12.7.2007 | 02:01
ANDLEGAR PÆLINGAR MÍNAR.......
Nú ætla ég að fara svona smá inn á trú/trúleysi. Þó að við séum sannnfærð um einhvern hlut , hvort sem hann er túarlegseðlis eða er ekki, þá ættum við samt að
leyfa öllum að trúa með sínu nefi og á sinn hátt..
Reynum að vera alltaf við sjálf, sama hvernig aðrir taka því, en ef ég get stjórnað skapgerð annarra bara með mínum orðum, skrifuðum eða töluðum , þá er viðkomandi búinn að gefa mér vald yfir sér!
Enginn vill það í raun, við viljum að vísu deila upplifunum okkar með öðrum , en eigum við að gera annarra að okkar.?
Nei, að mínu mati , en skoðum alla fleti á teningnum áður en við ákveðum að pússlið sé óleysanlegt.. Ég ætla ekki að fara að draga fólk í dilka, hver sé sannkristinn/ hver er trúaður/trúlaus og hver ekki, það er ekki mitt að dæma það.
Mín trúarleið er mín leið , þín er þín, en öll endum við að lokum handan við móðuna miklu.
Það hefur hins vegar alltaf stungið mig, (þoli þetta orð ekki ) er þetta orð
" trúarbrögð " ef við skiftum orðinu niður, kemur trú + brögð = trúarbrögð.
Skilgreining á orðinu " brögð" er: blekking, sjónhverfing, tálsýn, saman ber að hafa
" brögð í tafli ."Beita brögðum eða blekkja einhvern til að trúa á þetta eða hitt, með þessum eða hinum aðferðum. Í gegnum aldirnar hefur fólk (eins og allir vita) verið fangelsað, pyntað og lílátið fyrir að standa á sínum trúarskoðunum en trúarkenningar koma af trúarskoðunum að mínu mati, en tek það fram að ég er ekki lærð í trúfræðum.
Það sem mig langar til að væri gert, er að fella niður þetta orð " trúarbrögð" og setja inn "trúarkenning" í staðinn, því að Kristin trú byggir á trúarkenningum Jesus, sem kom af hans skoðunum á hvað Guð væri . Sama er með Muhamed og Buddha , en þetta eru jú bara minar skoðanir og kenningar um þessi mál, en ég ætla ekki að fara að beita "brögðum" eða "blekkingum" til að fá aðra til að hafa sömu skoðun og ég hef.
Annars finnst mér að við hefðum mátt vanda okkur meir við þýðinguna á orðinu
" religion " þýða það ekki sem trúar " brög " heldur trúar " kenning " . Þannig að svo við komum aftur að þessari blessaðari "trú" hjá sumum getur hún flokkast undir trúarofstæki og öðrum trúleysi, en allra er valið í raun sjálfra, svo ég vísi aftur í orðið
" trúarbrögð " afhverju þýddi þessi gáfumaður á sínum tíma ekki religion bara sem " trúarblekking " ?
Blekking og brögð þýða það sama, verið að beita einhvern brögðum og/eða blekkja á einn eða annan hátt til að fá viðkomandi til að trúa því sem þeim finnst best sem
" ráða yfir hjörðinni / söfnuðinum / sauðunum " sama hvort það eru prestar eða pólitíkusar sem stjórna. Fá /ná hjörðinni til að hlýða og beygja sig fyrir þeim sem ráða með " trúarbragða / blekkingum en í gegnum trúar"ótta" því hann er þeirra meðal oftast nær, og ótti færir þeim og því sem þú óttast vald yfir þér og þínum skoðunum, sama í hvaða máli er, hvort um trúmál eða politík er að ræða.
Hræðsluáróður eins og tíðkaðist (og er enn mikið notaður enn til þessa að fá fólk til að aðhyllsast x kenningar) þegar var verið að innleiða kristna trú hér á landi, fólki hótað lífláti ef þeir ekki tækju Kristna trú og eilífri vist í einhverjum vítislogum.
Málið er bara það að fólk trúir aldrei á það sem það óttast, en viðkomandi beygir sig bara undir valdhafana, en undir niðri sýður og kraumar óánægja vegna eigin ótta og vanmáttar. Það á svo sem jafnt við í trú sem politík.
Ætli þeir sem standi að baki þessu séu ekki að reyna að gera út á " business " með Guðsóttaað leiðarljósi en ekki Guðstrú.
Nú er ég sennilega komin út í trúboð"..
Við eigum í raun heldur ekkert að vera að agnúast út í það á hvað og hvernig hinn eða þessi trúir, það er ekki okkar að dæma, er ekki alltaf verið að segja að allir séu "dæmdir á hinsta dómsdagsdegi" einhvernveginn svona orðað.
Eigum við ekki að lát okkur það nægja að bíða þess dóms, hvort sem hann mun koma úr því " efra eða neðra"?
Fæst okkar höfum efni á því að vera að dæma þennan mann eða hinn, öll erum við mannleg sem þýðir að vera breyskur og vera ekki fullkominn.
Ef við værum fullkomin hvað erum við þá eiginlega að gera hér á jarðarkúlunni okkar.?
Hversvegna má sá sem segist vera miðill ekki fá að vera í friði með það?
Hversvegna má sá/sú sem er kallaður spákona eða spámaður ekki vera í friði með það?
Man ekki betur en að Jóhannes skírari hafi verið titlaður spámaður, hann sagði fyrir um fæðingu Jesús.
Þetta minnast Krossins menn aldrei á. Hef oft talað við þá og bara býsna gaman og líka vottana en þeirra trú er þeirra og mín er mín.
En sú skýring sem mér finnst líklegust hér í sambandi við skyggnigáfu og aðrar gáfur er að það sem við skiljum ekki, það óttumst við, og þá er árás besta vörn þeirra sem óttast hið óþekkta.
En svo er eitt, það er alltaf verið að tala um að skyggnigáfa, miðlun, heilun og allt sem flokkast undir spíritisma sé komið frá þeim " ljóta í neðra" getið þið þá frætt mig á því hvað myndi hann sá ljóti græða á því sem sumir telja verið runnið undan hans hornum og hala ef ég þakka Guði það?
Ég yrði allavega frekar fúl ef ég gæfi vini mínum gjöf sem hann teldi vera frá ömmu sinni og þakkaði henni en ekki mér. Eignaði henni gjöfina óverðskuldað.
Held að sá Ljóti yrði líka fúll ef að hann væri búin að fylla mig einhverri andans gáfu sem ég svo ákvæði að kæmi frá Guði.
En þetta eru jú bara mínar skoðanir og pælingar ...
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 02:13 | Facebook
Bloggvinir
- 666
- annasteinunn
- artboy
- athena
- berglindnanna
- bergthora
- biddam
- birgitta
- bofs
- brylli
- coke
- daystar
- dofri
- doriborg
- ea
- ellyarmanns
- estersv
- fridaeyland
- gammon
- gmaria
- gudrunmagnea
- gullvagninn
- gunnipallikokkur
- habbakriss
- halkatla
- hallarut
- halldorbaldursson
- hallurg
- handtoskuserian
- heida
- heidathord
- heidistrand
- heimskringla
- hjolagarpur
- hlynurh
- hlynurha
- id
- ingo
- ipanama
- ippa
- jensgud
- joninaben
- jorunn
- josira
- kallimatt
- ketilas08
- kiddih
- kiddijoi
- kiddip
- killerjoe
- killjoker
- kiza
- kollaogjosep
- konur
- limped
- lovelikeblood
- lydurarnason
- malacai
- mia-donalega
- molta
- morgunstjarna
- nonniblogg
- ofurbaldur
- olafurfa
- omar
- omarragnarsson
- overmaster
- perlaheim
- poppoli
- prakkarinn
- predikarinn
- proletariat
- ragnargests
- rheidur
- rosabla
- saethorhelgi
- salist
- sigurjonn
- sigurjonth
- sirrycoach
- sjos
- stebbifr
- svarthamar
- sveinnhj
- tharfagreinir
- trollchild
- tru
- upplystur
- vertu
- vglilja
- vitale
- alla
- dufa65
- andres08
- gumpurinn
- danna
- arit-bloggar
- apalsson
- taoistinn
- asgrimurhartmannsson
- heiddal
- brahim
- gattin
- brandarar
- rafdrottinn
- saxi
- eysi
- fafnisbani
- fiskurinn
- geiragustsson
- morgunn
- gudjonelias
- gjonsson
- lostintime
- tilveran-i-esb
- conspiracy
- skodun
- holi
- vulkan
- heim
- hildurhelgas
- drum
- truthseeker
- holmdish
- don
- danjensen
- ingaghall
- johannvegas
- jonasg-egi
- jonasg-eg
- joningic
- jonmagnusson
- alda111
- bisowich
- andmenning
- kristinthormar
- lotta
- ludvikludviksson
- astroblog
- vistarband
- marinomm
- manisvans
- minnhugur
- bylting-strax
- olafur-62
- pallvil
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- sviss
- bjornbondi99
- shhalldor
- infowarrioreggeiri
- sigvardur
- thorthunder
- thee
- tigercopper
- vefritid
- zordis
- tsiglaugsson
- thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 316013
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
3 dagar til jóla
Um bloggið
Hitt og þetta...aðallega hitt...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Uppáhalds síður
Margvísleg málefni.
Ýmsir vefir.
- Velvirk börn Félag hæfileikaríkra og skapandi einstaklinga
- Heilsubankinn Meðferðar og þjónustuaðilar
- Sannleikurinn minn Fróðleikur um ýmis heilsumál
- Heimasíðan mín Ýmislegt efni.
- Gagnauga Gagnauga er upplýsingavefur um alþjóðamál
- MSSPJALLIÐ Opið Spjallborð um MS
- Ablechild.org Parents for Label and Drug Free Education
- ASPARTAME KILLS Rumsfeld og Aspartame
- Óvenjuleg og umdeild mál 9/11, samsæriskenningar...
- The National Foundation for Gifted and Creative Children Samtök hæfileikaríkra og skapandi barna
- Upplýsingasíða um MSG If MSG isn´t harmful, why is it hidden?
- Spjallborð um 911 og ýmislegt plott
- Þessi síða er alveg must read ýmislegt sem þú sérð bara hér
- The SPECTRUM Ýmsar greinar
- Label Me Sane Fjallað um ofnotkun lyfja.
- Alliance for Human Research Protection Samtök gegn tilraunum á fólki
- Organic Consumers Association Neytendasamtök fyrir lífrænt
- Freedom Or Facism ? Frelsi eða Facismi?
- Health Truth Revealed Hulunni svipt af heilsu málefnum
- Quackpot Watch "The last days of the Quackbusters "
- True Torah Jews/Jews Against Zionism Traditional Jews Are Not Zionists
- Question 911.com Free DVD download / frítt niðurhal
Talnaspeki / Numerology
Fróðleikur um þessa speki
- Sun - Angel Numerology Frítt dæmi þarna
- Free Numerology Reading Meira en bara talnaspeki..
- Your Reading / Agny Lýsingin á mér...
- INDIGO intentions Tarot, numerology, Indigo children, Reiki, Angels reading
Fyndið stuff.
Myndir, brandarar og glens.
- Cartoons Teiknimyndir
Andleg málefni
Allt sem tengist þeim málum.
- AEROSOL OPERATION CRIMES & COVER-UP SPRAYING US AS A BUG..
- Crystalinks Þessi síða er hreinlega með allt.
- Tarot Cards & Free Readings Frí Tarot spá
- Mind Power News Kraftur hugans.
- Progressive Awareness Research Allt mögulegt andans stuff.
- Tilvitnanir / quotes Ýmsar tilvitnanir
- New Jersey ghost hunter center Drauga "veiðar"
- The Tree of the Golden Light Ýmis andleg mál
- Mayan Calendar Articles Tímatal Mayanna
Stjörnuspeki / Astrology
Fróðleikur um þessa speki.
- The Future Minders Frítt dæmi þarna
Síður um ADD / ADHD
Upplýsingar um athyglisbrest / ofvirkni.
- Dr. Mary Ann Block ,, Find the course, fix the problem".
- A Multisensory Learning Program Kennslugögn fyrir ADD / Autism / Dyslexia
- Exposing the Fraud of ADD and ADHD Fred A. Baughman Jr., MD Neurologist, Pediatric Neurology
- Stimulant Drugs for ADHD and ADD Örvandi lyf við ADHD og ADD
- "Are Psychiatrists Betraying Their Patients?" Eru geðlæknar að svíkja sjúklingana sína?
- "Our Toxic World" " Okkar eitraði heimur"
- No proof mental illness rooted in biology Engin líffræðileg sönnun fyrir geðsjúkdómum
- Death From Ritalin Snannleikurinn á bak við ADHD
- Methylphenidate ( virka efnið í Ritalin) Drug and Chemical Evaluation Section
- What Drugmakers of ADD & ADHD Drugs vilja ekki að þú vitir
- Answers for ADHD Questions Svör við ADHD spurningum.
SSRI lyf og önnur þunglyndislyf
Ýmsar síður um hugarfars breytandi lyf.
- Dangerous Medicine forum Spjallborð
- Antidepressants Facts Staðreyndir um þunglyndislyf.
- SSRI Stories Ekki er sannleikurinn fallegur...
- International Coalition For Drug Awareness Verum meðvituð ...
- PROTECT YOUR CHILDREN NOW Verndum börnin okkar!!
- THE DARK SIDE OF PSYCHIATRY Dökka hlið geðlækninganna
- How psychiatry is making drug addicts out of America´s shool children Amerísk skólabörn gerð að læknadóps fíklum.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine. SEARCH ENGINE
Asperger syndrome og Autism
Síður sem fjalla um Asperger og einhverfu
- Aspergers Syndrome in Children Góð síða (mín skoðun)
Blogg úr ýmsum áttum..
Vinir / áhugaverðir einstaklingar.
- Sigurjón Þórðar.
- Nornin
- Tigra
- Anna panna
- Þarfagreinir
- Katrín ódæla
- Klisja
- Olasteina "Fjarskyld frænka"
- Nornin Vinkona af Baggalút.
- Geiri 3d.
- Laramin
- Sigunzo
- Ditto bloggar Yndisleg og spes manneskja.
AGLOCO
- AGLOCO Borgað fyrir að browsa..
http://skorrdal.com/
MICROCHIP - RFID
- Microchip Implants News Articles MIND CONTROL; ÖRFLÖGUMERKINGAR; RFID
UMDEILD MÁLEFNI
- WIDE EYE CINEMA WIDE EYE CINEMA is dedicated to showcasing the very best alternative truth-related documentaries & cinema uploaded onto the World-Wide Web.
MY FAVORITE SITES
- This site is number 1 on 10 black list sites of US gov. Here you find it all.Specially what the elite do not want you to find
- Alvaran Forum about what some call conspiracy
- Prophecies of Sollog Sollog is a POLITICAL PRISONER of the USA!
- Ingaoramas video VIDEOS
- So you wanna talk conspiracies? try this on for size. JUST GO THERE...
- ConCen An eye openinger
- What you should not know...is here.. Knowing litle about lot is better than know lot about a little...
HAARP
- Chemtrails Data Page Chemtrails - Frequently Asked Questions
CHEMTRAILS
- CHEMTRAIL CENTRAL Þetta er forum um Chemtrails og málefni tengd efna úðun úr lofti..
- Chemtrails news, articles and information Cemtrails=Efnarákir
- CHEMTRAILS -HAARP-GEOENGIERING-DEPOPULATION AT WORK CHEMTRAILS síða- fyrrverandi FBI starfsmaður leysir t.d. frá skjóðunni- núna látinn..
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir- Ísland er ekki undanskilið þessu ógeði!
- Chemtrails = Aerosol spraying to change the atmosphere. Chemtrails = Aerosol spraying of barium, "fibers", pathogens.
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir
TRANSLATE-ÞÝÐA
- Translate your website into 52 languages Just copy and paste the Translate This Button anywhere on your site, it's free and easy. There are no files to upload and it works on almost any website. The Translate This Button is a lightweight JavaScript translation widget. It translates any page quickly using Ajax and the brilliant Google Translate.
VERICHIP-WE THE PEOPLE WILL NOT BE CHIPPED!
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heilsumálefni
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Óvenjuleg og umdeild mál
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Óska þér innilega til hamingju með fimmtugsafmælið. Áttaði mig ekki á afmælisdeginum fyrr en of seint. En vildi samt senda þér góðar afmæliskveðjur. Vona að dagurinn hafi verið ánægjulegur.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 12.7.2007 kl. 14:43
Takk fyrir Stebbi minn Þér er fyrirgefið og það voru nú aðrir sem kanski má segja að standi mér nær en þú sem mundu ekki eftir mér, þannig takk aftur... Jú ég átti ánægjulegan dag ..fámennt en góðmennt, því ég helt ekki upp á daginn....en systur mínar komu mér skemmtilega á óvart.þær gáfu mér ferð til Danmerkur..kominn tími á að ég heimsæki liðið þar síðan ég var úti 17 ára....og til að vera vissar að ég færi nú einhverntíma þá ákváðu þær daginn og tímann..þannig..ég fer út 27 júlí og kem heim 10 ágúst nema ég lengi dvölina þekki marga út um allt baunaveldi,,,,
Agný, 12.7.2007 kl. 15:41
Varstu virkilega fimmtug. Til hamingju dúllan mín.
Ég fór nú alveg með mig áðan . Ætlaði að skanna orðið bragð úr orðabókinni minn en þar eru 8 mismunandi þýðingar á því. Setti það inn og snéri, því það var ´hvolif og það má segja að allt hafi farið hér á hvolf. Tölvan fraus og ég varð að endurræsa hana tvisvar. Bara af því að ég ætlaði í heimspekihugleiðingar með þér . Er ekki viss að bragð, sem þýðir blekking sé orðið bak við trúarbrögð en annars góð hugleiðing hjá þér.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.7.2007 kl. 20:30
Takk fyrir kæra Jórunn..já ég er víst orðin "fitt og flott" fimmtug Ja þetta hafa verið svona pælingar hjá mér lengi í sambandi við trúar mál.....ég trúi...en ég þarf ekkert að krydda það með einhverjum "brögðum"
Þegar ég fór að skoða orðið brögð þá kom þetta upp sem ég segi að það þýði...En eintalan .."bragð" er kanski ekki alveg eins og "brögð " heldur eitthvað annað hvort súrt "bragð" eða sætt "bragð" nú eða ó"bragð" en svo segir líka að það sé skylt að "bregða".......
Agný, 13.7.2007 kl. 00:20
þessi pistill er hrein snilld!
halkatla, 14.7.2007 kl. 14:35
Takk fyrir athugasemdirnar. Ég tel enga eina trúarkenningu réttmætari eða betri en aðra. Afhverju er það þannig hjá flestum að trú viðkomandi sé hin eina sanna og réttari og betri en annarra?
Mín trú er mín trú, og rétt fyrir mér og meikar sens fyrir mig, en þarf ekki að vera það fyrir aðra.....en allir trúa á eitthvað jafnvel þeir sem segjast ekki trúa á neitt...Þeir trúa á "ekki neitt" og það þarf sko engan smá kraft og einbeitingu við það....
Agný, 16.7.2007 kl. 22:24
Ef þú ætlar að ganga upp á topp trúarfjallsins til þess að finna Almættið er sama hvort þú leggur á fjallið úr norðri, suðri, vestri eða austri. Allar leiðirnar enda á toppi fjallsins.
Svava frá Strandbergi , 17.7.2007 kl. 00:28
Satt er það Guðný. Við byrjum öll sem lækjarsprænur í fjallinu en endum svo niður í ánni sem sameinast að lokum hinu stóra hafi lífs /dauða..... En sú leið sem hver og einn fer áður en út í hafið er komið þarf ekki að vera sú sama, en áfangastaðurinn er samt sá sami...
Agný, 17.7.2007 kl. 12:28
En hvað þetta er fallegur texti hjá þér Agný
Svava frá Strandbergi , 19.7.2007 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.