Færsluflokkur: Heilbrigðismál
5.11.2007 | 06:26
LÖMUNARVEIKI Í NÍGERÍU RAKIN TIL STÖKKBREYTTS BÓLUEFNIS..

Heilbrigðismál | Breytt 31.8.2012 kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
24.10.2007 | 15:26
Nýir kvillar sem gætu haldið lyfjafyrirtækjunum gangandi..svona ef að gróðinn væri eitthvað að minnka..
http://www.mercola.com/2005/sep/20/new_diseases_that_keep_drug_companies_rolling.htm
Þar sem lyfjafyrirtækin eru stöðugt að búa til ímyndaða sjúkdóma til þess að auka lyfjasölu sína, eins og t.d.
Almenn -hræðslu einkenni...
General Anxiety Disorder (GAD )
(Innskot Agný.Síðan hvenær varð það að kvilla eða sjúkdómseinkenni að finna einhverntíman til hræðslu?
Eða er heimurinn orðinn þvílíka paradisin að þar sé ekkert að óttast?
.Ég myndi frekar kalla algjört óttaleysi" sjúkdómseinkenni frekar en þetta..
En kanski er erfiðara að búa til lyf við "óttaleysi "en við "hræðslu.."..??
Mike Adams ákvað að grípa aðeins inn til þess að rétta lyfjafyrirtækjunum hjálparhönd með þessari gamansömu grein sem skilgreinir venjulega mannlega hegðun sem sjúkdóma.
En maður er nú farinn að efast verulega um hvað er "mannlegt"...
Kanski það heiti "humanity syndrome" = Manneskju-legt heilkenni"
Ísskáps-hurða sjúkdómur"
Refrigerator Door Disease ( RDD )
Lýsing:
Viðkomandi stendur fyrir framan ísskápinn með hurðina opna og starir sviplaust..
( Innskot Agný ..Auðvitað starir maður inn í ísskápinn meðan maður er að finna út hvað maður ætti að fá sér að eta...)
Tungumála - brenglun"
Language Obfuscation Disorder ( LOD )
Lýsing:
Læknar fá helst þennan kvilla.
. (.Innskot Agný.Nota latínu til þess að hljóma gáfulegir.
Hann veldur því að fórnarlambið bablar og bablar eins og heimskur fjölmiðlamaðu....
(Innskot Agný..Þetta er svona merkikerta einkenni að mínu mati..Blaðra á einhverju máli sem enginn skilur..þá lítur viðkomandi út fyrir að vera svo vel gefinn.)
Sokka-leitar árátta"..
Obsessive Hosiery Dislocation Disorder (OHDD )
Lýsing:
Brálæðisleg leit um allt hús að "hinum" sokknum af hverju sokkapari...
( Innskot Agný..Allar húsmæður hljóta þá að vera með þetta einkenni...merkilegt hvað alltaf týnist af sokkum í þvottinum..alltaf "hinn" sokkurinn.. )
Viðskifta -kvíða kvilli"..
Commerce Anxiety Disorder (CAD )
Lýsing:
Stöðugur ótti um það hvort kredit kortinu verði synjað af posanum....
(Innskot Agný..Allir íslendingar örugglega með þessa brenglun..Nema kanski seðlabankastjóri..)
Sjónvarpsrása - flakks árátta"
Repetitive Remote Disorder (RDD ) Lýsing:
Síendurtekið flakk milli sjónvarpsstöðva með fjarstýringunni..
(Innskot Agný. Þetta er meira svona karla kvilli..veit til þess að sumir hafi týnt fjárstýringunni inn í ísskáp..kanski þessi með ísskáps-hurða brenglunina.hehe...)
Fata-skiftar árátta."
Obsessive Wardrobe Change Disorder. (OWCD)
Lýsing:
Sífelld fataskifti áður en mætt er á fund, skemmtun eða stefnumót.
(Innskot Agný..Þetta hlýtur að vera kvilli þeirra sem eiga fulla skápa af fötum...)
Þráhyggju-kennd óhlýðni"
Obsessive Disobedience Disorder (ODD )
Lýsing:
Varanlegt vantraust á kennurum, stjórnvöldum, lögmönnum og öðrum yfirmanna fígúrum...
( Innskot Agný. Það var að vísu nýverið fjallað um þetta sem "raunverulegan" sjúkdóm innan geðlækna geirans! ) Ætli þetta megi ekki flokkast sem ótti við Fasistastjórnun.??
Róta í vösum - röskun"..
Repetitive Pocet Searching Disorder (RPSS)
Lýsing:
Endurtekin leit í öllum vösum að hinum og þessum smáhlutum..
(Innskot Agný..Tel að flestir karlmenn séu þá haldnir þessum "kvilla"..held að vísu að það hafi einhverntíman verið kallað "vasa" billjard..)
Sólbaðs -jósa þráhyggja"...
Ultraviolet Light Tanning Disorder (UVLTD)
Lýsing:
Rekur fórnalambið í sí endurtekin ljósaböð.
Annar "raunverulegur"sjúkdómur samkvæmt sumra áliti innan lyfjageirans!
(Innskot Agný. Fyrr á öldum þá var veikt fólk einmitt sent til suðrænna landa í sólina til lækningar...
Þó svo sem margir telji ljósabekki óholla...þá ég tel allt draslið sem fólk á að smyrja á sig óhollara því það er allt stútfullt af kemískum efnum sem er bannað að nota nema í snyrtivörum og sólkremum..og ansi mörg ef ekki öll eru þau krabbameinsvaldandi..
Kanski þessvegna sem húðkrabbi sé, en ekki vegna sólar ljóss eða útfjólblás..fínt að smyrja sig olíu og feiti og liggja svo og láta gumsið sjóða á húðinni svona eins og þegar maður hefur ofhitað smjörlíki á pönnu og það verður ógeðslega svarbrúnt...
Skyldi þetta vera að orsaka brúna litin?
Sól"varnar "áburðurinn brunninn af hita sólarinnar og kraumar og sýður á þér.....)
Umferðaljósa- eftirvæntingar kvilli.."
Traffic Light Anticipation Disorder (TLAD)
Lýsing:
Þeir sem halda að rautt ljós gefi í skyn að ökumaðurinn eigi að leyfa ökutækinu að læðast áfram að gatnamótunum, einhverskonar grænt ljós, en bara í slow motion".
(Innskot Agný..Þetta gæti verið sjúkdómur sem gæfi lyfjafyrirtækjunum vel í aðra hönd..Allir "sýktir" af þessum sjúkdómi..)
Þýðandi Agný.
Hér er upptalningin, en ég efast ekki um að það sé hægt að fjölga sjúkdómum / einkennum fyrir vesalings fátæku lyfjafyrirtækin..
****************************************************************************************
VIÐBÓT FRÁ AGNÝ..
Annars er ég að hugsa um að fara að titla mig sem þetta:

Einhverju" sem meðhönldar þá sem eru með eitthvað" heilkenni ég fengi sko örugglega nóg að gera...
Svo má alltaf bæta við þessum ódæmigerðu" sjúkdómum eða afbrigðum" af sjúkdómum..."óljósum" sjúkdómum, einkennalausum " veikindum..
En ekki síst þessu hér:



Heilbrigðismál | Breytt 24.8.2010 kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
6.10.2007 | 06:59
Bólusetningar orsök og aukaverkanir./ Cause and side effects
Cause and side effects
By: Farah Baria April 24, 2005
http://www.autisticsociety.org/News/article/sid=867.html
http://web.midday.com/columns/farahbaria/parentthesis/2005/april/108011.htm
Fyrir 2 mán. síðan birtist herramaður við dyrnar hjá mér með stóran viðarkassa.
" Frú," sagði hann alvarlegur, otandi að mér skilríkjunum sínum í gegnum rifuna," samkvæmt okkar skýrslum, hefur þú ekki nýtt þér Pulse Polio Programme ríkisstjórnarinnar í fyrradag.
Mundir þú vilja láta framkvæma ónæmisaðgerina á börnunum þínum núna?".
(Innskot Agný- Hvernig er hægt að kalla eittgvað ónæmisaðgerð ef þarf svo að endurtaka sömu aðgerðina aftur og aftur? )
Dolfallin vegna skipunartónsins þá hleypti ég honum inn og leyfði honum að kalla börnin saman. Svo áður en ég gæti sagt "bólusetning", opnaði hann kassann, síðan lyfjaglas, útdeildi dropunum og hvarf, skiljandi mig eftir ringlaða og áhyggjufulla.
(polio/ lömunarveiki bóluefnið er gefið í dropa formi og viðkomandi látinn kingja þeim. Þetta bóluefni inniheldur lifandi lömunarveiki veiru. Agný)
Tveim dögum seinna, kvartar 7 ára dóttir mín um verk í fætinum. Ég fékk panikk og hrindi í barnalæknirinn minn, bað þess í hljóði að hún myndi bara hlægja að mér og kalla mig hænumömmu. Hún gerði hvorugt af því. " Ja við verðum bara að bíða og fylgjast með henni," var hennar ófullnægjandi sjúkdómsgreining.Um síðir, þá kom í ljós að þetta var fölsk viðvörun.
Fölsk, en greinilega ekki tilefnislaus.
Vegna þess að í Oral Polio vaccine (OPV = lömunarveiki bóluefni gefið í gegnum munn), er notaður lifandi vírus, þá munu reyndar í það minnsta eitt af hverjum 500.000 bólusettum börnum fá sjúkdóminn.
Þetta er það sem læknar kalla " fræðilega áhættu" af völdum ónæmisaðgerða, " tölfræðilega ómarktæka" tölu, sem réttlætir Indlands Pulse Polio - sennilega mest árásagjörnu sjúkdóma útrýmingar herferðar sem heimurinn hefur nokkurn tímann upplifað.
En ætli foreldrum þessarra "tölfræðilegu " barna finnist það, ef að það er þeirra barn sem er "fórnað".
(Til að bjarga hjörðinni þarf nú alltaf að fórna einum og einum sauð". Mér kæmi ekki á óvart þó að komi upp lömunarveiki þarna eins og skeði í Nigeria á síðasta ári.Agný)
Ég hika ekki við að spyrja þessarra spurninga vegna þess að það er næstum ómögulegt að sigta út hugsanlega hættu af völdum bólusetninga - skiftir ekki máli hversu óveruleg hún er - án þess að hljóma óábyrg eða sem hrakspármanneskja.
Sannleikurinn er sá, um allan heim, hafa skyldu bólusetningar átt þátt í að útrýma eða draga verulega úrbanvænum sjúkdómum.
Í vestrænum löndum, hefur það útrýmt, eða minnkað, lömunarveiki, barnaveiki, kíkghósta, stífkrampa, mislinga , hettusótt og rauðum hundum.
(Þetta er að vísu það sem okkur/foreldrum er sagt af þeim sem akitera/selja bóluefni en allir þessir sjúkdómar voru á undanhaldi áður en farið var að bólusetja reglubundið. Agný)
En þrátt fyrir nákvæmrar ónæmisaðgerðar herferðar sem hefur kostað stjórnvöld yfir Rs. 2.000 crore, þá halda einstök tilfelli af lömunarveiki á Indlandi áfram að vera á lista alþjóðlegra úrtaka.
Leiðandi barnalæknir í Mumbai vildi meina að þetta væri vegna sinnuleysis almennings, misvísandi upplýsinga og óvilja foreldra við að láta skuldbindinda sig. Hann hefur auðvitað rétt fyrir sér.
En það er alltaf tvær hliðar á hverju máli.
uEins og hin mikilsmetna American Academy of Paediatrics (AAP) segir greinilega í Rauðu bókinni snemma 1979 :
" þó að nútíma bólusetningar efni séu í heild sinni álitin örugg og áhrifarík, þá eru þau hvorki fullkomlega örugg, eða fullkomlega virk" (þetta hlýtur að flokkast sem upplýsingar sem segja í raun allt en um leið ekkert..svona ekta stjórnmálamanna svar.Agný).
Sem foreldri, þá tel ég að það sé mikilvægt fyrir okkur foreldra að vita þetta, því hversu góð "ástæðan" fyrir útrýmingu er , þá er það okkar persónuréttur að fá að vega og meta kosti og galla í ljósi fenginna upplýsinga.
Og nýlegar skýrslur eru uggvænlegar , vægast sagt:
*Hib bóluefnið, sem á að vernda gegn heilahimnubólgu, lungnabólgu og öðrum alvarlegum sýkingum, getur valdið ofnæmisviðbrögðum, krömpum og öðrum alvarlegum sköðum á ónæmiskerfi barnanna.
* Fyrir 5 árum síðan olli umræða um tengsl milli einhverfu ( autism)og MMR bóluefnið miklum óróa og æsingi inni á enska þinginu eftir að rannsóknaraðilar tengdu það við einhverfu ( autism) barna.
MMR á að skapa ónæmi gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum.
* DPT, á að skapa ónæmi gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta, er það bóluefni sem er umdeildast og bendir til tengsla bæði við anaphylaxis, hættulegra ofnæmis viðbragða og heilabólgu (encephalitis),
(heilahimnubólga er meningitis)..nærri því öll bóluefni eru talin vera völd að heilabólgu en sérstaklega innihaldsefnið í klíghósta bóluefninu..
En það er notað til þess að framkalla heilabólgu í tilraunadýrum á tilraunastofum....Fjárinn hafi það að ég vilji að barnið mitt sé tilrauna kanína!!!!!
* Staðreyndin er sú að bandaríkskur bóluefna sali Connaught Company, hefur reyndar bætt meðfylgjandi viðvörunum í sínar pakkningar:
" Í stórri eftirlits rannsókn á Englandi, gerð á börnum á aldrinum 2 mán - 35 mánaða, sem sýndu snögglega alvarleg taugafræðileg þroskafrávik eins og heilabólgu eða krampaflog". Kom í ljós þau höfðu mjög líklega fengið DPT bólusetningu á undanförnum 7 dögum.
Læknisfræðin viðurkennir það meira eða minna,að um það bil 10% barna þjáist vegna grátkasta, svefnhöfga og deyfðar/slens , einhverjum dögum eftir að hafa fengið DPT bólusetninguna.
Opinberar skýrslur eru ekki svo ólíkar.
1994, framkvæmdi American Center for Disease Control and Prevention rannsókn á á hálfri miljón barna í Atlanta, Georgia, bólusettum með DPT og MMR bóluefnunum og fundust 34 meiriháttar aukaverkanir, þar á meðal astmi, blóðkvilla, taugafræðilegan kvilla, heyrnartap og köst. (hlutfall kastanna jukust þrefalt yfir eðlilegt fyrstu dagana eftir bólusetninguna.)
Dr. Lendon Smith, ein af betur þekktum bandarískum barnalæknum, varar við því að bólusetningar geti haft " tafarlaus , og stundum harkaleg " viðbrögð. Þau geta líka verið langtíma atferlis vandamál eins árásargirni og athyglisbrestur (ADD ).
Verst er að bólusetningar er ekki alltaf virkar heldur. Í UK hafa meira en 20.000 tilfellli af kíghósta komið upp í börnum sem hafa verið bólusett að fullu frá því 1970
Í Ástralíu, þar sem helmingur frumbyggja er bólusettur og hinn ekki,kom það í ljós við rannsókn að sjúkdóms tilfellin voru þau sömu í báðum hópum.
Og þegar Japönsk stjórnvöld ákváðu að bólusetja við börn með DPT ekki fyrr en þau væru 2 ára í staðinn fyrir 2 mánaða, útfrá ákveðnum orðróm um að DPT ætti þátt í SIDS (sudden infant syndrome death) eða vöggudauða, en tala þeirrra sem létust svokölluðum vöggudauða, snarlækkaði eftir að börnin voru ekki bólusett fyrr en 2. ára.
Sem betur fer eða því miður, þá sýna rannsóknir sem þessar ekkert "afgerandi" samhengi á milli bólusetninga og afleiðinga vegna þeirra. Ennfremur eru nánast engar langtíma rannsóknir sem sem sýna tengingu hvers við annað. Og alvarleg viðbrögð eru frekar sjáldgæf. (svo segja þeir sem mæla með bólusetningum. Agný)
Samt sem áður eru náttúrufræðingar og aukinn fjöldi lækna ákafir andstæðingar við skyldubólusetningum.
Hversvegna?
Vegna þess að það er óhrekjanleg staðreynd að bóluefni skapa ofboðslegt álag á meðfætt ónæmi.
Ástæðan er einföld.
Þegar að veira kemur inn í líkamann á eðlilegan hátt, þá virkjast röð af varnar gangverki og sem berst markvisst gegn innrásinni.Þegar herbragð þessa samstillta hers er lokið, hefur líkaminn þróað mótstöðu gegn veiru "óvininum" og er orðinn ónæmur gegn frekari árásum.
Samt sem áður, þegar tilbúinn lifandi eða dauð veira kemur inn í líkamann í gegnum bólusetningu, er það eins og leifturstríð sem að þröngvar ónæmiskerfinu til að ýta á hræðslu hnappinn og fara í yfirgír, svo beint í viðbragðsstöðu.
Útkoman: ónæmiskerfið hrynur.
Með tímanum lækka endurteknar bólusetningar heildar mótstöðu líkamans gegn sjúkdómum.
Spurningin er þessi, eigum við að halda áfram að "vernda" börnin okkar?
Þó að ég sé sannur unnandi náttúrulyfja, þá tel ég persónulega að við eigum að gera það af margvíslegum ástæðum.
Fyrst, þá hefur heims útrýmingar áætlunin örugglega aukið sameiginlegt ónæmi í gegnum aldirnar.
Annað, útbreidd ofnotkun sýklalyfja hefur getið af sér, stökkbreytt afbrigði ofur sýkla (super bugs ) sem geta verið banvænir. Sérfræðingar heilbrigðisþjónustunnar vara við því að verði bólusetningum hætt þá gæti það leitt til alheims plágu sem gæti útrýmt heilu þjóðunum..
(Innskot Agný. Jamm sendum bara svona 50 ára flensu virus sem var #geymdur#, til allra rannsóknarstofa í heiminum fyrir #slysni#.. þarf ekki mörg svoleiðis "mistök" )
Að lokum, þá höfum við ekki aðra kosti svona í fljótu bragði sem geta verndað miljónir barna um allan heim.
Eins og ég sé það þá höfum við ekki mikið val nema bara um að bólusetja.
En sem foreldri og neytandi, ættum við í það minsta að vera uppfrædd, til að geta reiknað út, vegið og metið kostina og gallana!!!
Á meðan fæstir í þessu landi ( Bandaríkjunum ) efast einu sinni um siðareglur bólusetninga aðgerðanna, hefur National Childhood Vaccine Injury Act (NCVI) í U.S. síðan 1986 gert fræðslu til allra foreldra að sínum grundvallarmálum - og útvegar líka frumdrög í sambandi við skaðabótamál þegar hlutir " fara illa".
Á meðan býður Dr. Smith auðvelda leið til að minnka áföll vegna bólusetninga:
Á deginum sem barnið er bólusett og daginn áður og eftir, skrifar hann upp á ónæmis coctail:
1,000 mg vitamin C, 500 mg calsium og 100mg vitamin B6. Þó svo að næringarfræðin ekki bara mótefni; þá hefur WHO nýlega viðurkennt að holl fæða veiti besta ónæmið sem að við getum veitt börnunum okkar.
Meðan ég man, þá er næringarfræðin ekki bara mótefni ; þá hefur WHO nýlega viðurkennt að holl fæða veiti besta ónæmið sem að við getum veitt börnunum okkar. Margir barnalæknar og foreldrar kjósa að forðast "aukalegar" bólusetningar eins og hlaupabólu , lifrarbólgu A eða skjaldkirtils, með öllu, og láta Móður Náttúru vinna vinnuna sína.
Á ókomnum árum, þá vona ég að við áttum okkur á því að enginn verndar okkur betur en móðir náttúra.
Farah Baria er fréttamaður og móðir tveggja barna.
Þýðandi Agný./Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
A Conspiracy Theory Spreads Polio
http://www.danielpipes.org/pf.php?id=2644
A Glimpse into the Scary World of Vaccine Adjuvants
By Edda West - Published in VRAN Newsletter - Winter 2005
Info@vran.org www.vran.org
Heilbrigðismál | Breytt 23.7.2015 kl. 05:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2007 | 16:35
Mín reynsla af mistökum lækna og heilbrigðis starfsfólks.....að vísu get ég því miður skrifað fleiri..
Tók þá ákvörðun að birta mína reynslusögu hér ......
(margir búnir að biðja mig um það)
ja þessa- þær eru því miður fleiri og ef ég læsi ekki áður um x lyf sem hafa verið skrifuð upp á fyrir mig - ja þá væri ég ekkert að pikka þetta núna- ég væri undir grænni torfu eða slefandi inni á einhverri stofnun)
Mun samt ekki nafngreina neina sem að málinu komu.
Þið verðið að afsaka það að ég er ekkert voðalega góð í því að segja frá einhverju í stuttu máli .
*******************************************+
Ég úlnliðsbrotna 3 feb"02 en það er á sunnudegi og dagana á undan hafði verið alveg brjálað rok og fylgdi rosaleg sjávarselta því.
Ég var í heimsókn hjá vinkonu minni sem leigir í blokk og þar tók liðið upp á því að fara að þvo gluggana utan en það var 6 stiga frost og autt.
Sennilega sama liðið og dettur í hug að þvo bílinn sinn í frosti.
Ég man eftir að ég segi við vinkonu mína " er ekki í lagi með þetta lið", hver fer að þvo utan glugga í frosti?" Eins gott að enginn detti og slasi sig og brotni.
2-3 tímum sinna fór ég út og þá hafði vatnið myndað þessa fínu ísingu og ég dett og brotna.
Fór upp á bráðamóttöku í Fossvoginum og voru teknar 2 myndir og kom i ljós að ég er úlnliðsbrotin og þegar ég skoða myndirnar þá spyr ég lækninn hvort að þetta sé eðlilegt , fannst ég sjá eitthvað skrítið ( var 2 mán áður búið að taka mynd af þessari sömu hendi þannig að ég vissi hvernig hún leit út óbrotin) sagt að það sé bara venjulegt úlnliðsbrot.
Málið er að ég dofnaði aldrei og var ekki verkjalaus einn dag frá því og þar til eftir x langan tíma eftir aðgerðina á hendinni sem ég varð að fara í ..
Svo er ég gifsuð af hjúkrunarlærling. Kom síðar í ljós að ég hafði verið gifsuð vitlaust.
Ég var alveg frá af kvölum alltaf og litli putti var klemmdur inn í lófann en það var radius sem brotnaði en ekki ulna en samt var verkurinn á ulnunni sá sem var að drepa mig en ekki þeim megin sem ég brotna.
Svo kem ég í endurkomu 11 feb og það fyrsta sem bæklunarlæknirinn segir við mig er að hann viti að ég hafi verið í góðum höndum fyrst að það hafi verið "frændi sinn " sem tók á móti mér þarna í upphafi, eitthvað var ég ekki sammála því og segi að það fari nú tvennar sögur af því, þekki annan aðila sem hafði lent á þeim manni og ekki góð saga.
Kanski ljótt að segja það en ef að sá sem tók á móti mér í upphafi hefði verið hestur, þá myndi hann drukkna í rigningu... ( myndi rigna upp í nasirnar á honum..) en sumir sem eru mjög lágvaxnir reyna að gera sig "stærri " með hroka og rembingi.....þessi var í þeim hópi.....
Ég reyndi svo að segja honum að ég væri að kálast í handarjaðrinum /ulna og spyr hvort að hann geti ekki losað gifsið en það var ekki viðlit að fá hann til þess.
Hann átti náttúrulega ekki auðvelt með að viðurkenna að eitthvað væri að þar sem það var frændi hans sem tók á móti mér.
Að vísu var sagað aðeins framan af gifsinu, og segir hjúkrunarfræðingurinn við mig að ef það fari að losna eitthvað þá geti ég bara bleytt það og þrýst saman sjálf, ég segi henni að það detti mér ekki í hug þar sem að það sé eitthvað ekki í lagi, og að þá ætli ég ekki að láta klína því á mig og miðað við ástæður brotsins.
Hef að vísu aldrei fyrr heyrt að fólk eigi sjálft sem brotnar að vera eitthvað að káklast í gifsumbúðum fyrr en þarna og enginn sem ég þekki hefur heldur heyrt það.....
Það endaði með því að ég gafst upp á þessum verkjum og fór til læknis , um miðjan feb, venjulegs heimilislæknis hér sem ég bý og hann tók gifsið og tók 4 myndir, (bara teknar 2 í hvort skifti áður,) með græjum sem eru alltaf sagt að séu ekki nógu góðar eða fullkomnar en hann sér beinflís og segir að það sé ca 5 % skekkja í hendinni en enginn af hinum tók eftir þessu.
Hann sagði að þetta væri að vísu það lítil skekkja að það væri oft að hún lagaðist sjálf, gæti versnað við inngrip. Verkurinn hætti svo sem ekki en minnkaði við að hann setti annað gifs og rétt sett á hendina.
Hendin á mér var þannig snúin að það var eins og ég væri að fara að heilsa fólki.
Ég fór svo næst til annars bæklunarlæknis í næstu endurkomu sem var um miðjan mars og var þá skekkjan orðin 15% og sendir hann mig til handarsérfræðings sem segir mér að væri ég eldri, um 70,
þá væri kúlan á ulnunni tekin og hendin gerð að staur. Hann sagði að á þeim aldri hefði þetta verið flokkað sem beinþynningarbrot en þar sem ég væri ekki eldri en ég er, þá væri eina ráðið til að rétta hendina að skera og setja bein úr mjöðminni í og stálplötu.
Hann sagði að þetta flokkaðist undir mjög stóra aðgerð og sagðist vísa mér á þann sem væri bestur í að gera þær aðgerðir, til læknis sem væri meiri sérfræðingur í handaskurðlækningum en hann.
Ég skal viðurkenna að sá aðili sem hann sendi mig til er góður í sínu fagi.
Sá læknir er allavega ekki einn af þeim sem hefur fengið diplomað sitt í Cheerios pakka í Bónus eins og mér fannst með frændurnar sem að ég lenti á í upphafi...
Til hans kemst ég svo í byrjun maí og hann segir að beinflísin hafi sést strax á fyrstu myndunum.
Hann flokkaði þessa aðgerð undir bráðaaðgerð og átti að reyna að koma mér í hana fyrir lokanir á deildum sem yrði í júni. Hvað flokkast undir "bráða" er mér svo sem spurn því þessi blessaða " bráða" aðgerð varð svo ekki fyrr en 26 mars "03.
Ég lenti í því að vakna upp í aðgerðinni, hélt fyrst að ég hefði bara verið svona berdreymin en svo var ekki, það veit ég núna, þó svo að ég sé ekki búin að lesa skýrslurnar.
Í þessum undarlega draum þá finn ég alveg hrikalegan sársauka í mjöðminni, svona eins og þegar maður sker sig á pappa eða blaði nema það var eins og væri verið að skera aftur og aftur..
Ég beit saman vörunum vegna kvalanna, en hef sennilega lent undir túbunni með neðri vörina því að ég var með skurð innan á henni og dofin þegar að aðgerðinni er lokið.
Ég sá útundan mér upp á grænklætt lið og hendina á mér og horfði beint í skurðinn og það voru stálkrókar sem héldu sárabörmunum opnum.
Man að ég hugsaði að þetta væri eins og krókarnir sem voru notaðir til að færa kjötskrokkana til á sláturhúsinu...
Ég fór svo að reyna að snúa mér og vinda til þess að losna og svo man ég ekki neitt meir fyrr en uppi á vöknun....
Þegar ég lýsti þessu fyrir vinkonu minni sem hafði unnið á spítala í um 15 ár þá segir hún að það séu akkúrat svona krókar sem væru notaðir...og að það sé alveg pottþétt að ég hafi vaknað upp af svæfingunni..
Aðgerðin var kl 13 og mér sagt að hún væri 1 tími, væri styttri af því að sá sem tók beinið úr mjöðminni gat unnið um leið ogsá sem skar í hendina en það var ekki sömu megin..
En aðgerðin var ekki lokið, hvað sem flokkast undir aðgerðina hvort það er bara tíminn frá því að byrjað er að skera og búið að sauma saman en henni var lokið 14:45 og er ég vel vöknuð milli 15:30 og 16 rúmið var beint á móti klukkunni þannig að ég sá vel á hana.
Hef farið í aðrar minni aðgerðir en aldrei verið svona fljót að vakna og né svona með það sem ég kalla fljótt með fulle fem, sem er svo sem afstætt kanski.
En ekki fékk ég að fara af vöknun fyrr en kl 7 um kvöldið og aldrei nein svör eða útskýringar þegar ég spurði afhverju ég mætti ekki fara þar sem ég væri vel vöknuð..
Karlinum mínum var sagt að hann gæti komið eftir þennan klukkutíma sem að aðgerðin átti að taka en þegar hann kom og spurði um mig þá er honum sagt að ég sé enn í aðgerð og hann spyr afhverju það sé þar sem aðgerðin átti bara að taka 1 tíma.
Honum er sagt að það hafi eitthvað komið upp á í aðgerðinni og með það er hann skilinn eftir og engin skýring.
Hann svo bara látinn bíða án þess að fá að vita neitt meir..þannig að hann sat og beið án þess að vita eitt eða neitt....
Morguninn eftir aðgerðina þá er ég orðin með meiri verki í hendinni sem að ekki var krukkað í og ég ég þurfti að halda hendinni upp í loft svo að salvatnið og sýklalyfið kæmust inn...
Það varð að setja sýklalyfið með í drippið því að það komst ekki inn í æðina vegna bólgu ( veit það núna) en varinar á mér voru sko þvílíkt rauðar og brennandi að það lá við að heyrðist hviss þegar ég setti ískaldan blautan þvottapoka á þær.. Þar fyrir utan að þær hefðu betur passað á svertingja .....nema fyrir litinn.....
Ég lenti svo á hjúkrunarfræðing kvöldinu eftir aðgerðina sem vildi meina að ég væri með ofnæmi fyrir parkodín en ég hef ofnæmi fyrir acetiýlsalicýlsýru og nikkel, það stóð alveg rétt í minni skýrslu, en hún var sko ekki til umræðu með að hlusta á það sem ég sagði og ég ekki nógu hörð að heimta að fá að sjá þessa svokölluðu mína skýrslu enda að drepast úr kvölum og orðin rauðflekkótt eins og skarlatsóttar sjúklingur og æðin þar sem drippið var í orðin rauð og bólgin nærri upp undir handveg...
Ég fékk líka ofnæmi fyrir sýklalyfinu sem ég fékk í æð og bláæðabólgu ( fylgist víst oft saman með því ofnæmi) Þegar kvalirnar í hendinni voru orðnar meiri í þeirri sem ekki var skorið í þá er held ég örugglega eitthvað mikið sé að.
Mér er spurn hvernig svo manneskjunni sem var með parkodin ofnæmið hafi reitt af því að trúlega hefur henni þá verið gefið það sem ég átti að fá.
Skyldi hún hafa látist af völdum rangrar lyfjagjafar eða hvernig reiddi henni af?
Þegar ég var að sýna þessum sama hjúkrunarfræðingi útbrotin og asnast til að spyrja hvort þetta geti verið út af sýklalyfinu, segi að þessi útbrot séu lík því sem ég hafi fengið þegar mér hefur verið gefið Doxýtab.
Hún segir þá að Doxýtab sé ekki sýklalyf, ég segi þá við hana að mér hafi nú allavega verið gefið það sem slíkt nokkrum sinnum.....
Nei það átti sko ekki að vera það, kom með einhverja romsu um að það virkaði svona og hinsegin á frumurnar.
Halló! Það virka öll lyf á einhvern hátt á frumur.......
hemjandi, hvetjandi...lamandi, drepandi...!!!
Í lyfjabókinni segir allavega þetta:
Doxýtab er sýklalyf af flokki tetracýklinlyfja.
Hún bauð mér svo að ég gæti fengið lyf við ofnæmi en ég afþakkaði, sagðist ekki fara að taka lyf við bara " einhverju" ofnæmi, vildi fyrst fá að vita ástæðuna fyrir þessu.
Morguninn sem ég fer heim þá er ég enn með þessi útbrot og sýndi þá lækni á stofugang það og hann kom með sömu lausnina bara lyf við ofnæmi án þess að skoða ástæðuna fyrir þeim.
Minn lækni sá ég ekki nema morguninn eftir aðgerð.
Hann hafði sagt mér að ég ætti að fá resept og endurkomutíma með mér þér ég færi heim.
Segi ég þetta við þann hjúkrunarfræðing sem ég var með þá og hún hreytir í mig að ég geti bara farið út í apotek og keypt parkodín og ég segi við hana að það sé að koma helgi og maður fái ekki keypt nema 1 pk af því og ég kveið fyrir því að fara að sitja í bíl þó að leiðin væri ekki lengri en upp í Borgarnes...
Enda voru kvalirnar þokkalegar í mjöðminni þar sem beinið var sagað úr ofan á hina verkina...
Hún rauk svo burt og kom með resept og kom svo í ljós að það var venjulegt parkodín en fékk að vita seinna að það átti að vera parkodín forte sem læknirinn ætlaði mér.
Þessi hjúkka vissi þó allavega að ég hafði ekki ofnæmi fyrir þessu lyfi.
Stálplötuna þurfti svo að fjarlægja ári seinna vegna þess að taugarnar voru farnar að sargast á plötubrúninni...Mér skilst að ég geti ekki búist við því að verða án verkja í hendinni í framtíðinni samt sem áður, en er svo sem farin að venjast því.
Ég lenti sem betur fer ekki á neinum eftirlíkingum af lækna og hjúkrunarliði þegar að platan var tekin eins og síðast.
Það má segja að sá hjúkrunarfræðingur sem ég hafði núna hafi gefið mér smá trú aftur á þeim sem vinna í þessum geira. Hún var virkilega góð og mannleg en það er ekki alveg hægt að segja um hinar 2 í fyrra skiftið. Voru að vísu fleiri en þær sem ég hafði samskifti við og voru þær í lagi að mínu mati.
Mér finnst samt ég verða vör við að sumt af þessu fólk mætti alveg fara á námskeið í mannlegum samskiftum og ekki vera í þvi að gera lítið úr sjuklingum, það er alveg nógu illa sem sumum líður, þó að það sé ekki komið fram eins og viðkomandi sé ekki með fullu viti ofan á það að vera veikur.
Margir segja að ég eigi að kæra þessa aðila og hef ég svo sem velt því fyrir mér.
Þó ekki nema fyrir það að það hljóta að vera líkur á að einhverjir aðrir lendi á þessum sömu aðilum og eigi þá í hættu með að lenda í einhverju veseni eins og ég.
Ég slapp þó lifandi en það er ekki víst að allir hafi verið og séu svo heppnir.....
Þetta er svona megin sagan af mínum hrakföllum og hrakförum í heilbrigðiskerfinu, en ég verð bara að segja að þarna lenti ég á manneskjum sem væru held ég betur komanar í vinnu annar staðar en í heilbrigðisgeiranum.
Það er allavega lágmark að koma fram við sjúklinga eins og fólk, en það endaði með því að ég sagði að það mætti halda eftir framkomu sumra við mann, ekki bara mig, ég hlustaði á hvernig talað var til gamals fólks af mikilli vanvirðingu og hroka, af sumum sem á þessum spítala vinna, að maður hefði skilið þessa litlu vitglóru sem að maður taldi sig hafa eftir á þröskuldinumáður en maður fór inn.
Það hlýtur að vera kominn viskubrunnur fyrir utan Borgarspítalann .
Ég hef að vísu sleppt fáeinum atriðum úr þessari sögu en læt þetta duga.....
Heilbrigðismál | Breytt 31.3.2016 kl. 03:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Auknar áhyggjur eru orðnar um allan heim í sambandi við þann fjölda barna sem eru stimpluð með svokallaðar geðraskanir og fyrirskipað að nota hugarfars breytandi lyf. ("mind - altering "drugs)
(Innskot Agný. Ég kalla það að vísu hugarfars yfirtakandi lyf / mind over taking), jafnvel brautryðjandi geðskjúkdóma greininga, guðfaðir ADHD Dr. Robert Spitzer, hefur núna viðurkennt að heilbrigð börn séu stimpluð.
Eins og var tilfellið með kynvillu, sem að var skráð sem geðröskun í eldri útgáfu DSM, en því var hætt eftir að talsmenn samkynhneigðra mótmæltu á ráðstefnu APA árið 1973.
Þrátt fyrir viðvaranir FDA um það að geðlyf orsaki hjartaáföll, slag, sjálfsmorðs -og morðtilraunir, sykursýki, geðsveiki ( hey..áttu þessi lyf ekki að lækna svokallaða geðsjúkdóma) og óvænt dauðsföll, þá hélt Spitzer því samt fram að geðlyf hafi ekki alvarlegar aukaverkanir.
eða smellið hér http://www.cchr.org/index.cfm/6519 til þess að sjá hvað sérfræðingar segja um málið.
Þýð. Agný
Heilbrigðismál | Breytt 23.2.2015 kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.3.2007 | 19:23
Stuðningshópar og félög fyrir aðstandendur ADHD, þiggja fjárveitingar á laun frá lyfjaframleiðendum.
Komið hefur í ljós að stuðnings -og og ráðgjafahópar fyrir foreldra barna sem eru haldin svo kölluðum hegðunarsröskunum, eru styrkt á laun af lyfjafyrirtækjum.
By Daniel Foggo 09/10/2005
Uppáskriftir á methylphenidate (virka efnið í Ritalin og Concerta )
örvandi lyf sem selt er undir mörgum vörumerkjum, hefur 180 faldast á 14 árum. http://www.doktor.is/lyf/lyf.asp?id=4084&firstletter=C&framl=&lysing=&number=&innih=&leit=
Gælunafnið chemical cosh kemískt kósí er tilkomið vegna eiginleika lyfjanna til að sljóvga börnin, methylphenidate er aðallega skrifað upp á fyrir einstaklinga undir 16 ára aldri.
Aukaverkanir eru meðal annars, svefnleysi, deyfð og lystarleysi.
Gagnrýnis raddir halda því fram að þessi lyfjagjöf sé algjörlega óþörf í mörgum tilfellum, þar sem börnin séu einungis að sýna hegðun miðað við aldur, sem hægt væri að bæta með matarræði.
Hvað sem því líður, þá kemur það hvergi fram á síðum þessarra samtaka, fjárveitingarnar sem þeir eru að fá frá lyfjaframleiðendum og nöfn lyfjaframleiðandanna kemur heldur ekki fram á reikningum þeirra sem tengjast góðgerðar samtökum.
Ms. Bilbow sagðist ekki gefa upp nöfn lyfjafyrirtækjanna á vefsíðunni, sem samtök hennar fengju fjárveitingar frá, með því værum við að gefa þeim eitthvað í staðinn.
Ef að við setjum nöfn þeirra á síðuna, þýddi það að við værum að koma fyrirtækjunum á framfæri.. Hef ég sagt þeim að ég muni ekki gera það
Það þýddi auglýsingu fyrir þau og við erum ekki að fá það stórar fjárhæðir frá þeim til þess að gera það... (greinilegt að hún hefur verið beðin um það á hennar svörum hér..innskot Agny.)
Jim Mackie fyrrverandi formaður Overload Network , sem veitir fjölskyldum sem tengjast ADHD stuðning sagði:
Heilbrigðismál | Breytt 8.9.2019 kl. 02:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.3.2007 | 16:54
GM (erfðabreytt) hrísgrjón með manns erfðavísi á fæðulistanum.
Þar segir: Það að nota nytjaplöntur og akra sem lyfjaverksmiðjur, er þróun sem er mikið áhyggjuefni. Ef að þessar lyfjafræðilegu plöntur enda á diski neytandans, gæti það haft hrikaleg áhrif á heilsu okkar"
Þýðandi. Agný..
P.S.
Það skyldi þó aldrei eiga eftir að verða þannig að maður geti farið að "spjalla" við grænmetið á diskinum...
Food Security and Ag-Biotech News
http://www.merid.org/fs-agbiotech/?gclid=CMi6q6TN4IoCFQbllAodRGgByg
Friends Of The Earth
http://www.foe.co.uk/campaigns/real_food/
GM WATCH daily
http://www.gmwatch.org
Heilbrigðismál | Breytt 22.2.2024 kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- Viðvörun frá Þýskalandi: Dauðsföll vegna "bóluefnis" gegn KÓv...
- Hvítir trefjalíkir blóðtappar finnast í miljónum þeirra sem t...
- Japan varar við mikilli aukningu dauðsfalla meðal bólusettra ...
- Slóvakía varar við því að banvæn ótilgreind efni fundust í Co...
- "GRAPHEN OXIDE" FRAMHALD UM EFNIÐ SEM YFIRTEKUR!!! THE BLAC...
Bloggvinir
-
666
-
annasteinunn
-
artboy
-
athena
-
berglindnanna
-
bergthora
-
biddam
-
birgitta
-
bofs
-
brylli
-
coke
-
daystar
-
dofri
-
doriborg
-
ea
-
ellyarmanns
-
estersv
-
fridaeyland
-
gammon
-
gmaria
-
gudrunmagnea
-
gullvagninn
-
gunnipallikokkur
-
habbakriss
-
halkatla
-
hallarut
-
halldorbaldursson
-
hallurg
-
handtoskuserian
-
heida
-
heidathord
-
heidistrand
-
heimskringla
-
hjolagarpur
-
hlynurh
-
hlynurha
-
id
-
ingo
-
ipanama
-
ippa
-
jensgud
-
joninaben
-
jorunn
-
josira
-
kallimatt
-
ketilas08
-
kiddih
-
kiddijoi
-
kiddip
-
killerjoe
-
killjoker
-
kiza
-
kollaogjosep
-
konur
-
limped
-
lovelikeblood
-
lydurarnason
-
malacai
-
mia-donalega
-
molta
-
morgunstjarna
-
nonniblogg
-
ofurbaldur
-
olafurfa
-
omar
-
omarragnarsson
-
overmaster
-
perlaheim
-
poppoli
-
prakkarinn
-
predikarinn
-
proletariat
-
ragnargests
-
rheidur
-
rosabla
-
saethorhelgi
-
salist
-
sigurjonn
-
sigurjonth
-
sirrycoach
-
sjos
-
stebbifr
-
svarthamar
-
sveinnhj
-
tharfagreinir
-
trollchild
-
tru
-
upplystur
-
vertu
-
vglilja
-
vitale
-
alla
-
dufa65
-
andres08
-
gumpurinn
-
danna
-
arit-bloggar
-
apalsson
-
taoistinn
-
asgrimurhartmannsson
-
heiddal
-
brahim
-
gattin
-
brandarar
-
rafdrottinn
-
saxi
-
eysi
-
fafnisbani
-
fiskurinn
-
geiragustsson
-
morgunn
-
gudjonelias
-
gjonsson
-
lostintime
-
tilveran-i-esb
-
conspiracy
-
skodun
-
holi
-
vulkan
-
heim
-
hildurhelgas
-
drum
-
truthseeker
-
holmdish
-
don
-
danjensen
-
ingaghall
-
johannvegas
-
jonasg-eg
-
jonasg-egi
-
joningic
-
jonmagnusson
-
alda111
-
bisowich
-
andmenning
-
kristinthormar
-
lotta
-
ludvikludviksson
-
astroblog
-
vistarband
-
marinomm
-
manisvans
-
minnhugur
-
bylting-strax
-
olafur-62
-
pallvil
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
bjornbondi99
-
shhalldor
-
infowarrioreggeiri
-
sigvardur
-
thorthunder
-
thee
-
tigercopper
-
vefritid
-
zordis
-
tsiglaugsson
-
thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 69
- Frá upphafi: 319190
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
201 dagur til jóla
Um bloggið
Hitt og þetta...aðallega hitt...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Uppáhalds síður
Margvísleg málefni.
Ýmsir vefir.
- Velvirk börn Félag hæfileikaríkra og skapandi einstaklinga
- Heilsubankinn Meðferðar og þjónustuaðilar
- Sannleikurinn minn Fróðleikur um ýmis heilsumál
- Heimasíðan mín Ýmislegt efni.
- Gagnauga Gagnauga er upplýsingavefur um alþjóðamál
- MSSPJALLIÐ Opið Spjallborð um MS
- Ablechild.org Parents for Label and Drug Free Education
- ASPARTAME KILLS Rumsfeld og Aspartame
- Óvenjuleg og umdeild mál 9/11, samsæriskenningar...
- The National Foundation for Gifted and Creative Children Samtök hæfileikaríkra og skapandi barna
- Upplýsingasíða um MSG If MSG isn´t harmful, why is it hidden?
- Spjallborð um 911 og ýmislegt plott
- Þessi síða er alveg must read ýmislegt sem þú sérð bara hér
- The SPECTRUM Ýmsar greinar
- Label Me Sane Fjallað um ofnotkun lyfja.
- Alliance for Human Research Protection Samtök gegn tilraunum á fólki
- Organic Consumers Association Neytendasamtök fyrir lífrænt
- Freedom Or Facism ? Frelsi eða Facismi?
- Health Truth Revealed Hulunni svipt af heilsu málefnum
- Quackpot Watch "The last days of the Quackbusters "
- True Torah Jews/Jews Against Zionism Traditional Jews Are Not Zionists
- Question 911.com Free DVD download / frítt niðurhal
Talnaspeki / Numerology
Fróðleikur um þessa speki
- Sun - Angel Numerology Frítt dæmi þarna
- Free Numerology Reading Meira en bara talnaspeki..
- Your Reading / Agny Lýsingin á mér...
- INDIGO intentions Tarot, numerology, Indigo children, Reiki, Angels reading
Fyndið stuff.
Myndir, brandarar og glens.
- Cartoons Teiknimyndir
Andleg málefni
Allt sem tengist þeim málum.
- AEROSOL OPERATION CRIMES & COVER-UP SPRAYING US AS A BUG..
- Crystalinks Þessi síða er hreinlega með allt.
- Tarot Cards & Free Readings Frí Tarot spá
- Mind Power News Kraftur hugans.
- Progressive Awareness Research Allt mögulegt andans stuff.
- Tilvitnanir / quotes Ýmsar tilvitnanir
- New Jersey ghost hunter center Drauga "veiðar"
- The Tree of the Golden Light Ýmis andleg mál
- Mayan Calendar Articles Tímatal Mayanna
Stjörnuspeki / Astrology
Fróðleikur um þessa speki.
- The Future Minders Frítt dæmi þarna
Síður um ADD / ADHD
Upplýsingar um athyglisbrest / ofvirkni.
- Dr. Mary Ann Block ,, Find the course, fix the problem".
- A Multisensory Learning Program Kennslugögn fyrir ADD / Autism / Dyslexia
- Exposing the Fraud of ADD and ADHD Fred A. Baughman Jr., MD Neurologist, Pediatric Neurology
- Stimulant Drugs for ADHD and ADD Örvandi lyf við ADHD og ADD
- "Are Psychiatrists Betraying Their Patients?" Eru geðlæknar að svíkja sjúklingana sína?
- "Our Toxic World" " Okkar eitraði heimur"
- No proof mental illness rooted in biology Engin líffræðileg sönnun fyrir geðsjúkdómum
- Death From Ritalin Snannleikurinn á bak við ADHD
- Methylphenidate ( virka efnið í Ritalin) Drug and Chemical Evaluation Section
- What Drugmakers of ADD & ADHD Drugs vilja ekki að þú vitir
- Answers for ADHD Questions Svör við ADHD spurningum.
SSRI lyf og önnur þunglyndislyf
Ýmsar síður um hugarfars breytandi lyf.
- Dangerous Medicine forum Spjallborð
- Antidepressants Facts Staðreyndir um þunglyndislyf.
- SSRI Stories Ekki er sannleikurinn fallegur...
- International Coalition For Drug Awareness Verum meðvituð ...
- PROTECT YOUR CHILDREN NOW Verndum börnin okkar!!
- THE DARK SIDE OF PSYCHIATRY Dökka hlið geðlækninganna
- How psychiatry is making drug addicts out of America´s shool children Amerísk skólabörn gerð að læknadóps fíklum.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine. SEARCH ENGINE
Asperger syndrome og Autism
Síður sem fjalla um Asperger og einhverfu
- Aspergers Syndrome in Children Góð síða (mín skoðun)
Blogg úr ýmsum áttum..
Vinir / áhugaverðir einstaklingar.
- Sigurjón Þórðar.
- Nornin
- Tigra
- Anna panna
- Þarfagreinir
- Katrín ódæla
- Klisja
- Olasteina "Fjarskyld frænka"
- Nornin Vinkona af Baggalút.
- Geiri 3d.
- Laramin
- Sigunzo
- Ditto bloggar Yndisleg og spes manneskja.
AGLOCO
- AGLOCO Borgað fyrir að browsa..
http://skorrdal.com/
MICROCHIP - RFID
- Microchip Implants News Articles MIND CONTROL; ÖRFLÖGUMERKINGAR; RFID
UMDEILD MÁLEFNI
- WIDE EYE CINEMA WIDE EYE CINEMA is dedicated to showcasing the very best alternative truth-related documentaries & cinema uploaded onto the World-Wide Web.
MY FAVORITE SITES
- This site is number 1 on 10 black list sites of US gov. Here you find it all.Specially what the elite do not want you to find
- Alvaran Forum about what some call conspiracy
- Prophecies of Sollog Sollog is a POLITICAL PRISONER of the USA!
- Ingaoramas video VIDEOS
- So you wanna talk conspiracies? try this on for size. JUST GO THERE...
- ConCen An eye openinger
- What you should not know...is here.. Knowing litle about lot is better than know lot about a little...
HAARP
- Chemtrails Data Page Chemtrails - Frequently Asked Questions
CHEMTRAILS
- CHEMTRAIL CENTRAL Þetta er forum um Chemtrails og málefni tengd efna úðun úr lofti..
- Chemtrails news, articles and information Cemtrails=Efnarákir
- CHEMTRAILS -HAARP-GEOENGIERING-DEPOPULATION AT WORK CHEMTRAILS síða- fyrrverandi FBI starfsmaður leysir t.d. frá skjóðunni- núna látinn..
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir- Ísland er ekki undanskilið þessu ógeði!
- Chemtrails = Aerosol spraying to change the atmosphere. Chemtrails = Aerosol spraying of barium, "fibers", pathogens.
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir
TRANSLATE-ÞÝÐA
- Translate your website into 52 languages Just copy and paste the Translate This Button anywhere on your site, it's free and easy. There are no files to upload and it works on almost any website. The Translate This Button is a lightweight JavaScript translation widget. It translates any page quickly using Ajax and the brilliant Google Translate.
VERICHIP-WE THE PEOPLE WILL NOT BE CHIPPED!
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heilsumálefni
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Óvenjuleg og umdeild mál
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði