Leita í fréttum mbl.is

SKÓLAKERFIÐ EINS OG AGNÝ VILL HAFA ÞAÐ. Þetta er skrifað árið 2003 upphaflega..

Passar það sem fer hér á eftir ekki nokkuð vel við ástandið í dag? 

Ég skrifaði reyndar þetta upphaflega inn á http://www.alvaran.com árið 2003..en það spjallborð hefur verið lagt niður.. og svona uppfært x aftur og aftur..ástandið hefur því miður ekkert breyst til batnaðar...Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið sannspá fyrir 10 árum síðan Crying

Í sambandi við grunnskóla sem allir eru skyldaðir til að vera í af ríkinu, þó svo sumir hætti fyrr en honum er lokið, oft vegna eineltis.

Það sem mér finnst rangt er þetta:
Það átti ALDREI að setja grunnskólana á sveitarfélögin, þar sem einstaklingurinn er SKYLDAÐUR af ríkinu
 
til að vera í grunnskóla í 10ár, þá á ríkið sem er náttúrulega við öll sem búum hér á landi, þó svo oft látum við sem ríkið sé eitthvað batterí sem reki sig sjálft að standa straum af þeim kostnaði , öll viljum við jú að börnin okkar mennti sig eða eins og sagt var í gamla daga "verði að manni."


Ef við viljum á einhvern hátt hafa jafnræði og jafnvægi þá er menntun á jafnréttisgrundvelli óháð búsetu og mannfægð eða vöntun á góðum kennurum, ekki tækið til þess að svo megi verða!


Annað sem mér finnst að mætti alveg skoða og ég tel að þegar upp verði staðið myndi skila þjóðarbúinu meiri arði, en það er af þessum forsendum sem ég gef hér:


Það er mikið atvinnuleysi, ungt fólk fær ekki vinnu, það á ekki/hefur ekki réttindi til atvinnuleysisbóta, hefur heldur ekki efni á að fara í skóla þó að vilji væri fyrir hendi.

Hvað haldið þið að þetta fólk komi til með að leiðast út í eða lenda í?
Kanski þetta margumrædda vændi ?
Dópneysla /sala.? Rán og innbrot?

ER það þetta sem við viljum sjá?
Því hvar á liðið að fá peninga ef engin er vinnan og ekki hægt að fá bætur nema frá féló.
Það sem mér persónulega finndist réttara að gera,  því ég tel að það kæmi betur út fyrir þjóðfélagið í heild þegar upp yrði staðið er þetta:

Að ríkið myndi borga einstaklingum fyrir að vera í skóla eftir að grunnskólanámi lýkur.
Það myndi þýða það að þegar atvinnuástand batnar þá væru til einstaklingar sem eru menntaðir
  en ekki búnir að mæla göturnar og vera  í ýmsu misjöfnu,  jafnt konur sem karlar.

Það yrði að mínu mati ódýrara fyrir ríkið þegar til lengri tím er litið.
Þessir einstaklingar myndu síður leiðast út í það sem ég taldi upp fyrr og þetta fólk yrði þjóðfélasvænni þegn, heldur en sá sem hvorki hefur haft menntun eða vinnu.


Það nefnilega kostar ekkert smá fyrir ríkið ef að eru sífelld innbrot, sem skapar þörf á stærri fangelsum, fleiri meðferðarheimili fyrir þá sem lenda í eiturlyfjaneyslu, meiri félagslegan og fjárhagslegan stuðning fyrir þá sem leiðast út í vændi og meiri lyfja og lækniskostnaður myndi örrugglega verða líka.

Þannig að ég tel að það myndi spara stórlega til lengri tíma litið og við eiga til fólk sem gæti gengið inn á vinnumarkaðinn þegar atvinnuástand yrði gott, þegar það kæmi þetta virkilega svokallaða góðæri.
 


Þeir sem eru búnir að vera án atvinnu í langan tíma, hafa jafnvel aldrei fengið vinnu eftir að grunnskóla
  er lokið, eru ekki einstaklingar sem vinnuveitendur vilja fá í vinnu því miður.
Þá myndu atvinnurekendur frekar leita eftir erlendu vinnuafli.(þekki það persónuleg þar sem ég hef átt fyrirtæki með mínum x).

Ég veit ekki betur en að i Danmörk sé það þannig að ríkið borgi einstaklingum " laun" á meðan þeir eru í námi eftir grunnskólanámi er lokið.
 

Þetta tel ég að sé það sem við Íslendingar ættum að taka upp eins og Danir frændur okkar.
En þetta er jú bara mín hugmynd um hvernig þjóðfélagið megi breytast, til hins betra að mínu mati þegar á heildina er litið.
Kveðja Agný.

 þessi skrif sem fara hér á eftir eru svör inni á Alvaran..en ég setti bara svör mín hér...

Kæri .....
Það sem ég átti við með því að ungmenni fengju borgað fyrir að vera í skóla, þá átti ég EKKI við til háskólanáms.
Heldur þeirra sem fara í fjölbraut, verkmenntaskóla eða menntaskóla. Það yrði síður til að þessir einstaklingar tækju sér pásu frá námi sem oft vill verða of löng eða það löng að viðkomandi hefur sig ekki upp í það að fara í nám síðar meir.

Þetta myndi líka skapa meira jafnræði og jafnvægi milli einstaklinga ef þessi háttur væri hafður.
Ég gaf líka þær forsendur að væri mikið atvinnuleysi að þá myndi þessi aðferð skila betri þjóðfélagsþegnum út í þjóðfélagið síðar, heldur en ef að viðkomandi einstaklingar mældu göturnar og lentu í hinu eða þessu.

Þannig fólk vilja engir atvinnurekendur fá og atvinnurekendur vilja heldur ekki einstaklinga sem eru búnir að vera á atvinnuleysisbótum lengi. Þetta fólk gengur ekki fyrir í vinnu, ég hef verið í fyrirtækjarekstri og þó að vantaði mannskap þá leitar þú eftir fólki annars staðar fyrst áður en þú fórst að skoða þá sem eru skráðir á atvinnuleysisskrá. Þannig er bara raunveruleikinn í þessu!!!

Það eru nú ansi margir eilífaðarstúdentar í háskólum bæði hér og annars staðar,  og tel ég að ef að þeir fengu laun á meðan sé ekki rétt. Sumir myndu líta á það sem ágæta vinnu að vera endalaust í skóla og falla kanski
 
reglulega í þessu eða hinu til að vera " áfram á launum " en stúdentinn og verkmenntabrautir eru síður til þess fallnar að ofnota það.

Annað,  það eru ansi margir sem hafa ekkert það góð fjárráð þó svo kanski þú þekkir það ekki, 
og eiga kanski mörg börn að það er hægra sagt en gert að kosta ungmennin til náms og ekki er neitt auðvelt í dag að fá vinnu þennan stutta tíma sem er núna frá að skóla lýkur að vori og byrjar svo aftur um 25 ágúst.

Þó að einstaklingurinn fái vinnu þá er það ekki mikið sem viðkomandi fær í vasann frá miðjum júni til miðs ágústs.  Yfirleitt líka lélega launað og langlægstu taxtarnir og svo ef að er atvinnuleysi þá getur þú bara gleymt því að þú fáir vinnu því að það eru ekki óharðnaðir unglingar sem vinnuveitendur vilja þá fá , yfirleitt hæfari einstaklingum þannig séð, úr að velja þegar svoleiðis ástand er.

 

Hver heldur þú annars að sé ástæðan fyrir öllum þessum erlendu aðilum í fiskivinnu hér á landi .....?Fróðlegt væri að lesa um þína skoðun á því. Kveðja Agný.

Oct 18 2003, 20:30

Kæri ........
Í sambandi við fiskivinnuna þá veit ég það frá Íslendingum sem ég þekki í fiskivinnu, nánar til tekið suður með sjó eins og sagt er
  að fiskverkunareigendur og útgerðir vilja ekki Íslendinga í vinnuna í dag á þeirri forsendu að þeir eru að borga erlendu aðilunum um það bil helmingi lægra á timann en Íslendingurinn á rétt á.

Þannig að það kemur víst fyrir að Íslendingum er oft vísað frá en á sama tíma sóttur til útlanda vinnukraftur.


En þetta er fínt, svo skeður það sama og skeði í danmörk um "74-75 ég bjó þá úti, en það er að þá kom upp atvinnuleysi
en ekki mikið og þá heyrðist sko í Dönunum þetta " forbannede fremmede arbejdere kom og stjal vores arbejde." = ,,Helvítis útlendingarnir komu og stálu vinnunni okkar....


Málið var bara það að vinnan sem útlendingarnir voru í var drullu versksmiðjuvinna sem Danirnir vildu ekki sjá og í raun nákvæmlega það sama og er hér nú í sambandi við fiskivinnuna.
En það eru í raun bæði Dönum og okkur Íslendingum sjálfum um að kenna að ástandið varð og er svona.
En við erum bara flest okkar alltof góð í því að ásaka og skella skuldinni á annað eða annað.


En í sambandi við þessa konukind sem þú vísar í þarna í restina, þá myndi ég ekki telja hana með fulle fem
  ekki fjóra einu sinni, það er nú hægt að vera heimskur en SVONA forheimskaður..... nei fjárinn að ég trúi því.
Kveðja Agný.

 Kæri/kæra .........
Það sem þú segir hér, er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil að einstaklingar fái " laun " á meðan skólanámi stendur eftir að grunnskólanámi líkur.
Til að gefa þessum aðilum tækifæri til að halda áfram námi.

Annað sem myndi ske þá líka, er  að það væru fleiri störf í boði fyrir aðra aldurshópa á móti þeim sem héldu áfram námi,  í staðinn fyrir að fara út á vinnumarkað þarna strax að grunnskóla loknum. En hvort að öllum fyndist þessi eða hin störf nógu góð er svo önnur saga.

Ég er bara svo gamaldags að ég tel að vera atvinnulaus til lengri eða skemmri tíma sé bæði mannskemmandi  og sálardrepandi. Margir hafa t.d. framið sjálfsmorð vegna þessa. Heilsu almennt hrakar, sem leiðir til lyfjagjafa, sérstaklega þá þunglyndislyfja.

Þannig að ég vísa aftur í það sem ég sagði í byrjun greinarinnar, en það er að til lengri tíma litið ef horft yrði á alla kostnaðarliði / útgjöld fyrir ríkið, sem koma af atvinnuleysi, heilsuleysi og sjálfsmorðum, því að þetta hefur aukin útgjöld fyrir aðstendendur allra aðila sem tengjast þeim sem lenda í þessu.
Á móti segi ég að til lengri tíma litið kæmi betur út fyrir alla og ríkið (sem er við!!!!) ef farið yrði að borga nemendum " laun " það er að segja tilvonandi nemendum í fjölbraut, verkmenntaskóla og menntaskóla að þá myndi hinn útgjaldaliðurinn lækka og ég segi aftur...

Við myndum fá einstaklinga út í þjóðfélagið eftir að námi í framhaldsskóla lýkur sem síður hefðu leiðst út í óreglu og eitulyfjaneyslu og annað miður gott. 

Sem sé þegna sem væru færari að koma út á vinnumarkaðinn en þeir sem hefðu mælt göturnar allan tímann.....Báðir þessir liðir  kosta okkur skattborgarana x mikið....en í hvorn hópinn viljum við að aurarnir okkar fari? 

Frekar vil ég að það sem skattpeningarnir mínir fari í séu "viðveru" /"náms"laun mætti kanski kalla þetta,  heldur en að sömu einstaklingar væru að fá sömu krónu tölur frá Féló -..

Það er alltaf meiri hætta á að einstaklingar leiðist út í þetta sem ég taldi upp,  ef viðkomandi hefur hvorki vinnu eða er í námi.

Það þurfa allir að fá útrás fyrir sína orku sem öllu jöfnu fer í nám og vinnu,  en ef þú hefur hvorugt,  þá fer hún bara í eitthvað miður gott.
Má kanski líkja þessu við þetta " betra er slæm athygli en engin".

Kveðja Agný. 

Kæri ..........

Ég lenti í því þegar ég er tæplega tvítug og var að koma fyrst út á vinnumarkað að vinna hjá fyrtæki sem var stórt þar sem ég bjó. Málið er að það svindlaði verulega á launum síns starfsfólks og ef að einhver sagði eitthvað við eigendurna, þá var svarið á þá leið að viðkomandi gæti bara farið, það væri nóg um aðra sem vildu fá vinnu. Það var mikið af konum sem áttu börn sem unnu þarna og þær þorðu ekkert að gera eftir þessi svör.

Svo fór ég í félagið sem við vorum í og kvartaði undan röngum launatöxtum og þá var mér sagt að þetta færi í " skúffuna" og ég spyr hvað væri verið að meina, en var þá sagt að það væri þangað sem kvartanir á hendur þessu fyrirtæki færu.

Þannig að stór fyrirtæki stjórna ansi miklu í minni bæjarfélögum og fólk þorir oft ekki að rísa upp út af því. En þetta leiðréttist ekki fyrr en konurnar fóru í vinnustopp fáum árum seinna, en ég efast um að þær hafi fengið leiðréttingu " aftur í tímann". En við höfðum launa leiðréttingu fram.....Ég var ekki í fullri vinnu þar þá...það var bara aukavinnan mín..

*******************************************

Bætti þessu við núna 23 Febrúar 2013

Ég tel reyndar min "Menntastefnu" hugmynd alls ekki vera verri en hver önnur..en numer eitt þá gagnast lítið þessi eða hin stefnan í menntamálum ef að enginn hefur svo efni á því að fara í Framhaldskóla að Grunnskólanámi loknu og því miður sé ég ekki betur en við séum að sigla inn í þær aðstæður núna-foreldrar hafa hreinlega ekki efni á að kosta börnin sín til náms þar sem margir hafa jú ekki vinnu..

Ég get ekki séð að það sé búið að vera  "góð"æri hér síðustu 10 ár..held verði að flokka það sem "hall"æri ef á að kalla það eitthvað..ja kanski þá góð"æði" sem fittar best allir búnir að vera sem óðir væru að elta gullkálfinn fræga..en sá kálfur hefur fyllti engann maga á dögum Krists og svo mun ekki verða heldur í dag..

Og svo er eitt, að unglingar sem eru búin að ljúka grunnskóla en fá enga vinnu fá engar atvinnuleysisbætur þar sem grunnskólanám telst ekki sem vinna ..

Þannig..unglingurinn atvinnulaus allt sumarið eftir að grunnskóla lýkur og viðkomandi orðinn of gamall í unglingavinnuna..Þú þarft að vera búinn að vera x lengi í vinnu til aðeiga rétt á bótum

En ég held líka að það verði hreinlega að fara aftur á bak í einu atriði en það er að skólagögn voru ókeypis -ja sko "við" = ríkið borgaði þau þegar ég var í því sem kallast í dag grunnskóli.. En reyndar myndi ég viljað námsgögn væru líka frí á meðan á framhaldskóla stendur..Það myndi kanski hjálpa mörgum mikið ..

En til þess að fá þessi námslaun eins og ég vil kalla það þá verður viðkomandi að sýna fram á ástundun og árangur alveg eins og er í dag..Það myndi ekki þýða að einstaklingurinn skráði sig í framhaldskóla og borgaði kanski staðfestingargjaldið og myndi svo aldrei mæta..og fá svo namslaun um hver mánaðar mót.

Upphæðin sem umræðir verður að vera sú sama og ef að viðkomandi væri að fá mánaðarlegar bætur frá Féló..því það er jú þaðan sem þessir einstaklingar sem eru atvinnulausir, -ekki í skóla-ekki á atvinnuleysisbótum-eru að fá pening til þess að skrimta hvern mánuð..

Þetta eru sem sé mínar pælingar -voru fyrir 10 árum síðan og enn er ég sömu skoðunar að þetta sé eina leiðin ef við ætlum ekki að ala upp "loosers"/tapara. 

Það er jú kanski stefna allra stjórnmálaflokka þegar upp er staðið ?

Verið að búa til "loosers" and "winners" ..se-m sé draga í 2 dilka.. 2 þjóðfélagsflokka en það eru fátækir og forríkir...? Það er ekki orðið neitt sem heitir "meðal" Jón í dag..engin millistétt til lengur..

Held það sé kominn tími til að við förum að horfa á hlutina ins og þeir eru en ekki eins og við vildum að þeir væru!

En enn hef ég ekki sé neinn flokk síðustu 10 ára afreka  það..þannig að ég skal játa að ég hef  ekki mikla trú að að einhver hafi þann kjark núna ..kjaftagleiðir  eru þeir sem bjóða sig fram allir sem einn..En hefur svo einhver virkilega kjarkinn til að fylgja sinni stefnu eftir þegar á hólminn er komið?

Vona allavega að slagorðið yfir okkur Íslensku þjóðina sé ekki þetta 

,, kjafta-gleiðir kjark-leysingjar"...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Margt til í þessu hjá þér.

Hólmdís Hjartardóttir, 8.12.2008 kl. 09:43

2 Smámynd: Heidi Strand

Ég get ekki lesið svona langa færslur á blogginu, en það sem ég las var ég sammála þér.
Ungt fólk sem hefur ekkert að gera eru í áhættuhóp fyrir andfélagsleg hegðun og það er margfalt dýrara að hafa einstakling í fangelsi heldur en á skólabekk.
það er eins og að ríkið hugsar fyrst um einstaklinganna eftir að þeir eru komnir í djúpum skít.

Heidi Strand, 8.12.2008 kl. 10:13

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta er nú stór grein og góð Agný mín. Það sem þú talar  um er að mínu mati rétt og þetta seinasta með skúffuna , það virðist hafa verið algengt. Ég veit ekki hvort það er ennþá.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.12.2008 kl. 11:50

4 identicon

Sammála mörgum punktum, en ég er grunn- og framhaldsskólakennari. Hef náð afburðaárangri með nemendur í stuðningi í stærðfræði.

erlingur þorsteinsson (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 15:16

5 Smámynd: Tiger

  Þetta var heljarmikil lesning og mjög athyglisverðar pælingar hjá þér. Það er margt þarna sem væri vel þess virði að spá meira í og auðvitað slatti sem mér fannst svo mikið réttur og sannur ...

En, góðar pælingar - og vel þess virði að lesa up til Agný(Agna)!

Takk fyrir mig, knús og kram á þig og þakka innlit og kvitt hjá mér!

Tiger, 8.12.2008 kl. 18:05

6 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Ágæt grein hjá þér, veit samt ekki hvort það sé =merki á milli þess að falla útúr skóla og að leiðast út í óreglu en það gæti alveg verið það.  En þetta er síst bara verkefni skólans heldur allra.  En að ríkið "borgi laun" fyrir nám er ágæt hugmynd, flest lönd sem ég þekki hafa skynsamlegra fyrirkomulag á lána-/styrkjakerfum handa námsmönnum er hérlendis.

Ragnar Kristján Gestsson, 8.12.2008 kl. 18:20

7 Smámynd: Agný

Takk fyrir commentin Hólmdís, Heidi, Jórunn, Ægir, Tiger og Ragnar.  

Það sem ég kanski kom ekki nógu skýrt inn á, en það er að ástandið hjá mörgum fjölskyldum sem eru með lægstu launin eins og til dæmis staðan er bara akkúrat núna. Sé búið að segja upp störfum vegna samdráttar eða gjaldþrots.  

Eigi börn sem er að fara í framhaldskóla og einnig börn á yngri stigum grunnskólans.. foreldrarnir hafi ekki efni á að kosta börnin til framahaldsnáms. Málið er að unglingarnir munu ekki fá vinnu þegar atvinnuástandið er orðið svona... Þau hafa ekki rétt á atvinnuleysisbótum þar sem þau hafa jú ekki verið úti á vinnumarkaðinum...

Hvað eiga þessir einstaklingar þá að gera?  

Ég held að þegar unglingarnir frá grunnskóla aldri til tvítugs muni ekki vera í vinnu þá muni verða hætta á að þessir einstaklingar leiðist kanski út í ýmislegt miður gott. Þessir einstaklingar munu trúlega vera mjög reiðir stjórnvöldum og kerfinu sem þeim mun finnast hafa brugðist sér..þannig að uppreisn og óspektir væru mjög líkleg afleiðing.  Það kostar jú kerfið sitt...

Þetta unga fólk  mun þurfa að þiggja bætur frá Féló þegar foreldrarnir hafa ekki efni á að halda þeim uppi þar sem kanski annað eða báðir foreldrarnir eru líka atvinnulausir.. 

Er þá ekki gáfulegara að ríkið (við) látum frekar aurana fara í að borga þeim svipaða upphæð til þess að geta farið í framhaldsskóla, þau mundu einungis fá þessar greiðslur (vasapeninga), sömu upphæð og þau ættu rétt á að fá frá Féló,  ef að þau færu í skóla.  Þannig má kanski í raun segja skikkuð til að halda áfram framhalds námi.´

Það er gáfulegra og meira uppbyggjandi fyrir þjóðfélagið í heild að við borgum fyrir að halda einstaklingnum að námi,  heldur en þurfa kanski að horfa á eftir skattpeningunum okkar í þann kostnað sem hlýts óhjákvæmilega af því að fjöldi ungs fólks væri á félagslegum bótum. Nú eða kostnaði sem hlytist af því ef að einstaklingarnir færu á galeiðuna og lentu í fangelsi.

Ég vil ekki meina að ég sé með einhverja svartsýnis spár heldur bara raunsæis spá...Þegar upp er staðið þá myndum við eiga þjóðvélagsvænni þegna og þessir einstaklingar frekar fá vinnu þegar atvinnu ástandið batnar heldur en ungt fólk sem hefur mælt göturnar í 4 ár. Endurtek  mig kanski þegar ég segi að þetta séu ekki einstaklingarnir sem munu fyrst fá vinnu þegar atvinnuástand lagast..Þau munu vera síðust til að fá vinnu nú eða halda áfram á að lifa á Féló..því þau kunna jú ekki annað....

En stjórnvöld hafa svo sem ekki sýnt mikla framtíðar forsjá fram að þessu,  svo ég ætlasvo sem ekki að reikna með því að það verði stór breyting á.....Það væri kanski séns ef að þetta sama fólk stæði í sömu sporum og fjöldi fólks er að lenda í núna og á komandi mánuðum...

En ég mæli með að allir unglingar stefni á að halda áfram í skóla eftir grunnskóla. Námsráðgjafarnir mættu líka vera betri í því að benda þeim á alvarleika ástandsins eins og það er núna..

En það verður of sent að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið í hann..... Sumt verður ekki leiðrétt eftir á ...með einhverjum bitlingum og bráðabirgða reddingum eins og þeim sem stjórna þjóðarskútunni er svo lagið...

Þó svo þeim finnist mjög gott að þjóðin haldi áfram að sofa sem Þyrnirós væri....enda höfum við flest sofið á verðinum og erum núna aðvakna upp við kjaftshögg en ekki koss frá prinsinum...

Agný, 9.12.2008 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband