Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
22.6.2007 | 02:34
Vinsælt krabbameinslyf tengt hjartabilun., drepur frumur hjartavöðvans.
Vinsælt krabbameinslyf tengt hjartabilun.
Krabbameinslyfið Gleevec getur skemmt hjartað. Rannsókn staðfestir það að 10 hvítblæðis sjúklingar sem tóku Gleevec mynduðu alvarlega hjartabilun.
Rannsóknin leiddi í ljós að lyfið drepur frumur í hjartavöðvanum.
Novartis: Þörf á fleiri rannsóknum.
Gleevec (líka selt undir nafninu Glivec) heildar sala þess um allan heim var $1.2 billion fyrstu sex mánuði 2006.
Framleiðandi þess, Novartis lyfjasamsteypan heldur því fram að fleiri rannsókna sé þörf til þess að skilja að fullu hugsanlega hættu.
Læknar þurfa að vera meðvitaðir.
Höfundur rannsóknanna sagði að hann vildi vekja áhættu Gleevec og samsvarandi lyfja, þannig að læknar væru vakandi fyrir mögulegum vandamálum. http://www.mercola.com/2006/aug/8/popular_...art_failure.htm
Nature.com July 23, 2006
http://www.nature.com/news/2006/060717/full/060717-19.html
Chicago Sun-Times July 24, 2006
http://www.suntimes.com/output/health/cst-nws-cancer24.html
Þýð.Agný.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.6.2007 | 11:49
" GÓÐ" ÆRI eða " GÓÐ " ÆÐI....
"eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og að taka tillit til þeirra,
og hafa lítið innsæi í eigið sálarlíf..
Miðað við þessa upptalningu þá er ekkert skrítið að hann sjái ekkert athugavert við það að honum séu úthlutað launahækkun á mán sem er 100.000 kallinum minna en það sem öryrkjar mega hafa á einu ári í laun á almennum vinnumarkaði á einu ári án þess að bæturnar skerðist.
Hann hefur jú ekki úr nógu að moða karlgreyið.. er hann ekki "bara" með tæplega 2 miljónir á mán???????
Málið er að versni nú heilsan enn hjá þeim sem reynir að vinna ( en vinnuveitendur virðast nú frekar vilja mállausa útlendinga í vinnu hjá sér en öryrkja eða eldri borgara) og hefur lent í því að bæturnar hafi skerðst og getur svo ekkert unnið árið sem skerðingin kemur inn á, þá er það ekki fyrr en árinu þar á eftir sem leiðréttist aftur...
Svo talar hann um að "við" ( HVAÐA VIÐ..MÉR ER SPURN...) þurfum nú að sýna aðhald má segja í sömu andrá og hann tekur við 200.000 kallinum....ég hræki á svona hræsnara
Það er löngu sannað að hann telur sig vera mörgum hæðum ofar en allir aðrir þegnar landsins.
Hann sér ekkert athugavert við það að hinn almenni borgari /verkamaður er jafnvel með undir því sem nemur launahækkuninni sem að hann fékk....
Það eru ekki bara öryrkjar og eldri borgarar sem að ná ekki endum saman yfir mánuðinn....
Nei því miður hefur Davíð karlinn ekki enn hætt að stjórna út fyrir sitt valdsvið..en núna má segja að hann setji ofan í við sínar eigin aðgerðir og verk sem að hann kom á þegar hann var forsetisráðherra.....hann hefur sko ekki minni á við gullfisk ..nema eftir því hvað kemur sér betur fyrir hann hverju sinni....
En það er þar fyrir utan varla lengur neitt lýðræði hér á landi nema á ppapírum og það fyrir nokkra sérvalda toppa í valdaklíkunni.
Það eru ekki lengur þrjár stéttir hér á landi, heldur bara tvær en það er hástétt og lágstétt, millistéttin er ekki lengur til eftir því sem ég fæ best séð..
En þetta land sem við búum í gerir sig jú út fyrir að vera þvílíka gnægtanna land á alþjóða vettvangi, það er ekki nema von að hingað flykkist fólk frá öllum löndum heims í von um sneið af "góð"æris kökunni, en réttara væri að kalla það "góð"æðis, sem að hann bakaði af rausnarskap sínum á meðan hann stýrði þjóðarskútunni....
Vonandi að restin af kökunni standi ekki í honum....en hann kann allavega að skammta sér stærri sneið en hinir "gestirnir" eiga að fá, og sumir verða algjörlega út undan og fá ekki einu sinni smá flís, varla að hrynji molar af "góðæris" kökunni á gólfið fyrir smælingjana að tína upp ...
Það var /er sko venjan ( allavega þaðan sem ég er) að gestgjafinn bjóði gestunum að fá sér "sneið" áður en hann skammtar sér, en það þykir dónaskapur ef að gestgjafinn skammtar sér helminginn af kökunni áður en að hann býður gestunum...
En þannig er landinu búið að vera stjórnað alltof lengi eins og ég lýsi hér að ofan og ég held að sé kominn tími til að þessir fyrrum forsetisráðherrar geti ekki átt bókað sæti í í bankastjórastól Seðlabankans þegar þeim "þóknast" að eftirláta öðrum forsetisráðherrastólinn ...
Alltof mikil spilling er látin viðgangast hér á landi, en hún er ekki mest hjá þeim sem minnst mega sín, heldur hjá þeim sem fara með völdin og fjármagnið í þessu landi...
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.6.2007 kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2007 | 15:44
Þið megið ekki strika út nafn Björns Bjarna ef að þið ætlið að kjósa annan flokk en sjálfstæðisflokkinn því þá eruð þið að ógilda seðilinn!!!!!!!!
Annað.....ef að þið ætlið ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þá megið þið alls ekki strika út nafn Björns Bjarna því þá eruð þið um leið að ógilda seðilinn og jafnvel um leið að gefa sjálfstæðismönnum atkvæði ykkar óvart!!!
Þetta er nokkuð sniðugt útspil hjá Jóhannesi...því að maður ógildir seðilinn ef að maður strikar út nafn hjá öðrum flokki en að maður xar við......
Þannig að karlinn er sko að hjálpa sínum flokki sem er samt búinn að skíta út um allt bak á honum...... Þannig að þið sem ætlið ykkkur að kjósa annan flokk en Sjálfstæðisflokkinn látið ekki glepjast!!!!!
Kveðja Agný.......
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.5.2007 | 11:18
Munið að kjósa!!! Ekki sitja heima, farið og nýtið kosningarétt ykkar!
Jæja... í dag er svo gengið til kosninga og vonandi kjósa allir samkvæmt bestu vitund og þeir sem vilja engan af þeim flokkum sem eru í framboði eiga alls ekki að sitja heima því þá eru þeir að samþykkja núverandi ástand. Nógu lengi var nú barist fyrir kosningarétti þannig að fólk á að nýta hann á meðan að ekki er komin einræðisstjórn...
Með því að mæta og skila auðu þá er verið að gefa frat í alla flokkana, viðkomandi treystir engum flokkanna sem eru í framboði til þess að stjórna og stýra þjóðarskútunni...en maður gefur í rauninni sitjandi stjórn atkvæðið sitt ef að viðkomandi situr við eldhúsborðið og bölsóttast yfir ástandinu...
Því miður þá held ég að umræður eða röfl við eldhúsborðið hafi ekki fram að þessu reddað neinum þjóðfélagsmálum.. en það er svo sem allt í lagi að blása..
Svo verður maður náttúrulega að fara á kosningavökur þegar líða tekur á kvöld/nótt... Það munu ýmsir gráta en aðrir gleðjast þegar talningu atkvæða verður lokið og niðurstöður komnar ......
Ég ætla að treysta því að ég muni tilheyra þeim hóp sem muni gleðjast yfir niðurstöðu kosninganna.
Eigum svo öll gleðilegan kosningardag...
Kveðja Agný....
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 02:42
FARSÍMAR GETA VERIÐ ÁSTÆÐAN FYRIR HVARFI BÝFLUGNA.
Vísindamenn hafa átt í erfiðleikum með að útskýra skyndilega hnignun á svæðum hunangsflugnabúa í USA og Canada, þekkt sem colony collpase disorder, sem getur haft áhrif á þá uppskeru sem þarf að reiða sig á þessi skordýr til frjóvgunar.
Samkvæmt rannsókn sem gerð var af Landau University og birt fyrir nokkrum árum, var áætlaði að geislun sem kæmi frá farsímum gæti átt þátt í vandamálinu.
Þegar að farsímar voru staðsettir nálægt býflugnabúum, þá var geislunin frá þeim ( 900-l,800 MHz ) nóg til að koma í veg fyrir að býflugurnar sneru aftur til búanna.
Vísindamenn telja að geislunin sem farsímar framleiða geti verið nægjanleg til þess að trufla það hvernig býflugurnar eiga samskifti við búin sín.
Farsímar geta skapað óm / hljóm sem hafi truflandi áhrif á hreyfingar mynstrið sem býflugurnar nota sem nokkurs konar tungumál...
http://v.mercola.com/blog/public_blog/Cell-Phones-May-Bee-Why-Honeybees-Are-Dissapearing-10796.aspx
The Independent April 15, 2007
Telegraph.co.uk April 16, 2006
Science a Go Go April 16, 2007
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.5.2007 | 04:09
Hvert hafa býflugurnar farið?..Hvað er að eyða þeim?
Það sem þið sjáið á videoinu hér http://video.msn.com/v/us/msnbc.htm?f=00&g=085a5308-15d4-4e3f-a7ef-a74d60e9695c&p=hotvideo_m_edpicks&t=c24&rf=http://www.msnbc.msn.com/id/18442426/&fg=
er ekki neitt ánægju efni fyrir " the bees and the birds" en byflugur eru horfnar af einhverjum undarlegum ástæðum í 24 fylkjum USA muni ég rétt og þetta er búið að ske á mjög svo skömmum tíma. Þið eigið að geta lesið um þetta í mínum fyrri færslum ef áhugi er fyrir hendi.
Mig minnir að býflugur séu að skapa 14 biljónir af þjóðartekjum Bandaríkjammanna árlega ..þannig ekki gott mál..þar fyrir utan að skapa líf og viðhalda því....
En hvað er að valda því að þær eru að gufa upp?
Er það eins og margir vísindamenn halda fram að það séu erfðabreyttar nytjaplöntur ?
Hvað er það sem er nýjasta vísinda undrið hjá þeim sem eru að fikta í náttúrinni?
Er það ekki að gera nátturuna að manninum?
Það hlýtur að vera fyrst að það er búið að taka erfðavísi úr manni og splæsa við erfðavísi úr hrísgrjóni... FDA er búið að gefa leyfi fyrir því að rækta human/rice á 3000 ekrum í Kansas...
Hvað verður næst..ja þetta er það sem er uppgefið..opinberlega..gleymum ekki tilraununum...
Nú verðum við öll loks það sem við kölluðum þá sem að mörgum okkar fannst ekki stíga í vitið eða ekki verða fótaskortur í því...
Við verðum sko "Grjóni" og svo getum við vitanlega kjaftað við grænmetið á meðan að við troðum því okkur..Nice....eða þannig...
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.2.2020 kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.5.2007 | 13:06
Engin löggjöf um erfðabreyttar lífverur er til staðar hér á landi .
Getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér.......
Engin löggjöf, líkt og sett hefur verið á öllum Norðurlöndum og í velflestum Evrópuríkjum, er um merkingar á erfðabreyttu fóðri og matvælum né um meðferð og útbreiðslu þeirra í náttúrunni.
Engu að síður hafa þegar verið leyfðar sleppingar erfðabreyttra lyfjaplantna út í umhverfið hér á landi og áform um frekari sleppingar eru á döfinni.
Erfðabreytt matvæli eru flutt inn og seld hér ómerkt sem og erfðabreytt fóður í miklum mæli selt bændum og notað í flestar greinar búfjárræktar.
Aðstandendur kynningarátaks um erfðabreyttar lífverur hafa engin viðbrögð fengið við bréfi sem sent var til tíu efstu frambjóðenda allra flokka í öllum kjördæmum þar sem athygli á stöðunni er vakin.
Engin viðbrögð
Gunnar segir að með einum eða öðrum hætti sé erfðatæknin nú komin inn á borð hvers einasta Íslendings, "ýmist sem umhverfismál eða neytendamál eða sem erfðabreytt matvæli, án þess að um það hafi farið fram nokkur opinber umræða".
Nú þegar hafi yfirvöld gefið leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu lyfjabyggi á Rangárvöllum og að áform séu um slíka ræktun í Skagafirði. Þetta hafi verið gert án umhverfismats og prófana á heilsufarsáhrifum.
Erfðabreyttar lyfjaplöntur, sem notaðar eru við lyfjagerð, séu enn áhættusamari en aðrar erfðabreyttar plöntur enda þeim ætlað að framleiða svokölluð lífvirk efni.
Í nágrannalöndunum, t.d. Noregi, hefur öllum umsóknum um leyfi til útiræktunar á erfðabreyttum lífverum verið hafnað. Gunnar segir útilokað að hefta útbreiðslu og þar með mengunarhættu af völdum erfðabreyttra lífvera sem ræktuð eru úti.
En í hverju flest hættan?
"Það eru margir áhættuþættir," segir Gunnar. "Einn er sá að frjóduft frá erfðabreyttum plöntum fýkur og er borið með skordýrum og berst þannig í aðrar plöntur með ófyrirsjáanlegum afleiðingum."
Varðandi erfðabreytt bygg eru aðrar hættur. Fuglar, búfénaður og villt dýr geta komist í fræin og þau berast út í umhverfið. Jarðvegur verður því mengaður með erfðabreyttum efnum í áratugi og "hugsanlega öldum saman," segir Gunnar.
Þá gefa rannsóknir óháðra vísindastofnana ótvíræðar vísbendingar um skaðsemi erfðabreyttra efna á heilsu manna og dýra. "Við teljum að það væri ábyrgðarleysi að hlusta ekki á það," segir Gunnar.
Í hnotskurn
» Engin löggjöf er hér á landi um merkingu, meðferð og framleiðslu erfðabreyttra lífvera.» Verði það ekki gert kann það að valda íslenskum landbúnaði, matvælaframleiðslu og ímynd landsins óbætanlegu tjóni, að mati stofnana sem standa að kynningarátaki um erfðabreyttar lífverur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.1.2009 kl. 03:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.4.2007 | 11:08
Greinilega ekki sama hvort að maður er "bara" Jón...eða Jónína Bjartmarz.. þegar kemur að því að fá íslenskan ríkisborgararétt....
Samkvæmt því sem hér fer á eftir, skilji ég þetta allt rétt, þá held ég að þeir sem sitji í þessari nefnd sem fjallar um það hvort eigi að veita hinum eða þessum einstaklingi íslenskan ríkisborgararétt að fara að leita sér að nýrri vinnu!
Að konan hafi virkilega leyft sér að halda svona bulli fram eins og hún gerði þarna í viðtalinu..ja ef að viðtal á að kalla, en mér fannst Helgi Seljan vera ótrúlega góður að missa ekki stjórn á skapinu..ég held að ég hefði ekki getað það ......
Læt hér úrdrátt úr Lög um íslenskan ríkisborgararétt en eftir því sem segir hér þá er ekki séns að nefndin hafi ekki vitað tengslin á milli tiltekinnar stúlku og Jónínu....
[5. gr. a. Dómsmálaráðherra er heimilt, að fenginni umsögn lögreglustjóra á dvalarstað umsækjanda og [Útlendingastofnunar],1) að veita íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt umsókn sem borin er fram af umsækjanda sjálfum, eða forsjármönnum hans hafi hann ekki náð 18 ára aldri, enda fullnægi hann eftirgreindum skilyrðum um búsetu, hegðun og framfærslu:
A. Búsetuskilyrði.
1. Umsækjandi hafi átt hér lögheimili í sjö ár; ríkisborgari í einhverju hinna Norðurlandanna þó einungis í fjögur ár.
2. Umsækjandi, sem er í hjúskap eða staðfestri samvist með íslenskum ríkisborgara, hafi átt hér lögheimili í þrjú ár frá giftingu/stofnun staðfestrar samvistar, enda hafi hinn íslenski maki haft íslenskan ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
3. Umsækjandi, sem býr í skráðri sambúð með íslenskum ríkisborgara og bæði eru ógift, hafi átt hér lögheimili í fimm ár frá skráningu sambúðarinnar, enda hafi hinn íslenski ríkisborgari haft ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
4. Umsækjandi, sem á íslenskan ríkisborgara að öðru foreldri, hafi átt hér lögheimili í tvö ár, enda hafi hið íslenska foreldri haft ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
5. Umsækjandi, sem verið hefur íslenskur ríkisborgari, en hefur gerst erlendur ríkisborgari, hafi átt hér lögheimili í eitt ár.
6. Flóttamaður, sem fullnægir skilgreiningu í alþjóðasamningi um stöðu flóttamanna sem gerður var 28. júlí 1951, hafi átt hér lögheimili sem slíkur í fimm ár.
7. Reglur þessar miðast við lögheimili og samfellda dvöl hér á landi. Heimilt er að víkja frá því skilyrði þótt dvöl umsækjanda hér hafi verið rofin allt að einu ári vegna tímabundinnar atvinnu eða af óviðráðanlegum ástæðum, svo sem vegna veikinda nákomins ættingja, en þó allt að þremur árum vegna náms erlendis. Sá tími, sem umsækjandi hefur átt hér lögheimili og dvöl, verður þó að vera að minnsta kosti jafnlangur þeim tíma sem hann verður samkvæmt áðurgreindum reglum að uppfylla.
B. Önnur skilyrði.
1. Umsækjandi sé að áliti tveggja valinkunnra manna starfhæfur og vel kynntur þar sem hann hefur dvalist.
2. Umsækjandi geti framfleytt sér hérlendis með hliðsjón af þeim upplýsingum sem koma fram í umsókn og hafi ekki þegið framfærslustyrk frá sveitarfélagi síðastliðin tvö ár.
3. Umsækjandi hafi ekki sætt varðhalds- eða fangelsisrefsingu eða eigi ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.5.2007 kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.4.2007 | 11:03
Afhverju eru stjórnmálamenn með styttri "vinnutíma" en skólabörn?
Þá ég við að alþingislok væru á sama tíma og skólaslit barnanna okkar sem eru í grunnskóla.
Setning alþingis yrði þá líka á sama tíma og skólar byrja ..sem er um 20 ágúst...
Jólafrí alþingismanna yrði jafn stutt og barnanna og páskafrí líka...hvað hafa þeir líka að gera með lengri tíma en börnin okkar?
Þetta lið sem situr á þingi er varla komið í gang eftir þingsetningu þegar liðið er aftur komið í frí..
Held að námsárangur barnanna okkar yrði enn verri en hann er ef að sami hátturinn væri hafður þar og er á alþingi..
Svo er þetta lið varla komið í gang aftur eftir að jólafrís "fengitímanum" er lokið þegar kemur páskafrí..
Rétt komnir í gang aftur eftir paskafrí, þegar að þingi lýkur á þeim tíma sem miðast við sauðburðinn...
Ekki nema von að sé verið að kýla hin og þess mál í gegn sem í raun þyrfti /ætti að eyða lengri tíma í að skoða..
Svo í vor eru kosningar ..þannig að það er engin hætta á öðru en að komið sé með hin og þess hálfköruðu gylliboð um breytt og betri kjör handa hinum almenna borgara, ellilífeyrisþega,
öryrkjum og öðrum minnihlutahópum..
Það er alltaf sami söngurinn´fyrir hverjar kosningar, loforð/ frumvörp um þetta og hitt sem eigi að taka gildi "eftir " kosningar...að vísu eru nokkrar breytingar sem eiga að taka gildi í mars... en því ekki strax eftir áramót?
Svo er sá flokkur kosinn sem kom með x frumvarp.. sem að hann svíkur svo daginn eftir kosningar ..
ef að hann nær meirihluta...
En því miður er poli"tíkin" versta lóðatík sem um getur, migandi utan í allt og alla og aðal lóðarís tíminn er á 4 ára fresti... og allir hundarnir elta tíkina í von um feitan drátt..
Því miður erum við íslendingar ekki með lengra minni en 4 ára þegar að stjórnmálum kemur .. sem sé búin að gleyma öllum loforðunum sem voru svikin eftir síðustu kosningar, en eru aftur dregin
fram í dagsljósið í næstu kosningum..bara í nýjum búning...
Því miður kaupum við það flest.. Svei attan bara...
Agný.
sem vill að alþingismenn sitji jafn lengi á sínum "skólabekk" og börnin okkar..
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.4.2007 kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2007 | 22:13
BUGL og Greiningarstöð ríkisins.
http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=3866
Greiningarstöð ríkisins er / var ætluð til þess að frumgreina ( kanski ekki rétt orðað ).
Á sjálf son sem ég var með þarna fyrir 15 árum þannig að ég tel mig þekkja þetta svona pínu.
Lög um greiningar- og ráðgjafarstofnun ríkisins tóku gildi 13 mars 2003.
Læt hér fylgja úrdrátt úr þessum lögum en samkvæmt þeim skil ég ekki afhverju hlutirnir áttu ekki að ganga svona fyrir sig í sambandi við son minn ( og fleiri )sem ég skrifa hér á eftir.
III. KAFLI
Frumgreining.
3. gr.
Áður en til tilvísunar til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins kemur skal hafa farið fram frumgreining skv. 17. og 18. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992.
Frumgreining getur einkum farið fram hjá eftirtöldum aðilum:
IV. KAFLI
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
4. gr.
Hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er að annast eftirfarandi:
1. Greiningu barna og ungmenna með alvarlegar þroskaraskanir sem er vísað til athugunar að lokinni frumgreiningu.
2. Ráðgjöf og fræðslu til einstaklingsins, foreldra eða annarra aðstandenda og þjónustu aðila varðandi viðeigandi meðferð, þjálfun og önnur úrræði sem þörf er á.
3. Tilvísanir til annarra meðferðaraðila og stofnana í því skyni að hlutaðeigandi njóti þar þeirrar þjónustu sem þörf er á hverju sinni.
4. Langtímaeftirfylgd vegna þeirra einstaklinga sem búa við óvenjuflóknar eða sjaldgæfar þroskaraskanir.
5. Faglega aðstoð og ráðgjöf til samstarfsaðila, sbr. 3. mgr., t.d. varðandi:
a. uppbyggingu og starfrækslu greiningar- og ráðgjafarþjónustu,
b. menntun og þjálfun starfsfólks,
c. sérhæfðan tækjabúnað og aðgengi fatlaðra,
d. kannanir á högum og þörfum fatlaðra,
e. umsögn um þjónustu og vistun.
6. Öflun og miðlun þekkingar um fatlanir og alvarlegar þroskaraskanir, m.a. með því að fylgjast með nýjungum á alþjóðavettvangi.
7. Þróun, rannsókn og dreifingu á aðferðum og gögnum til greiningar á fötlunum og þroskaröskunum og á mismunandi meðferðaraðferðum.
8. Fræðilegar rannsóknir á sviði áunninna og meðfæddra fatlana og þroskaraskana og þátttöku í alþjóðastarfi, m.a. á sviði fátíðra fatlana.
9. Fræðslu á sviði fatlana og þroskaraskana og útgáfu fræðsluefnis.
Stofnunin þjónar fyrst og fremst þeim sem eru á aldrinum 0 -18 ára, sbr. 1. gr.
Stofnunin skal hafa samráð við aðra aðila um þjónustu, kennslu og rannsóknir á sviði fatlana og þroskaraskana, t.d. svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra, sveitarfélög sem tekið hafa að sér þjónustu við fatlaða, félagsþjónustu sveitarfélaga, sérfræðiþjónustu grunnskóla, ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu leikskóla, heilbrigðisstofnanir, háskólastofnanir, landlækni, stjórnarnefnd um málefni fatlaðra, svæðisráð málefna fatlaðra og hagsmunasamtök fatlaðra.
Sonur minn var fyrst sendur þarna inn "89 ( Greiningarstöð Ríkisins )og þá hafði farið fram það sem kallast forgreining.
Hann var greindur málhamlaður og misþroska, en samt passaði hann heldur ekki fullkomlega inn á þessa greiningu, alltaf á einhverju svokölluðu gráu sviði.
Tala ég um þetta við þá sem höfðu með hans mál að gera en þetta var haustið "98 að mig minnir.
Þá er mælst til þess að ég láta sækja um fyrir hann inn á BUGL en ég segi nei við því.
Málið er að hann hefur aldrei haft nein geðræn vandamál eða verið á neinum lyfjum þannig að ég segi til hvers ætti að senda hann þangað.
Þá var mér sagt að það væri mikið betra að greina þar hvort hann væri með asperger syndrome.
Það fyndnasta (sorglegasta) var að á þessum tíma var alveg rosalega langur biðlisti inn á BUGL og alltaf eitthvað um það í fréttum hvað vantaði mikið fjármagn þar inn vegna aukinna umsókna þarna inn.
Mikið um það talað að það væru svo margir unglingar og börn með geðrænar fatlanir og vandamál enda ekki nema von að fólk héldi það, en þegar ég fór að skoða málið nánara, kom í ljós að uppistaðan af þessum biðlista voru einstaklingar sem átti eftir að frumgreina.
Ég gat ekki betur séð að væri verið að búa til biðlista á fölskum forsendum til að knýja á fjármagn til BUGL og sagði það við minn viðmælanda og það varð fátt um svör en viðkomandi varð eldrauður í framan.
Ekki nóg með það að hefði ég ekki verið svona frek að heimta að hann kláraði dæmið á Greiningarstöðinni þá hefði hann ekki komist inn á BUGL fyrr en ári seinna en hann komst að á Greiningarstöðinni í maí "99.
Annað sem ég fékk að vita fyrir fáum vikum að enn er verið að senda fólk með börn í frumgreiningu inn á BUGL og var mér sagt að það væri mjög löng bið.
Það var ekki búið að greina þá einstaklinga þannig að það var í raun ekki búið að sjá hvar þarfir einstaklinganna væru mestar.
En það var talað um allan þann biðlista í fjölmiðlum eins og að þeir sem að á honum voru, væru eingöngu einstaklingar með alvarleg geðræn vandamál og miklar geðraskarnir.
Göngudeild BUGL
Um deildina:
Göngudeild BUGL veitir börnum og unglingum 17 ára og yngri þjónustu við geðheilbrigðisvanda.
Staðsetning:
Deildin er skráð við Dalbraut 12 en stendur í reynd við Leirulæk. Ekið er inn frá Laugalæk.
Meðferð á deildinni:
Á deildinni er stunduð einstaklings-, hóp- og fjölskyldumeðferð. Alltaf er unnið með allri fjölskyldunni. Meðferðartilboð eru fjölbreytt og sniðin að eðli vandans og þörfum skjólstæðinga. Á deildinni er unnið í þverfaglegu samstarfi.
Starfsfólk deildarinnar:
Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar og listmeðferðaraðili.
Verð að segja að mér finnst upplýsingarnar um starfsemi BUGL bæði litlar og ekki nógu greinagóðar en það er kanski bara mín skoðun. En hér hafið þið það sem ég fann.
Hér er linkur inn á upplýsingarnar, kanski finnið þið eitthvað meira út úr þeim en ég gerði.
BUGL.
Kveðja Agný.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.4.2007 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggvinir
- 666
- annasteinunn
- artboy
- athena
- berglindnanna
- bergthora
- biddam
- birgitta
- bofs
- brylli
- coke
- daystar
- dofri
- doriborg
- ea
- ellyarmanns
- estersv
- fridaeyland
- gammon
- gmaria
- gudrunmagnea
- gullvagninn
- gunnipallikokkur
- habbakriss
- halkatla
- hallarut
- halldorbaldursson
- hallurg
- handtoskuserian
- heida
- heidathord
- heidistrand
- heimskringla
- hjolagarpur
- hlynurh
- hlynurha
- id
- ingo
- ipanama
- ippa
- jensgud
- joninaben
- jorunn
- josira
- kallimatt
- ketilas08
- kiddih
- kiddijoi
- kiddip
- killerjoe
- killjoker
- kiza
- kollaogjosep
- konur
- limped
- lovelikeblood
- lydurarnason
- malacai
- mia-donalega
- molta
- morgunstjarna
- nonniblogg
- ofurbaldur
- olafurfa
- omar
- omarragnarsson
- overmaster
- perlaheim
- poppoli
- prakkarinn
- predikarinn
- proletariat
- ragnargests
- rheidur
- rosabla
- saethorhelgi
- salist
- sigurjonn
- sigurjonth
- sirrycoach
- sjos
- stebbifr
- svarthamar
- sveinnhj
- tharfagreinir
- trollchild
- tru
- upplystur
- vertu
- vglilja
- vitale
- alla
- dufa65
- andres08
- gumpurinn
- danna
- arit-bloggar
- apalsson
- taoistinn
- asgrimurhartmannsson
- heiddal
- brahim
- gattin
- brandarar
- rafdrottinn
- saxi
- eysi
- fafnisbani
- fiskurinn
- geiragustsson
- morgunn
- gudjonelias
- gjonsson
- lostintime
- tilveran-i-esb
- conspiracy
- skodun
- holi
- vulkan
- heim
- hildurhelgas
- drum
- truthseeker
- holmdish
- don
- danjensen
- ingaghall
- johannvegas
- jonasg-egi
- jonasg-eg
- joningic
- jonmagnusson
- alda111
- bisowich
- andmenning
- kristinthormar
- lotta
- ludvikludviksson
- astroblog
- vistarband
- marinomm
- manisvans
- minnhugur
- bylting-strax
- olafur-62
- pallvil
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- sviss
- bjornbondi99
- shhalldor
- infowarrioreggeiri
- sigvardur
- thorthunder
- thee
- tigercopper
- vefritid
- zordis
- tsiglaugsson
- thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.1.): 9
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 51
- Frá upphafi: 316105
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
354 dagar til jóla
Um bloggið
Hitt og þetta...aðallega hitt...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Uppáhalds síður
Margvísleg málefni.
Ýmsir vefir.
- Velvirk börn Félag hæfileikaríkra og skapandi einstaklinga
- Heilsubankinn Meðferðar og þjónustuaðilar
- Sannleikurinn minn Fróðleikur um ýmis heilsumál
- Heimasíðan mín Ýmislegt efni.
- Gagnauga Gagnauga er upplýsingavefur um alþjóðamál
- MSSPJALLIÐ Opið Spjallborð um MS
- Ablechild.org Parents for Label and Drug Free Education
- ASPARTAME KILLS Rumsfeld og Aspartame
- Óvenjuleg og umdeild mál 9/11, samsæriskenningar...
- The National Foundation for Gifted and Creative Children Samtök hæfileikaríkra og skapandi barna
- Upplýsingasíða um MSG If MSG isn´t harmful, why is it hidden?
- Spjallborð um 911 og ýmislegt plott
- Þessi síða er alveg must read ýmislegt sem þú sérð bara hér
- The SPECTRUM Ýmsar greinar
- Label Me Sane Fjallað um ofnotkun lyfja.
- Alliance for Human Research Protection Samtök gegn tilraunum á fólki
- Organic Consumers Association Neytendasamtök fyrir lífrænt
- Freedom Or Facism ? Frelsi eða Facismi?
- Health Truth Revealed Hulunni svipt af heilsu málefnum
- Quackpot Watch "The last days of the Quackbusters "
- True Torah Jews/Jews Against Zionism Traditional Jews Are Not Zionists
- Question 911.com Free DVD download / frítt niðurhal
Talnaspeki / Numerology
Fróðleikur um þessa speki
- Sun - Angel Numerology Frítt dæmi þarna
- Free Numerology Reading Meira en bara talnaspeki..
- Your Reading / Agny Lýsingin á mér...
- INDIGO intentions Tarot, numerology, Indigo children, Reiki, Angels reading
Fyndið stuff.
Myndir, brandarar og glens.
- Cartoons Teiknimyndir
Andleg málefni
Allt sem tengist þeim málum.
- AEROSOL OPERATION CRIMES & COVER-UP SPRAYING US AS A BUG..
- Crystalinks Þessi síða er hreinlega með allt.
- Tarot Cards & Free Readings Frí Tarot spá
- Mind Power News Kraftur hugans.
- Progressive Awareness Research Allt mögulegt andans stuff.
- Tilvitnanir / quotes Ýmsar tilvitnanir
- New Jersey ghost hunter center Drauga "veiðar"
- The Tree of the Golden Light Ýmis andleg mál
- Mayan Calendar Articles Tímatal Mayanna
Stjörnuspeki / Astrology
Fróðleikur um þessa speki.
- The Future Minders Frítt dæmi þarna
Síður um ADD / ADHD
Upplýsingar um athyglisbrest / ofvirkni.
- Dr. Mary Ann Block ,, Find the course, fix the problem".
- A Multisensory Learning Program Kennslugögn fyrir ADD / Autism / Dyslexia
- Exposing the Fraud of ADD and ADHD Fred A. Baughman Jr., MD Neurologist, Pediatric Neurology
- Stimulant Drugs for ADHD and ADD Örvandi lyf við ADHD og ADD
- "Are Psychiatrists Betraying Their Patients?" Eru geðlæknar að svíkja sjúklingana sína?
- "Our Toxic World" " Okkar eitraði heimur"
- No proof mental illness rooted in biology Engin líffræðileg sönnun fyrir geðsjúkdómum
- Death From Ritalin Snannleikurinn á bak við ADHD
- Methylphenidate ( virka efnið í Ritalin) Drug and Chemical Evaluation Section
- What Drugmakers of ADD & ADHD Drugs vilja ekki að þú vitir
- Answers for ADHD Questions Svör við ADHD spurningum.
SSRI lyf og önnur þunglyndislyf
Ýmsar síður um hugarfars breytandi lyf.
- Dangerous Medicine forum Spjallborð
- Antidepressants Facts Staðreyndir um þunglyndislyf.
- SSRI Stories Ekki er sannleikurinn fallegur...
- International Coalition For Drug Awareness Verum meðvituð ...
- PROTECT YOUR CHILDREN NOW Verndum börnin okkar!!
- THE DARK SIDE OF PSYCHIATRY Dökka hlið geðlækninganna
- How psychiatry is making drug addicts out of America´s shool children Amerísk skólabörn gerð að læknadóps fíklum.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine. SEARCH ENGINE
Asperger syndrome og Autism
Síður sem fjalla um Asperger og einhverfu
- Aspergers Syndrome in Children Góð síða (mín skoðun)
Blogg úr ýmsum áttum..
Vinir / áhugaverðir einstaklingar.
- Sigurjón Þórðar.
- Nornin
- Tigra
- Anna panna
- Þarfagreinir
- Katrín ódæla
- Klisja
- Olasteina "Fjarskyld frænka"
- Nornin Vinkona af Baggalút.
- Geiri 3d.
- Laramin
- Sigunzo
- Ditto bloggar Yndisleg og spes manneskja.
AGLOCO
- AGLOCO Borgað fyrir að browsa..
http://skorrdal.com/
MICROCHIP - RFID
- Microchip Implants News Articles MIND CONTROL; ÖRFLÖGUMERKINGAR; RFID
UMDEILD MÁLEFNI
- WIDE EYE CINEMA WIDE EYE CINEMA is dedicated to showcasing the very best alternative truth-related documentaries & cinema uploaded onto the World-Wide Web.
MY FAVORITE SITES
- This site is number 1 on 10 black list sites of US gov. Here you find it all.Specially what the elite do not want you to find
- Alvaran Forum about what some call conspiracy
- Prophecies of Sollog Sollog is a POLITICAL PRISONER of the USA!
- Ingaoramas video VIDEOS
- So you wanna talk conspiracies? try this on for size. JUST GO THERE...
- ConCen An eye openinger
- What you should not know...is here.. Knowing litle about lot is better than know lot about a little...
HAARP
- Chemtrails Data Page Chemtrails - Frequently Asked Questions
CHEMTRAILS
- CHEMTRAIL CENTRAL Þetta er forum um Chemtrails og málefni tengd efna úðun úr lofti..
- Chemtrails news, articles and information Cemtrails=Efnarákir
- CHEMTRAILS -HAARP-GEOENGIERING-DEPOPULATION AT WORK CHEMTRAILS síða- fyrrverandi FBI starfsmaður leysir t.d. frá skjóðunni- núna látinn..
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir- Ísland er ekki undanskilið þessu ógeði!
- Chemtrails = Aerosol spraying to change the atmosphere. Chemtrails = Aerosol spraying of barium, "fibers", pathogens.
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir
TRANSLATE-ÞÝÐA
- Translate your website into 52 languages Just copy and paste the Translate This Button anywhere on your site, it's free and easy. There are no files to upload and it works on almost any website. The Translate This Button is a lightweight JavaScript translation widget. It translates any page quickly using Ajax and the brilliant Google Translate.
VERICHIP-WE THE PEOPLE WILL NOT BE CHIPPED!
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heilsumálefni
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Óvenjuleg og umdeild mál
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði