Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Dægurmál

Hvað er "blogg" í rauninni?

Er það það að maður skrifi um daginn og veginn og svona það sem almennt á daga manns drífur?
Er það að skrifa bara um politík? 
Eða er það skrifa svona "bland í poka"?
Ég hef aðeins verið að skoða hvernig fólk skrifar og það virðst vera að fólk skiftist í tvo hópa..
Þá sem skrifa bara um politík og þá sem skrifa um sín fjölskyldu og dægurmál.
Mér finnst ég stundum passa með þessum hópnum ..svo hinum.. stundum báðum...
En svo hvorugum..( er svo sem ekkert óvön því að fitta hvergi).
Ég er  vön að skrifa á spjallborð og hef verið slatta í því að þýða fréttir og greinar, þó svo ég skrifi líka mikið frá eigin brjósti..ja hafi gert allavega..
En núna er ég eiginlega lostWoundering..eða  "áttavillt".
Svo uppgötva ég það að ég kvitta hjá ykkur öllum eða flest öllum eins og þegar ég væri að svara á spjallborði... þannig..oft huge lesning...vona að þið fyrirgefið mér það....
En út frá þessum pælingum mínum um það hvað þetta "blogg" er eiginlega þá hef ég ákveðið að mín skrif verða í bland þýddar greinar (kanski búnar að birtast annarsstaðar) og ýmis málefni  eins og ég sé þau eða hef upplifað.. ( hef af nógu að taka þar )....
En þetta allt spannar ansi marga málaflokka ef út í það er farið...ja ..þið getið séð hvaða flokkar það eru ef þið hafið áhuga á hér inni http://www.alvaran.com 
Ég hef gaman af því að pæla í öllu mögulegu og ómögulegu ..mamma sagði að ég hefði alveg slegið "Aravísunum" við.. ,, afi afhverju er eldurinn heitur".. það er sko akkúrat ég...
Guð sé lof að ég er ekki barn núna ..ég hefði verið sett tripple skammt af ritalin...maður verður ekki vinsæll hjá kennurum ef maður er síspyrjandi og manni finnst þeir aldrei geta svarað sér af neinu viti...og alls ekki vita meir en þeir...
En áður en ég verð komin út í eitthvað allt annað en upphafið var..þá segi ég
The End..

Mínar hugmyndir að menntastefnu...

Í sambandi við grunnskóla sem allir eru jú skyldaðir til að vera í af ríkinu, þó svo sumir hætti fyrr en honum er lokið, oft vegna eineltis þó svo ýmsar aðrar ástæður séu líka fyrir hendi....

Það sem mér finnst rangt er þetta:

Það átti ALDREI að setja grunnskólana á sveitarfélögin, þar sem einstaklingurinn er SKYLDAÐUR af ríkinu til að vera í grunnskóla í 10 ár, þá á ríkið, sem er náttúrulega við öll sem búum hér á landi, þó svo oft látum við sem ríkið sé eitthvað batterí sem reki sig sjálft, að standa straum af þeim kostnaði, öll viljum við jú að börnin okkar mennti sig eða eins og sagt var í gamla daga "verði að manni."

Ef við viljum á einhvern hátt hafa jafnræði og jafnvægi, þá er menntun á jafnréttisgrundvelli óháð búsetu

og mannfægð eða vöntun á góðum kennurum, ekki tækið til þess að svo megi verða.

Annað sem mér finnst að mætti alveg skoða og ég tel að þegar upp verði staðið myndi skila þjóðarbúinu meiri arði en það er af þessum forsendum sem ég gef hér:

Það er mikið atvinnuleysi, ungt fólk fær ekki vinnu , það á ekki/hefur ekki réttinda til atvinnuleysisbóta ,hefur heldur ekki efni á að fara í skóla þó að vilji væri fyrir hendi.

Hvað haldið þið að þetta fólk komi til með að leiðast út í eða lenda í.?  Kanski vændi ? Dópneysla /sala.? Rán og innbrot.?

ER það þetta sem við viljum sjá?

Því hvar á liðið að fá peninga ef engin er vinnan og ekki hægt að fá bætur nema frá féló.

Það sem mér persónulega finndist réttara að gera því ég tel að það kæmi betur út fyrir þjóðfélagið í heild þegar upp yrði staðið er þetta:

Að ríkið myndi borga einstaklingum fyrir að vera í skóla eftir að grunnskólanámi lýkur.

Það myndi þýða það að þegar atvinnuástand batnar þá væru til einstaklingar sem eru menntaðir en ekki búnir að mæla göturnar og í ýmsu misjöfnu jafnt konur sem karlar.  Tel að það yrði ódýrara fyrir ríkið þegar til lengri tíma er litið.

Kæmi betur út fyrir alla og ríkið ( sem er við!!!!) ef farið yrði að borga nemendum " laun " það er að segja tilvonandi nemendum í fjölbraut, verkmenntaskóla og menntaskóla.

Þá tel ég að við myndum fá einstaklinga út í þjóðfélagið eftir að námi í framhaldsskóla lýkur sem síður hefðu leiðst út í óreglu og eitulyfjaneyslu og annað miður gott.

Ég á einungis við að þetta yrði gert til þess að viðkomandi komist í framhaldskóla eftir að grunnskóla lýkur.

Sumir myndu að vísu líta á það sem ágæta vinnu að vera endalaust í skóla og falla kanski reglulega í þessu eða hinu til að vera " áfram á launum " en stúdentinn og verkmenntabrautir eru síður til þess fallnar að ofnota það.

Það eru nú ansi margir eilífaðarstúdentar í háskólum bæði hér og annars staðar og tel ég að ef að þeir fengu laun á meðan sé ekki rétt.

En það er alltaf meiri hætta á að einstaklingar leiðist út í þetta sem ég taldi upp ef viðkomandi hefur hvorki vinnu eða er í námi. Það þurfa allir að fá útrás fyrir sína orku sem öllu jöfnu fer í nám og vinnu en ef þú hefur hvorugt þá fer hún bara í eitthvað miður gott. Má kanski líkja þessu við þetta " betra er slæm athygli en engin".

Þessir einstaklingar myndu síður leiðast út í það sem ég taldi upp fyrr og þetta fólk yrði þjóðfélasvænni þegn heldur en sá sem hvorki hefur haft menntun eða vinnu. 

Það nefnilega kostar ekkert smá fyrir ríkið afleiðingarnar af afbrotum,  hvaða nafni sem þau nefnast, sem skapar þörf á stærri fangelsum, fleiri meðferðarheimili fyrir þá sem lenda í eiturlyfjaneyslu, meiri félagslegan og fjárhagslegan stuðning fyrir þá sem leiðast út í vændi og meiri lyfja og lækniskostnaður myndi örrugglega verða líka.

'Eg tel að það myndi spara stórlega til lengri tíma litið og við eiga til fólk sem gæti gengið inn á vinnumarkaðinn þegar atvinnuástand yrði gott, þegar það kæmi nú þetta svokallaða góðæri..fyrir alla...

 Þeir sem eru búnir að vera án atvinnu í langan tíma, hafa jafnvel aldrei fengið vinnu eftir að grunnskóla er lokið, eru ekki einstaklingar sem vinnuveitendur vilja fá í vinnu því miður.

Atvinnurekendur vilja heldur ekki einstaklinga sem eru búnir að vera á atvinnuleysisbótum lengi. Þetta fólk gengur ekki fyrir í vinnu, ég hef verið í fyrirtækjarekstri og þó að vantaði mannskap þá var það ekki fólkið sem var búið að vera á atvinnuleysisskrá lengi sem þú vildir fá í vinnu. Þú leitaðir annars staðar fyrst, áður en þú fórst að skoða þá sem eru skráðir á atvinnuleysisskrá.

Þá myndu atvinnurekendur frekar leita eftir erlendu vinnuafli.

En þetta er jú bara mín hugmynd um hvernig þjóðfélagið megi breytast, til hins betra að mínu mati, þegar á heildina er litið.


Hvernig skal drepa lífseigan "silung".... smá jók....

Heiða var 10 ára gömul og forvitin eins og aðrar stelpur á hennar aldri.
Hún hafði stundum heyrt stærri stelpur tala um að vera með strák og þegar hún var búin að brjóta heilann um það í nokkurn tíma, hvernig það færi fram, fór hún til móður sinnar og spurði hana um þessa hluti.
Það varð lítið um svör hjá mömmunni, sem roðnaði bara og fór hjá sér. Í staðinn ráðlagði hún henni að fela sig bak við gluggatjöldin í herbergi stóru systur sinnar, þegar hún kæmi heim með strák næst. Hún gerði það og daginn eftir lýsti hún atburðarásinn fyrir mömmu sinni.  
Systa og vinur hennar sátu saman of töluðu í smástund, en þá stóð hann upp, slökkti á flestum ljósum og fór að kyssa hana og faðma hana að sér.

"Ég held að systa hafi verið hálf lasin, því að hann fór með höndina undir blússuna hennar,

til að finna hjartað, alveg eins og læknirinn gerir, nema hvað hann er ekki eins klár og læknirinn.

Hann ætlaði aldrei að finna hjartað í henni. Kannski hefur hann verið eitthvað lasinn líka,

því að eftir smástund voru þau bæði farin að mása og stynja.

Honum hlýtur að hafa verið kalt á.hendinni, því að hann brá henni undir pilsið hennar.

En þá versnaði systu bara. Hún fór að andvarpa og stundi þungan. Svo engdist hún sundur og saman og renndi sér neðar í svefnsófann. Það var þá sem hún fékk hita, því hún sagðist vera orðin sjóðandi heit. Loksins komst ég að því hvers vegna þau urðu svona veik. Lifandi silungur hafði einhvern veginn komist inn undir föt stráksins.

Svo stökk hann út úr buxunum hans og stóð út í loftið, ábyggilega 20-25 sm langur.

Ég get svarið það. Strákurinn greip utanum hann til hann slyppi ekki burt.

Þegar systa sá hann varð hún skelfingu lostin.

Hún glennti upp augun, munnurinn seig galopinn niður og hún fór að ákalla Guð og svoleiðis. Hún starði á fiskinn og sagðist aldrei hafa séð neinn svona stóran.

En hvað um það. Systa hleypti í sig kjarki og reyndi að bíta hausinn af fiskinum. Allt í einu heyrðist undarleg hljóð í henni og hún lét hann lausan. Hann hefur líklega bitið hana til baka. Þá greip hún utan um silunginn með báðum höndum og hélt honum föstum, meðan strákurinn tók upp munnkörfu eða eitthvað svoleiðis upp úr vasanum og renndi henni yfir hausinn á kvikindinu, svo að það gæti ekki bitið hana aftur.
Þá lagðist hún á bakið og glennti sundur lappirnar til að hún gæti klemmt silunginn saman og vinur hennar hjálpaði til með því að leggjast ofan á hana þar sem hann lá milli fótanna á henni. En silungurinn barðist upp á líf og dauða. Systa fór að kveina og veina og strákurinn átti fullt í fangi með að halda sér ofan á henni.

Ég held að þau hafi ætlað að drepa silunginn með því að kreista hann á milli sín.

Eftir svolitla stund hættu þau að hristast til og gáfu frá sér heilmikið andvarp.

Strákurinn stóð upp og mikið rétt, hann var búinn að drepa silunginn.
Ég vissi að hann var dauður vegna þess að hann hékk máttlaus út úr buxnaklaufinni og eitthvað af innyflunum hékk út úr honum.

Systa og strákurinn voru náttúrulega dálítið þreytt eftir bardagann, en þegar þau voru búin

að hvíla sig dálitla stund fóru þau að gæla hvort við annað. Hann byrjaði aftur að faðma hana og kyssa. og svei mér þá, silungurinn var ekki alveg dauður. Hann byrjaði að tútna út og þaut upp enn einu sinni, svo þau fóru aftur að slást við hann.
Þessir fiskar hafa ábyggilega níu líf, eins og kettirnir.
Í þetta sinn reis systa upp og reyndi að kála silungnum með því að setjast ofan á hann. Eftir hálftíma baráttu tókst þeim að drepa silunginn.
Ég veit að hann var endanlega dauður, vegna þess að strákurinn fletti roðinu af honum og henti því í klósettið.  
Mamma, af hverju ertu svona skrýtin í framan ?"Undecided

Hvað viðkomandi segir samkvæmt stjörnumerkinu sínu að loknu kynlífi;-)

 
astidraumi
Hvað viðkomandi segir samkvæmt stjörnumerkinu sínu
 
að loknu kynlífi Cool....
 
Hrútur: “ Ok , gerum það aftur!”

Naut: “ Ég er svangur / svöng--- pöntum pizzu.”

Tvíburi: Veistu hvar fjarstýringin er?
 
Krabbi: “ Hvenær giftum við okkur?”
 
 
Ljón: “Var ég ekki frábær?”     
nakin_kona

Meyja: “ Ég verð að þvo rúmfötin.”

Vog: “ Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka.”

Sporðdreki: “ Ég ætti kanski að tengjast þér.”

Bogmaður: “ Ekki hringja í mig – ég hringi í þig.”

Steingeit: “ Áttu nafnspjald?”

Vantsberi: “ Gerum það núna í engum fötum!”

Fiskur: “ Hvað sagðist þú annars heita?”
 
Jæja..skyldi þetta svo eitthvað passa ?
Ekki það sem ég á að segja samkvæmt merkinu mínu.. Tounge
Agný.

« Fyrri síða

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband