Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

JÓLAKVEÐJUR TIL ALLRA BLOGGVINA ... KATTA MYNDIR..HVATNINGARORÐ DAGSINS Í DAG.... ekki veitir af..afrekaði að reka fingurinn í rangan takka og strokaði allt út sem ég var að fara að pósta inn...urr..irr..pirrr..

HVATNINGARORÐ DAGSINS Í DAG.

" AGI  ER BRÚIN  Á  MILLI MARKMIÐA  OG  FRAMKVÆMDA".

Gleðilega jólarest til ykkar allra bloggvinanna og svo þeirra sem lesa bloggið mitt.Takk fyrir samveruna hér síðan ég byrjaði að blogga en það var víst 9 des fyrir ári síðan...Margt hefur drifið á daga mína síðan þá...bæði gott og vont ..En hvort allt er svo vont þegar upp er staðið sem maður heldur að sé það,  eða það sem maður hélt að væri gott sé það líka þegar vel er að gáð,....

Allt hefur víst sinn vitjunartíma...þannig ..þá kemur það í ljós....

Verð samt að játa að ég hef aldrei þolað þetta jólasvein bull og með það að láta skóinn út í glugga...

Mikið rosalega langaði mig til að finna þann aðila í fjöru sem kom með þá hugmynd að setja eitthvað í skóinn x nóttum fyrir jól...Angry

Dýrt fyrir "Sveinka" að þurfa að setja í 4 skó hverja nótt á mínu heimili allavega....

Mínir drengir eru að vísu orðnir svo gamlir núna að þeir trúa ekki lengur á þennan þátt jólaboðskapsins...

Jólahátíðin fæðingardagur Jesús

( eftir því sem sagt er...) rann upp venjulegum tíma hvort sem manni líkaði betur eða verr..hvort sem maður ætti eftir að gera þetta og hitt eða hitt og þetta...með þrumum og eldingum og engum neitt smá...maður hélt hreinlega að eitthvað hefði sprungið... Hefði passað betur á gamlárskvöld...

Að venju var étinn (græðgislega af sumum) hamborgarahryggur, brúnaðar kartöflur og sósa sem var einhverskonar tilrauna uppskrift...tókst vel því allir borðuðu hana... Síðan var gjöfunum útdeilt og skoðað og þakkað fyrir og  eftir það fóru svo strákarnir til pabba síns og afa og ömmu,  þar var "taka tvö" ...á þessari athöfn....

Á meðan ákvað ég að fá mér lúr..enda búin að sofa ákaflega lítið undanfarið og alls ekki á venjulegra fólki tíma... en tími er svo sem afstæður..eina góða við að liggja lítið í bælinu er að bakið er heldur skárra..

Ætlaði alls ekki að komast út úr bælinu í gærmorgun... uppgötvaði það að einhver hefði mátt gefa mér hækjur í jólagjöf..þó svo ég sé vön verkjum þá voru þessir alveg sérlega mikið yfir mitt strik.. en nóg um það... En mér tókst því miður ekki að leiðrétta þennan viðsnúning í svefninum.....og er ekki enn búin að því... 

Kettlingarnir 5100_7268 ákváðu að nú væri kominn tími á því að víkka út sjóndeildarhringinn og klifruðu  þau hugrökkustu upp úr ferðarúminu.

100_7185og hinir fengu þá að fara líka út út "fangelsinu".

 

Þessi hér var samt búin að sleppa úr prísdundinni heldur fyrr..

 en það er hún Væla Veinólína...Blíða er að reyna að halda henni kyrri... 

 Hér er svo verið að fylgjast með " Veinólínu" í klifrinu...

En stelpurnar þrjár  urðu 4 vikna 24 des. en strákarnir tveir  urðu það 25 des....eru sem sé ekki öll fædd sama dag... Þetta er hún "Jelló" eins og ég kalla hana en hvað þau sem eiga hana munu kalla hana..að fá sér beauty nap eftir allt brasið... 100_7219

Hér eru Hringur og hún Veinólína að kíkja á heiminn saman...

100_7285

Gaman að fylgjast með þessum krúttboltum þegar þau fóru á stjá og enduðu á að koma sér í sjálfheldu hér og þar....

og gekk mér mis vel að finna þau aftur..

 

 

 

Sóta "frænka" 100_7315ákvað að mömmunni veitti ekki af "loppu" við að siða þessa ólátabelgi til...aðeins að siða Veinólínu til...

Kanski hún sé að æfa sig áður en hún fjölgar kattarkyninu.... hef grun um að hún sé bomm ...

Hér er Sóta að kyssa Hring...100_7294

Hún fylgdist allavega fylgdist hún mjög vel með þeim,  kyssti og þvoði100_7302 svona smávegis líka...

og mamman lét sér bara vel líka..kanski bara fegin....

 

 

Hvert eruð þið eiginlega að að æða?

100_7324

 

 

 

 

 

 Hér eru ólátabelgirnir búnir að hertaka sófann og eru að hvíla sig eftir "flakkið"...100_7371

Annars eru þessir jóladagar búnir að líða við leti og át og aðallega ekki neitt....nenni ekki að hafa samband við neinn nema svona til málamynda.....en þetta eru fyrstu jólin sem að ég og strákarnir erum alein á aðfangadagskvöld í 10 ár...Svolítið einkennilegt og skrítið... en rólegt .... 

Ekki má svo gleyma blessuðum jólasnjónum... sem ákvað að koma í jafnmiklu magni og undanfarandi rigningar eru búnar að vera...Það er ýmist í ökla eða eyra....

Ætlaði að setja fleiri myndir inn en tölvukerfið eitthvað seint að hugsa og misfljótt að hlaða inn..þannig að ég læt þessar duga..


KETTLINGARNIR 3 vikna í dag.......STÆKKA OG STÆKKA....Fleiri myndir...

100_6958-1Hér er sko mynd af prímadonnunni...henni Blíðu...

 Mín ekkert smá virðuleg og ráðsett að sjá...enda er hún orðin 3 ára..

 Jæja..þá ætla ég að drattast til að setja fleiri myndir af köttunum....búin að vera á leiðinni slatta lengi eins og sést kanski frá því ég setti fyrstu myndirnar inn...

 

 

Þessi mynd er tekin 28 eða 29 nóv...

100_6775Það sem þessi krútt hafa blásið út er ekkert smá....enda orðin 3 vikna i dag.... Set hér myndir teknar hafa verið svona á þessu tímabili...

Þessar  myndir eru teknar þann 5 des100_6869

strax farnir að blása út...ég skal játa að ég er ekki góð í því að setja myndir hérna þannig að þær séu ekki út um allt...Skil ekki hvernig Guðmundur Jóns fer að því að setja sínar myndir svo snyrtilega inn á bloggið sitt Woundering100_6873

Þessar eru líka teknar þann 5 des..þetta er hann Snúlli

( sá guli og hvíti) og hún

Væla Veinólína

 ( ég kalla hana það því að hún er sí vælandi ef að komið er við hana..)100_6885

 

 

                 

Hér eru fleiri myndir..5 des100_6889

 

 

 

 

Þetta er hann Hringur ..hann byrjaði að mala viku gamall

100_6909


ORKA / ENERGY það er lykillinn að leyndarmálinu...

It has always been thus.

The secrets are said to protect themselves but indeed they are protected by the Energy.

If you don't have Energy, you will never be offered more.

"To those that have, more will be given" said Jesus Christ.

You need energy to get more energy.

You need energy to awaken your incipient psychic powers.

 You need energy to transmute all your energy blockages to get more Energy.

You need energy to overcome the passage through the birth and death process,learning to shed your body as you would worn out clothes.

 
You need Energy Enhancement…


ORÐ TIL UMHUGSUNAR úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

 Fékk leyfi vinkonu minnar til að setja þýðingu hennar hér úr  "For today & tomorrow, daily encouragement", Daisaku Ikeda 

Mér finnst þessar leiðbeiningar allavega höfða mjög mikið til mín þessa dagana og líka vera þörf áminning fyrir mig...

Þetta var fyrir 10 des...

YES!!!Við verðum að byggja traustar undirstöður; við verðum að vera sterk. 

Innri styrkur er forsenda hamingju, forsenda þess að framfylgja réttlæti og skoðunum sínum. 

Ein af nafnbótum Búdda er “Sá sem getur sýnt umburðarlyndi.”

Að takast hugrakkur á við, þola, þrauka og sigrast á öllum erfiðleikum – Búdda er hin algjöra holdtekja þeirrar dyggðar sem umburðarlyndi er. 

Kraftur trúarinnar gefur okkur styrkinn sem við þurfum til að standa af okkur og lifa af hvern storm.  Þrautseigja er kjarni Búdda.

Þetta fyrir 8.des.


Lífsgleði er ekki einungis þín persónulega eigingjarna hamingja.  Né heldur er það að gera aðra hamingjusama á kostnað þinnar eigin hamingju. 

Þú og aðrir að gleðjast saman, þú og aðrir að verða hamingjusöm saman – það er hið leynda lögmál og hið undursamlega við okkar hlið á kosen-rufu. 

Daishonin segir, “Gleði þýðir að maður sjálfur og aðrir eigi visku og samúð”. (Gosho Zenshu, p. 761).

5. desember


 Ef þú stundar trú þína en ert samt síkvartandi, muntu eyðileggja hamingju þína í sama hlutfalli.

Þeir sem eru síkvartandi ávinna sér ekki virðingu annarra.

Bæði frá búddísku og veraldlegu sjónarhorni, mun hegðun þeirra ekki sæma vitri eða mætri manneskju.

Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda

Lára Þórisdóttir


KOMNIR 5 FLOTTIR KETTLINGAR Í HEIMINN...3 FÆDDUST FYRIR KL 23 ÞANN 24 NÓV EN 2 EKKI FYRR EN MILLI 02:30 OG 03:00 SEM SÉ 25 NÓV..

BLIDA IMG_0508Er loksins að hafa mig upp í það að setja myndir af 5 krúttlegum kettlingum og stoltri mömmu sem var að vísu þokkalega rugluð í þessu í 2 daga á eftir.

En það er sú sem hvarf kasólétt í 2 mán í sumar og birtist svo ekki aftur fyrr en í lok ágúst..   bumbunni fátækari og engir kettlingar.. Hélt að hun væri afturgengin þegar hún birtist á glugganum grenjandi, grindhoruð og rennandi blaut  í ógeðslegri rigningu..

En fæðingarferlið hófst um kvöldmat á laugardagskvöldið þann 24 nóv.. og ég var ekki viðstödd fæðingu þessarra fyrstu 3  en ég var að vinna í bænum...

BLIDA OG BÖRNINSvo var ég farin að örvænta...búið að panta 5 kettlinga en einungis komín þrjú stykki um miðnætti og bólaði ekki á fleirum þó svo ég fyndi fyrir þeim utan á kviðnum á henni...

Allt í einu ákvað mín sko að það væri kominn tími á þessa tvo en þá var kl 2:30  og það kom hvitur og orange/bleikur strákur...

og hún malaði nú bara á meðan.... ( greinilega hörð af sér eins og "amman" Cool) svo bólar á einum svörtum og hvítum..

Þá vandaðist málið hann kom öfugur og mín bara malar og gerir ekkert annað... 

ég hélt að ég myndi slíta ræfilinn í sundur þegar ég var að reyna að ná honum út..    100_6752

Hún var heldur ekki að hafa mikið fyrir að hreinsa úr andlitinu á honum svo ég gerði bara munn við munn við hann og þá andaði hann og mjálmaði.. 

 En núna er hún orðin voðalega mikil mamma og ber nafn með réttu "Blíða"..kurrar og murrar jafnt á mig og kettlingana...

en hún er nú samt svolítið mistæk í því hvað hún er ekki pen við að leggjast hjá þeim..

hlassar sér ofan á þá svona hér og þar... 100_6754

 

 

 

En hér sjáið þið gersemirnar.. 3 stelpur og  2 strákar...eftir minni skoðun.. Tveir síðustu voru strákar...100_6768-1Síðasta myndin er tekin 27 nóv.. Á eftir að setja inn fleiri myndir af þeim... 

 

 

 

 


FÆÐINGARÁVERKAR. Getur Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð komið að gagni?

Afleiðing samþjöppunar höfuðkúpu.

eftir Thomas Attlee  Skólastjóra Cranio Sacrial School 

(HÖFUÐBEINA OG SPJALDHRYGGSJÖFNUN) of London.

www.ccst.co.uk/

 

Ef höfuðkúpa okkar verður fyrir einhvers konar hindrun í fæðingu er líklegt að það hafi áhrif á okkur öll að einhverju leiti.  Það er álitið að í alvarlegum tilvikum, geti slík hindrun leitt til heilaskaða, heilalömunar,  (krampalömunar), eða einhverfu, eða geti átt þátt í vöggudauða.  Í vægari tilvikum getur það leitt til lesblindu, námserfiðleika, ofvirkni, flogaveiki, þráhyggju, persónuleikatruflana og ýmiss konar þroskavandmála.   En í okkur öllum (sem teljumst vera "eðlilegir" einstaklingar) getur slík hindrun, þó hún sé minniháttar, átt mikilvægan þátt í að ákvarða almennt heilbrigði okkar og líkamsbyggingu, næmleika okkar gagnvart ofnæmi, astma, mígreni, rangeygð og fjölmörgum öðrum kvillum. 

Einnig getur hún haft áhrif á þroska allra kerfa líkamans, (taugakerfisins, meltingarkerfisins, ónæmiskerfisins, o.s.frvs.) 0g þannig haft áhrif á allt

okkar líf.

  Við skulum skoða hvernig fæðingin gengur fyrir sig. 

Barninu er þrýst niður mjög þröng göng með höfuðið á undan.  Höfðinu er þrýst saman og það þvingað niður þessi þröngu göng á löngum tíma, oftast á nokkrum klukkutímum, en ferlið getur líka tekið sólarhring eða meira.

 

 Skoðum líka höfuðkúpu nýfædds barns.  Hún er ekki samansett úr hörðum beinum, (því þá mundi hún ekki komast niður fæðingarveginn), heldur fíngerðri himnublöðru.  Kúpuhvelfingin samanstendur af mjúkum ófullgerðum beinplötum sem tengdar eru saman með himnu, og kúpubotninn sem er sveigjanlegur, samanstendur af hálf mynduðum beinum sem tengjast hvert öðru með sveigjanlegu vaxbrjóski.  Mikill þrýstingur á þessa viðkvæmu vefi í margar klukkustundir, (eins og tilfellið er um flestar fæðingar), ýtir höfuðkúpubeinunum upp á við, hvert af öðru og aflagar höfuðið verulega. 

Þetta er eðlilegt og óhjákvæmilegt, en ef höfuðkúpubeinin halda áfram að vera í þessari stöðu, eða ef þau ná ekki að losna fullkomlega, þá geta þessar afmyndanir hindrað rétta mótun höfuðkúpunnar og á þann hátt takmarkað þroska heilans.

 

Sem betur fer hefur líkaminn yfir kröftugum meðfæddum aðferðum að ráða sem gerir honum kleift að lækna sjálfan sig og laga það sem aflaga hefur farið. Þegar höfuðið er komið í gegnum fæðingarveginn taka slíkir lagfæringarkraftar til við að koma höfðinu í það horf sem því er ætlað að vera. 

 Samt sem áður tekst þessi meðfædda lagfæring sjaldan fullkomlega.  Hversu vel hindranir og samþjappanir lagast  af sjálfu sér er mjög breytilegt frá einum einstaklingi til annars og er fyrst og fremst háð því hvernig fæðingin gengur fyrir sig.

Fyrir flest okkar eru afleiðingar slíkra hindrana á höfuðkúpu okkar og heilaþroska tiltölulega litlar. 

 En þegar um erfiða eða langdregna fæðingu hefur verið að ræða, þar sem þrýstingurinn á höfuð barnsins hefur verið mikill í langan tíma og jafnvel enn meiri vegna rangrar fæðingarstöðu eða ofnotkunar fæðingartanga og sogklukku, þá geta höfuðbeinin pressast svo fast saman eða afmyndast svo mikið að meðfæddir lækningarkraftar geta ekki leyst úr mishverfunni. 

Og það er þá sem búast má við þeim alvarlegu einkennum sem áður var talað um, en það fer þó alveg eftir því hversu mikil afmyndunin hefur orðið.   Bein höfuðkúpunnar ættu, í eðlilegu heilbrigðu ástandi, að geta hreyfst frjálst hvert gagnvart öðru um saumana þar sem beinin mætast.  Þessi hreyfing er sérstaklega óþvinguð í höfuðkúpu nýbura og hún heldur áfram að vera fyrir hendi í minna mæli fram á fullorðinsárin eftir því sem beinin renna smátt og smátt saman.  

Allir hlutar höfuðkúpunnar, bæði utanvert og djúpt innan hennar, geta færst úr stað, og allir saumarnir á milli beinanna geta orðið fyrir hreyfihindrun vegna slíkrar þjöppunar.  Hindranir hvar sem er í höfðinu geta hindrað þroska heilans og áhrifin eru breytileg eftir því hvar hindrunin er staðsett. 

Takmörkuð hreyfing, hvar sem er í höfuðkúpunni, er líkleg til að hafa áhrif á hana í heild sinn og getur þannig truflað þroska heilans á marga og ólíka vegu.

  Hnakkabeinið er sérstaklega viðkvæm fyrir skaða af tveim ástæðum.  Í fyrsta lagi vagna staðsetningar sinnar neðst á höfuðkúpunni er það líklegt til að verða fyrir miklum krafti og þar af leiðandi truflun. Í öðru lagi umlykja hinir fjórir hlutar hnakkabeinsins mænugatið.  Ef staðsetning þeirra raskast er líklegt að óeðlilegur þrýstingur komi á mænuna eða heilastofninn, ef til vill með skaðlegum afleiðingum.  Þar sem hnakkabeinið er enn í fjórum hlutum, sem tengdir eru saman með brjóski, við fæðingu, raskast afstaða beinhlutana hvor gagnvart öðrum auðveldlega. 

Brjósksvæðin geta þjappast saman og valdið truflun á áframhaldandi vexti hnakkabeinsins og það síðan aflagast í samræmi við þetta ósamhverfa mynstur.  Þetta getur síðan haft áhrif á alla höfuðkúpuna. Í mildari tilvikum ósamhverfu, sem hefur áhrif á okkur öll að einhverju leyti, koma hin fjölbreytilegu einkenni hindrana í höfuðkúpu smám saman fram eftir því sem tíminn líður.   Í slíkum tilvikum er líklegt að einkennin séu ekki greind rétt, heldur flokkuð sem "eðlilegt" heilsuleysi, "eðlilega" takmarkaðir hæfileikar eða einfaldlega sem persónuleg sérkenni. 

Jafnvel í tiltölulega alvarlegum tilvikum koma einkenni, eins og námserfiðleikar eða vandamál í sambandi við samhæfingu hreyfinga, ekki skýrt fram fyrr en eftir mörg ár. Skýringin er að hluta til sú að afmyndað höfuð hefur ef til vill engin truflandi áhrif á þroska heilans fyrst í stað.   Það er ekki fyrr en heilinn leitast við að stækka og þroskast fullkomlega að afleiðingar beinahindrananna fara að segja til sín og hindra þroskann. 

Hins vegar koma meiri háttar hegðunartruflanir hjá börnum ef til vill ekki skýrt í ljós fyrr en barnið er komið á þann aldur að farið er að búast við flóknari hegðunarmynstrum hjá því. 

 Í þeim tilvikum eru líka afleiðingar eins og námserfiðleikar taldar orsakast af hæfileikaskorti, arfgengum þáttum, geðtruflunum eða margvíslegum óþekktum orsökum. Í alvarlegustu tilfellunum geta einkennin verið augljós strax við fæðingu, t.d. greinileg krampalömun (spasticity), öndunarerfiðleikar eða afmyndun á höfði. 

En jafnvel í allra alvarlegustu tilvikunum, eins og t.d. þegar um heilalömun (cerebral palsy) er að ræða, er líklegast að hefðbundnir læknar greini einkennin sem heilaskaða, þegar staðreyndin er sú að þroski heilans og starf hans er einungis hindrað og takmarkað vegna alvarlegrar afmyndunar höfuðkúpunnar.

  Þetta kemur skýrt fram í eftirfarandi sjúkrasögu sem Bery Arbuckle sagði frá: Mig langar til að segja sögu eins nýbura.  Móðirin var búin að vera tólf klukkustundir í fæðingu með höfuð barnsins í andlitsstöðu.  Þegar hér var komið sögu var gerður keisaraskurður en barnið hafði þegar orðið fyrir skaða.  Einkennin voru blámi, veikur grátur, skjálfti og sprengiuppköst.  

Einstakir hlutar hnakkabeinsins voru ranglega staðsettir umhverfis mænugatið, en auk þess voru stikilshyrnurnar á gagnaugabeinunum dældaðar báðum megin, fremri höfuðmótin horfin, ennisbeinin gersamlega flöt, og mót ennisbeina og nefbeina, (nasion) dregin svo langt niður að hornið virtist næstum vera hvasst.  Áður en beðið var um höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð fyrir þetta barn, hafði foreldrunum verið sagt að heili barnsins hefði skaddast. 

Við skulum minnast þess að við fæðingu er miðtaugakerfið það kerfi líkamans sem er minnst þroskað og heilinn er þess vegna, á þessu skeiði lífsins langt frá því að vera  fullþroskaður.

  Sprengiuppköstin hættu eftir fyrstu CS meðferðina og bláminn hvarf smám saman.  Áframhaldandi súrefnisgjöf var því   óþörf.  Eftir aðra meðferð gat barnið sogið og kyngt og þannig tekið til sín nauðsynlega fæðu.  Næstu tvo dagana var barnið látið ótruflað og fékk ekki meðferð.  Klínísk einkenni hurfu, ennið varð kúpt, fremri höfuðmótin urðu greinileg og hin fimm voru einnig finnanleg, en það var enn óeðlilega hvasst horn á mótum ennis og nefbeina. 

Það var síðan auðveldlega lagfært með því að setja vísifingurinn upp í munn barnsins og láta það sjúga hann kröftuglega.  Þetta barn, sem nú er á öðru ári, er fullkomlega eðlilegt, sem við teljum vera því að þakka að það átti kost á höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð.  Staðan er því sú, að hvers eðlis eða hversu alvarleg sem einkenni barnsins eru, er ólíklegt að hefðbundnir læknar dragi þá ályktun að þau geti átt rætur að rekja til höfuðbeina og spjaldhryggskerfisins eða fæðingarinnar, þannig að tækifærið til að gefa skjóta meðferð er líkleg til að fara forgörðum. 

Það er mjög mikilvægt að gefa meðferð eins fljótt og mögulegt er til að tryggja fullkomna úrlausn og bata. 

 Einstakir hlutar gagnaugabeinsins og fleygbeinsins renna saman á fyrsta árinu, fjórir hlutar hnakkabeinsins renna saman á aldrinum þriggja til sex ára.  Ef afmyndað vaxtarmynstur hefur náð að festast í höfuðkúpunni á þessum tíma, hefur það áhrif á allan frekari vöxt að einhverju leyti.  En þrátt fyrir það er höfuðkúpan áfram sveigjanleg og það er hægt að laga hana til að vissu marki eftir þennan aldur, jafnvel langt fram á fullorðin ár. 

En því lengur sem afmyndað mynstur hefur verið til staðar í höfuðkúpunni, því lengri tíma tekur að meðhöndla það og því minni líkur eru á fullkomnum árangri. 

  Hér kemur önnur saga frá Beryl Arbuckle sem dæmi um þá möguleika sem geta verið fyrir hendi:

Ellefu ára gömul stúlka gekk í sérstakan skóla af því að talið var að hún hefði mjög lága greindarvísitölu. 

Hún gekk á snjóþrúgum daglega til að fætur hennar héldust í sundur.  Hendur hennar sýndu hæg viðbrögð og samhæfing þeirra var léleg.  Eftir að hún hafði fengið höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð í um það bil ár hafði líkamlegt ástand hennar batnað svo mikið að hún var farina að geta gengið í almennan skóla, og á fyrstu sex mánuðunum vour tvær sögur eftir hana prentaðar í skólablaðinu. 

Hafði hún einhvern tíma lága greinarvísitölu?  Núna er hún fjórtán ára og gömul og bæði skörp og skýr í hugsun, spilar ágætlega á pínaó, hefur þægilega rödd, og eina bæklun hennar er rýr fótur þar sem sinar höfðu verið skornar í sundur, hinn fóturinn þroskaðist eðlilega.  Núna er fóturinn máttlaus, ekki eins og þegar um krampalömun er að ræða, heldur eins og sést hjá þeim sem fengið hafa mænuveiki."  Það eru að sjálfsögðu ýmis önnur vandamál (önnur en samþjöppun á höfði) sem tengjast fæðingu, meðgöngu og tímabilinu strax að fæðingu lokinni.  Þau vandmál geta verið alvarleg eða lítilvæg, grófgerð eða fíngerð, líkamleg eða andleg, / tilfinningaleg.  Öll þessi vandmál koma fram í höfuðbeina og spjaldhryggskerfinu, og mörg þeirra er hægt að laga með þvi að gefa varfærnislega alhliða höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð.   

Aðalmarkmði höfuðbeina - og spjaldhryggsmeðferðar er að koma á og viðhalda heilbrigði og jafnvægi á öllum sviðum.  

Dæmi um vandamál, þar sem höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð hefur orðið til bóta:
 Hálshnykkur  (Whiplash ),  Höfuðverkur, Mígreni, Tíðaverkir,
Asthma, Sinusitis, Bronchitis, Blöðrubólga,
Frosin öxl, Liðagigt, Ischias, Langvinn tognun á ökkla, Vandamál í liðum, RSI, Meltingarvandamál,  Hryggskekkjur, Bakverkir, Hálsverkir, Viðvarandi sársauki hvar sem er í líkamanum,
Spenna, Svefnleysi, Sjóntruflanir,
Þrekleysi, Þunglyndi, Kvíði,
Vandamál á meðgöngu og eftir meðgöngu, fæðingarþunglyndi, Fylgikvillar skurðaðgerðar, Samgróningar,
Ungbarnakveisa, Pyloric Stenosis, Vandamál tengd fæðugjöf ungbarna,
Miðeyrabólgur, Vökvi í eyrum, Tonsillitis, ENT vandamál,
Samþjöppun á höfuðkúpu vegna erfiðrar fæðingar ásamt öllum þeim truflunum sem því getur fylgt,
Námserfiðleikar, Lesblinda, Rangeygi, Augnleti, Ofvirkni, Einhverfa, Flogaveiki, Cerebral Palsy,
Hegðunarvandamál, Bræðisköst, Þráhyggjuhegðun,
Tannvandamál og TMJ vandamál,
Höfuðskaðar og hin hárfínu áhrif þeirra á persónuleika og andlegt ástand,
Heilahimnubólga og langvinnir fylgikvillar hennar,
Post Viral Syndrome, ME, Glandular Fever, Síþreyta,
Fylgikvillar hvaða langvinnra veikinda eða veiklandi sjúkdóms sem er.
Þýðing úr kynningarbæklingi frá 
“Primrose Hill Natural Health Center” í London,


HÖFUÐBEINA OG SPJALDHRYGGSJÖFNUN & ANDLITS LYFTING ÁN SKURÐARAÐGERÐAR

Ég er loksins búin að fá aðstöðu í Reykjavík á stofu sem heitir  
17541 

 

  hár- og neglur
Hverfisgata 125 - 101 Reykjavík  Sími: 551 0102  
Ég tel að ég sé á besta stað í bænum,  en það eru bílastæði fyrir framan, Hlemmur í nokkurra skrefa fjarlægð og svo eru leigubílar með póst þarna líka.
Stofan heitir  sem sé DÍVA hár og neglur  en það er hársnyrtistofa, þar sem einnig er boðið  uppá nagla ásetningar og skreytingar,  tattú fyrir augabrýr og varir, hárlengingar,  höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun og andlitslyftingarnudd ( Natural lift face massage)

Að vísu vantar snyrtisérfræðing , ef einhver þekkir manneskju sem vantar aðstöðu,þá getur viðkomandi hringt í sama númer og tímapantanir  en það er 5510102. Það er sem sé hægt að fá stóran pakka á einum stað.


Hrukkustraujárnið2,jpgEinnig  býð ég fólki líka að kynnast undratæki sem að viðkomandi getur eignast og notað sjálfur, hér er hægt að sjá árangurinn http://www.galvanicref.nu   

Hér http://www.galvanicspa.is  finnið þið okkur sem orðin eru ráðgjafar hér á landi. 

Þetta er tækið sem sýnt er og sagt frá í Vikunni 8 nóv,  en það gengur undir nafninu  "HRUKKUSTRAUJÁRNIÐ"  þó svo það sé líka nota á cellulite/appelsínuhúð, hárlaus höfuð/ hármissir, "bingó" arma og fleira ..  Hver vill ekki eiga sína eigin galvanic spa stofu sem kemst fyrir í handtöskunni.....

En sjón og reynsla er jú oftast sögu ríkari.....

Er líka með  kynningar í heimahúsum á þessu undratæki, en ég vil ekki að séu fleiri en 6 með húsráðanda, ef eru mikið fleiri þá vill fara of mikill tími í kjaftagang...Get líka haldið kynningar fyrir saumaklúbba og verið með einkatíma.

Vilji fólk fá tíma hjá mér þá hægt að panta tíma í   862 1357 og 437 1772,  og á stofunni 5510102,  eða  hér ingaorama@gmail.com

cranialÉg hef hugsað mér að vera mest  með Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun  en einnig NATURAL FACE  LIFT MASSAGE / Andlitslyfting án skurðaraðgerðar.. En fer jú eftir því hvað fólk vill...
 
Er líka búin að bæta við mig sérstakri meðferð með nýfædd börn til  2 ára,  PEDIATRIC  CRANIOSACRAL THERAPY  en þessa sérstöku meðferð kenndi BENJAMIN SHIELD, Ph.D 
http://www.milneinstitute.com/teachers_benjaminshield.html  en það var kennt  20 -22 febrúar 2007.
 
Svo  var ég á 3 daga námskeiði í Kaupmannahöfn 17-19 ágúst 2007 sem heitir

"THE POLYVAGAL THEORY " og haldið var á vegum Stanley Rosenberg Institute   www.stanleyrosenberg.com 

Ég var svo heppin að vera boðið og var eini íslendingurinn á þessu námskeiði sem voru um 40 manns á, en þetta var í fyrsta sinn svona námskeið hefur verið haldið.
Kennarar voru Stephen W. Porges PhD, 
www.stephenporges.info 

Robert Schleip PhD , http://www.anatomytrains.com/robertschleip

Amber Grey Dance Movement Therapist and trauma psychotherapist. http://www.continuummovement.com/teachers/gray.html 
Ég var líka á Social Engagement Protocol (Félagsleg færni)  námskeiði hjá Stanley Rosenberg í Reykjavík 29. sept - 2. okt 2007 ( Þessu námskeiði sem var svo mikil umfjöllun í fjölmiðlum um..sérstaklega  hjá  vissum "hugvísindamanni" en ég hélt að það væri lágmark að hafa þá nafn þess sem verið er að gagnrýna rétt...en þessi "hugvísindamaður"  kallaði manninn alltaf Robinson..en hann heitir Rosenberg... ekki neitt rosalega lík nöfn...)  
Upplýsingar um það hvað höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun er og við hverju það getur hjálpað, getið þið fundið hér http://www.kelinga.com  smellið á CRANIO og þá opnast inn á þær.

Hér inni

http://www.heilsubankinn.is/vefur/index.php?option=com_a_adilar&do=view_adili&id=30

getur fólk séð hvað ég hef lært og líka verð og tilboð.

Öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá sérstakan afslátt.

Andlitslyfting án skurðaraðgerðar

B&W_FACE-MASSAGE7Natural Face Lift Massage  er sérstök samblanda af nuddtækni (Anma) ,hefðbundnu japönsku nuddi og Ayurveda, hinni fornu indversku heilunar aðferð, sem hefur verið fín pússuð fyrir hinn vestræna heim í tímans rás. 

Þetta háþróaða sambland af Japönsku og Indversku andlitsnuddi,  er  einnig  þekkt sem andlits uppynging (Facial Rejuvenation eða Natural Facelift ) ásamt blöndu af Accupressure og Reflexology fyrir andlitið, en þetta er ný meðferð sem nýtur æ meiri vinsælda hjá viðskiftavinunum.
Þetta andlitslyftingar nudd felur í sér  röð af nuddtækni sem virkar eins og náttúruleg andlitslyfting en án skurðaraðgerða, sem hjálpar viðskiftavininum til að líta yngri út  (oft líka líða þannig!).
Við erum flest öll með spennu sem hefur byggst upp í andlitsvöðvunum og flest  okkar elskum það að minnka og losna við blessuðu hrukkurnar í fésinu....;-)
Meðferðin  stuðlar að losun  eiturefna  frá andlitinu, koma í veg fyrir og fjarlægja andlitshrukkur og öldrunar bletti, og koma á tilfinningalegu jafnvægi og auknu  ki eða lifsorku, sem stuðlar almennt  að bættri heilsu.
Þessi meðferð jafngildir nálarstungu (acupuncture) andlitslyftingu,  nema án nálanna!
Ólíkt andlitslyftingar skurðaraðgerðum, þá hefur þessi meðferð engar slæmar aukaverkanir og er mjög virk sem andlits umönnun.
Þessi háþróaða aðferð hefðbundins andlits nudds meðhöndlar bæði yfirborð og djúpvefi andlitsins, með fínlegri handfjöllun handa og fingra.


Þessi tækni getur:
* Aukið blóðflæði, auðveldað háræðunum að flytja næringarefnin  betur upp á yfirborð andlitsins.
*Örvað taugakerfið.
* Bætt útskilnað sogæðakerfisins, flutt bakteríur og eiturefni frá húðfumunum.
*Styrkt  og mótað vöðvana, komið  í veg fyrir fínar línur og að húðin sígi.
* Gert við og jafnað ástand húðarinnar, hægt á öldrunarferlinu.
*Jafnað "ki"  (chi),  bætt heilsu og ytra útlit andlits vefjanna.

 Til  viðbótar getur þessi meðferð hjálpað við að :

* Draga úr línum og hrukkum  * Bæta  teygjanleika húðarinnar.
* Draga úr og losa vöðvaspennu í andliti og kjálkum.

* Minnka stress einkenni af völdum svefnleysis, höfuðverks og augn áreynslu.
* Bætt litarhátt og styrkt húðina og unirliggjandi voðva.
* Örvað uppyngingu og frumuvirkni.
* Bæta virkni sogæðakerfisins, aukið útskilnað eiturefna og flutning næringarefna til frumnanna.
* Hjálpa  til við að fjarlægja dauðar húðfrumur.
* Viðhalda frísku og unglegu útliti.
* Stuðla að bættri hringrás blóðsins.
* Bæta andlega og líkamlega slökun.
* Láta þér líða stórkostlega...

Þessi nuddtækni losar um stress og áföll,  sem eru lokuð djúpt inni í vöðvum og orku andlitsins, höfuðsins og hálsins.
Andlit okkar er oft gríman okkar, sem felur það hver við í raun og veru erum, og það krefst mikillar orku að halda "frontinum" . 
Það að fella þessa grímu getur verið sem að dyr hafi opnast inn í mjög djúpa slökun og innri frið.

 


SAGA MÓÐUR SEM Á DRENG MEÐ TOURETTE

Annar lífsstíll - annað líf 
Einkenni hverfa nær alveg með breyttu mataræði og lifnaðarháttum 

Sonur okkar, sem varð 10 ára í nóvember 2006, greindist með Tourette í janúarbyrjun sama árs. Þá var liðið um hálft ár frá því við foreldrar hans höfðum orðið vör við hljóð í hálsi s.s. ýlfur og ræskingar á eftir, ásamt miklum kækjum sem voru blikk í augum (frá unga aldri), reka út úr sér tunguna og að horfa aftur fyrir sig í sífellu. Hann hefur ætíð átt auðvelt með nám en þennan vetur fór að síga á ógæfuhliðina og athyglin hans að bresta svo hann dróst aftur úr öðrum nemendum í bekknum. Hann hefur alla tíð verið mjög félagsfælinn og kvíðinn og um leið og kækirnir komu í ljós jókst kvíðinn og honum fór að líða verr félagslega í skólanum.  

Eftir að hafa fengið greiningu hjá Pétri Lúðvíkssyni í janúar sem tjáði okkur að Tourette væri ólæknandi og að það eina sem hægt væri að gera væri að gefa lyf ef sjúkdómurinn færi að hafa mikil áhrif á daglegt líf, vonuðum við að okkar sonur væri einn þeirra heppnu, sem þessi taugaröskun fer mildum höndum um. Fyrir utan það að benda okkur á lyf, vorum við upplýst um það að líklegast ykju álag og þreyta á einkennin. Að öðru leiti vorum við bara uppá náð og miskunn dyntóttra máttarafla að því er virtist.  

Rúmum mánuði eftir greiningu, eða í lok febrúar, höfðu einkennin versnað svo mikið að við sáum fram á að mjög líklega yrði þörf á lyfjagjöf fyrir sumarbyrjun ef fram héldi sem horfði. Þá var drengurinn kominn með höfðuhnykki ásamt því sem kjálkinn kýldist fram oft á dag og sú hreyfing olli honum sársauka. Einnig voru einkennin komin í axlir og mjaðmir og hann gat ekki lengur gengið með okkur niður í bæ sem er um 15 mínútna labb, sökum sársauka sem fylgdi þessum krömpum í mjöðmum. Þarna var svo komið að sjúkdómurinn væri farinn að hafa veruleg áhrif á daglegt líf og því þurfti að  bregðast við. 

Lyf eða...? 

Áður en við færum leið lyfjagjafar vildum við reyna náttúrulegri leið, -  því hverju myndum við tapa? Við höfum ávallt verið á þeirri línu svo hún var okkur eðlilegri en leið lyfjanna.  

Það er skemmst frá því að segja að á einum mánuði hurfu nær öll einkenni. Hljóðin hurfu alveg og einn og einn dag mátti greina kipp í öxl eða blikk í augum.  Kennari drengsins hélt hann væri kominn á lyf þar sem hann sá nær engin einkenni lengur um vorið. Þegar skóla lauk í júní komst mikil óregla á heimilislífið. Óreglulegur svefntími, námskeið sem enduðu í pulsu- og nammiáti ásamt kókþambi. Útilegur þar sem hveitikex var gjarnan við hendina og stundum keypt pulsa og ís. Við fórum í vikuferð til Kaupmannahafnar þar sem hann fékk pizzu og pasta í nær hvert mál og ís á eftir. Nokkuð af kækjum kom aftur en þó  ekki jafn mikið og verið hafði í febrúar.

Við greinum þannig mun á honum í samræmi við mataræði og annað. Við getum þannig séð mun strax að kvöldi eða daginn eftir, ef hann hefur farið í afmælisveislu og úðað í sig kökum, pulsum og gosi eða ef hann fer í ný föt sem ekki hafa verið þvegin eða ef hann hefur gónt mikið á tölvu- eða sjónvarpsskjá o.s.frv.  Hann sjálfur veit hvað það þýðir að úða í sig óhollustu og kýs oftast að sleppa öllu sem gerir honum illt, nema þegar um afmæli vina hans er að ræða eða aðra merkisviðburði.   

Við tókum okkur aftur á þegar við sáum hversu mikil áhrif þessi óregla hafði og nú rúmu ári síðar er hann ennþá nær einkennalaus. Ókunnugir myndu ekki taka eftir mun á honum og öðrum börnum. Engir kækir eru greinanlegir nema eftir syndsamlega óhollustudaga. Hann er stundum með ræskingar og síðan koma litlir kippir í andlit einstaka sinnum. Alls ekki á hverjum degi. Höfuðreygingarnar, kjálkakippirnir, ullið ásamt kippum í mjöðmum hafa ekki látið sjá sig aftur og ýlfur hefur sömuleiðis ekki heyrst síðan í febrúar/mars. Honum gengur mun betur í skólanum, bæði námslega og félagslega og er almennt hamingjusamari og í betra tilfinningalegu jafnvægi.

Almennt séð er ekki hægt að sjá að hann eigi við þennan sjúkdóm að stríða og við erum gífurlega hamingjusöm yfir þessari breytingu og viljum því að sem flestir viti a.m.k. af þessari leið. Þá er hverjum og einum frjálst að velja. En eins og staðan er í dag hafa fæstir val því menn þekkja ekki til þessarar leiðar og enginn gerir þeim grein fyrir þessum möguleika. Kannski hentar þessi leið ekki í öllum tilfellum, en þá eru mönnum frjálst að því að velja sjálfir, sem við teljum ákaflega mikilvægt. 

Hvað gerðum við

Upplýsingar um aðgerðir fengum við frá taugasjúkdómasamtökum í Bandaríkjunum sem sérhæfa sig í náttúrulækningum við t.d. Tourette og einhverfu með góðum árangri. Við pöntuðum bækur frá þeim og fórum jafnframt með Kolbein til hómopata sem greindi hvað það væri sem hann hefði óþol fyrir. Við fylgdum hennar leiðbeiningum og lásum okkur til í bókum og á netinu. Bókin sem við studdumst einna mest við er nú til hjá Tourettesamtökunum. Ég læt hér fylgja allt mögulegt sem við höfum í huga og við höfum lesið um að hafi slæm áhrif á tourettesjúklinga. Okkar reynsla hefur síðan staðfest margt af þessum atriðum. 

Ekkert sem eykur á gersvepp í þörmum og að óhreinindi safnist þar upp.

Sagt er að meðal Vesturlandabúi sé með mikið af matarleifum í þörmunum, allt uppí nokkur kíló. Veldur offitu, prumpi, álagi á kerfinu, eiturefni hrannast upp og fara út í blóðið og þetta eykur næmi fyrir alls kyns aukaefnum (eiturefnum) í mat. Vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast komast ekki í sama mæli út í blóðrásina.

Tourette-fólk sem hefur farið náttúrulækningaleiðina segja kækina aukast ef þeir neiti t.d. gers, glútens (hveiti) og sykurs. Sonur okkar fær því ekkert ger, hveiti eða sykur. Fær stundum Agave sýróp (t.d. út á grjónagrautinn sinn) og lífrænt ræktaðan brúnan sykur. Ekki púðursykur þó. Síðan bökum við speltbrauð u.þ.b. annan hvern dag án gers (notum þá vínsteinslyftiduft) og hann fær hrökkbrauð sem er sykur og hveitilaust.  Oft gerum við pizzu úr speltmjöli og notum lífrænt ræktaða tómatsósu sem er því ekki með neinum litarefnum,  rotvarnarefnum eða hvítum sykri. Ofaná fær hann skinku án msg, oftast kjúklingaskinku. Hann fær síðan afganginn í nesti og því nýtist baksturinn enn betur.  

Þegar ekki gefst alltaf tími í bakstur er hægt að fá mjög góð brauð í Brauðbæ í Glæsibæ (fást einnig í heilsubúðum og mörgum kjörbúðum, m.a. Melabúðinni), sem eru gerlaus og hveiti/glútenlaus. Einnig eru til í mörgum kjörbúðum hálfbakaðar frystar brauðbollur úr spelti sem hitaðar eru í ofni og gott er að grípa til. 

Ekkert Aspartam.

Þetta efni hefur áhrif á verki s.s. mígreni, sykursýki (taugaverkir hjá sykursjúkum) og athyglisbrest svo fátt sé nefnt og getur aukið á kæki hjá þeim sem hafa tourette. Er mjög umdeilt þótt Umhverfisstofnun og Lýðheilsustofnun segi efnið ekki skaðlegt heilsu manna. 

Sonur okkar fær frekar sykrað kók en diet kók, því af tvennu illu er venjulegt kók þó skárri kostur að okkar mati. Við stillum gosdrykkju líka mjög í hóf, höfum hana aðeins til spari. Diet (Nutra Sweet) er með aspartam-sætuefni. Hægt að kaupa lífrænt gos í heilsubúðum og á heilsukaffihúsinu Hljómalind. Þar setjumst við stundum niður og fáum okkur gos (enginn hvítur sykur og aðeins lífrænt ræktuð bragðefni og engin litarefni) og súkkulaðiköku þar sem hráefnið er lífrænt ræktað og hrásykur notaður.  

Ekkert MSG (monosodiumglutamat). Oft kallað E621. Ekki þarf að gefa upp hvað er í mat skv. bandarískum lögum og því getur staðið "natural sweeteners”, “modified food starch”, “natural flavoring”eða “yeast extract” í staðinn sem gefur til kynna að varan innihaldi MSG. Hefur samskonar áhrif á heilann og Aspartam. Ruglar boðefni og efnaskipti segja þeir sem gagnrýna það, en margar rannsóknir benda á skaðsemi þessa rétt eins og í tilfelli Aspartam. 
 
 Eins lítið af unninni vöru og hægt er.

Hún er orkulítil. T.d. dósa- og pakkamatur eða unnar kjötvörur s.s. pylsur. Þar að auki er oft búið sprauta msg í þessar vörur s.s. í pulsur og lambalærisneyðar tilbúnar á grillið. Oft búið að setja msg í kryddlöginn. MSG er í Aromat-kryddi og Köd og Grill ásamt mörgum tegundum af Season All. Einnig í kartöfluflögum og þvílíku. Almennt séð reynum við að sneyða hjá aukaefnum í matvöru, svosem bragðefnum, litar- og rotvarnarefnum, eins og kostur er. Sumir telja að þeir sem hafi Tourette geti verið viðkvæmari fyrir fæðu og efnum í umhverfinu en aðrir, allavega getur mataróþol og ofnæmi meðal þeirra leitt til þess að allir kækir aukast. 

Sem mest af lífrænt ræktaðri vöru.

Enda er hún orkuríkari, fyrir utan það að hún er laus við eiturefni s.s. skordýraeitur og kemískan áburð. Tourette fólk þolir illa þetta eitur og það getur komið kækjum af stað. 

Lífræn mjólk og lífræn AB-mjólk.

Það er mikið af aukaefnum og sykri í jógúrti og öðru slíku sem getur verið slæmt. Einnig virðist hafa jákvæð áhrif að nota mozarella-ost í stað hefðbundinna steyptra osta eins og Gouda. Í steyptum ostum er notaður saltpétur sem fer illa í marga, en mozarella-osturinn er laus við hann, og því er hann tilvalinn á grilluðu samlokurnar og á pizzur. Sojamjólk kemur líka til greina, það er þó misskilningur að hún sé hollari en venjuleg mjólk enda er sojamjólkin mikið unnin vara. Oft er hún þó eini kosturinn fyrir þá sem hafa mjólkuróþol.  

Hætta notkun á eiturefnum á heimilinu.

S.s. Ajax og því öllu sem við strjúkum borðin og þvoum gólfin okkar með. Gufurnar fara í andrúmsloftið og koma kækjum af stað. Sama með þvottaefni fyrir fötin okkar. Þó það heiti Neutral þá virkar það eins á þá sem eru viðkvæmir fyrir öllum eiturefnum. Við kaupum aðeins náttúruleg hreinsiefni bæði fyrir uppvask, fataþvott, sjampó, tannkrem, skúringar o.s.frv. Allt telur ef fólk er viðkvæmt fyrir þessu. Enda erum við að safna í okkur þessum eiturefnum frá fæðingu og smám saman fara þau að valda sjúkdómum eftir því sem árin líða.  
 

Síðan eru það bætiefni.

Við höfum lesið okkur til um það hvað virðist gera þeim sem hafa Tourette gott og þá er oftast talað um Omega 3, 6 og 9, allt í einni blöndu og hægt er að kaupa í belgjum í heilsubúðum. Einnig Zink, B-vítamín og Magnesíum sem öll styrkja taugakerfið. Síðan leggjum við mikla áherslu á að maginn sé í lagi og gefum honum Acidophilus. 

Síðan hafa langar setur fyrir framan sjónvarps- og tölvuskjái slæm áhrif á taugakerfið. Margir sem eru með Tourette eru viðkvæmir fyrir ljósi og í hefðbundnum sjónvarps- og tölvuskjáum er mikið ljósflökt. Við sjáum mun á drengnum okkar ef hann hefur fengið að vera lengi í tölvuleik eða að horfa á sjónvarp, þá vilja kækirnir aukast og hann byrjar að ræskja sig meira en áður og byrjar jafnvel að mynda önnur hljóð. Við höfum þannig dregið úr því hjá honum. Flatskjáir (plasma- og lcd-skjáir) eru þó mun betri en hinir því þar er ljósið stöðugt og flöktir ekki. Þá er þó ekki allt unnið, því í mörgum tölvuleikjum og sjónvarpsþáttum er mikið um örar birtubreytingar og hröð klipp, og í notandabæklingum tölvuleikjaframleiðenda s.s. Nintendo er varað við hættu á flogaköstum. Frægasta dæmið um þetta er líklega þegar upp komu flogatilfelli meðal japanskra barna þegar þau horfðu á teiknimyndir eins og Pokémon. 

Varast rafmengun.

Sumir jafnaldrar sonar okkar eru með GSM síma. Síðan eru þráðlausir símar á flestum heimilum nú orðið. Þráðlaus net fyrir tölvuna. Örbylgjuofnar, sjónvörp í hverju herbergi, tölvur o.s.frv. Þetta segjast margir hafa prófað að lágmarka og fundið mun. Við höfum t.d. látið mæla íbúðina og gert vissar ráðstafanir. 

Klór í sundlaugum þola margir illa. Í sumum laugum er saltvatn í stað klórs s.s. í Seltjarnarneslaug og í Vestmannaeyjum. 

Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

Förum reglulega með hann í svoleiðis tíma. Hann slakar vel á og virðist hafa mjög gott af þeirri meðferð. 

Hreyfing úti í frísku lofti

Finnum mun á því hvort hann er í kyrrsetu inni eða úti í fersku lofti að hamast. Er allur slakari og betri og ánægðari á eftir. Sefur einnig betur eftir áreynslu í frísku lofti. Við reynum að fara í hjólreiðatúra saman eða göngum upp á Esju í góðu veðri.  

Hómopata

er gott að heimsækja ef fólk kýs það og láta athuga hvort viðkomandi sé með óþol fyrir einhverjum fæðutegundum s.s. mjólk eða ostahleypi svo eitthvað sé nefnt. 
 Ef einhver hefur áhuga á að forvitnast meira um þessar aðferðir er sjálfsagt að hafa samband við mig í heida@fa.is 
Ég læt fylgja með veffang samtakanna bandarísku, sem kallast Association for Comprehensive Neuro Therapy, www.latitudes.org 

Kær kveðja, 

Heiða Björk Sturludóttir


SOY FORMULA TENGD VIÐ HEGÐUNARVANDAMÁL

Eru tengsl á milli soy formúlu (soy þurrmjólk fyrir ungabörn) og athyglisbrests?(ADD)
Í visindarannsókn á soja mjólk uppggötvuðust  tengsl á milli  hegðunarvandamála og mikils magns af manganese.
Félag bandarískra barnalækna mælir með því að brjóstagjöf sé helst í 12 mán og jafnvel lengur.
Hvað sem því líður þá er það ekki alltaf raunhæft.
Rannsókn gerð af rannóknaraðilum í Yale á síðasta ári komst að því að flestar mæður sem búa á afskekktum stöðum,halda brjóstagjöf ekki áfram eftir 4. mán vegna þess að þær skortir trúna á að þær geti gert það og halda jafnvel að barnið vilji frekar þurrmjólk..

Af þeim 64 konum sem tóku þátt í rannsókninni, þá höfðu 27% af þeim hætt brjóstagjöf eftir 1.viku, 37% eftir 2 vikur, 70% eftir 2. mán og 89% eftir 4 mán.

Þessar tölur eru mjög mikilvægar í sambandi við nýafstaðna rannsókn á manganese í barna þurrmjólkurdufti (infant formula)  og möguleg tengsl við hegðunarvandamál hjá börnum.
Í rannsókninni komust rannsóknaraðilarnir að því að nýfæddir rottu ungar sem fengu manganese sem fannst í meira magni í þurrmjólk (infant formula) sérstaklega í soy þurrmjólk heldur en í brjóstamjólk, geti haft atferlis –tengdar breytingar á efnafræði heilans.

Þessar bráðabirgða niðurstöður þurfa að verða staðfestar í stærri rannsóknum áður en það er endanlega staðfest a manganese sé  að orsaka hegðunarvandamál.
Ástæðan fyrir því að manganese er svona mikið áhyggjuefni er að það er eitur í stórum skömmtum jafnvel þó að það sé lífsnauðsynlegt til þess að lifa, þar sem það hjálpar frumum að safna orku.

Magn af manganese er misjafnlega mikið í ungbarna fæðu:
Brjóstamjólk inniheldur 4-6 míkrógrömm pr. Líter (mcg/l)
Mjólkurduft ( úr kúa mjólk)ætlað börnum inniheldur um 30-50 mcg /L
Í sumum soy formula ( soy þurrmjólk) 200-300 mcg/L

Í rannsókninni voru 32 nýfæddir rottu ungar sem voru aldir á 0-500 microgrömmum af manganese daglega.
Magnið sem rotturnar fengu var ætlað til að líkja eftir því sem ungabörn sem fengu brjóstamjólk og hinna sem fengu þurrmjólk.
Þær rottur sem fengu ekkert eða mjög lítið skammt af manganese sýndu enga kemíska óreglu,
en þeir sem fengu mesta skammtinn af manganese
voru með lægra magn af dopamine, efni í heilanum sem hjálpar manni við að leysa vandamál.
Rannsóknaraðilarnir völdu manganese vegna fyrri ransókna á námuverkamenn sem höfðu orðið fyrir að fá mjög mikið magn af steinefninu (manganese) og fengu í kjölfarið alvarleg heilsufars vandamál sem líktust Parkinson´s sjúkdómnum.

Rannsóknaraðilarnir hafa áhyggjur vegna þess að soy formula inniheldur 80 sinnum meira magn af manganese heldur en brjóstamjólk, en þeir bætta því við að önnur steinefni í formulunni geti dregið úr áhrifunum frá manganese..
Tveir vel þekktir framleiðendur soy formula eru Ross Products, deild frá Abbott Laboratories, og Mead Johnson Nutritionals.
Ross framleiðir Isomil og Mead Johnson framleiðir ProSobee. Prosobee og Isomil innihalda báðar 25mcg af manganese í hverjum 5 únsum af venjulega útþynntri formula.
Það er samt sem áður 400% hærra en er í brjóstamjólk!!!

Hvað sem því líður þá er mjög mikilvægt að munaað rotturnar fengu ekki sjálfa formuluna, aðeins manganese fæðubótaefni svo að niðurstaðan er ekki fullnægjandi enn sem komið er...
Fleiri rannsóknir þarf til þess sjá hvort tengsl eru á milli manganese og heilsuvandamála.

Manganese getur valdið taugaeitrun í stórum skömmtum.
Þetta er alveg skólabókardæmi um það að of mikið af næringarefni getur haft mjög alvarlegar aukaverkanir.
Mark Purdey, sem gerði grunnrannsóknir á Mad Cow´s Disease, staðfesti þetta að þegar hann ferðaðist til Groote Eylandt, eyju sem er norð-austur af Ástralíu þar sem 25 % af Manganese í heiminum er unnið.

Hann skrifaði ítarlega grein um ferð sína hér:
http://www.markpurdey.com/articles_endearth.htm

Um það bil 1 af hverjum þrjátíu, aðallega í þessu frumbyggja þorpi, þar sem fína rykið sest venjulega mest að, hafa Goote syndrome (einkenni), taugasjúkdóm sem fer vaxandi. Þetta er lokastigið af völdum alvarlegrar manganese eitrunar..

Svona smá af virðingu fyrir soy..þá eru hér nokkur lykil atriði...

Margt fólk tengir soy við Asiubúa, góða heilsu og langlífi...
Hvað sem því líður þá borðuðu kínverjar ekki ógerjað soy baunir eins og þeir gerðu með aðrar baunategundir, eins og t.d. linsubaunir, vegna þess að sojabaunin inniheldur mikið magn af náttúrulegu eiturefni eða ,,næringarleysur".
Fremstur í flokki er sterkur ensím tálmi sem blokkerar virkni trypsin og annarra ensíma sem þarf til þess að melta protein.
Þessir hamlarar eru stór þétt samanbrotin protein sem verða ekki óvirk við venjulega eldamennsku.
Þau geta valdið alvarlegum meltingartruflunum, dregið úr meltingu proteins, valdið krónískum skorti á aminosýrum (hamlar upptöku þeirra) .
Soy inniheldur líka efni sem heitir goitrogen sem að bælir virkni skjaldkirtilsins.
Þar sem að að það er mjög sennilegt að 50 miljónir kvenna séu með skerta virkni skjaldkirtilsins, er þetta mikilvægt mál.

Þar að auki er 99% -- mjög stórt hlutfall af soy--- sem er erfðabreytt (GMO) og inniheldur líka meira magn af skordýraeitri en nokkur önnur fæðutegund..!!
Sojabaunin hefur líka mikið magn af plöntusýru, (phytates) sem er líka í hveitiklíði og hýði allra fræa.

Það er efni sem getur blokkerað upptöku mikilvægra steinefna í smáþörmunum - calsíums, magnesium, kopars, járns og sérstaklega zinc.
Þó að það sé ekki alþekkt orð, þá hefur plöntusýran verið rannsökuð ítarlega; það eru bókstaflega hundruðir greinaskrifa til um áhrif plöntusýrunnar í vísindaheiminum.  Plöntusýran getur reyndar hjálpað þeim sem eru með of mikið járn í líkamanum.
Þá er það einnig augljóst að hún getur verið mikið vandamál fyrir konur sem eru með blæðingar og tapa við það miklu af járni og öðrum steinefnum út..
 
The Whole Soy Story. The True  Soy Story.
http://thewholesoystory.com/
Soy er ekki kraftaverka fæða.
Soy er ekki svarið við hungursneyð í heiminum.
Soy er ekki undralyf.
Soy hefur jafnvel ekki verið viðurkennt öruggt.

Hundruðir faraldursfræðilegra, klíniskra og tilraunastofu rannsókna tengja soy við :
Næringarskort
Meltingar vandamál
Skjaldkirtils vandamál
Elliglöp
Æxlunarfæra vandamál
Ófrjósemi
Fæðingargalla
Hrun ónæmiskerfisins
Hjartasjúkdóma
Krabbamein.
Soy Baby Formula Linked to Behavioral Problems
Is There A Link Between Soy Formula And Attention Deficit Disorder?
Scientific Study Of Soy Milk Finds Behavior Problems From High Manganese Levels.

Experts Dispute JAMA Soy Infant Formula Study
Soy Allergy
Soy Formulas and the Effects of Isoflavones on the Thyroid
Pregnant Women Should Not Eat Soy Products

MAGNESÍUM, OFBELDI OG ÞUNGLYNDI...

magnesium-deficiency1.png
Eftir Mark Sircus, Ac., OMD
Medical News, IMVA 23 feb., 2006.

Í febrúar 2006 skýrði New York Times blaðið frá því að ofbeldistengdir glæpir hafi verið í lágmarki um öll Bandaríkin og í borgum eins og New York, Miami og Los Angeles, en samt hafa þeir aukist verulega mikið víðs vegar annarsstaðar um landið.

Á meðan glæpir af þessu tagi einkenndust af deilum milli glæpaklíka og eiturlyfjasvæða áður fyrr, telur lögreglan orsakir flestra manndrápa í dag vera smávægilegar og ættu ekki einu sinni að valda slagsmálum, hvað þá skotbardögum eða hnífsstungum.

 Sources:

"MIT: Magnesium May Reverse Middle-Age Memory Loss"

Medical News Today, 12/1/04, http://www.medicalnewstoday.com 

"Dietary Magnesium Depletion Affects Metabolic Responses During Submaximal Exercise in Postmenopausal Women"

Journal of Nutrition, Vol.132, No. 5, May 2002, nutrition.org

"Lack Energy? Maybe It's Your Magnesium Level"

Science Daily, 5/10/04, http://www.sciencedaily.com 

"Prolonged Magnesium Deficiency Causes Osteoporosis in the Rat" 

Journal of the American College of Nutrition" Vol. 23, No. 6, December 2004

"Magnesium Deficiency Linked to Osteoporosis"

Natural Products Insider, 1/10/05, http://www.naturalproductsinsider.com 

Sakborningar segja lögreglunni að þeir hafi drepið þann sem niðurlægði þá eða einhvern úr fjölskyldu þeirra, eða þann sem sendi þeim illilegt augnaráð. [1]

Lögreglustjórinn Nannette H. Hegerty frá Milwaukee kallar það „reiðimálið“ segir í blaðinu sem hefur ennfremur eftir henni: „Við höfum fyrir augunum mjög reiða þjóð sem berst ekki lengur með hnefunum heldur grípur beint til byssunnar.“

Þegar við spyrjum af hverju skaustu þennan mann fáum við svör eins og „hann rakst í mig“ eða „hann horfði á kærustuna mína“ segir Sylvester M. Johnson, lögreglustjóri Fíladelfíu.

„Það er ekki eins og þeir séu keyrandi um skjótandi á hvorn annan, heldur eru þetta rifrildi, heimskuleg rifrildi vegna heimskulegra hluta.“

Ástæða ofbeldisglæpa hefur oftast verið rifrildi en það sem er að gerast er að menn grípa miklu fyrr til byssunnar en áður.

„Í ránum“ segir Lögreglustjóri Milwaukee, Hegerty:

„jafnvel eftir að manneskja hefur gefist upp, skýtur byssumaðurinn hann samt.

Það var ekki eins mikið um þetta áður fyrr.“

Hvað getur ollið þessari aukningu á ofbeldi?

Við getum látið okkur detta í hug að skráður magnesíumskortur 70% þjóðarinnar geti verið hluti af vandamálinu og að við upplifum glæpi tengda þeim sem eru verst settir af þessum skorti.

Tveir frumþættir þess að heili okkar starfi eðlilega eru nægar orkubirgðir og hæfilega mikið magn lífefna sem eiga þátt í að senda taugaboð um líkamann. Magnesíum er lífsnauðsynlegt bæði til að framleiða orku og taugaboðefni, auk þess til viðhalds varnarveggja milli blóðs og heila.

Kjarni vísindanna tengir magnesíum við taugafræðilega sjúkdóma. [2]

Magnesíum skortur veldur serótónín skorti
með væntanlegum afbrigðilegum hegðunum,
þar með töldu þunglyndi, sjálfsmorðum
og óraunhæfum ofbeldisverkum.

Paul Mason.

Magnesíum er ekki eina næringarefnið þar sem skortur getur valdið vandamálum tengdum huga og tilfinningum. Sínk er líka mikilvægt steinefni og er tengt geðrænum sjúkdómum.

Yfir 90 málm-ensím þurfa á sínki að halda og starfsemi heilans byggir á nægjanlegu magni þess. Skortur á sínki getur valdið minnisleysi, sinnuleysi, þunglyndi, pirringi, þreytu, geðsjúkdómum og ofsóknaræði.

Skortur á öðrum steinefnum getur valdið ýmsum kvillum en magnesíum og sínk eru þau mikilvægustu.

Margar mikilvægar rannsóknir sem gerðar hafa verið á
stofnunum fyrir vandræðabörn og unglinga hafa
sýnt að ofbeldi og alvarleg andfélagsleg hegðun
hefur minnkað næstum því um helming
eftir að skipt var yfir í næringarríkari fæðu.

Embættismenn heilsugeirans og lyfjafyrirtækin vilja ekkert vita um notkun einfaldra steinefna til meðhöndlunar á þunglyndi eða ofbeldi. Síðan serotonin lyfin (SSRI) og önnur geðlyf komu á markaðinn hafa ótal rannsóknir sýnt að hin svokallaða „nýja kynslóð“ geðlyfja hefur reynst gagnslaus og hættuleg.

Um allan heim hefur sala á geðlyfjum aukist, úr 263 milljónum dollara árið 1986 í 8,6 þúsund milljónir dollara árið 2004 og sala þundlyndislyfja aukist úr 240 milljónum dollara árið 1986 í 11,2 þúsund milljónir dollara.

Samanlagt jókst salan á þessum tveimur tegundum lyfja úr 500 milljónum dollara árið 1986 í 20 þúsund milljónir dollara árið 2004, sem er um 40% aukning, segir Robert Whitaker, höfundur

Mad in America. [3]

Samkvæmt rannsókn sem Geðheilbrigðisstofnun Bandaríkjanna
borgaði fyrir þá hefur hefur sjálfsmorðshugsunum- og
hegðun ekkert fækkað þrátt fyrir gífurlega aukningu
á meðhöndlun geðsjúkdóma á undanförnum 10 árum.

The Washington Post. Júní 2005.

Þó að það séu margar oft flóknar orsakir sem ná yfir hið líkamlega, tilfinningalega, geðræna og andlega svið okkar, þá er hægt að kenna næringarskorti um megnið af því ofbeldi og þunglyndi sem við upplifum þessa dagana, en er jafnframt auðveldast að lagfæra.

Það er ljóst t.d. skortur eða ójafnvægi á magnesíumbirgðum líkamans eigi stóran þátt í einkennum skapgerðasjúkdóma. Athugunar- og tilraunarannsóknir hafa sýnt samband á milli magnesíums og árásarhneigðar [4][5][6][7][8], kvíða [9][10][11], ADHD (athyglisbrests, ofvirkni) [12][13][14][15], maníu-þunglyndis [16][17], þunglyndis [18][19][20][21] og geðklofa [22][23][24][25].

Sjúklingar sem hafa reynt sjálfsmorð
(annaðhvort ofbeldiskennt eða ekki)
höfðu áberandi minna magn af magnesíumi í heilavökva
sama hvaða sjúkdóm þeir höfðu greinst með.
[26]

Pomeranian lyfjaháskólinn staðhæfir að mataræði eigi mikinn þátt í orsök ADHD og að magnesíum skortur geti leitt til truflandi hegðunar. [27]

Jafnvel vægur skortur á magnesíumi getur valdið viðkvæmni gagnvart hávaða, taugaveiklun, pirringi, þunglyndi, ruglingi, viprum, skjálfta, kvíða og svefnleysi.

Samkvæmt upplýsingum frá Evelyn Pringle, rannsóknablaðamanni, veigra lyfjafyrirtækin ekki fyrir sér að raka inn peningum út á börn.

Þann 25. apríl, 2005 skýrði dagblaðið Ohio Columbus Dispatch frá rannsókn á læknaskýrslum sem leiddi í ljós að 18 börnum, í Ohio fylki, á aldrinum 0 til 3ja ára hafði verið gefið geðlyf í júlí 2004.“ Það er glæpsamlegt athæfi og sorglegt hvað barnalæknar og geðlæknar eru að gera börnum með því að gefa þeim þessi lyf, sem eru full af eiturefnum.

Þegar líkami 19 ára stúlku, Traci Johnson,
fannst hangandi í sturtuklefa rannsóknarstofu
lyfjafyrirtækisins Eli Lilly voru yfirvöld
Bandaríkjanna fljót að tilkynna að sjálfsmorð hennar
hafi ekki verið tengt nýju þunglyndislyfi
sem hún var að aðstoða við að prófa
.
[28]

Magnesíum fareindir hafa næringar- og lyfjafræðilega verkun sem ver okkur gegn taugaskemmdum allskonar allt frá hávaða frá umhverfinu til líkamlegra áverka.

Magnesíumskortur, jafnvel þó hann sé vægur, eykur móttækileika fyrir taugafræðilegra og sálfræðilegra streituvalda bæði í dýrum og heilbrigðu fólki.

„Magnesíumskortur eykur móttækileika fyrir líkamlegum skemmdum af völdum streitu. Áhrif adrenalíns vegna sálfræðilegrar streitu veldur því að magnesíum yfirgefur frumur og skolast út úr líkamanum með þvagi og og birgðir líkamans af því klárast.“ segir Dr. Leo Galland. [29]

Linus Pauling var einna fyrstur til þess að benda á mikilvægi næringar til að hafa áhrif á afbrigðilegar breytingar í efnaumhverfi heilans.

Dr. Pauling sýndi fram á að næringarefni eins og ascorbinsýra, þíamín, níasínamíd (B3 vítamín), pýridoxín, B12 vítamín, fólinsýra, magnesíum, glútamic sýra og tryptófan væru jafn tengd heilastarfseminni og geðsjúkdómar.

Auk þess að gera líkama okkar sterkan og hraustan, hjálpar góð næring okkur að halda geðheilbrigði og tilfinningalegu jafnvægi. Með réttri næringu sem inniheldur næringarefni í réttum hlutföllum er hægt að meðhöndla geðsjúkdóma með góðum árangri.

„Árið 1970 las ég um verk Dr. Abram Hoffer og á þeim tíma kom til mín vinkona mín sem hafði nýlega verið stöðvuð af eiginmanni sínum í því að fyrirfara sér í gasofni.

Hún stakk höfðinu inn og skrúfaði frá gasinu.

Hún hafði nýlega byrjað á nýju lyfi við maníu-þunglyndi.

Hún hafði verið lögð inn á geðspítala árlega á vorin.

Ég setti hana á stóran skammt af B3, magnesíum, C vítamín og sínk.

Í dag er hún 90 ára og með ljómandi skýran huga. Á þeim 33 árum síðan þá hefur hún aðeins verið lögð inn á geðspítalann einu sinni og það var vegna þess að hún hélt að sér væri batnað og hætti að taka inn vítamín/steinefnablönduna.

Á sama tíma kom til okkar ungur maður á sama geðlyfi sem hafði líka reynt sjálfsmorð. Sami árangur náðist með hann. Þetta var í litlum bæ með 16,000 manns.

Síðan hefur sami árangur náðst með alla sem hafa komið til mín vegna þunglyndis, maníu-þunglyndis og geðklofa.“

Michael Sichel, D.O., N.D. Chittaway Bay, Nýju Suður Wales, Ástralíu.

Árið 2000 skráði heilbrigðisstofnun bandaríkjanna (Nationa Institue of Health (NIH)) þunglyndi sem einkenni magnesíumskorts.

NIH skilgreindi magnesíumskorts-einkenni með því að skipta þeim niður í þrjá flokka:

Byrjunareinkenni eru (eitt eða fleiri) pirringur, kvíði (ásamt þráhyggju og Tourette heilkenni), anorexía, þreyta, svefnleysi og vöðvakippir.

Seinni einkenni eru eitthvað af ofantöldu og mögulega:

hraður hjartsláttur, óreglulegur hjartsláttur og aðrar breytingar á hjarta- og æðakerfinu (sumar lífshættulegar).

Alvarleg einkenni eru eitt eða fleiri af ofantöldu og alvarlegri einkenni:

eins og stingir um allan líkamann, dofi, stöðugir vöðvasamdrættir ásamt ofskynjunum og óráði, (ásamt þunglyndi) og loks vitglöp (Alzheimer sjúkdómur).

Vægur magnesíum skortur virðist vera algengur meðal sjúklinga með sjúkdóma sem hefta starfsemi líkamans eða taugasjúkdóma og virðast blandast saman í eina geðflækju sem samanstendur af þreytu, svefnvandamálum, pirringi, ofurörvun, vöðvakrömpum og oföndun.

Venjulega eru gleði, depurð og sorg hluti af daglegu lífi.

Stutt tímabil þunglyndis sem viðbragð við vandamálum daglegs lífs er eðlilegt, en langt tímabil þunglyndis eða depurðar er óeðlilegt.

Flestir þunglyndiskaflar eiga uppruna sinn í streituvaldandi persónulegu áfalli eins og ástvinamissi eða breytingum á högum einstaklings og þunglyndi í skamman tíma er hluti af því að komast í gegnum það.

Langtíma þunglyndi er hinsvegar oftast vegna þess að magnesíum skolast úr líkamanum vegna streitunnar og fellur niður í hættulega lítið magn.

Með því að bæta líkamanum upp tapið á magnesíumsöltum, annaðhvort við inntöku þess eða að baða sig í þeim, eykur strax viðnám hans gegn streitu. Ef heilbrigðisstofnunin í US veit þetta, af hverju í ósköpunum nota læknar þá ekki magnesíum til þess að lækna þunglyndi og aðra geðræna (og líkamlega) sjúkdóma, spyr George Eby, sem læknaði sjálfan sig af þunglyndi með magnesíumi og stofnaði http://www.coldcure.com

 

Vitnisburður Georgs Eby:
„Ég er alltaf jafn hissa á gagnsemi magnesíums í að meðhöndla og koma í veg fyrir þunglyndi. 

Ég sé líka mikilvægi þess að rannsaka það nánar með tilliti til hversu mikill skortur virðist vera á því í vestrænu mataræði, vegna þess hversu ódýrt er að nota það til þess að lækna mjög marga kostnaðarsama sjúkdóma, hvort sem þeir eru lífshættulegir eður ei.

Ég veit hversu slæmt þunglyndi getur verið, vegna þess að september 1999 til apríl 2000 eyddi ég í þunglyndi sem versnaði stöðugt. Um jólin versnaði þunglyndið til muna, nærri sjálfsmorðshugsunum í styrkleika og hélst þannig í fjóra mánuði í viðbót.

Ég hélt að ég gæti aldrei orðið svo illa leikinn lífefnalega að það myndi valda mér sjálfsmorðshugsunum og tilburðum. Ég hafði verið á Zoloft (þunglyndislyf) síðan 1987 sem virtist halda þunglyndinu niðri.

Ég lifði á Zoloft, en í september 1999 hætti það að virka og ég vissi að eitthvað væri að.

Þunglyndi mitt orsakaðist af margra ára streitu vegna of mikils vinnuálags, kvíða, minni háttar maníu, vefjagigt, fáum kvíðaköstum, reiði, streitu, lélegu mataræði, yfirþyrmandi tilfinningaflóði, vöðvakrömpum, ofsóknaræði, astma, nálardofa í höndum, handleggjum, bringu og vörum.

Ég vildi sofa allan daginn og átti mjög erfitt með að fara á fætur á morgnana. Stundum fannst mér varirnar á mér ætla að titra út úr andlitinu á mér.

Fyrir um það bil 10 árum fékk ég kvalafullt kalk oxalate nýrnasteinakast sem er þekkt einkenni magnesíumskorts. Fáum vikum áður en ég var lagður inn á spítala í janúar 2000 var ég mjög máttfarinn, í geðdeyfð, þunglyndur með skrítnar sjáfsmorðshugsanir og undir gífurlegu álagi.

Núna get ég séð þessi „geðrænu“ einkenni sem einkenni skorts á magnesíumi og/eða kalkeitrunar.

Ég var látinn á allar tegundir geðlyfja sem þekktust þá og fékk alvarlegar aukaverkanir af þeim öllum og leið bara verr og verr. Ekkert virkaði. Ég léttist og var með alvarlegt harðlífi.

Ég var líka með óreglulegan hjartslátt. Þann 12. apríl árið 2000 héldu mínir nánustu að ég væri að deyja því ég leit svo illa út.
Geðlæknirinn minn var því sammála og tók mig af öllum lyfjum og setti mig á lithíum carbonate í örlitlu magni (150mg. tvisvar á dag).

Stuttu seinna tók ég upp eintak af Nutrition Almanac, McGraw-Hill Book Company, New York, frá því 1975 og opnaði það af rælni beint í kaflann um magnesíum.

Mér fannst það athyglisvert að lesa að fólk sem væri þunglynt og með sjálfsmorðshugsanir væri með lítið magnesíum í blóðvökva.

Greinin sagði líka frá því að magnesíum hefði verið notað með góðum árangri við þunglyndi.

Manneskja með skort á magnesíumi á það til að vera ósamvinnuþýð, draga sig í hlé, vera sinnulaus og taugaveikluð, vera með skjálfta og yfirleitt mikið af einkennum sem eru tengd þunglyndi.
Nokkrum mánuðum áður en ég fékk þunglyndi hafði ég verið lagður inn á spítala vegna brjóstverkja, hjartsláttaróreglu og þess að ég gat ekki andað meira en 1/5 af eðlilegum andardrætti.

Það fannst ekkert að hjartanu, en læknaneminn gaf mér magnesíum-súlfat blöndu í æð.

Nokkrum klukkustundum seinna hurfu öll einkennin eins snögglega og þau birtust.

Það sem ég var að byrja að uppgötva var að næstum öll sjúkdómseinkenni fullorðinsára minna voru tengd skorti á magnesíumi.

Loks ákvað ég að byrja að taka magnesíum í þrisvar sinnum stærri skammti en ráðlagður dagskammtur er í US, 400 mg á morgnana, 400 mg um miðjan dag og 400 mg um háttatímann. Ég notaði magnesium-glycinate blöndu frá Carlson (200 mg frum-magnesíum).

Mér fór að líða mun betur að nokkrum dögum liðnum, þunglyndið minnkaði, en ég fékk smá niðurgang. Innan viku til 10 daga eftir að ég byrjaði að taka magnesíum var ég mjög nálægt því að vera heill heilsu.

Ég leit svo vel út að geðlæknirinn minn sagði að ég hefði aldrei litið svona vel út áður.

Eftir því sem mér batnaði meira minnkaði ég skammtinn niður í það sem hentaði mér best. Ég minnkaði skammtinn aðeins of mikið og þá komu einkennin strax aftur.

Að lokum jafnaði ég þetta út og fór að taka reglulega fjórar 200 mg töflur daglega af magnesíumi (sem magnesíum glycinate). Þunglyndið er algjörlega horfið. Ég er athafnasamur og virkur andlega, tilfinningalega og líkamlega. Sjónin mín varð eðlileg og hægðirnar líka.“

Þrátt fyrir allt tal um verndun barna í Ameríku þá eru allt of mörg börn í hættu vegna geðlækna og sálfræðinga sem hafa svikið þau.

Milljónir barna eru nú á geðlyfjum sem valda stórkostlegum vandamálum sem aldrei eru skráð. Ef þig langar að skoða nánar hvaða skaða þau valda lestu þá endilega greinina

FDA Forgot a Few ADHD Drug Related Deaths and Injuries

(Fæðu og lyfjaeftirlit Ameríku gleymdi nokkrum dauðsföllum og skaða sem tengdust ADHD lyfjum) á

http://usa.mediamonitors.net/content/view/full/27099

Lyfjafyrirtæki og menntastofnanir eru í mikilli herferð til að fá foreldra til þess að segja já við heilaskemmandi lyfjum, þar sem Rítalínið ber hæst, jafnvel þó það sé lyf sem hefur sterkari áhrif á heilann en kókaín. [30] Yfirgnæfandi meirihluti barna sem sett eru á geðlyf eru sett á þau vegna ADD (athyglisbrests) ADHD (athyglisbrests og ofvirkni).

Í sumum tilfellum er lyfjataka skilyrði þess að börnin fái að fara í skólann eða það sem verra er að ríkið fjarlægir þau af heimilum sínum.

Ofan á allt þetta hefur barnaspítali Fíladelfíu fylkis hefur skýrt frá því að 19% barna sem nýlega voru greind með sykursýki 2 eru líka með taugasjúkdóma. Mörg þeirra fá geðlyf eins og t.d. Zyprexa, Risperdal, Geodon, Seroquel, Clozaril og Abilify.

Öll þessi lyf eru með aðvörunarmiða sem varar lækna við hættunni á sykursýki 2.

Hugsanlega lækka öll þessi lyf magnesíum magnið í líkamanum.

Ekki, og ég öskra, EKKI treysta sálfræðingum,
geðlæknum og núverandi eiturlyfjahvetjandi skólakerfi.

Dr. Julian Whitaker

Það er alþjóðleg sprenging í lyfjagjöf barna vegna þess að foreldrum, kennurum og stjórnmálamönnum hefur verið talin trú um að einungis mikil lyfjagjöf frá unga aldri muni koma ‘þjáðu’ börnunum í gegnum erfiðleika lífsins.

Sjálfsmorðum unglinga hefur fjölgað um þriðjung síðan 1960 í USA.

Í dag eru sjálfsmorð helsta orsök dauða 15-24 ára ungmenna, næst á eftir bílslysum.

Frá því í byrjun níunda áratugarins hafa milljónir barna um heim allan tekið þunglyndislyf sem ríkisvaldið viðurkennir núna að valdi sjálfsmorðstilraunum.

Þetta er önnur hlið magnesíumskorts, hrikaleg martröð af völdum þessara lyfja, sem í ofanálag lækka magn magnesíums í líkamanum.

Það hefur verið langur aðdragandi að árás geðlæknisfræðinnar á ungdóminn.

Geðlæknisfræði hefur á síðustu tveimur áratugum gefið ábatasömum eiturefnavopnum lausan tauminn sem eyðileggjandi árás á börn og kalla það lyflækningar.

Geðlæknar eru búnir að skapa heila kynslóð af eiturlyfjafíklum og eru í rauninni að gera lífið miklu verra fyrir börn, þegar þeir ættu að vera að hjálpa þeim.

Barnageðlæknar eru einn af hættulegustu óvinum barna
og líka fullorðinna. Það verður að útrýma þeim.

Dr. Thomas Szasz, prófessor í geðlækningum.

Dr. Sydney Walker, höfundur The Hyperactivity Hoax (ofvirkni blekkingin), segir:

„þúsundir barna sem sett eru á geðlyf eru einfaldlega gáfuð.

Þessum nemendum hundleiðist og fólki sem leiðist iðar í sæti sínu, dillar sér, klórar sér, teygir sig og (sérstaklega strákar) leitar leiða til að koma sér í vandræði.

Í greininni bætir hann við að ofan á leiðindin bætist við lítið magn af magnesíumi í líkama þeirra og svo eyðileggingin sem geðlyfin valda.

Hvað sjáum við þá þegar við skoðum heildarmyndina?

Börn fæðast undir áhrifum lyfja með ónáttúrulegum aðferðum, svo eru þau bólusett (innrás eiturefna beint í blóðið), gefið pensillín út í það óendanlega, borða næringarlausa fæðu, horfa á sjónvarp út í eitt, þjást í gegnum steinrunnið námsefni, eru varnarlaus gagnvart þúsundum eiturefna í umhverfinu og á heimilinu, fá fleiri bólusetningar, þjást af næringarskorti á meðan þau troða í sig alls kyns ruslfæði og fitna, aðeins til þess að þurfa að þjást vegna lyfjagjafa frá geðlæknum fyrir að vera komin í það ástand sem þau eru.

Sálfræðingar og geðlæknar ættu að vita betur vegna þekkingar sinnar á huga og tilfinningum og þess vegna er sorglegt að horfa uppá hvernig þeir svíkja mannkynið með því að gerast eiturlyfjasalar.

Lyfin sem lyfjafyrirtækin framleiða fyrir þá sem stunda geðlækningar eru eins hættuleg og öll lyfin sem dópsalar götunnar selja.

Magnesíum ætti að koma í stað þessara lyfja, ekki bara vegna þess að það hefur góð áhrif á taugakerfið og sjúkdóma tengda því, heldur líka af því að það er mikið öruggara í notkun heldur en öll önnur lyf.

Mark Sircus Ac., OMD
Director International Medical Veritas Association

http://drsircus.com/medicine/magnesium/
http://www.MagnesiumForLife.com
http://www.imva.info
+55-83-3252-2195
www.skype.com  ID: marksircus

IMPORTANT DISCLAIMER: The communication in this email is intended for informational purposes only. Nothing in this email is intended to be a substitute for professional medical advice.


MIKILVÆGT: Þessi grein er ætluð til upplýsinga eingöngu. Ekkert í henni er ætlað að koma í staðinn fyrir að leita til lærðra meðferðaraðila.

BIRT MEÐ LEYFI ÞÝÐANDA. www.arna.is

[1] Violent Crime Rising Sharply in Some Cities

http://www.nytimes.com/2006/02/12/national/12homicide.html?_r=3&th&emc=th&oref=slogin&oref=slogin&

 

[2] Murck H. Magnesium and Affective Disorders. Nutr Neurosci., 2002;5:375-389: Murck showed many actions of magnesium ions supporting their possible therapeutic potential in affective disorders.

Examinations of the sleep-electroencephalogram (EEG) and of endocrine system points to the involvement of the limbic-hypothalamus-pituitary-adrenocortical axis because magnesium affects all elements of this system.

Magnesium has the property to suppress hippocampal kindling, to reduce the release of adrenocorticotrophic hormone (ACTH) and to affect adrenocortical sensitivity to ACTH. The role of magnesium in the central nervous system could be mediated via the N-methyl-D-aspartate-antagonistic, g-aminobutyric acid A-agonistic or the angiotensin II-antagonistic property of this ion.

A direct impact of magnesium on the function of the transport protein p-glycoprotein at the level of the blood-brain barrier has also been demonstrated, possibly influencing the access of corticosteroids to the brain. Furthermore, magnesium dampens the calcium ion-protein kinase C related neurotransmission and stimulates the Na-K-ATPase.

All these systems have been reported to be involved in the pathophysiology of depression. Murck et al. also demonstrated induced magnesium deficiency in mice to produce depression-like behavior which was beneficially influenced with antidepressants.


[3] Evelyn Pringle:

http://www.lawyersandsettlements.com/articles/ssri_offlabel.html



[4] Izenwasser SE et al. Stimulant-like effects of magnesium on aggression in mice. Pharmacol Biochem Behav 25(6):1195-9, 1986.

[5] Henrotte JG. Type A behavior and magnesium metabolism. Magnesium 5:201-10, 1986.


[6] Bennett CPW, McEwen LM, McEwen HC, Rose EL. The Shipley Project: treating food allergy to prevent criminal behaviour in community settings. J Nutr Environ Med 8:77-83, 1998.


[7] Kirow GK, Birch NJ, Steadman P, Ramsey RG. Plasma magnesium levels in a population of psychiatric patients: correlation with symptoms. Neuropsychobiology 30(2-3):73-8, 1994.


[8] Kantak KM. Magnesium deficiency alters aggressive behavior and catecholamine function. Behav Neurosci 102(2):304-11, 1988


[9] Buist RA. Anxiety neurosis: The lactate connection. Int Clin Nutr Rev 5:1-4, 1985.


[10] Seelig MS, Berger AR, Spieholz N. Latent tetany and anxiety, marginal Mg deficit, and normocalcemia. Dis Nerv Syst 36:461-5, 1975.


[11] Durlach J, Durlach V, Bac P, et al. Magnesium and therapeutics. Magnes Res 7(3/4):313-28, 1994.


[12] Durlach J. Clinical aspects of chronic magnesium deficiency, in MS Seelig, Ed. Magnesium in Health and Disease. New York, Spectrum Publications, 1980.


[13] Kozielec T, Starobrat-Hermelin B. Assessment of magnesium levels in children with attention deficit hyperactivity disorder (ADHD). Magnes Res 10(2):143-8, 1997.

Are dangerous parasites polluting your body?

http://www.isecureonline.com/Reports/610SPRPT/W600E710/?o=110850&u=2401327&l=646751

http://membership.fsphealth.co.za/content/parasites-page


Sources:

"MIT: Magnesium May Reverse Middle-Age Memory Loss"

Medical News Today, 12/1/04, http://www.medicalnewstoday.com 

"Dietary Magnesium Depletion Affects Metabolic Responses During Submaximal Exercise in Postmenopausal Women"

Journal of Nutrition, Vol.132, No. 5, May 2002, nutrition.org

"Lack Energy? Maybe It's Your Magnesium Level"

Science Daily, 5/10/04, http://www.sciencedaily.com  

"Prolonged Magnesium Deficiency Causes Osteoporosis in the Rat" 

Journal of the American College of Nutrition" Vol. 23, No. 6, December 2004

"Magnesium Deficiency Linked to Osteoporosis"

Natural Products Insider, 1/10/05, http://www.naturalproductsinsider.com 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband