Leita í fréttum mbl.is

Ráð frá konu til (yngri) kvenna.. ;-)

Útlitið getur komið þér inn fyrir dyrnar, en heilinn og persónuleikinn heldur hurðinni opinni  þannig að hún skelli ekki í bakið á þér.

Á tvítugsaldri hefur þú áhyggjur af því hvað aðrir hugsa um þig.

Á þrítugsaldri hættir þú að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst...

Á fertugsaldri áttar þú þig á því að enginn var að hugsa um þig.

Gerðu þér það upp þangað til það verður raunverulegt !

Ef þú leikur prímadonnu, þá verður þú prímadonna.

Vertu stolt á góðum dögum og reyndu að lifa af þá slæmu.

Menn eru óöruggari en konur.

Kvennímynd kemur frá fjölmiðlunum og er ekki endilega málið.

Að brosa, gerir þig uppréttari og stærri.

Annað, láttu aldrei sjást í böndin á brjóstahaldaranum, aldrei !

Ef þú elskar ekki og virðir sjálfa þig, verður erfitt fyrir aðra að gera það.

Jafnvel Cindy Crawford vaknar ekki og lítur út eins og Cindy Crawford.

Guð skapaði þig, hann skapar ekkert rusl.

Öryggi er einn mest kynþokkafyllsti eiginleiki sem þú getur haft.

Aldrei telja sjálfri þér trú um að þú getir ekki öðlast allt sem þú vilt, vegna þess að þú ert ekki eins og stelpurnar á forsíðum tískublaðanna.

Gleymdu aldrei hversu ævintýragjörn þú varst þegar þú varst þriggja ára, hún er þarna einhvers staðar ennþá.

Byrjaðu á því að hugsa um líkama þinn núna, það verður erfiðara seinna meir.

Fegurð er stigvaxandi samansafn af yndislegum hlutum sem við gerum fyrir okkur og aðra.

Safnaðu þeim saman og vænstu þess að verða eins falleg og þú getur þegar þú verður eldri. 

Enginn getur látið þér líða óæðri eða lakari án þíns samþykkis.

Heimurinn er hrjúfur og fólkið raunverulega dæmir þig út frá framkomu eða útliti.

Hlutir sem þú hatar í dag, muntu elska síðar þegar þú ert þroskaðri.

Þú þarft aðeins að passa í fötin þín, lífsstílinn og hurðargáttina.

Lífið verður betra með aldrinum.

Bros er fallegasti skartgripurinn.

Við erum svo fastar í Barbie ímyndinni, að við gleymum því hversu áríðandi það er að fylgja hjartanu.

Frá fæðingu til dauðadags, fangaðu hvert augnablik af jákvæðni, svo þú munir ekki sjá eftir neinu.

Ekki drepa sjálfa þig til þess að verða grönn, vertu aðeins hamingjusöm og glöð.

Aldrei mun nokkur maður meta útlit þitt eins hörkulega og þú vilt.

Ekki vera í sólinni.

Hugsaðu um sjálfa þig eins og ostru.

Líkami þinn er eins og skel.

Hugsaðu um hana og hún mun hugsa um þig.

En raunverulega "þú" kemur innan frá, falleg og einstök perla.

Þú ert dýrmæt og falleg á allan hátt.

P.S. held að við kvenkynið hefðum allar gott af að skoða þetta án tillits til aldurs...

Kveðja Agný.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gleðilega páska  Agný mín. vonast samt til aðsjá þig á blogginu um páskana.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.4.2007 kl. 18:27

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir þessa góðu punkta.

Svava frá Strandbergi , 5.4.2007 kl. 01:33

3 Smámynd: Kolla

Takk fyrir góðu "leiðbeiningarnar" ég skal hafa þetta með mér í gegnum lífið.

Gleðilega páska 

Kolla, 5.4.2007 kl. 23:35

4 Smámynd: Agný

Gleðilega páska til ykkar allra og njótið páskaeggjanna vel..

Agný, 6.4.2007 kl. 01:45

5 Smámynd: Jón Svavarsson

heyr Heyr, jákvæð hvattning sem alltaf á rétt á sér. Gleðilega páska, kveðja Jón

Jón Svavarsson, 7.4.2007 kl. 02:16

6 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Gleðilega páska !!!!

Sigrún Friðriksdóttir, 8.4.2007 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband