Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

KONUR YFIR FERTUGT.....TÆR SNILLD... ;-)

Myndaniðurstaða fyrir funny cartoon pics of women over 40

 

Konur sem eru á tvítugs aldrinum (samkvæmt USA þá er það aldurinn á milli 20 ára og 30 ára) halda að þær séu sex.

Konur á þrítugs aldrinum ( aldurinn á milli 30 ára-40 ára) segja að þær séu sexý.

Konur sem eru komnar yfir 40 árin þurfa ekki lengur að hugsa eða segja það, ÞÆR ERU ÞAÐ BARA!!! cool

Andy Rooney í 60 mínútum -

Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og hér eru nokkrar ástæður fyrir því:

Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu að hugsa"Henni gæti ekki verið meira sama.

Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn.

Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskur keppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað. Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að þær komist upp með það.cool

Keep It Preppy

Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að verðleikum.

Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti þína fyrir þeim.coolLj�ska

Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar. wink

Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. cool Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.
 

Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum.cool

Því miður er það ekki gagnkvæmt. frown Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel  greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára  gengilbeinu. tongue-out

Konur, ég biðst afsökunar.

 
Til allra þeirra karla sem segja:
"Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur fengið mjólkina frítt?"

Þá eru hér nýjar upplýsingar:

Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.

Hvers vegna?

Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa  heilt svín þótt þær langi í smá pylsu.laughingcool

 

Bara smá......

Ég var svo heppin að fá í jólagjöf sérstakt dagatal en það er með heilræðum/hvatningarorðum eða allt eins og hver vill skilja það fyrir hvern dag ársins..

Það er þetta sem segir um 4. JANÚAR.

,, ELDMÓÐURINN  ER  DRIFFJÖÐUR  LÍFSINS.  ÁN  HANS  GETUR  ÞÚ  EKKERT  EN  MEР  HONUM  ERU   ÞÉR  ALLIR  VEGIR  FÆRIR".

Þannig að það er víst best að fara að virkja þennan eldmóð minn allavega...svo þýðir víst Agný  eldur á einhverju æfafornu máli... Meira að segja til jóga sem heitir AGNI yoga...það vissi ég ekki þegar ég byrjaði að kalla mig þessu nafni...réttara snúa INGA við = AGNI en mér fannst bara flottara að hafa það með Ý...svona eins og í Árný, Signý, Guðný ....

Þannig best að fara kynda í kolunum...ekki vitir víst af..verð að játa að undanfarið hef ég hvorki fundið mikið fyrir neista eða glóð ...hvað þá einhverjum eldi eða eldmóð......

Kanski maður hafi bara breyst í  "svið" yfir hátíðirnar...allavega finnst mér vera komin ansi mörg brunagöt á mig...það er ekki vegna þess að ég hafi lent fyrir einhverju neista, rakkettu, flugelda skothríð  þegar árið 2007 var kvatt...enda hélt ég mig innandyra...

Brunagötin eru af annarri ástæðu... en maður getur brennst af mörgum ástæðum...ekki endilega líkamlega en liðið samt þokkalega þannig....

Hvað um það ..ætla að vita hvort ég geti ekki allavega fundið eins og einn neista..eða smá glóð innra með mér.

Vona svo bara að rjúki ekki út um öll gömlu brunagötin og sleppi við að bæta við þau á þessu ári....


Þá er þetta blessaða ár 2007 að renna sitt skeið.....

Þá er þetta blessaða ár 2007 að renna sitt skeið.....Það hefur verið misgott eins og öll ár eru svo sem, en hjá mér hafa allavega orðið ansi margar breytingar á öllum sviðum...
Góðar eða vondar er eitthvað sem tíminn leiðir í ljós...Ég er allavega búin að upplifa breytingar með upphrópunarmerkjum...svona utan við það að hafa náð þeim merka áfanga að verða fimmtug á árinu...
 
 
Verð nú að játa að ég var mikið að pæla í því hvort að slagorðið fyrir fimmtíu ára múrinn væri "finished at fifty".... en ákvað að hafa slagorðið þetta..." fitt og flott fimmtug"  hljómar aðeins skár...cool
Undarlegt að það skuli vera til slagorð fyrir það að ná þeim áfanga að verða þrítugur.... " það sem tvítugur getur, gerir þrítugur betur"...nú og svo er það þegar 40 árunum er náð ..
" allt er fertugum fært"...svo var bara EKKERTsurprised til fyrir að verða hálfraraldar gamall/gömul....skyldi það virkilega vera þannig að fólki finnist almennt að lífið sé búið þá?
Vera sem sé ekki hálfrar aldar gamalt ..nú ja eða ungt allt eftir því hvort maður horfir á glasið hálf tómt eða hálf fullt...heldur að mörgum finnist þeir vera komnir hálfa leiðina í gröfina...það er svo önnur spurning...
Nú er kl akkurat 18:30 og ég sit hér og pikka hér og hlusta á Bubba  en verð jú að játa að það veldur mér nú meiri trega en gleði að hlusta á hans söng..
 
 
Strákarnir verða víst hjá pabba sínum í mat....mjög gott að fa þó að vita það áður en maður var búinn að skella steikinni í ofninn...þannig að hún fór bara aftur í frystirinn...en þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn á síðustu 10 árum sem hlutunum hefur verið snúið á hvolf í þessum
aðfangadags/gamlárskvölds  málum hvað varðar hvar á að vera....eða hvað er búið að tala um og svo öllu snúið á hvolf....eins gott að geta þó alltaf gengið að einhverju vísu á þessum tímum breytinganna.....Cool
 
 
Þannig að ég ætla að kveðja gamla árið alein og með sjálfri mér og heilsa því nýja líka þannig...en hvað ég geri eftir að klukkan er búin að slá tólf er óskrifað blað...
Ég óska ykkur svo öllum kæru bloggvinir og aðrir bloggarar ...og öllum þeim sem lesa bloggið mitt gleðilegs nýs árs og vonandi stenst það ykkar væntingar og þið ykkar eigin.....fine_stairway to heaven
 
 
Svona í lokin nokkur vísdómsorð....ekki mín eigin,  ja jú eitt... en kanski get ég lært eitthvað af þeim...
 
 
,, Enginn er jafn einmanna  og í annarra hópi"...
 
,, Sumir sýnast á flugi sem ernir, en reynast svo bara kjúklingar er þeir lenda"...
 
 
,, Það er kanski ekki heppilegt að vera alltaf einn með sjálfum s´´er, því að því hlýtur að koma að maður reynist sér sjálfum illa"...
 
 
,, Heimurinn mun alltaf þarfnast fólks sem getur ímyndað sér það sem ekki er"...
 
 
,, Vertu þinn eigin vinur - annars reynist þér erfitt að vera vinur nokkurs annars"..
 
 
,, Ef þú getur séð fyrir þér það sem þú óttast, er vel mögulegt að þú getir tekist á við það. Ef þú getur tekist á við það sem þú óttast, er mögulegt að þú getir sigrast á því"...
 
 
,, Berstu aldrei við þann sem hefur engu að tapa"..
.
 
 ,,Lærðu af lífinu en lifðu ekki í lærdómnum"..
 
 
,, Sönn viska felst ekki í því að sjá það sem er beint fyrir framan augu okkar, heldur að sjá fyrir hvað muni gerast"...
 
 
,, Njóttu starfs þíns, eða finndu þér starf sem þú nýtur"..
.
 
..Lestu mikið, en dragðu eigin ályktanir"....
 
 
,,Farðu að lifa lífinu og líttu á hvern einasta dag sem þitt einasta líf"...
 
 
,, Þú verður sjálfsagt aldrei fyrir vonbrigðum ef þú býst alltaf við hinu versta í lífinu - en þú missir af öllu fjörinu!"...
 
 
,, Lífið er fullt af óyfirstíganlegum tækifærum"...
 
 
,, Lífið er eins og spil. Það snýst ekki fyrst og fremst um það sem þú hefur á hendi, heldur hvernig þú spilar úr því sem þér er gefið "...
 
 
,, Þeir sem eyða tímanum í áhyggjur af því hvað aðrir eru að hugsa um þá, myndu sleppa því ef þeir vissu hve sjaldan aðrir hugsa um þá"...
 
 
,, Vertu hlýlegur við fólkið sem þú mætir á leið þinni á toppinn, þú gætir rekist á það aftur á leiðinni niður"....
 
 
,, Ef þú ofmetur eða vanmetur gildi sambands við einhvern, gæti þér síðar brugðið illilega í brún"...
 
 
,, Hinn vitri mun veita því eftirtekt þegar andmælandinn gefst upp á að sannfæra og byrjar að rangfæra"...
 
 
,, Því skyldi okkur reynast svo erfitt að viðurkenna villu okkar, fyrst ekkert kemur okkur að meira gagni við að leysaa vandann"...
 
 
,, Árangur þinn í lífinu verður ekki metinn eftir því hvar þú ert staddu´r, heldur erfiðleikunum sem þú hefur sigrast á"..
 
 
,, Nauðsynlegt er að kunna að meta sjálfan sig, ef aðrir eiga að gera það líka"..
 
 
,, Vertu ungur í dag. Það gefst nægur tími til að eldast"...
 
 
,, Ekkert er svo fáránlegt að einhver heimspekingur hafi ekki sagt það"...
 
 
,, Að sinna því sem manni ber, jafnvel þó hnökrar virðist á, er betra en að sinna öðru með hnökralausum hætti"...
 
 
,,Ofurhugar standa ekki oft við orð sín"...
 
 
,, Að þurrka út hið liðna er að þurrka út framtíðina"...
 
 
,, Hinn hyggni finnur alltaf eitthvað til að hlægja að á hverjum degi  -  þótt það sé ekki nema hann sjálfur"...
 
 
,, Oft er gleði horfinn harmur"...
 
 
,, Alla æfi reynum við að leyna mistökum okkar, nema listamennirnir sem velja úr sínum og halda sýningar"...
 
 
,, Líttu yfir farinn veg. Líttu fram á veginn.  Þú ert vegurinn"...
 
 
,, Glott en ekki grátur kemur óvininum úr jafnvægi"...
 
 
,, Þótt aðeins ein einasta manneskja hafi á einhvern hátt auðgast af tilvist þinni, máttu vita að líf þitt hefur verið árangursríkt"..
 
 
.. Mikilvægt er að hafa í huga að engan er auðveldara að blekkja en sjálfan sig"..
 
 
,, Högg svipunnar rífa holdið en högg tungunnar brjóta beinin".
..
 
,, Öfund og reiði æfina stytta"...
 
 
,, Lærðu af stjórnmálamönnunum..Ef þú atar andstæðinginn auri, ertu einfaldlega að grafa jarðveginn undan eigin fótum"...
 
 
,, Maður tekur ekki í höndina á krepptum hnefa"..
Kær kveðja til þeirra sem vilja þiggja.
Agný.
 
 

JÓLAKVEÐJUR TIL ALLRA BLOGGVINA ... KATTA MYNDIR..HVATNINGARORÐ DAGSINS Í DAG.... ekki veitir af..afrekaði að reka fingurinn í rangan takka og strokaði allt út sem ég var að fara að pósta inn...urr..irr..pirrr..

HVATNINGARORÐ DAGSINS Í DAG.

" AGI  ER BRÚIN  Á  MILLI MARKMIÐA  OG  FRAMKVÆMDA".

Gleðilega jólarest til ykkar allra bloggvinanna og svo þeirra sem lesa bloggið mitt.Takk fyrir samveruna hér síðan ég byrjaði að blogga en það var víst 9 des fyrir ári síðan...Margt hefur drifið á daga mína síðan þá...bæði gott og vont ..En hvort allt er svo vont þegar upp er staðið sem maður heldur að sé það,  eða það sem maður hélt að væri gott sé það líka þegar vel er að gáð,....

Allt hefur víst sinn vitjunartíma...þannig ..þá kemur það í ljós....

Verð samt að játa að ég hef aldrei þolað þetta jólasvein bull og með það að láta skóinn út í glugga...

Mikið rosalega langaði mig til að finna þann aðila í fjöru sem kom með þá hugmynd að setja eitthvað í skóinn x nóttum fyrir jól...Angry

Dýrt fyrir "Sveinka" að þurfa að setja í 4 skó hverja nótt á mínu heimili allavega....

Mínir drengir eru að vísu orðnir svo gamlir núna að þeir trúa ekki lengur á þennan þátt jólaboðskapsins...

Jólahátíðin fæðingardagur Jesús

( eftir því sem sagt er...) rann upp venjulegum tíma hvort sem manni líkaði betur eða verr..hvort sem maður ætti eftir að gera þetta og hitt eða hitt og þetta...með þrumum og eldingum og engum neitt smá...maður hélt hreinlega að eitthvað hefði sprungið... Hefði passað betur á gamlárskvöld...

Að venju var étinn (græðgislega af sumum) hamborgarahryggur, brúnaðar kartöflur og sósa sem var einhverskonar tilrauna uppskrift...tókst vel því allir borðuðu hana... Síðan var gjöfunum útdeilt og skoðað og þakkað fyrir og  eftir það fóru svo strákarnir til pabba síns og afa og ömmu,  þar var "taka tvö" ...á þessari athöfn....

Á meðan ákvað ég að fá mér lúr..enda búin að sofa ákaflega lítið undanfarið og alls ekki á venjulegra fólki tíma... en tími er svo sem afstæður..eina góða við að liggja lítið í bælinu er að bakið er heldur skárra..

Ætlaði alls ekki að komast út úr bælinu í gærmorgun... uppgötvaði það að einhver hefði mátt gefa mér hækjur í jólagjöf..þó svo ég sé vön verkjum þá voru þessir alveg sérlega mikið yfir mitt strik.. en nóg um það... En mér tókst því miður ekki að leiðrétta þennan viðsnúning í svefninum.....og er ekki enn búin að því... 

Kettlingarnir 5100_7268 ákváðu að nú væri kominn tími á því að víkka út sjóndeildarhringinn og klifruðu  þau hugrökkustu upp úr ferðarúminu.

100_7185og hinir fengu þá að fara líka út út "fangelsinu".

 

Þessi hér var samt búin að sleppa úr prísdundinni heldur fyrr..

 en það er hún Væla Veinólína...Blíða er að reyna að halda henni kyrri... 

 Hér er svo verið að fylgjast með " Veinólínu" í klifrinu...

En stelpurnar þrjár  urðu 4 vikna 24 des. en strákarnir tveir  urðu það 25 des....eru sem sé ekki öll fædd sama dag... Þetta er hún "Jelló" eins og ég kalla hana en hvað þau sem eiga hana munu kalla hana..að fá sér beauty nap eftir allt brasið... 100_7219

Hér eru Hringur og hún Veinólína að kíkja á heiminn saman...

100_7285

Gaman að fylgjast með þessum krúttboltum þegar þau fóru á stjá og enduðu á að koma sér í sjálfheldu hér og þar....

og gekk mér mis vel að finna þau aftur..

 

 

 

Sóta "frænka" 100_7315ákvað að mömmunni veitti ekki af "loppu" við að siða þessa ólátabelgi til...aðeins að siða Veinólínu til...

Kanski hún sé að æfa sig áður en hún fjölgar kattarkyninu.... hef grun um að hún sé bomm ...

Hér er Sóta að kyssa Hring...100_7294

Hún fylgdist allavega fylgdist hún mjög vel með þeim,  kyssti og þvoði100_7302 svona smávegis líka...

og mamman lét sér bara vel líka..kanski bara fegin....

 

 

Hvert eruð þið eiginlega að að æða?

100_7324

 

 

 

 

 

 Hér eru ólátabelgirnir búnir að hertaka sófann og eru að hvíla sig eftir "flakkið"...100_7371

Annars eru þessir jóladagar búnir að líða við leti og át og aðallega ekki neitt....nenni ekki að hafa samband við neinn nema svona til málamynda.....en þetta eru fyrstu jólin sem að ég og strákarnir erum alein á aðfangadagskvöld í 10 ár...Svolítið einkennilegt og skrítið... en rólegt .... 

Ekki má svo gleyma blessuðum jólasnjónum... sem ákvað að koma í jafnmiklu magni og undanfarandi rigningar eru búnar að vera...Það er ýmist í ökla eða eyra....

Ætlaði að setja fleiri myndir inn en tölvukerfið eitthvað seint að hugsa og misfljótt að hlaða inn..þannig að ég læt þessar duga..


KETTLINGARNIR 3 vikna í dag.......STÆKKA OG STÆKKA....Fleiri myndir...

100_6958-1Hér er sko mynd af prímadonnunni...henni Blíðu...

 Mín ekkert smá virðuleg og ráðsett að sjá...enda er hún orðin 3 ára..

 Jæja..þá ætla ég að drattast til að setja fleiri myndir af köttunum....búin að vera á leiðinni slatta lengi eins og sést kanski frá því ég setti fyrstu myndirnar inn...

 

 

Þessi mynd er tekin 28 eða 29 nóv...

100_6775Það sem þessi krútt hafa blásið út er ekkert smá....enda orðin 3 vikna i dag.... Set hér myndir teknar hafa verið svona á þessu tímabili...

Þessar  myndir eru teknar þann 5 des100_6869

strax farnir að blása út...ég skal játa að ég er ekki góð í því að setja myndir hérna þannig að þær séu ekki út um allt...Skil ekki hvernig Guðmundur Jóns fer að því að setja sínar myndir svo snyrtilega inn á bloggið sitt Woundering100_6873

Þessar eru líka teknar þann 5 des..þetta er hann Snúlli

( sá guli og hvíti) og hún

Væla Veinólína

 ( ég kalla hana það því að hún er sí vælandi ef að komið er við hana..)100_6885

 

 

                 

Hér eru fleiri myndir..5 des100_6889

 

 

 

 

Þetta er hann Hringur ..hann byrjaði að mala viku gamall

100_6909


KOMNIR 5 FLOTTIR KETTLINGAR Í HEIMINN...3 FÆDDUST FYRIR KL 23 ÞANN 24 NÓV EN 2 EKKI FYRR EN MILLI 02:30 OG 03:00 SEM SÉ 25 NÓV..

BLIDA IMG_0508Er loksins að hafa mig upp í það að setja myndir af 5 krúttlegum kettlingum og stoltri mömmu sem var að vísu þokkalega rugluð í þessu í 2 daga á eftir.

En það er sú sem hvarf kasólétt í 2 mán í sumar og birtist svo ekki aftur fyrr en í lok ágúst..   bumbunni fátækari og engir kettlingar.. Hélt að hun væri afturgengin þegar hún birtist á glugganum grenjandi, grindhoruð og rennandi blaut  í ógeðslegri rigningu..

En fæðingarferlið hófst um kvöldmat á laugardagskvöldið þann 24 nóv.. og ég var ekki viðstödd fæðingu þessarra fyrstu 3  en ég var að vinna í bænum...

BLIDA OG BÖRNINSvo var ég farin að örvænta...búið að panta 5 kettlinga en einungis komín þrjú stykki um miðnætti og bólaði ekki á fleirum þó svo ég fyndi fyrir þeim utan á kviðnum á henni...

Allt í einu ákvað mín sko að það væri kominn tími á þessa tvo en þá var kl 2:30  og það kom hvitur og orange/bleikur strákur...

og hún malaði nú bara á meðan.... ( greinilega hörð af sér eins og "amman" Cool) svo bólar á einum svörtum og hvítum..

Þá vandaðist málið hann kom öfugur og mín bara malar og gerir ekkert annað... 

ég hélt að ég myndi slíta ræfilinn í sundur þegar ég var að reyna að ná honum út..    100_6752

Hún var heldur ekki að hafa mikið fyrir að hreinsa úr andlitinu á honum svo ég gerði bara munn við munn við hann og þá andaði hann og mjálmaði.. 

 En núna er hún orðin voðalega mikil mamma og ber nafn með réttu "Blíða"..kurrar og murrar jafnt á mig og kettlingana...

en hún er nú samt svolítið mistæk í því hvað hún er ekki pen við að leggjast hjá þeim..

hlassar sér ofan á þá svona hér og þar... 100_6754

 

 

 

En hér sjáið þið gersemirnar.. 3 stelpur og  2 strákar...eftir minni skoðun.. Tveir síðustu voru strákar...100_6768-1Síðasta myndin er tekin 27 nóv.. Á eftir að setja inn fleiri myndir af þeim... 

 

 

 

 


TALNASPEKI/ NUMEROLOGY..hvernig fitta tölurnar við ykkur? Ég er 7...en þú...?


                                                         Grunntölur
Í algengum talnaspám er gengið út frá 4 grunntölum:
Forlagatölu, Einstaklingstölu, Hjartatölu og Yfirbragðstölu.
Til þess að reikna þær út þarf að skoða eftirfarandi töflu sem sýnir tölugildi bókstafanna.
 
1   A    J     S   Æ
 
2   B    K    T    Ö
 
3   C    L     U
 
4   D   M    V
 
5   E    N   W
 
6   F    O   X
 
7   G    P    Y
 
8   H   Q    Z
 
9   I    R     Þ
 
 
Hér er ekki gerður greinarmunur á grönnum eða breiðum sérhljóðum, é hefur tölugildið 5 eins og e, og ð hefur tölugildið 4 eins og d.
Þetta kerfi er reyndar misjafnt eftir heimildum um þessi fræði.
Talnaspekingar hafa reiknað það upp og hér hefur íslensku stöfunum þ, æ, og ö verið bætt við.
Pýþagoras er sagður hafa lagt grunn að þessu kerfi en Kabbalaj, hið leyinilega og trúarheimspekilega kenningakerfi miðaldagyðingarpresta byggist meðal annars á tölugildi bókstafanna við dulspekilega túlkun ritningarinnar og þeirra áhrifa gætir einnig í talnaspeki nútímans.
 
 
FORLAGATALAN.
Hún er reiknuð út frá fæðingardegi og ári. Hún er summa allra talnanna og reiknuð áfram þar til fengin er tala á bilinu 1- 9 en tölurnar 11 og 22 látnar standa.
 
T.d. 25 april 1977 er reiknuð svona:
2 + 5 + 0 + 4 + 1 + 9 + 7 + 7 = 8
Forlagatalan verður því  8.
Sá sem á þennan dag 2 febr 1944  er með þetta:
2+0+2+1+9+4+4 =  22 forlagatala hans er þá en ekki  2+2
= 4
 
 
EINSTAKLINGSTALAN.
Hún er fundin út með því að reikna út summu tölugildanna í bokstöfunum í því nafni sem hlutaðeigandi notar oftast.
Einstaklingstala Sigurðar Vilhjálmssonar sem aldrei er kallaður annað en Siggi Villa er þá reiknuð út á eftirfarandi hátt:
S I G G I   V I L L A
1 9 7 7 9   4 9 3 3 1
1 + 9 + 7 + 7 + 9 + 4 + 9 + 3 + 3 + 1 = 8
 
 
HJARTATALAN.
Hún er fundin með því að leggja saman tölugildi sérhljóðanna í fullu  nafni viðkomandi.
S i g u r ð u r   V i l h j á l m s s o n
 9  3     3       9       1          6
9+3+3++9+1+6 = 4
4 verður því hjartatala Sigurðar Vilhjálmssonar.
 
 
YFIRBRAGÐSTALAN.
Hún er reiknuð út frá tölugildi samhljóðanna í nafninu.
S i g u r ð u r   V i  l  h  j á l m s s o n
1   7   9 4  9   4    3 8  1   3 4 1 1   5
1 + 7 + 9 + 4 + 9 + 4 + 3 + 8 + 1 + 3 + 4 + 1 + 1 + 5 = 60 = 6+0 = 6
6 er því yfirbragðstala hans.
 
 
                                                      AÐ SPÁ Í TÖLUR.
 
 
TALAN  1
Er kraftmikil tala, tákn einingar, og heildar. Hún er líka tákn upphafsins og er þessvegna tala guðs, alheimsins og sólarinnar.
Stjörnumerki hennar er Ljón. Litir tölunnar eru appelssínugulur, gulur og gylltur.
 
 
TALAN 2
Hún er tala tvíhyggju, jins og jangs, karls og konu, nætur og dags og annarra andstæðna. Samhljómur, samvinna, lagni og aðrir slíkir þættir tengjast tölunni 2. Hún er tengd mánanum og stjörnumerkinu Krabbinn.
Litir tölunnar eru pastellitir.
 
 
TALAN 3
Hún er tala vorsins, frjóseminnar og vaxtarins.Hún getur verið tákn upphafs og nýrra verkefnis.
3 er merki þrenningar og þessvegna tákn heilagrar þrenningar, föðurins, sonarins og hins heilaga anda, en líka tákn fjölskyldunnar, föður, móður og barns.
Talan 3 hefur því sérstöðu, hún er talin heilög og býr yfir töframætti.
Sé talan margfölduð með sjálfri sér verður útkoman 1 og það  er alveg sama hversu oft talan 1 er margfölduð með 1, hún verður alltaf 1.
Þessvegna er talan 1 einstök og stöðug tala, tala guðs.
Sé önnur talan í talnaröðinni margfölduð með tölunni einn, verður útkoman 2. Þessu er öðruvísi háttað með þriðju töluna í talnaröðinni.
Sé hún margfölduð með tölunni á undan verður útkoman skyndilega allt önnur tala sem er mun stærrien bæði tveir og þrír, talan sex.
Talan 3 er þess vegna frjósöm tala og þrátt fyrir smæð sína felur hún í sér margföldunarhæfileika sem hvorki einn eða tveir búa yfir.
Tvítalan felur í sér andstæður þeirra stríðandi afla sem halda veröldinni gangandi.
Hugsi menn sér línur milli eintölunnar  og tvítölunnar, milli hins einstæða guðs og andstæðra póla tvítölunnar, myndast þríhyrningur.
Þannig myndar guð jafnvægi milli stríðandi afla og felur um leið í sér guðdómlega þríeiningu.
Talan þrír kemur fyrir með margvígslegum hætti og mismunandi samhengi innan ólíkra menningarsvæða.
Svo víða koma þrír við sögu í öllu lífi mannsins að ætla mætti að honum sæe að einhverju leyti eðlislægt að hugsa í þrenndum og að lífshrynjandinn feli í sér þrískiftingu.
Allt á sér upphaf, miðju og endalok.
Menn eiga fortíð, nútíð og framtíð.
Mælivíddirnar eru þrjár, hæð, lengd og breidd.
Gríska orðið fyrir .. stærstur” er tris-megistos, það er þrisvar sinnum stór, og Rómverjar nefndu þann sem var ter felix eða þrisvar sinnum sælan.
Skaut konu er þríhyrnt og kynfæri karla er þrískift. „Allt er þá þrennt er“.
Talan 3 er tengd Júpiter og stjörnumerkinu Bogmanni. Litir hennar eru grá fjólublár og fjólublár.
 
 
TALAN 4.
Hún  er tala höfuðáttanna fjögurra, austurs, vesturs, suðurs og norðurs og árstíðanna, vor, sumar, haust og vetur.
Hún er tengd Saturnusi og stjörnumerkinu Steingeit. Litir tölunnar eru dökkgrár og svartur.
 
 
TALAN 5.
Hún  er tákn frelsis , orku, sköðunarkrafts og ferðalaga.
Hún birtist meðal annars í fimmstjörnunni (pentagramminu).
Talan 5 tengist Merkur og stjörnumerkjunum Tvíbura og Meyju. Allir ljósir litir eru litir tölunnar 5.
 
 
TALAN 6.
Hún er tákn ástar, umhyggju, ábyrgðartilfinningar og jafnvægis.
Hún birtist meðal annars í sexarmastjörnunni (gyðingastjörnunni ).
Hún er tengd Venus og stjörnumerkjunum Nauti og Vog.
Litir tölunnar eru ljósblár, blágrænn og grænn.
 
 
TALAN 7.
Hún hefur lengi verið talin sérstök heillatala.
Hún tengist sjálfsskoðun og ymiss konar andlegum pælingum. Samkvæmt gömlum hugmyndum býr hún yfir töframætti og í henni sjálf lífshrynjandinn fólginn.
Í hverju kvartili tunglmánaðarins eru um það bil 7 dagar. Þegar Súmerar lögðu grunninn að tímatalsútreikningum  sínum út frá gangi himintunglanna, 2000-3000 árum f.Kr.
Reiknuðu þeir með því að hver tunglmánuður  skiftist í 4x7 daga, samtals 28 daga, jafnlangur og tunglmánuðirinn.
Síðar komu fram hugmyndir meðal dulspekinga um að mannslíkaminn endurnýjaðist á sjö ára fresti og að líf mannsins varði nokkurn veginn í 7x10 ár.
Talan 7 hefur svo stærðfræðilega eiginleika sem sennilega hafa ýtt undir sérstöðu hennar.
Séu allar tölur frá einum upp í sjö lagðar saman verður útkoman 28, dagafjöldi tunglmánaðarins og tíðahringsins.
Algengasta talan í Biblíunni er 7 og það ýtir undir hugmyndir um að talan sé heilög og um leið happatala.
 
 
Höfuðdyggðirnar í kristinni siðfræði eru sjö:
Hófsemi, forsjálni, hugprýði, réttsýni, trú, von og kærleikur.
 
 
Dauðasyndirnar eru einnig sjö:
hroki, ágirnd, losti, reiði, græðgi, öfund og leti.
 
 
Sjö undur veraldar voru:
pyramídarnir í Eygiptalandi, grafhýsi, Másolasar í Halikarnassos, svifgarðar og múrar Babýlon, musteri artemisar í efesus, Seifslíkneski Feidíasar í Ólympíu, risastyttan af Helíosi við hafnarmynnið á Rhodos og vitinn á eyjunni Faros við Alexandríu.
 Orkustöðvar líkamans eru líka sjö:
rótarstöðin, hvatastöðin, magastöðin, hálsstöðin, ennisstöðin og hvirfilsstöðin.
Í sumum fræðum er því haldið fram að jörðin sjálf hafi sjö orkustöðvar sem samsvari til stöðvanna sjö hjá manninum.
En hvar það er, er ekki alveg ljóst.
Talan sjö er tengd neptúnusi og stjörnumerkinu Fiskar.
Litir hennar eru allir grænir og ljósblágrænn.
 
 
TALAN 8.
Hún er mjög sterk tala og tengist efnisheiminum, forlögunum og óendanleikanum. Hún er tengd plánetunni Satúrnus og stjörnumerki hennar er Steingeit.
Litir tölunnar atta eru dökkgrár og svartur.
 
 
TALAN 9.
Hún er tala alheimsins.
Hún endurspeglar hugsjónir,draumsýnir, heimspeki og fullkomnun.
Talan níu er almennt talin heillatala.
Hún kemur viða við sögu í þjóðtrú og menn hafa í tímans rás haft mikla trú á áhrifamætti hennar.
Níu er margfeldi heilögu tölunnar þriggja með sjálfri sér og er þess vegna sérstaklega kraftmikil og áhrifarík tala.
Veigamikið atriði er að meðgöngutími konunnar níu mánuðir. Sköpun mannsins tekur níu mánuði.
Níu hefur stærðfræðilega sérstöðu.
Það er alveg sama með hvaða tölu hún er margfölduð, þversumma útkomunnar, eða þversumma af þversummunni verður alltaf níu.
Talan er tengd Mars og stjörnumerkjunum Hrút og Sporðdreka. Litur hennar er rauður.
 
  
TALAN 11.
Hún er önnur hinna svokölluðu meistaratalna, hin er tuttugu og tveir. Hún er tákn andlegrar þekkingar, vitrana og dulrænna hæfileika. Talan er tengd Úranus  og stjörnumerkinu Vatnsbera. Litir tölunnar eru ljæosblár, grár og silfurlitaður.
 
 
TALAN 22.
Hún er tala fullkomnunar. Þeir sem hafa þessa tölu að einkennistölu eru byggingameistarar bæði í bókstaflegri og yfirfærðri merkingu. Talan er tengd Neptunusi og stjörnumerkinu Fiskum. Litir tuttugu og tveggja eru gráfjólublár og rauðfjólublár.

NOKKRAR ATHYGLISVERÐAR STAÐREYNDIR UM HOLLUSTU ÚR BÓK SEM HEITIR " BÆTIEFNA BIBLÍAN"

 eftir Earl L. Mindell. Þýdd af Þórdísi Bachmann.Gefin út 1986
*Ein sígaretta eyðir 25 mg af C-vitamin.
*Fólk sem býr í borgum fær ekk eins mikið D-vitamin og fólk til sveita, því að mengunin útilokar útfjólublá geisla sólarinnar.
*Meira en einn "kokkteill" á dag getur valdið skorti á B1, B6 og fólinsýru.
*Fæstar þeirra kvenna er nota "pilluna" sem getnaðarvörn gera ser grein fyrir að hún eyðir B6, B12, fólinsýru og C-vitamin.*B1-vitamin getur komið í veg fyrir ferðaveiki.
* Ef matarræði þitt eru hvítuefnaríkt, þarftu aukamagn af B6.
*Rússar hafa komist að því að B12 getur komið í veg fyrir timburmenn.
 
Vitamin og steinefni gegn þunglyndi og áhyggjum.
í mörgum tilfellum hefur komið í ljós að eftirfarandi vitamin og steinefni gefa góða raun við meðferð þunglyndis og kvíða:
B1-vitamin (tíamin) --stórir skammtar virðast setja kraft í þunglynt fólk og róa áhyggjufulla.
B-6 vitamin (pyridoxin) ---mikilvægt fyrir nýrnabarkar starfsemi.
Pantóþensýra- hefur spennuslakandi áhrif.
C-vitamin (askorbinsýra) - ómissandi gegn streitu.
E-vitamin (alfa-tokoferól) - hjálpar heilafrumum að fá það súrefni sem þær þarfnast.
Zink-- nauðsynlegt fyrir taugastarfsemi- kallað andstreitu steinefnið.
Kalk --gerir þig minna taugaveiklaðan, afslappaðri.
 
SUM LYF GETA AUKIÐ VANDAMÁL ÞÍN.
Áfengi er taugadeyfandi.
Takir þú róandi lyf og drekkir ofan í þau, getur sú samsetning valdið alvarlegu þunglyndi-- eða jafnvel dauða. Ef þú sameinar róandi lyf og andhistamín, gætir þú fundið fyrir skjálfta og skilningstruflunum. Getnaðarvarnarpillan rænir líkamann B6, B12, fólinsýru og C vitamini. Því er ekki að undra að konur á pillunni finni fyrir þunglyndi. Þörf þeirra fyrir B2. sem er nauðsynlegt til þess að tryptófan nýtist eðlilega, er fimmtíu til hundrað sinnum meira en þeirra sem ekki nota pilluna.
 
ZINK
Staðreyndir.
Zink vinnur sem nokkurkonar umferðalögregla, það stjórnar og hefur eftirlit með að líkaminn losi sig við kolsýru, viðhaldi gerhvata kerfa (ensíma) og fruma. Nauðsynlegt fyrir samruna hvítuefna.Ákvarðar samdráttarhæfni vöðva. Hjálpar til við myndun insúlíns. Mikilvægt fyrir stöðugleika blóðs og viðhalds sýru_alkalíjafnvægi líkamans. Er mikilvægt fyrir þroska allan þroska æxlunarfæra og hefur jafnvægisáhrif á blöðruhálskirtilinn.
Nýjar rannsóknir eru vísbending um mikilvægi þess fyrir heilastarfsemi og við geðklofa.Sterkar líkur eru á að það sé nauðsynlegt til myndunar kjarnasýrunnar DNA. RDS. samkvæmt Manneldisráði Íslands, eru 15 mg fyrir fullorðna (20-25 mg fyrir þungaðar konur og mjólkandi) Mikil svitnun getur valdið allt að 3 mg tapist daglega
(Innskot Agný. Þá tel ég mjög líklegt að konur á breytingarskeiðinu séu að tapa enn meira af Zinki í sínum svitakófum..Kanski ekki vitlaust að auka inntöku af Zink á því skeiði?) Mest allt zink tapst við framleiðsluaðferðir, eða er ekki til staðar í verulegu magni vegna næringarsnauðs jarðvegs.
 
Hvað getur Zink gert fyrir þig?
Hraðað því að innvortis og útvortis sár grói. Losað þig við hvíta bletti á nöglunum. Hjálpað við meðferð ófrjósemi. Komið í veg fyrir blöðruhálskirtils vandamál. Stuðlað að vexti og andlegri snerpu. Dregið úr uppsöfnun kólestróls.
 
HÖRGULSJÚKDÓMAR: 
Mögulega ofvöxtur blöðruhálskirtils. Æðakölkun.
 
MATVÆLI SEM INNIHALDA ZINK.
Læri, lambakótellettur, svínahryggur, hveitikím, ölger, egg og þurrmjólk.
 
Bætiefni:
Er í öllum góðum fjölvítamin og fjölsteinefnablöndum.
Fæst í zinksúlfat-eða zinkglúkónattöflum frá 15 - 300 mg að styrkleika. Áhrifamáttur þess virðist vera sá sami, þó virðist sem að fólk þoli zinkglúkónat betur.Best að taka griphúðað zink. Zink fæst einnig í C-vitamin, magníum (magnesíum) og B-hópsblöndu.
 
Eitureinkenni.
Því sem næst óeitrað, nema ef inntaka er óhófleg eða sá matue sem neytt er hefur verið geymdur í galvaníseruðum ílátum. Ekki er mælt með yfir 150 mg skömmtum.
 
Heilræði mín: 
Takir þú stóra skammta af B6, þarftu að taka meira zink. Það á einnig við ef að þú ert áfengissjúklingur eða sykursjúklingur.Karlmönnum með blöðruhálskirtils vandamál - og jafnvel án þeirra-- er ráðlagt að halda zink magni sínu háu. Ég hef séð bætiefna áætlun með B6 og zink bera góðan árangur í getuleysistilfellum. Öldruðu fólki sem hefur áhyggjur af "kölkun" gæti þótt zink og og mangan uppbót gagnleg. Ef þú ert með óreglulegar tíðir, væri reynandi að taka zink uppbót áður en gripið er til hormónagjafar til að koma á þær reglu. Mundu, ef að þú eykur við þig zimk gjöf, þá þarftu meira af A- vitamini.
 
B6- VITAMIN ( Pyridoxin) 
Staðreyndir: 
Vatnsleysið. Skilur út innan átta tíma frá neyslu og þarf ví að endurnýja með mat eða bætiefnum eins og hin B-vitaminin.   B6 er í raun hópur efna- pyridoxins, pyridoxals og pyridoxamíns- sem eru náskyld og verka saman Mælt í milligrömmum (mg) Þörf eykst þegar neytt er eggjahvíturíkrar fæðu. Verður að vera fyrir hendi við myndun mótefna og rauðra blóðkorna. Ráðlagður dagskammtur er fyrir fullorðna er 1,6 til 2.0 mg á dag, þó mælt sé með 2.5 fyrir konur með barn á brjósti eða barnshafandi. Nauðsynlegt til réttrar upptöku B12-vitamíns. Ómissandi þáttur til myndunar saltsýru og magnesíns.
 
HVAÐ GETUR ÞAÐ GERT FYRIR ÞIG.
Melt prótín og fitu almennilega. Hjálpað til að breyta tryptófani nauðsynlegri amínósýru, í nikótínsýru.Hindrað ýmsa húð- og taugakvilla. Dregið úr ógleði ( ráðlagt við bíl- og sjóveiki og morgun uppköstum). Stuðlað að réttum samruna kjarnasýra sem vinna gegn hrörnun. Dregið úr vöðvakrampa, handadofa, og vissum tegundum af taugabólgu í útlimum. Starfað sem eðlilegt þvagræsilyf.
 
HÖRGULSJÚKDÓMUR.
Blóðleysi, húðbreytingar, fjöltaugabólga.
 
Matvæli sem innihalda B6-vitamín
Ölger, hveitiklíð, hveitikím, lifur, nýru, hjörtu, melóna, hvítkál, mjólk, egg og nautakjöt.
 
Bætiefni.
Auðfánlegt í ýmsum skammtastærðum- frá 20-500mg- bæði eitt sér og í B-hópi og fjölvitaminum.Til að koma í veg fyrir skort á B-vitamínum ætti að taka jafnmikið af B1 og B2 og pyridoxini.
 
Eiturvirkni:
Engin þekkt eiturvirkni. Möguleg merki um umframmagn af B6 eru svefnleysi og glöggt draumminni.
 
Gagnvirkni:
Langvarandi geymsla, niðursuða, steiking, eða hægsuða kjöts, vatns, áfengi og estrogen.
 
Heilræði mín.
Ef þú ert á pillunni er mjög líklegt að þú þurfir meira magn af B6. Þeir sem borða mikið af hvítuefnaríkum mat, þurfa aukamagn af þessu vitamini. Ef þú kaupir B-hóp, skaltu athuga að það innihaldi nægt B6. B6 er dýrt og í sumum blöndum er ekki nóg af því. Ef þú manst aldrei  hvað þig dreymir, er mögulegt að þú þurfir að taka pyrodoxin í viðbót við fjölvítamínið eða B- hópinn þinn.

Ferðasögulok....

Kom heim á föstudagskvöld rúmlega 9 með icelandair en Keli kom heim 2 tímum seinna með iceland express...ekki vegna ósamkomulags heldur vegna þess að það var ódýrast.....Svo lenti ég í tollinum..leit sennilega eitthvað glæpamannslega út í svörtum leðurjakka og gallabuxumCool  Var ég spurð hvort ég væri með eitthvað matarkyns í töskunni og ég sagði nei nema 4 epli í handtöskunni..það var ók en kanski eru epli ekki matur GetLostEn ég var að vísu með nokkra sígarettupakka í töskunni því ég taldi að það væri ók ef að þeir væru ekki í kartoninu...það kom í ljós að svo var ekki ....Þannig að það var tekið og ég átti víst að vera að reyna að smygla þeim inn og þurfti að borga sekt 3.500 kr....En ekki hefði þessum tollarar veitt af námskeiði í mannlegum samskiftum það er alveg pottþétt....Dónalegur hrokagikkur sem að myndi fá sprungur í munnvikin ef að honum stykki bros... En yfirtollarinn kunni það þó en ekki tilkynnti hann mér fyrr en hann var búinn að rabba við mann um allt og ekkert þegar ég svaraði símanum mínum að ég mætti það ekki því það væri upptaka í gangi...Ég segi þá hvort eigi ekki að tilkynna manni það, þá svarar hann því til að það standi þarna á blaði sem er límt á vegginn...ég sagði að ég hefði ekkert verið að glápa út í allar áttir þar sem ég átti að setjast beint fyrir framan hann....Það kemur þá allavega fram á þessari upptöku hvað mér fannst um hinn tollarann......Alltaf sem sé fjör hjá mér..eða þannig.....

Hvað um það ég ætla að reyna að klára ferðasöguna frá síðustu færslu..´Það mígringdi svo um um tíma nóttina sem ég gisti hjá Piu....Tók slatta af myndum og þar á meðal myndir af tré sem varð víst um 300 ára gamalt en það féll í fyrra í brjáluðu veðri sem betur fer í áttina frá húsinu en það hefði sennilega ekki orðið mikið eftir af húsinu ef það hefði fallið á það...Það er annað tré þarna um 200 ára gamalt..ef að tré gætu talað þá hefðu þau sennilega frá mörgu að segja....Ég fór svo með lest frá Slagelse um kl 15 og kom til Höje Taastrup 1 og hálfum tíma seinna og var ágætt veður á leiðinni og fyrst eftir að ég kom en svo þessi blessuð rigning...majken sótti mig þangað...Skruppum svo í dart klúbbinn um kvöldið og mér hefur farið nokkuð vel fram í pílu kasti.. Svo fór ég morguninn eftir með lest frá Taastrup  og inn í Köben á námskeiðið og mér tókst að finna Færeyska húsið sem er á Vesterbrogade 17 a og mætti á réttum tíma á námskeiðið

Eftir að námskeiðinu lauk kl. 5 á föstudeginum labbaði ég niður á Axeltorv með einni af námskeiðinu en hún var frá Noregi. Ég ákvað að athuga hvort Solla (Sólveig) væri að vinna á Axelborg bodega en þá var hún búin þann daginn.. Við löbbuðum svo þarna um og sú norska vildi fara á kínverskan veitingastað og var það ok fyrir mér. verð samt að játa að maturinn á kínverska veitingahúsinu í Albertslund var mörgum stjörnum ofar í gæðum.. Hringdi svo í Sollu og hún vildi að ég kæmi heim til hennar og varð það úr.´Fór með strætó til hennar en það var um 15 min akstur og svo smá labb frá stoppistöðinni..mér tókst að vísu að gera labbið lengra því ég beygði inn í vitlausa götu en þetta hafðist...Hún gaf mér svo "facial lift" með galvanic spa...að vísu bara helminginn á andlitinu og vá það var ótrúlegur munurá þeim helmingi eftir 10 min meðferð..ég spurði hvort hún ætlaði að láta mig fara svona á námskeiðið á morgun ..nei nei þú gerir bara hinn helminginn sjálf...ótrúlegur munur...sem sést þokkalega á ljósmyndum sem hún tók... Gisti svo hjá henni og fór svo með strætó á námskeiðið morguninn eftir í sól og passlega heitu veðri.... Var samt eins og hálf lasin. illt í hálsinum en samt ekki svona eins og venjuleg hálsbólga,  fannst líka allt rugga og vagga þegar ég stóð kyrr, hvort sem ég stóð á trégólfi eða úti á götu...

Kanski afleiðingar af öllu lestar vagginu og rugginu í strætó....en þetta hvarf ekki fyrr en eftir að nokkra daga.. Fór svo niður á Axelborg bodega þegar ég var búin á námskeiðinu og náði í Galvanic spa tækið til Sollu. Tók svo lest til Taastrup og græjaði mig til fyrir ferðina til Jótlands en ég fór til Sogaard eftir námskeiðið á sunnudeginum.. Var í seinni kantinum á fætur á sunnudagsmorninum svo ég endaði með að taka leigubíl inn í köben en hann kostaði 259 dk.kr sem mér fannst ekki dýrt miðað við að ég var held ég um 20 mín á leiðinni.. það var þokkalegasta veður, sól af og svo var orðið glampandi sól þegar námskeiðinu lauk..

Ég er mjög ánægð með þetta námskeið og það sem var það ótrúlegasta sem ég sá en það var strákur sem var mjög einhverfur en er það ekki lengur. Ég man ekki alveg hversu langt síðan það er að hann losnaði við hana ( með cranio sacral meðferð). Það var ótrúlegt að horfa á hann standa fyrir framan okkur öll og lýsa því hvernig það var að vera í heimi einhverfunnar.. Hann er orðinn 26 ára og ekki séns að sjá að hann hafi einhverntíma verið einhverfur...Talar eins og allir aðrir og horfir á viðkomandi og er með eðlilegar andlitshreyfingar. Hans aðal áhugamál voru tölvuleikir og UFO. Hann þoldi ekki hátíðnihljóð en ekki heldur sum lágtíðni og hann var líka með tinnitus´.. Hann notaði mjög fá orð og t.d. kallaði hann alla karla sem voru með skegg "sópa" ( sweapers eða broomstik)...Honum fannst okkar heimur vera skrítinn og og hvernig við töluðum skrítið.....Hann mundi heldur ekki nöfn  ( þetta er eins og minn sonur er sem er með asperger syndrome, þeir virðast ekki eiga auðvelt með að tengja nöfn við fólk) Hann á orðið mikið af vinum og þokkalega vinsæll hjá kvenkyninu.. Hér getið þið séð video með honum en það er bróðir hans sem segir söguna í byrjun en hann sjálfur líka http://stanleyrosenberg.com/artikelmappe/autisme  Ég spurði hann að því hvort að hann hefði einhverntíma haft áhuga á eðlum (dóti og risaeðlum) hann sagði að hann hefði gert það þegar hann var yngri....

Svo sáum við video af öðrum sem að sýndi fyrst hvernig hann var og svo breytingarnar´sem urðu á honum bara við það að hlusta á viss hljóð sem líkja eftir mannsrödd (er ekki alveg viss hvað það er nákvæmlega því að þessar rannsóknar niðurstöður verða birtar mjög fljótlega en Stephen Porges er búin að vera að vinna með þetta og þróa í x ár...)   Fyrst sáum við video af honum ( hann var 24 ára) sem foreldrar hans höfðu tekið upp sem sýndi hvernig samskifti hans við þau væru en pabbinn var mjög ósattur við það að geta ekki átt nein samskifti við strákinn. T.d. þegar þeir voru að tefla þá leit strákurinn fyrst á pabbann en svo ekki meir allan leikinn heldur bara á taflborðið.  Hann sýndi engin viðbrögð með efra andlitinu má líkja því við að hann hefði fengið botox en neðri hluti andlitsins er aftur á móti of stífur og allir vöðvar of strekktir. Það er eins og hjá þeim sem eru einhverfir séu með helminginn af andlitinu of örvaðan en hinn alveg vanvirkan... Hvað um það þá breyttist þetta eftir að strákurinn var búinn að hlusta á video í 10 min og talað við hann fyrir og á eftir því. Maður sá strax breytingu á honum en það var að hann gat hreyft efri hluta andlitsins..og að hann myndaði augn kontakt..Eftir 5 skifti þá var hreint lygilegt að sjá hvað hann hafði breyst á öllum sviðum..... En maður þarf að sjá þetta til að bara hreinlega trúa því að þetta sé hægt.  Ég sé sko ekki eftir því að hafa farið á þetta námskeið. Stanley Rosenberg verður með námskeið hér á landi í lok september og byrjun okt en það verður í fyrsta skifti sem hann verður með náskeið hér. Þetta er 4 daga námskeið og ég hvet alla sem áhuga hafa á að vinna með einstaklinga með einhverfu til að fara á þetta námskeið. Hvort sem viðkomandi er að vinna innan heilsugeirans, foreldrar eða hafa bara almennt áhuga á cranio sacral balancing meðferð ( höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð)....Set meira um þetta síðar.

Þegar námskeiðinu var lokið þá fór inn  Hovedbanegaarden og náði í lest sem fór kl 17.30 til Kliplev og sem b etur fer þurfti ég ekki að skifta um lest. Það var nokkuð löng ferð 3 og hálfur tími. Fékk gott veður alla leiðina, sól mest megnis. Rosalegt er að sjá hvernig mörg tún og akrar hafa farið út úr þessum rigningum þarna í sumar en það er búið að vera svipað veður og var í Englandi... Kom til Kliplev um 9 og komu Keli og Siggi að ná í mig...en það var ca 10 min keyrsla þaðan til Sogaard. Gaman að sjá framan í karl skarfinnHeart... Daginn eftir var sól og rúmlega 20 stig.. Ég og Emmy og litli kútur fórum til Þýskalands til Flensborg að skoða í búðir og Keli og Siggi niður til Rensburg ( held að það sé rétt skrifað) og keypti Keli sér gítar þar á 400 evrur ( helmingi minna en hann kostar hér) Ég endaði með því að kaupa slatta af skóm á útsölu en þeir sem voru dýrastir voru adidas fótboltaskór á 50 evrur....áttu að kosta 65 ...En aðrir voru á bilinu 10 -20 evrur sem ég keypti.

Svo náði ég í slatta af bolum á mig stykkið var á 1 -2 evrur (held að það sé 100 kr isl...)  Fórum svo og fengum okkur mjög góðan ísrétt í mollinu þarna en þar er virkilega skemmtilegur veitingastaður að mér fannst.. Komum svo til baka um 2 en þá þurfti Emmy að fara að vinna. Ég og Keli skruppum svo til Aabenraa sem er virkilega fallegur sjávarbær sem stendur í hlíð. Höfnin var full af seglskútum. Fundum göngugötuna þarna og hún er öll hellulögð. Fannst hún miklu skemmtilegri heldur en Strikið. Svo þurftum við að drífa okkur til baka alltof fljótt að mér fannst því ég ætlaði að taka fleiri myndir en ég náði að gera..en Keli og Siggi höfðu lofað kunningjum þeirra að hjálpa frúnni við eldamennskuna en okkur var boðið þar í mat um kvöldið. Þannig að ég náði ekki að taka myndir af höfninni  því miður.... Tók svo litla kút hann Björn Jósef ( hann heitir í höfuðið á bróður mínum heitnum)  í höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð á meðan karlarnir voru að hjálpa til við eldamennskuna..Þau bú rétt við Sogaard vatn en það er virkilega fallegt þarna í góðu veðri allavega. Fengum æðislegan mat og var mikið hlegið og skrafað ja og sumblað... En veðurguðinn ákvað svo að opna flóðgáttirnar um tíuleytið og það var sko ekkert smá með tilheyrandi þrumum og þvílíkum eldingum.....Það flæddi alveg inn eftir öllu gólfinu þar sem við sátum og vorum við öll orðin blaut í lappirnar heppni að það flæddi ekki inn í hús.... Held að það hafi ringt 100 ml á einni klst (held ég)....það gróf allavega undan lestarteinum hjá Sönderborg sem gerði það að verkum að hún gekk ekki í allavega 2 daga. Sló líka eldingu niður í hús í Aabenraa og kveikti í því og því miður lést ein kona í brunanum...

Daginn eftir gekk á með skúrum en ekki svona brjáluðu úrhelli eins og kvöldinu áður.. Gaf svo Emmy svona Galvanic spa meðferð og það sást sko líka munur á hennar andliti á eftir sléttara og hraustlegra..meira blóðstreymi sem sé...Vorum svo bara í leti allavega ég nennti engu en karlarnir skruppu til Aabenraa og fóru og löbbuðu þarna eitthvað á göngugötunni og náðu að lenda í hellidembu og koma rennblautir heim því íslendingar eru ekki vanir að taka regnhlífar með sér hvert sem farið er en kanski allt í lagi að fara að venja sig við það....Áttum svo bara rólegt kvöld...Keli og Siggi fóru svo niður til Þýskalands aftur því að það var gítartaska sem Keli lofaði að kaupa fyrir kunningja sem þeir voru að ná í en þá var hún ekki komin  eins og búið hafði verið að lofa.. Ég tók svo Emmy í höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð og leið henni þokkalega betur en áður  eftir hana.  Var sól og hiti um smá tíma´......Siggi keyrði okkur Kela svo til Tinglev um kl 6 en þar tókum við lest sem fór inn til Hoje Taastrup. Vorum rétt komin inn á lestarstöðina þegar skall á þvílíka helli demban. Svo var þokkalegasta veður á leiðinni alveg að og yfir Litla belti meira að segja sól en rétt eftir að við komum úr göngunum þá keyrir lestin inn í þennan líka sótsvarta bakkann og þrumur og eldingar. Verð að játa að það er ekki þæilegt að sjá eldingarblossana sitthvoru megin við lestina rétt hjá...manni leið ekki beint vel.....komust svo að því daginn eftir að brúnni var lokað bara rétt eftir að við vorum komin yfir hana og var allavega lokuð í 2 tíma..Tókum svo leigubíl frá Höje Taastrup og þangað sem ég við héldum til.  Majken hafði farið til Slagelse  til vinkonu sinnar og gisti þar þannig að við vorum bara tvö....Wink 

 Daginn eftir fórum við svo inn í köben í fínasta veðri svona passlega heitu óg sko varð sól seinni partinn.... Ég fór með þetta fjárans símakóða kort sem ég hafði keypt og gekk ekkert að koma inn á símann og ég á að fá það endurgreitt inn á bankareikning hér heima...Fórum svo niður á Axelborg bodega og var Solla að vinna þar og við ákvaðum að fá okkur að borða þarna og fengum virkilega góðan mat og vel úti látinn. Sátum svo þarna og spjölluðum og horfðum á mannlífið og fórum og löbbuðum svo á Strikinu og fengum tekinaðar skopmyndir af okkur sá sem gerði það var virkilega góður og að ég held ekki dýr en myndin kostaði 50 dk. En þvílíkur mannfjöldi þarna og svo var eitthvað gay pride dæmi á ráðhústorginu  líka.. Fórum svo aftur niður á Axelborg bodega því að Solla náði í vörur fyrir mig sem ég ætlaði að taka með mér heim..Sátum svo og kjöftðuðum á leiðinni og ég fatta svo allt í einu að við erum komin á Taastrup stöðina en keli vildi meina að við færum út á Höje Taastrup sem er næsta á eftir en í óðagotinu þá hef ég gleymt vörunum í lestinni Crying. Uppgötvaði það bara þegar við vorum kominn örstutt frá pallinum....Ég reyndi svo að finna út úr því hvernig ég gæti fundið farangur sem hefði gleymst en það gekk ekki vel og ekki hægt að ná í staffið hjá DSB nema frá 10-14 á daginn í síma..léleg þjónusta það verð ég að segja.. Því miður fundust vörurnar ekki eða allavega var það svarið sem ég fékk....Sennilega einhver farþeginn tekið það þó svo ég eigi erfitt með að trúa því eða þá þeir sem gera lestarnar hreinar...déskoti er ég fúl út í sjálfa mig fyrir að gleyma einum litlum poka sem að vísu innihaldið var nokkuð dýrt örugglega svipað og allir skórnir og bolirnir saman.....búin að vera að flakka í lestum mestan tímann sem ég er þarna og lenda svo í þessu irr og pirr.... 

Svo var farið í að pakka niður ( mætti halda að maður hefði verið að flytja...) alltaf er maður með of mikið af farangri með sér en kanski maður þurfi að ferðast oftar til taka ekki of mikið með sér af fötum og alls ekki of stóra tösku.. En ég held sé mest eftir því að hafa ekki sent skó og föt ca 10 kg heim í gegnum pósthúsið því fyrir 20 kg þar borgaði maður 555 dk en 6 kg yfirvigt gerði sko 480 dk....Majken keyrði okkur svo út á Kastrup og ég fór sem sé heim í sama veðri og mætti mér þegar ég kom til Danmerkur en það var sól og rúmlega 20 stiga hiti..Gamla frón heilsaði mér líka með sama veðri og það hafði kvatt mig 2 vikum fyrr með rigningu...jæja þá held ég að ég láti þessarri sögu lokið.. En ég er virkilega ánægð með ferðina í heild sinni og hver veit nema maður endi með því að flytja út.  Ef að maður hefði haft lausar 1 og hálfa miljón danskar þá hefðum við getað náð okkur í flott einbýlishús í Sogaard...með bílskýli og stórum garði....Svo hver veit nema maður endi sem bauni....


Ég og lestarferðir..púhe..lestardraumarnir mínir ljóslifandi...

Hafðst að lokum að komast hingað eftir hitt og þetta moj..Heimsótti allavega Fredensborg slot að vísu í rigningu rétt áður en ég fór þaðan..en hefði ég haft vit á að taka myndavélina með þegar ég fór í jóga ..(sem að skrokkurin mér mundi eftir frá x ára langt afur í tímann minningu en ekki heilabúið..náði eira að segja sjá fjólublátt og hvítt með lokuð augu..) það var nefnilega rigning þegar við fórum en fínt veður þegar við keyrðum framhjá slottinu..fittar..En hvað um það ég hafði æðislegan tíma þarna þó að stuttur væri..en það er jú ekki alltaf lengdin sem skiftir máli heldur gæðinWink 

Ég gaf svo hjónakornunum smá cranio meðferð en þau undruðust mikið hita minna handa.. ( eitthvað verður jú að vera heitt sem er frá "ísa" köldu landi ekki satt..) Hvað um það að það sem plagaði þau plagaði ekki á eftir..Ég hef víst "gode hender" svo keyrðum við framhjá slottinu á leið á lestarstöðina ..þá var bæði rigning og turistar þar..fittar.. Jæja..hafði það af á lestarstöðina og kom það tímanlega að ég ákvað að taka lestina sem var 10 min á undan þeirr i sem ég átti að fara með bara til að hafa betri tíma..veitti sko ekki af kom í ljós......

Kom inn á Norreport þar sem ég átti að skifta og fór á þann stað sem ég taldi að væri réttur,  en ekki alveg viss og spurði fólk og sýndi þeim svokallað "klippekort" þá fékk ég að vita að ég yrði að kaupa spes billet því ef ég hefði hann ekki þá ætti ég á hættu að borga 600 dk.kr. í sekt..ok svo var það upp allar fjárans tröppurnar eftir og í miðasöluna þar sem var korters bið og þá var lestin mín farin..flott.. Jú ég varð að kaupa spes miða með ICS eða D lestinni og að næsta lest færi ekki fyrr en eftir 1 tíma frá Nörreport...en ef ég færi inn á Hovedbanegården da ville jeg kunde komme med tog halv time för...og der kunne jeg bruge de billetter jeg havde.......Okey.......þá gerði ég það......

Svo fann ég information þar og spyr hvenær næsta lest sé til Slagelse..þá var hún kl. 16 og enn hálf tími í hana...Ég hringi í Pia og hún segir ok.det går..... en þú ferð bara út á Sorö...Svo versnaði það enn,  nærri 20 min seinkun á lestinni.puhe...það er að segja eftir að ég kom inn í hana...ok...svo er ég bara að leika mér í blessuðum tölvuskrattanum að mér dettur allt í einu í huga að spyrja liðið sem sat með mér hvenær við komum til Sorö..ja så er vi kørt  forbi og den stansede ikke........og næste stop er jo Slagelse ..og ég skelli draslinu saman og hugsa ja her verð ég að fara út þó að Pia þurfi að keyra fram og til baka eða ég að taka bus eða lest....

Næsta lest var sko klukkutíma seinna sem færi frá Slagelse til Sorö..puhe..ég hringi í Piu..og segi henni ófarir hennar gömlu barnapíu..þá er hún rétt komin til Slagelse..og þarf að keyra til baka aftur.. held að hún hafi rúntað nærri 100 km út af þessu böggi.. Hvað um það ég kom allavega með sólina til hennar eins og ég lofaði áður en ég fór af stað frá gamla fróni...allavega i nokkra tíma en það hafði míg ringt hér í allan dag, bara þar til ég hefði átt að vera komin mínus allt klúður..

Rosalega spes og fallegur staður sem þau eru á hér... en ekki eitthvað sem hinn almennii túrsti sér.... Er búin að eiga yndislegan tíma með Piu, hennar manni og 5 börnum, geitum, hundum, þvottabirni, hænsnum og hestum..pafagauki sem talar..hostar reyndar ika, flautar eins og lest og kann hljøoåin øi sjøukrabilnum lika..thannig ad madur hrokk oft vid.... að ógleymdum froskum sem ég var næstum því búin að myrða á göngunni um landareignina..ja og rakst lika a ledurblødkur... 

En nú er karluglan eða kelu dýrið.....Coolsitjandi sötrandi öl í massavís með íslenskum vinum okkar niður Sogård sem er við landamæri Danmerkur /þýskalands... mínus mínar hrakfarir í lestarferðum þá reikna ég með því að komast þangað á sunnudagskvöld eftir námskeiðið...Kveðja til þeirra sem nenna að kvitta ekki hinna Wink


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband