Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Örflöguígræðsla sem veitir upplýsingar um þig samþykkt af FDA /Implantable Medical ID Approved By FDA.

Implantable Medical ID Approved By FDA.

Örflöguígræðsla sem veitir upplýsingar um þig samþykkt af FDA í fyrradag. 

Frétt á  http://www.alvaran.com

Ég þýddi þetta upphflega strax haustið 2004 og setti á alvaran.com  en það spjallborð er því miður ekki lengur til.. 

On Tue, 19 Oct 2004 04:42:12 -0000

Implantable Medical ID Approved By FDA

http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/articles/A29954-2004Oct13.html

The Washington Post Thursday, October 14, 2004; Page A01 Implantable Medical ID Approved By FDA By Rob SteinWashington Post Staff Writer

untitled1

 

Örflaga sem hægt er að græða undir húð, ætluð til að gefa læknum á augabragði aðgang að sjúkraskýrslum viðkomandi sjúklings, var samþykkt í fyrradag af stjórnvöldum.

Skref sem gæti umbreytt heilbrigðisþjónustunni en vekur upp skelfingu  í sambandi við persónuvernd. 

 

Örsmá  (ör)flaga, sem er sú fyrsta  til að fá samþykki hjá Fæðu og lyfjaeftirlitinu  ( FDA ) flytur einstakan kóða yfir í skanna sem gerir læknum kleyft að staðfesta kennimark viðkomandi einstaklings/sjúklings og ná  í upplýsingar úr sjúkraskrám viðkomandi einstaklings/sjúklings.  

Fólk er sem sé “skannað” eins og vara í verslun við afgreiðsluborðið... 

Applied Digital Soulutions Inc. of  Delray Beach FLA. áætlar að markaðsetjaVeri Chip systems-- flöguna, skanna og tölvuvætt gagnasafn-- til spítala, lækna og sjúklinga sem leið til að bæta heilsugæslu og koma í veg fyrir mistök  svo að tryggt sé að læknar séu  vissir um hvern þeir eru að meðhöndla og vera með beinan aðgang að sjúkraskýrslum viðkomandi sjúklings. 

Læknar munu skanna sjúklinga sem væru þeir niðursuðudós í verslun, en í staðinn fyrir verð, þá þá mun koma á skjáinn sjúkraskýrsla og persónuupplýsingar viðkomandi...  

Bráðamóttöku læknar munu geta skannað meðvitundarlaus fórnarlömb slysa til að tékka þeirra blóðflokk, lyfjagjöf og ganga úr skugga um lyfjaofnæmi.

Skurðlæknar myndu geta skannað fólk á skurðstofunni, til að ganga úr skugga um að þeir væru nú að fara að krukka í réttan aðila...(Innskot Agný- vonandi líka í réttan stað á líkamanum og réttan útlim ..Cool)

 

untitled7Flögur væri hægt að græða í Alzheimer´s sjúklinga í þeim tilgangi að finna þá ef að þeir villast...

 (Innskot Agný- það var fyrst byrjað á að græða svona í  heimilisdýr...svona til að finna þau ...ef þau strykju að heiman...næst voru það fangar-allt snýst þetta um "öryggi" spurningin er jú bara hverra..)

Á spítulum í dag verða mörg dauðsföll vegna þess að fólk er ekki fært um að koma með sjúkrasögu sína tímanlega. (Innskot Agný-Það sem bjargar lífi getur líka eytt  því...Tvær hliðar eru á öllum málum...) 

untitled13Eða af völdum rangra upplýsinga sagði Scott Silverman, formaður fyrirtækisins. Með VeriChip, munt þú hafa nákvæmar upplýsingar, jafnvel þó að sjúklingurinn sé ófær um að tjá sig.

Þetta er leið til að færa í nútímalegt horf úr okkar frumstæða formi sem sjúkraskýrslur eru núna  í.

 

 

Samþykkið var undir eins fordæmt af málsvörðum persónuverndar, sem óttast að þetta geti  stofnað í hættu einkalífi sjúklingsins og markað hættulegt spor í átt til  "Framtíðar  með Stóra Bróður" þar sem muni vera fylgst með fólki með ígræðslunni eða að því verði skipað að láta setja það í sig,  til eftirlits, sakbendingar eða í öðrum tilgangi.  

Alríkisfulltrúi Mexico tilkynnti í Júlí að hann hefði eina af þessum ígræðslum í handleggnum, einnig hefðu um 160 af hans undirmönnum, en það var til þess að veita þeim sér aðgang að topp öryggisskrifstofum og gögnum.

 

Á börum í Amsterdam og Barcelona, geta fastagestir fengið flögu ígrædda tilað veita þeim aðgang að sérstökum svæðum og hafa eftirlit með reikningi þeirra.

Fyrirtækið er að rannsaka aðrar umsóknir, þar á meðal notkunar á örflögum sem "rafmagns hunda merki" fyrir hermenn, til útnefningar á "smart guns" með innbyggðum skanna,  sem tryggir að það séu einungis þeir sem eru með samsvarandi ígræðslu, og geri verslunum kleyft að sannreyna skilríki viðskiftavinarins áður en þeir samþykkja kreditkort. 

"Sami skanner í Wal-Mart sem er notaður til að skanna vörurnar getur verið notaður til að staðfesta kreditkortið þitt og ganga úr skugga um að einhver hafi ekki stolið því og þínum skilríkjum" sagði Silverman.

 

Hvattir af S- Ameríkskum stjórnvöldum  sem leita leiða til að rekja fórnarlöm mannræningja, hefur fyrirtækið hannað tæki sem gerir gerfihnöttum kleyft að stinga út staðsetningu örflögunnar... en hefur engar  áætlanir sem stendur um að markaðsetja það tæki.. (Innskot Agný...trúlegt eða..). 

Fyrirtækið vonar samt sem áður,  að samþykki FDA fyrir notkun flögunnar í læknisfræðilegum tilgangi, muni það verða til að útbreiða notkun örflögunnar til annarra nota.. 

 "Við trúum því að þessi umsókn muni verða til að ýta undir viðurkenningu á framleiðslunni" sagði Angela Fulcher, varaformaður markaðssetningu og miðlunar.

"Ef að þú hefur einhvern krónískan sjúkdóm, þar sem að upplýsingar til  starfsfólks heilsugæslna, gæti þýtt spursmál um líf þitt  eða dauða, þá mun almenningur verða  tilbúnari til að samþykkja þessa tækni."

  Fyrirtækið vonast til að geta komið notkun VeriChip örflögunnar af stað með góðu forskoti, með því að gefa um 200 skanna ($ 650) til áfallahhjálparstöðva.

Flagan sem er á stærð við hrísgrjón, mun kosta um það bil $ 200 stykkið.

Búnaðinum  er sprautað  með sprautu undir húð á upphandlegg, í fljótlegri sársaukalausri aðferð. (Innskot Agný-Síðan hvenær finnur maður ekki fyrir sparutu? ) 

Skannerinn og hugbúnaðurinn sem fylgir með tryggir að persónulegar upplýsingar, opnanlegar með 16-digit kóða, verði aðeins veittar þeim sem að sjúklingurinn sjálfur hefur gefið leyfi til, sagði Silverman. 

" Jafnvel þó að fólk fá aðgang að þínu kennitölu númeri, sem mun verða sérstaklega erfitt að gera, þá mun það samt ekki veita þeim aðgang að þínum skrám. Við eru sannfærð um öryggismælikvarðana sem við höfum gert", sagði Silverman. 

Andstæðingarnir færa rök fyrir því að heilsufars kostirnir séu í lágmarki þegar best láti.

Sjúklingar geti nú þegar borið armband sem að geri læknum kleyft að sjá þeirra kennitölu og sérstakrar umönnunar sem þeir þurfa. Þessi fáeinu mistök  hafa orsakast vegna þess að ekki hefur verið hægt að bera kennsl  á sjúklinginn, segja þeir.  

En möguleikinn á misnotkun sé mikill, vara þeir við.

"Þegar til lengri tíma er litið, miðað við eftirlitsmyndavélar, eftir 5-10 ár munum við hafa þessa lesara í staðin. Þú munt labba inn í 10-11 og það mun verða tekin af þér mynd og skönnuð  kennitalan þín" sagði Richard M. Smith, Internet öryggis- og einkaráðgjafi í Boston. 

" Ef að við byrjum á því að bera þessi strikamerki, skapar það örugga leið, annaðhvort fyrir einka öryggisfyrirtæki eða stjórnvöld, til að hafa eftirlit með okkur."

 Marc Rotenberg, stjórnarformaður Electron Privacy Information Center íWashingthom sagði, að hann væri hræddur um að fólk yrði neytt til að láta setja ígræðsluna í sig.

" Þegar þú setur (kenni)strikamerki undir húð á fólki, þá gerir þú fólki ókleift að fjarlægja strikamerkið, svona eins og með brennimerkta nautgripi.," sagði Rotenberg.

"Líklegasta umsóknin mundi fela í ser fanga og fanga á reynslulausn,hver veit nema að einn daginn þeir  sem eru ekki ríkisborgarar í USA".

"Ég held að það þurfi að koma til einhver löggjöf til að koma í veg fyrir misnotkun".

Silverman lét þessa áhyggjur framhjá sér fara, hann sagði að tæknilega mundi misnotkun vera mjög erfið..

(Innskot Agný-Var það ekki líka sagt um tölvumisnotkun í denn? Og að jákvæðu þættirnir vægju meira en áhættan...)?

Þýðandi. Inga/Agný. 

Related story on Reuters:

http://www.reuters.com/audi/newsArticle.jhtmltype=technologyNews&storyID=6492915  


ÝMIS GULLKORN og VISKUSETNINGAR.

Angel in the sky.Fyrirgefning  breytir  ekki því liðna, en hún stækkar framtíðina. 

Kvartaðu ekki yfir eymd heimsins, farðu heldur og bættu úr henni.

Fernt er til gott í heimi hér: gamall viður í arineld, gamalt vín til að

dreypa á, gamlar bækur til að glugga í og gamlir vinir sem treysta má.

Af öllum þeim gæðum sem okkur veitir viturleg forsjá til ánægjuauka er

 vináttan dýrmætust.

Ástlaus erum við dauðleg, ódauðleg þegar við elskum. 

Nýkviknuð ást er ólgandi og villt, með aldrinum verður hún tær og stillt.

Ef þú átt 2 peninga skaltu kaupa brauð fyrir annan og blóm fyrir hinn, brauð til þess að lifa á og blómið til þess að lífið sé þess virði að því sé lifað.

Fólk notar peninga sem það á ekki til þess að kaupa hluti sem það hefur ekkert með að gera, til þess að ganga í augun á fólki sem því er ekkert um gefið..

Allir eiga tvennskonar vini: Þá sem eru við hendina þegarþú þarft á þeim að halda og þá

 sem eru við hendina þegar þeir þurfa á þér að halda.

Gifting er happdrætti þar sem maðurinn hættir frelsi sínu, og konan hamingju sinni...

Aðal munurinn á drengjum og fullorðnum mönnum er verðmunurinn á leikföngunum þeirra.

Maður móðgar konu horfi maður of mikið á þær og særir þær horfi maður ekki nóg á þær.

Á flugi sýnast sumir sem ernir, en reynast svo vera  kjúklingar er þeir lenda.

Karlmenn með skalla eru þeir sem þora ekki að standa upp í hárinu á konunni sinni, og

verða því að vaxa upp úr eigin hári..

Það má þekkja mann betur á því sem hann segir um aðra, en því sem aðrir segja um hann.

Það er ósiðlegt að fórna orðstír náunga síns  til þess eins að vera skemmtilegur.

Það sem fólk segir um þig á bak er staða þín í þjóðfélaginu.

Það eru til konur sem eru næstum því eins miklar kjaftakerlingar og karlmenn

Karlmaður rægir óvini sína, kona rægir vinkonur sínar.

Sá sem ætlar að segja sannleikann, segir mikið í stuttu máli.

Þegar slúðursögur verða gamlar breytast þær í goðsögn.

Kjaftakerling segir aldrei ósatt  -  geti sannleikurinn valdið jafn miklu tjóni.

Munurinn á fréttum og sögusögnum felst í því hvort þú segir þær eða heyrir þær.

Orðrómur er fréttaþjónusta hinna minni máttar.

gberinn gerir útaf við heiðarlegt fólk með hvísli.

Sá sem flytur þér fréttir af öðrum, flytur öðrum fréttir af þér.

Talaðu um aðra og þú ert kjaftakind, talaðu um sjálfan þig og þú ert öllum til ama.

Munurinn á frétt og slúðursögn felst í því hvort þú hækkar eða lækkar röddina.

Enginn þykist hafa áhuga á slúðursögum – en samt virðast allir njóta þeirra.

Sár eftir hnífstungu getur gróið en sár vegna söguburðar ekki.

Almenningur trúir hverju sem er – nema sannleikanum.

Syndin á sér mörg verkfæri, en lygin er handfangið á þeim öllum.

Tortryggnin heldur að sannleikurinn sé lygi, trúgirnin heldur að lygin sé sannleikur.

Mesti lygari heimsins heitir : ,, Fólk segir.“

Ár renna í eina átt, söguburður í margar áttir.

Enginn fer með kjaftasögur um um leyndar dyggðir annarra.

Söguburður snertir ekki hina dauðu, en getur valdið dauða þeirra sem lifa.

Talaðu ekki um sjálfan þig í samkvæmi, það verður gert þegar þú ert farinn.

Fólk trúir hverju sem vera skal, sé því bara hvíslað.


Orðablóm kærleikans. Höfundur Agný

Þar sem það eru ansi margir sem hafa "kvatt" þennan heim á mjög svo stuttum tíma og margir muna sitja með sorg í hjarta, á þessum jólum þá ákvað ég að setja þetta sem ég skrifaði sem eftir að bróðir minn dó aðeins 10 ára gamall. 

Ástæðan fyrir mínum skrifum var að ég var svo heppin að við kvöddumst svo vel bara 1 tíma áður en hann dó. Sú stund er enn greypt í minn huga og það varð einhvern veginn að kveikjunni að þessum skrifum hér að neðan.

Hvort sem þessi skrif geti hjálpað einhverjum í þeirra sorg veit ég ekki, en þessi skrif eru kanski líka smá áminning um það að segja alltaf "bless" því að maður veit jú aldrei hvenær maður kveður í hinsta sinn. 

Mér bara fannst ég verða að láta þetta hér, kanski af því að ég sjálf er búin að vera að fylgja til grafar 2 aðilum á 1 viku, sem voru í blóma lífsins ef þannig má að orði komast.

Orðablóm kærleikans til þín.

Í  kirkjunni sérðu sorgarinnar tómu tárvotu augun, allra fallegu, en ósögðu orðanna. 
Orðanna sem ég ekki sagði.
Ég legg afskorin blóm, blóm dauðans á gröf þína,
græt vegna orðablómanna sem ég gaf
þér ekki meðan ég gat.

Ég beið of lengi með að gefa þér kærleikans orðablóm, svo að nú færð þú bara eftirlíkingu allra fallegu orðanna, sem ég ekki sagði, en vildi sagt hafa. 

Hélt ég hefði nægan tíma, en tíminn varð á undan mér. 
Eitt af þessu hef ég lært, með tárvot augu, gefðu
  orðablóm kærleikans meðan þú getur.

Ekki bíða svo lengi að ég verði í gröfina komin, og gefa mér þá blóm,
sem liggja á gröf minni eina andrá, næstu stund horfin.

Gefðu mér frekar orðablóm, blóm, sem fylgja mér áfram á nýjum stað um eilífð alla. 
Þá getur  þú glaðst og brosað við gröf mína, vitandi að ég  vissi  og veit,
hug þinn og hjarta til mín alltaf. 
Því þá veist
þú, að ég veit. Þá getur þú brosað gegnum tárin og glaðst með mér,  þó að ég sé flutt,
en aldrei farin, því  þú gafst mér orðablóm kærleikans.

Ekki bíða svo lengi að þú þurfir að láta þér nægja afskorin blóm. 
Ef þú bíður of lengi, þá veist þú ekki að ég veit, hug þinn og tilfinningar allar til mín. 
En þú veist ekki að ég veit,
þess vegna situr þú með tárvot augu og sorg í hjarta, við gröf mína, í stað þess að geta  glaðst með mér og brosað gegnum tárin,
og þakkað fyrir öll árin og tímann sem áttum saman. 

Ef við gefum  öllum orðablóm kærleikans,
þurfum við ekki að sitja í kirkjunni með tárvot augu ,

orðanna fallegu, en ósögðu.


« Fyrri síða

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband