hún er fátæk. Þú getur sagt henni að heilsu hennar muni hraka ef að hún eignist fleiri börn. Þú getur sagt henni að ófrjósemisaðgerð sé best fyrir hana. Eða þú getur bara framkvæmt aðgerðina.“ (Innskot Agný. Án hennar vitundar?)

Fjöldi lækna sem ég talaði við sögðu að á síðustu 2 árum hafi orðið mikil aukning keisarafæðingum, sem veitir læknum auðveldlega tækifæri til að gera móðurina ófrjóa. Þessir læknar vefengja opinberar yfirlýsingar um að það séu aðeins 6.8% kvenna eignist barn með keisaraskurði.

„ Reglur um keisaraskurð voru vanar að vera mjög strangar, en núna tel ég að um 80% kvenna fæði með keisarskurð. Þetta auðveldar mjög að framkvæma ófrjósemisaðgerð og binda fyrir eggjaleiðarana,“ sagði yfirskurðlæknir á sjúkrahúsi nálægt höfuðborginni Tashkent.

Fjöldi lækna og fagfólks segja að þvingunar ófrjósemisaðgerðir séu ekki einungis ætluð til fólksfjölgunar stjórnunar,  heldur einnig undarleg fljótaleið til þess að lækka dánartíðni  móður og ungbarna. „ Þetta er einföld formúla-  færri konur sem eignast börn,- færri af þeim deyja,“ sagði skurðlæknirinn.

Niðurstaðan er sú að þetta sé gert  til að bæta röðun landsins alþjóðlega í sambandi við dánartíðni mæðra og ungbarna.

„ Uzbekistan virðist vera með þráhyggju í sambandi við tölur og alþjóðlega stöðu  segir Steve Swerdlow,  stjórnandi Mið Asíu deildar Human Rights Watch.

„ Ég tel að þetta sé dæmigert fyrir einræðisherra sem þarf að byggja frásögn á einhverju öðru en sannleikanum.“ Swerdlow telur að erlend stjórnvöld gætu gert meira.

Þar til nýlega var forseti Uzbekistan, Islam Karimov úrhrak í augum vestrænna ríkja, en síðastliðin ár hafa bæði US og Evrópusambandið aflétt viðurlögum, þar á meðal US aflétt  banni á sölu vopna.

Þetta er augljóslegaa tengt við versnandi samband Bandaríkjanna við Pakistan og aukinnar notkunar Nato á leiðum í gegnum Mið Asiu, þar á meðal Uzbekistan, til þess að geta komið vistum og hermönnum inn og út úr Aghanistan.

Fjöldi Vestrænna hefðarmanna hafa heimsótt Uzbekistan á síðast liðnum mánuðum, en fáir hafa gefið opinberlegar yfirlýsingar um stöðu mannréttinda í landinu.

„ Karimov hefur tekist að koma ár sinni þannig fyrir borð í sambandi við Vesturlöndin, þar sem að það eru engar afleiðingar fyrir hans agerðir og brot á mannréttindum.“ segir Swerdlow.  „Það er alger þögn þegar kemur að mannrétindum. Skýrslur um þvingunar ófrjósemisaðgerðir sýna að brýn þörf er á að rjúfa þögnina.“

Í skriflegu svari við fyrirspurnir BBC um athugasemdir, hefur stjórn Uzbek sagt að ásakanirnar  um þvingunar ófrjósemisaðgerðar áætlunina væru lastmæli,  og ættu ekkert skilt við raunveruleikann.

Stjórnin sagði einnig að skuraraðgerðar getnaðarvarnir væru ekki algengar og væru einungis gerðar að ósk viðkomandi, etir ráðgjöf við sérfræðing og með undirskrift beggja foreldra.

Stjórn Uzbek ítrekaði það að skrá Uzbekistan í að vernda mæður og börn væri frábær og væri hægt að taka hana sem fyrirmynd fyrir lönd um allan heim.

(Innskot Agný...Skyldu þeir vera að meina að önnur lönd ættu nota Uzbekistan sem fordæmi með því hvernig eigi að fækka fólki í heiminum?)

Hvað sem því líður, þá er Nigora á meðal þeirra mörgu sem þvingunar ófrjósemisaðgerð er staðreynd hjá. Hún þurfti að fara í bráðakeisara.
Degi síðar er henni sagt að það hafi verið gerð ófrjósemisaðgerð á henni. Á þeim sama degi dó hennar nýfædda barn. Nigora er 24 ára og mun aldrei eignast börn.

ÞÝÐANDI AGNÝ


Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband