Færsluflokkur: Bloggar
By DPA
Jan 16, 2009, 21:20 GMT

Los Angeles Tölvu virusa árás sem hefur sýkt meira en 6.5 miljónir Windows PCs í þessarri viku er einn af þeim verstu í mörg ár, sagði internet öryggis fyrirtækið F-Secure á föstudaginn.
Samtals hefur ormurinn sem er þekktur sem Downadup eða Conficker sýkt nærri 9 miljónir PCs síðan að fyrsta útgáfan af honum var send af stað fyrir 2 árum síðan. Fjöldi Downadup sýkinga hefur þotið upp, segir Toni Koivunen , F-Secure rannsóknaraðili í bloggfærslu á bloggi öryggisfyrirtækisins.Það er áætlað að fjöldi sýktra véla hafi farið úr 2.4 miljónum í yfir meira en 8.9 miljóna á síðustu fjórum dögum. Það er alveg ótrúlegt.
Tölvu notendur þurfa samt ekki að hafa miklar áhyggjur ef þeir gæta þess að að tölvurnar séu með nýjustu Microsoft öryggis endurbæturnar, en Microsoft segir að það séu í það minnsta einn þriðji af PCs sem hafi ekki enn verið uppfærðar..
Við höfum ekki séð farald af þessarri stærðargráðu í mörg ár, sagði Mikko Hypponen stjórnandi rannsóknarinnar í samtali við CoputerWorld.comMicrosoft segir að ormurinn notfæri sér galla í Windows Server service (þjóninum )sem notaður er af Windows 2000, XP, Vista, Server 2003 and Server 2008.Ormurinn vinnur þannig að hann leitar að keyranlegri Windows skrá, sem kallast ´services exe og verður þá hluti af þeim kóða. Þegar hann er einu sinni orðinn greyptur í PC, þá myndar Downadup skrár með mögulegum lénum, velur eitt, og notar síðan það lén til að ná í óprúttna þjóna, sem hann síðan hleður niður svikagögnum og setur upp á tölvunni sem hann hefur hertekið..
Síðasta útgáfan af virusnum er sérstaklega skæð þar sem hann notar flókinn algorithm til þessa skapa hundruðir nýrra léna, sem gerir það enn erfiðara fyrir öryggissérfræðinga að komast fyrir hann.. Þýðandi Agný.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.1.2009 | 09:31
HÁRGREIÐSLUFÓLK Í MIKILLI KRABBAMEINS ÁHÆTTU VEGNA HÁRLITUNAR EFNA.
Hárgreiðslufólk og rakarar gætu verið í aukinni hættu á að fá krabbamein, segja rannsóknaraðilar. Við það að koma í snertingu við hárliti eykur hættuna á vissri tegund krabbameins, sérstaklega blöðru krabbameins, segja þeir. Dökkur háralitur hefur mestu áhættuna þó að notkun sumra hárlitunar innihaldsefnanna hafi verið hætt um 1970.
Í hættu: Hárgreiðslufólk eru í aukinni hættu á að fá krabbamein, fullyrða rannsakendurnir. Jákvæðar krabbameins niðustöður hjá rottum, leiddu til þess að þær voru afturkallaðar, segir í síðustu skýrslu vinnuhópsins hjá International Agency for Research on Cancer.
Hópurinn skoðaði líka persónulega notkun háralits en ákvað að það væri "ófullnægjndi sannanir til þess að ákvarða hvort eða ef það að lita hár sitt myndi auka hættu á krabbameini.
.(Innskot Agný..Ef það að vinna með hárlitunarefni er nóg til þess að auka hættu á krabbameini þá hlýtur það að bera efnin í hársvörðinn að vera enn meiri áhætta..Húðin er jú stærsta öndunarfæri líkamans og þar sem að húðin tekur hormóna, nicotin, ritalinúr plástrum ( já það eru til ritalin plástrar) upp, þá er það augljóst að allt sem við smyrjum og berum á skrokkskjóðuna fer inn í gegnum húðina og ut í blóðrásina og sum efni hraðar en önnur) .
Dr Robert Baan og samstarfsmenn frá stofnuninni, sem staðsett er í Lyon Frakklandi, sagði að margar rannsóknir í sambandi við krabbamein hafi verið gerðar á hárgreiðslufólki, snyrtifræðingum og rökurum síðan síðasta mat hafi verið gert 1993.
"Lítil, en augljós hætta á blöðru krabbameini hjá karlkyns hárskerum og rökurum segir í skýrslu þeirra í The Lancet Oncology." "Vegna lítil stuðnings við þessar uppgötvanir, útaf tímalegnd eða tímabils sem viðkomandi varð fyrir efnunum, þá taldi vinnuhópurinn þessi gögn ónóg sönnunargögn fyrir krabbameinsvald og breytti lýsingunni í "mögulegur krabbameinsvaldur hjá fólki.
Hárlitunar iðnaðurinn segir að litir séu meðal þeirra efna sé mest rannsakaða efnið sem er á markaðinum.. (Innskot Agný..Jamm..og þessu liði finnst greinilega okey að bera ammoníak í hársvörðinn...je jú ræt..það er það sem veldur sviðanum...allavega svíður mig ekki undan háralit sem ekki inniheldur ammoníak...) Þýðandi Agný.
http://www.detoxamin.com/heavy_metals/hairdressers_cancer_risk.html
http://www.healthtruthrevealed.com/articles/101400801/article
Vinsæl shampoo innihalda eitruð efni sem taugaskaði er tengdur við.
http://agny.blog.is/blog/agny/entry/341864
Bloggar | Breytt 13.1.2009 kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.1.2009 | 10:39
LÍFSINS LÆRDÓMUR..
Ég er þakklát/ur öllumsem hafa komið fram við mig af hörku, þeir hafa kennt mér að vera mildur og hugulsamur.
Sem hafa vanmetið mig og talið lítilsvirði, þeir hafa kennt mér að standa með sjálfum mér.
Sem töldu mig einskis verðugan, þeir hafa neytt mig til þess að leita að fjársjóðnum innra með mér.
Sem komu fram við mig á ólöglegan hátt, þeir hafa kennt mér að vera einlægur.
sem aldrei hafa sýnt mér væntumþykju, þeir hafa sýnt mér mikilvægi kærleikans.
Sem öfunduðu mig, börðust við mig og særðu,þeir hafa kennt mér sjálfs gagnrýni og varkárni.
Sem aldrei hafa veitt mér neina athygli, þeir hafa kennt mér að koma fram við alla án fordóma.
Sem sært hafa mína virðingu, þeir hafa kennt mér að veita fyrirgefningu.
Sem aldrei tóku eftir því að ég væri hjálpar þurfi,þeir hafa kennt mér að leita hjálpar og stuðnings.
Sem hafa yfirgefið mig og skilið eftir einan,þeir hafa kennt mér hvað raunveruleg vinátta er.
Sem hafa hindrað mig og bælt,þeir hafa kennt mér að verja sjálfan mig.
Sem hafa valdið mér sársauka og sorg, þeir hafa kennt mér að þekkja andstæðu þjáningar, huggunar.
Sem hafa tekið þátt í þessu, hafa gefið lífi mínu merkingu og tilgang.
Ég ber þakklæti til hvers og eins ykkar.
Þið eruð ástæðan fyrir því hvernig og hversvegna ég hef lært svona mikið, og kennt mér að skilja hvað er mikilvægt fyrir mig í dag og að vera fær um að gefa það allt frá mér!
Bloggar | Breytt 9.1.2009 kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.12.2008 | 06:39
KÆRLEIKUR......HVAÐ ER ÞAÐ?
Er það kanski þessi svokallaði altækur kærleiki?..... Í mínum huga er kærleikur tilfinning sem maður gefur án skilyrða. Sem sé óskilyrtur kærleikur..kanski hljómar þetta óskiljanlega..en tel þó svo ekki vera...Þeir munu skilja sem það er ætlað.....
Flestir kannast við þetta orð náunga kærleika manni þykir sem sé vænt um þann sem er náinn manni ..bara af því að viðkomandi er náinn manni..manni þarf ekkert að líka við manneskjuna að öllu leiti eða það sem hún gerir, en án útskýringa, þá berum við samt kærleika til viðkomandi... Þá erum við aftur komin að óskilyrtum kærleika..kærleika án skilyrða....
En hverju myndu stjórnvöld geta í rauninni stjórnað ef.. eg og þú myndum faðmast í hvert skifti sem við myndum hittast..sama hvar það væri....ég myndi segja við þig;; takk fyrir að vera til og takk fyrir að þora að vera þú..
Nei !!! Stjórnvöld vilja helst að við séum hrædd við hvort annað,...þorum ekki að tjá okkur..því ef við hefðum kjarkinn þá munu þeir tapa kraftinum....
Stjórnvöld vilja ekki náunga kærleikann...hvað eru það til dæmis margir feður /afar sem þora ekki lengur að sýna sínum börnum eða barnabörnum kærleika, vegna þess að allir sem sýna væntumþykju eru samstundis stimplaðir perrar.....
Mjög gott fyrir stjórnvöld þegar þau hafa náð þessu fram..að enginn þorir að segja eða sýna kærleika...Því þá loks getur þessi elíta stjórnað okkur .( FASISTA STJÓRNUN FRÁ A-Ö) Og því miður viljum við mörg hafa hausinn á kafi í sandhrúgunni..þá sjá þeir/við ekkert og halda að enginn sjái þá/okkur ..því þeir sjá ekkert..En ef einhver sparkaði í afturendann á þeim(okkur) þá myndu þeir(við) neyðast til að taka hausinn upp og neyddust(neyðumst) svo til að nudda sandinn úr augunum..ekki stírurnar!..
Ég tel að ef að við öll ,sem hittumst á förnum veg, i segðum hvort við annað má ég gefa þér faðm..þú segðir eftir smá umhugsun Já...og ég gef þér faðm og þú mér..en á meðan við föðmust þá spyr ég þig þessarrar spurninga: Heldur þu að það væri stríð í heiminum ef að allir gerðu eins og ég og þú erum að gera núna?..Svörin sem ég hef fengið hafa öll verið nei..! Ja ein manneskja sagði að vísu nei..en sú manneskja sagði að þetta væri bara ekki séns. Er það ekki undantekningin sem sannar regluna?
EN VAR EINS OG EKTA POLITÍKUS ..SVARAÐI EN SAGÐI UM LEIÐ EKKERT.....ja ekki síst þar sem eg spurði hana..Sem sé ..enn einu sinni ekki sama hvort maður er bara Jón ..eða séra Jón...Nóg um þessa smá málskrúðsflækju mína...en ég tel að ef við öll ,hinn almenni borgari þyrði að standa upp og bara standa með okkur sjálfum,,,,,þá er málstaðnum borgið!.... Við getum ekki ætlast til að einhver standi með okkur ef að við gerum það ekki sjálf!..Þá heitir það tilætlunarsemi...
Well...ef að mér þykir ekkert vænt um sjálfa mig..hvernig get ég þá ætlast til að öðrum þyki vænt um mig? Við getum ekki gefið öðrum það sem við eigum ekki til fyrir okkur sjálf fyrst!!! Ég GET ekki ætlast til þess að einhver elski mig ef að ég geri það ekki sjálf...
Byrjum svo nýtt ár án kryppu ..þó sé kreppa...Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla...AMEN..
Bloggar | Breytt 25.12.2011 kl. 06:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.12.2008 | 01:16
BLAND Í POKA...
Jæja ...þá eru þessi blessuð jól loksins komin sem maður kanski bæði hlakkar til og kvíðir fyrir.. Akkurat svona "bland í poka"...Alltaf ætlar maður að vera búin að gera x þetta og x hitt nógu tímanlega fyrir "þessi" jól...
Hlakkar til að setjast loks niður og snæða góðan mat með fjölskyldu og vinum..og dýrunum sínum.. Svo að gefa og þiggja hinar ýmsu gjafir, sem þurfa ekki endilega að vera x tuga/hundraða þúsund kalla virði nú eða x miljóna eða x miljarða eins og hjá vissum "útrásar" gaurum...(giljagaurum)...En "mín" jólastemming er, að þegar búið er að gefa og þiggja, að setjast með bók, konfekt og kaffi (og sígó...suss ekki segja frá..) og flatmaga í sófanum...hafa kveikt á kertunum og reykelsi...En þessi jól get ég ekki flatmagað..rifbeinadraslið sér fyrir því
Kvíðir fyrir að vera nú ekki búinn að öllu sem maður setti á "gera þetta" listann...Ja ..ég kláraði allavega ekki minn..ég get að vísu notað rifbeinsbrot sem orsakavald í þetta sinn
...Ég er loks farin að skilja það að ég á ekki að vera að príla í stigum rétt fyrir jól...En ég verð að játa að verkirnir eru það þokkalegir að ég vildi alveg vera laus við svoleiðis afsökun .....Það er allavega nokkuð pottþétt að ég dansa ekki inn í nýja árið um þessi áramót..og .ég elska að dansa.
. Verð líka að afþakka faðmlög og knús...ég sem er svo mikið fyrir knús..ja það verður þá að fara mjöööög varlega að mér..ekki nein kraftajötna faðmlög ...sussu nei...
Jamm...svo ætlar maður líka að vera búinn að kaupa gjafirnar löngu fyrir jól...réttast er að kaupa engar gjafir fyrr en eftir áramót á útsölunum...og halda þá svona "gefa og þiggja" dag.... Gott tilefni líka til að hitta vini og ættingja oftar...Jólin geta þá loks fengið að vera svona hátíð eins og alltaf er verið að syngja og segja.." kærleiks- og friðar jól"...
Ég læt hér fylgja svona hin og þessi heilræði, orðatiltæki, hugleiðingar.. brandara.. svona eitthvað andlegt "bland í poka" ....það verður að hafa balance í því sem maður treður í kroppinn af góðgæti...verður líka að næra sálartetrið....
DÝRMÆTUSTU GJAFIRNAR SEM ÞÚ GETUR GEFIÐ ÁSTVINUM ÞÍNUM ERU FALLEG ORÐ OG GJÖRÐIR, SAMÚÐ, FYRIRGEFNING, ÞAKKLÆTI, SKILNINGUR OG VIÐURKENNING...
LEIÐIN AÐ VISKUNNI OG HAMINGJUNNI ER INN´ Á VIÐ. GERÐU ÞAÐ EKKI AÐ MARKMIÐI AÐ VERÐA HAMINGJUSAMUR, VERTU HELDUR HAMINGJUSAMUR FYRIR MARKMIÐIN..
AUGNABLIKIÐ ER ÞAÐ EINA SEM VIÐ EIGUM MEÐ VISSU...
ÞÍN ÆFI ER EITT ANDARTAK , EITT UNDURSAMLEGT NÚ. OG ANDARTAKSINS EILÍFT LÍF ÁTT ÞÚ..
EINA GLEÐISTUNDIN SEM OKKUR ER ÖRUGGLEGA GEFIN ER HÉR OG NÚ, ANDARTAKIÐ SEM VIÐ HRÆRUMST Í HVERJU SINNI..
ÁSTIN VILL FYRST OG FREMST GLEÐJA AÐRA, EN EIGINGIRNIN VILL FYRST OG FREMST GLEÐJA SJÁLFAN SIG..
SÁ SEM EKKI KANN EÐA GETUR TEKIÐ Á MÓTI GJÖFUM ÁSTARINNAR, GETUR HELDUR ALDREI LÆRT AÐ ELSKA.
BREYTTU SÁRSAUKANUM Í SIGUR OG MISTÖKUNUM Í MÁTT..
AUÐMENN VERÐA ALDREI SVO RÍKIR AÐ ÞEIR ÓTTIST EKKI UM AUÐÆFI SÍN..
BRANDARAR
BETRI SAMVISKA.
Þau voru á leiðinni heim eftir dansleikinn. Kalli, ef þú leitar á mig, æpi ég. Ha,ha, æptu bara. það er ekki nokkur sála í mílu fjarlægð. Nei´, ég veit það , en ég hef betri samvisku, ef ég veiti einhverja mótspyrnu
AÐ FARA NIÐUR.
- Læknir, ég vildi gjarnan biðja þig um að færa niður kynlöngunina hjá mér, sagði sjötugur karl sem var nýgiftur einni tvítugri . Færa niður? Það var svei mér einkennileg bón. ,, Ekki svo mjög . Sjáðu til..hún er öll í höfðinu á mér kynlöngunin og þessvegna villdi ég færa hana neðar, þar sem ég get haft meiri ánægju og gleði af henni!!!
LÉTTUR.
-Mig langar að vita eitthvað um framtíðina, sagði unga, feimna konan við spákonununa. Látum okkur nú sjá . Maður mun koma inn í líf þitt fljótlega, mjög ungur maður. Segðu mér hvernig hann lítur út. ,, Það einast sem ég get séð , er að hann vegur aðeins 2,8 kg."
HEYRT Á KVENNAKLÓINU:
Hvernig var hann sá sem þú fórst með heim í gærkvöldi? -Eins og fyrsti vetrarsnjórinn. Kalda,, týpan"? Nei, hann ,, kom" óvænt og alltof fljótt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2008 | 15:58
SVIKIN LOFORÐ..síðan hvenær er það eitthvað nýtt, það er bara gamall siður.
Það fer nú ekki að verða neitt efni í frétt að stjórnmálamenn og flokkar svíki kosningaloforð...ja eða klæði gömlu loforðin í nýjan skrum búning..Held það eina sem við getum pottþétt stólað á sé að loforð séu svikin hægri og vinstri.
Svo virðist þessu liði ekki veita af að fara að læra íslenskuna aðeins betur....ruglast mjög oft á orðunum hækkun og lækkun... Nú eða samkeppni/samráð, hátækni/hátekju..
Báðir stjórnarflokkarnir hafa staðið sig prýðilega í því að svíkja loforðin frá um síðustu kosningar..
Kanski þeir séu í "sam"keppni þar? Eða skyldi það vera "sam"ráð?..
Hvar er þetta gegnsæi í ákvarðanatöku?
Er það ekki enn eitt sem hefur aðeins skolast til í íslenskunni hjá þeim...eigi sem sé að vera ógegnsætt..fyrir okkur sauðsvartan almúgann?....
Við...ja allavega hinn almenni borgari þarf að bæta 2 vikum við mánuðinn til að ná að vinna fyrir þeirri nýjustu hækkun..pælum aðeins í því ef að Íbúðalánadeild hefði verið lögð niður eins og sjallarnir vildu ekki fyrir svo löngu, hvar værum við þá stödd fjárhagslega?..
Er það ekki sá sjóður sem á að heita að sé að redda hinu hrunda bankakerfi? Þetta lið situr sko ekki við sama borð og hinn almenni borgari það er alveg ljóst.
Þó að við íslendingar séum þekkt fyrir að láta traðka á okkur á skítugum skónum ..ja núna síðast reyndar "blank"skónum...þá kemur að því að við höfum fengið nóg!
En því miður virðumst við flest ekki hafa meira minni en gullfiskurinn á milli þessarra fjögurra ára..
Trúum alltaf á betri tíð með blóm í haga og núna muni sko loks verða staðið við stóru orðin loksins..
En fuss og svei ...en loforðunum um þetta og hitt getum við allavega stólað á að fá en líka að þau verði svikin um leið og kjörkössunum er lokað.....
Ég er allavega orðin eins og hann Glámur sem var alveg búinn að fá meira en nóg af jólagjöfunum hans Jóla... þannig að ég ætla að afþakka fleiri gjafir frá ríkisstjórninni fyrir þessi jól..
DV kannar í dag kosningaloforð beggja stjórnarflokka.
Samfylkingin hefur vanrækt fjölda kosningaloforða sinna. Fagra Ísland er þar ekkert einsdæmi. Samfylkingin lofaði auknu gagnsæi í ákvarðanatöku stjórnvalda en ljóst er að gagnsæið hefur sjaldan verið minna. Ójöfnuður í samfélaginu eykst og kostnaður heimilanna við heilbrigðisþjónustu verður meiri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið við fátt af því sem lofað var fyrir síðustu kosningar. Þegar farið er í gegnum kosningastefnuskrá flokksins, sem almennt er talin til kosningaloforða, virðist fátt um efndir.
Stórmál hafa fyrirfarist, og umskipti í þjóðfélaginu krafist aðgerða sem ganga þvert á stefnu, loforð og yfirlýsingar flokksins. Umskipti í afstöðu til Evrópusambandsins virðast vera á döfinni.
Skattahækkanir munu skella á, þvert á gefin loforð, vegna inngripa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Flokkurinn sem vildi breyta Íbúðalánasjóði í heildsölubanka fyrir aðra lánveitendur þakkar nú líklega fyrir hann í dag eftir bankahrunið.
***************************************************************
Bloggar | Breytt 3.12.2014 kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.12.2008 | 18:40
JÓLASVEINA KVÆÐI..´"ÚTRÁSAR" JÓLASVEINARNIR...
Glitnisgaur kom fyrstur,
gráðugur í öll bréf.
Hann laumaðist í vasana
og lék með fólksins fé.
Hann vildi sjúga þjóðina,
-þá varð henni ekki um sel,
því greyið var sko afæta,
-það gekk nú ekki vel.
2.Björgúlfsaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
-Hann skreið úr skipi hafsins
og skaust í bankann inn.
Hann faldi sig í Rússlandi
og froðunni stal,
meðan bjórmeistarinn átti
við Yeltsín gamla tal.
3.Bjármann hét sá þriðji,
böðullinn sá.
Hann krækti sér í milljarða
þegar kostur var á.
Hann hljóp með þá til Noregs
en hirti ekki um sjóðina,
sem féllu hver af öðrum
við sjáum núna slóðina.
4.Sá fjórði, Bændasleikir,
var fjarskalega sljór.
Og ósköp varð hann leiður,
þegar bankadruslan fór.
Þá þaut hann eins og Welding
og þotuna greip,
og flaug með henni í London
því krónan var svo sleip.
5.Sá fimmti Smárasnefill,
var skrítið fjármagnsstrá.
-Þegar hinir fengu í nefið
hann barði dyrnar á.
Þeir ruku'upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pokanum
og fékk sér góðan verð.
6.
Sá sjötti Sigjónárna,
var alveg dæmalaus.-
Hann framundan rústunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið vildi skýringar
á auralausum reikningum,
hann slunginn var að afsaka
og skildi ei neitt í hlutunum.
7.
Sjöundi var Heiðarmár,
-sá var sjaldan sýndur,
ef fólkið vildi tal af 'onum
hann var alltaf týndur.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó þjóðarskútan maraði
þá hálfu kafi í.
8.
Baugabur, sá áttundi,
var skelfilega þver.
Hann hluta keypt'af bönkunum
með hluta úr sjálfum sér.
Svo lánaði hann sér milljarða
og yfir öðrum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
9.
Níundi var Nógafaur,
næmur á fé og snar.
Hann hentist út um heiminn
og hluti keypti þar.
Á enskum bita sat hann
í símaleik
og át þar hluti drjúga,
enga Breta sveik.
10.
Tíundi var Skallakjaftur,
tungulipur mann,
sem hamaðist á landslýð
og æsti upp hann.
Ef vammlegt var hvergi
né ósiðlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
11.
Ellefti var Stjórnaskelfir
-aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hláleg
og heljarstór eyru og nef.
Ef fnyk af féhyggju
ekki hann fann,
þá léttur, eins og reykur,
lyktina upp spann.
12.
Sólráður, sá tólfti,
kunni að spinna vef.-
Hann þingmannasveitina
sveigði í kosningaþref.
Hann krækti sér í fylgi,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist enginn
akkurinn hans þá.
13.
Þrettándi var Kreppugeir,
-þá var komið kvöld,
alltaf kom hann síðastur
á bankahrunsöld.
Hann blekkti litlu börnin sín,
sem mótmæltu prúð og fín,
og trítluðu um bæinn
með spónaspjöldin sín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2008 | 04:09
HEILRÆÐI FYRIR 12 DES...ÞAÐ ER LÍKA FULLT TUNGL...HOUOULLLL
Heilræði fyrir 12 des...
Hefur þú nokkurn tíma óskað þess að aðrir í fjölskyldunni vissu hversu vænnt þér þykir um þá og hvað þeir eru þér mikils virði?
Farðu og segðu þeim það.
Jamm ..svo er karlinn hann Máni gamli á fylleríi í dag..þannig að það verða pottþétt ýmsar uppákomur og mikið um að vera ekki síst föstudagskvöld og aðfararnótt laugardags...Þetta ber öllum saman um sem vinna á skemmtistöðum og leigubílstjórum... Ég kannast sjálf við það frá því ég vann á skemmtistað..púff...þegar maður sá Mána gamla glotta blindfullan við manni...stóð heima, nóg að gera með allskonar vesen, vol og væl, grenjur, slagsmál og þeim dúrnum..
Þannig...eins gott fyrir okkur krabbadýrin (er með sól í krabba) og þá sem eru rísandi krabbi, (framkoma og persónulegur stíll) með tungl í krabba, (hefur með tilfinningar, minningar, fortíð, bernska), kanski líka með merkúr í krabba eins og ég er (stjórnar tjáskiftum..)að fara sérstaklega varlega með talandann.....
En hér er skemmtileg og góð líka frí horoscope síða
http://www.nude-horoscope.com/
Eigið svo öll góða helgi..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Passar það sem fer hér á eftir ekki nokkuð vel við ástandið í dag?
Ég skrifaði reyndar þetta upphaflega inn á http://www.alvaran.com árið 2003..en það spjallborð hefur verið lagt niður.. og svona uppfært x aftur og aftur..ástandið hefur því miður ekkert breyst til batnaðar...Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið sannspá fyrir 10 árum síðan
Í sambandi við grunnskóla sem allir eru skyldaðir til að vera í af ríkinu, þó svo sumir hætti fyrr en honum er lokið, oft vegna eineltis.
Það sem mér finnst rangt er þetta:
Það átti ALDREI að setja grunnskólana á sveitarfélögin, þar sem einstaklingurinn er SKYLDAÐUR af ríkinu til að vera í grunnskóla í 10ár, þá á ríkið sem er náttúrulega við öll sem búum hér á landi, þó svo oft látum við sem ríkið sé eitthvað batterí sem reki sig sjálft að standa straum af þeim kostnaði , öll viljum við jú að börnin okkar mennti sig eða eins og sagt var í gamla daga "verði að manni."
Ef við viljum á einhvern hátt hafa jafnræði og jafnvægi þá er menntun á jafnréttisgrundvelli óháð búsetu og mannfægð eða vöntun á góðum kennurum, ekki tækið til þess að svo megi verða!
Annað sem mér finnst að mætti alveg skoða og ég tel að þegar upp verði staðið myndi skila þjóðarbúinu meiri arði, en það er af þessum forsendum sem ég gef hér:
Það er mikið atvinnuleysi, ungt fólk fær ekki vinnu, það á ekki/hefur ekki réttindi til atvinnuleysisbóta, hefur heldur ekki efni á að fara í skóla þó að vilji væri fyrir hendi.
Hvað haldið þið að þetta fólk komi til með að leiðast út í eða lenda í?
Kanski þetta margumrædda vændi ?
Dópneysla /sala.? Rán og innbrot?
ER það þetta sem við viljum sjá?
Því hvar á liðið að fá peninga ef engin er vinnan og ekki hægt að fá bætur nema frá féló.
Það sem mér persónulega finndist réttara að gera, því ég tel að það kæmi betur út fyrir þjóðfélagið í heild þegar upp yrði staðið er þetta:
Að ríkið myndi borga einstaklingum fyrir að vera í skóla eftir að grunnskólanámi lýkur.
Það myndi þýða það að þegar atvinnuástand batnar þá væru til einstaklingar sem eru menntaðir en ekki búnir að mæla göturnar og vera í ýmsu misjöfnu, jafnt konur sem karlar.
Það yrði að mínu mati ódýrara fyrir ríkið þegar til lengri tím er litið.
Þessir einstaklingar myndu síður leiðast út í það sem ég taldi upp fyrr og þetta fólk yrði þjóðfélasvænni þegn, heldur en sá sem hvorki hefur haft menntun eða vinnu.
Það nefnilega kostar ekkert smá fyrir ríkið ef að eru sífelld innbrot, sem skapar þörf á stærri fangelsum, fleiri meðferðarheimili fyrir þá sem lenda í eiturlyfjaneyslu, meiri félagslegan og fjárhagslegan stuðning fyrir þá sem leiðast út í vændi og meiri lyfja og lækniskostnaður myndi örrugglega verða líka.
Þannig að ég tel að það myndi spara stórlega til lengri tíma litið og við eiga til fólk sem gæti gengið inn á vinnumarkaðinn þegar atvinnuástand yrði gott, þegar það kæmi þetta virkilega svokallaða góðæri.
Þeir sem eru búnir að vera án atvinnu í langan tíma, hafa jafnvel aldrei fengið vinnu eftir að grunnskóla er lokið, eru ekki einstaklingar sem vinnuveitendur vilja fá í vinnu því miður.
Þá myndu atvinnurekendur frekar leita eftir erlendu vinnuafli.(þekki það persónuleg þar sem ég hef átt fyrirtæki með mínum x).
Ég veit ekki betur en að i Danmörk sé það þannig að ríkið borgi einstaklingum " laun" á meðan þeir eru í námi eftir grunnskólanámi er lokið.
Þetta tel ég að sé það sem við Íslendingar ættum að taka upp eins og Danir frændur okkar.
En þetta er jú bara mín hugmynd um hvernig þjóðfélagið megi breytast, til hins betra að mínu mati þegar á heildina er litið.
Kveðja Agný.
þessi skrif sem fara hér á eftir eru svör inni á Alvaran..en ég setti bara svör mín hér...
Kæri .....
Það sem ég átti við með því að ungmenni fengju borgað fyrir að vera í skóla, þá átti ég EKKI við til háskólanáms.
Heldur þeirra sem fara í fjölbraut, verkmenntaskóla eða menntaskóla. Það yrði síður til að þessir einstaklingar tækju sér pásu frá námi sem oft vill verða of löng eða það löng að viðkomandi hefur sig ekki upp í það að fara í nám síðar meir.
Þetta myndi líka skapa meira jafnræði og jafnvægi milli einstaklinga ef þessi háttur væri hafður.
Ég gaf líka þær forsendur að væri mikið atvinnuleysi að þá myndi þessi aðferð skila betri þjóðfélagsþegnum út í þjóðfélagið síðar, heldur en ef að viðkomandi einstaklingar mældu göturnar og lentu í hinu eða þessu.
Þannig fólk vilja engir atvinnurekendur fá og atvinnurekendur vilja heldur ekki einstaklinga sem eru búnir að vera á atvinnuleysisbótum lengi. Þetta fólk gengur ekki fyrir í vinnu, ég hef verið í fyrirtækjarekstri og þó að vantaði mannskap þá leitar þú eftir fólki annars staðar fyrst áður en þú fórst að skoða þá sem eru skráðir á atvinnuleysisskrá. Þannig er bara raunveruleikinn í þessu!!!
Það eru nú ansi margir eilífaðarstúdentar í háskólum bæði hér og annars staðar, og tel ég að ef að þeir fengu laun á meðan sé ekki rétt. Sumir myndu líta á það sem ágæta vinnu að vera endalaust í skóla og falla kanski reglulega í þessu eða hinu til að vera " áfram á launum " en stúdentinn og verkmenntabrautir eru síður til þess fallnar að ofnota það.
Annað, það eru ansi margir sem hafa ekkert það góð fjárráð þó svo kanski þú þekkir það ekki, og eiga kanski mörg börn að það er hægra sagt en gert að kosta ungmennin til náms og ekki er neitt auðvelt í dag að fá vinnu þennan stutta tíma sem er núna frá að skóla lýkur að vori og byrjar svo aftur um 25 ágúst.
Þó að einstaklingurinn fái vinnu þá er það ekki mikið sem viðkomandi fær í vasann frá miðjum júni til miðs ágústs. Yfirleitt líka lélega launað og langlægstu taxtarnir og svo ef að er atvinnuleysi þá getur þú bara gleymt því að þú fáir vinnu því að það eru ekki óharðnaðir unglingar sem vinnuveitendur vilja þá fá , yfirleitt hæfari einstaklingum þannig séð, úr að velja þegar svoleiðis ástand er.
Hver heldur þú annars að sé ástæðan fyrir öllum þessum erlendu aðilum í fiskivinnu hér á landi .....?Fróðlegt væri að lesa um þína skoðun á því. Kveðja Agný.
Oct 18 2003, 20:30
Kæri ........
Í sambandi við fiskivinnuna þá veit ég það frá Íslendingum sem ég þekki í fiskivinnu, nánar til tekið suður með sjó eins og sagt er að fiskverkunareigendur og útgerðir vilja ekki Íslendinga í vinnuna í dag á þeirri forsendu að þeir eru að borga erlendu aðilunum um það bil helmingi lægra á timann en Íslendingurinn á rétt á.
Þannig að það kemur víst fyrir að Íslendingum er oft vísað frá en á sama tíma sóttur til útlanda vinnukraftur.
En þetta er fínt, svo skeður það sama og skeði í danmörk um "74-75 ég bjó þá úti, en það er að þá kom upp atvinnuleysi en ekki mikið og þá heyrðist sko í Dönunum þetta " forbannede fremmede arbejdere kom og stjal vores arbejde." = ,,Helvítis útlendingarnir komu og stálu vinnunni okkar....
Málið var bara það að vinnan sem útlendingarnir voru í var drullu versksmiðjuvinna sem Danirnir vildu ekki sjá og í raun nákvæmlega það sama og er hér nú í sambandi við fiskivinnuna.
En það eru í raun bæði Dönum og okkur Íslendingum sjálfum um að kenna að ástandið varð og er svona.
En við erum bara flest okkar alltof góð í því að ásaka og skella skuldinni á annað eða annað.
En í sambandi við þessa konukind sem þú vísar í þarna í restina, þá myndi ég ekki telja hana með fulle fem ekki fjóra einu sinni, það er nú hægt að vera heimskur en SVONA forheimskaður..... nei fjárinn að ég trúi því.
Kveðja Agný.
Kæri/kæra .........
Það sem þú segir hér, er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil að einstaklingar fái " laun " á meðan skólanámi stendur eftir að grunnskólanámi líkur.
Til að gefa þessum aðilum tækifæri til að halda áfram námi.
Annað sem myndi ske þá líka, er að það væru fleiri störf í boði fyrir aðra aldurshópa á móti þeim sem héldu áfram námi, í staðinn fyrir að fara út á vinnumarkað þarna strax að grunnskóla loknum. En hvort að öllum fyndist þessi eða hin störf nógu góð er svo önnur saga.
Ég er bara svo gamaldags að ég tel að vera atvinnulaus til lengri eða skemmri tíma sé bæði mannskemmandi og sálardrepandi. Margir hafa t.d. framið sjálfsmorð vegna þessa. Heilsu almennt hrakar, sem leiðir til lyfjagjafa, sérstaklega þá þunglyndislyfja.
Þannig að ég vísa aftur í það sem ég sagði í byrjun greinarinnar, en það er að til lengri tíma litið ef horft yrði á alla kostnaðarliði / útgjöld fyrir ríkið, sem koma af atvinnuleysi, heilsuleysi og sjálfsmorðum, því að þetta hefur aukin útgjöld fyrir aðstendendur allra aðila sem tengjast þeim sem lenda í þessu.
Á móti segi ég að til lengri tíma litið kæmi betur út fyrir alla og ríkið (sem er við!!!!) ef farið yrði að borga nemendum " laun " það er að segja tilvonandi nemendum í fjölbraut, verkmenntaskóla og menntaskóla að þá myndi hinn útgjaldaliðurinn lækka og ég segi aftur....
Við myndum fá einstaklinga út í þjóðfélagið eftir að námi í framhaldsskóla lýkur sem síður hefðu leiðst út í óreglu og eitulyfjaneyslu og annað miður gott.
Sem sé þegna sem væru færari að koma út á vinnumarkaðinn en þeir sem hefðu mælt göturnar allan tímann.....Báðir þessir liðir kosta okkur skattborgarana x mikið....en í hvorn hópinn viljum við að aurarnir okkar fari?
Frekar vil ég að það sem skattpeningarnir mínir fari í séu "viðveru" /"náms"laun mætti kanski kalla þetta, heldur en að sömu einstaklingar væru að fá sömu krónu tölur frá Féló -..
Það er alltaf meiri hætta á að einstaklingar leiðist út í þetta sem ég taldi upp, ef viðkomandi hefur hvorki vinnu eða er í námi.
Það þurfa allir að fá útrás fyrir sína orku sem öllu jöfnu fer í nám og vinnu, en ef þú hefur hvorugt, þá fer hún bara í eitthvað miður gott.
Má kanski líkja þessu við þetta " betra er slæm athygli en engin".
Kveðja Agný.
Kæri ..........
Ég lenti í því þegar ég er tæplega tvítug og var að koma fyrst út á vinnumarkað að vinna hjá fyrtæki sem var stórt þar sem ég bjó. Málið er að það svindlaði verulega á launum síns starfsfólks og ef að einhver sagði eitthvað við eigendurna, þá var svarið á þá leið að viðkomandi gæti bara farið, það væri nóg um aðra sem vildu fá vinnu. Það var mikið af konum sem áttu börn sem unnu þarna og þær þorðu ekkert að gera eftir þessi svör.
Svo fór ég í félagið sem við vorum í og kvartaði undan röngum launatöxtum og þá var mér sagt að þetta færi í " skúffuna" og ég spyr hvað væri verið að meina, en var þá sagt að það væri þangað sem kvartanir á hendur þessu fyrirtæki færu.
Þannig að stór fyrirtæki stjórna ansi miklu í minni bæjarfélögum og fólk þorir oft ekki að rísa upp út af því. En þetta leiðréttist ekki fyrr en konurnar fóru í vinnustopp fáum árum seinna, en ég efast um að þær hafi fengið leiðréttingu " aftur í tímann". En við höfðum launa leiðréttingu fram.....Ég var ekki í fullri vinnu þar þá...það var bara aukavinnan mín..
*******************************************
Bætti þessu við núna 23 Febrúar 2013
Ég tel reyndar min "Menntastefnu" hugmynd alls ekki vera verri en hver önnur..en numer eitt þá gagnast lítið þessi eða hin stefnan í menntamálum ef að enginn hefur svo efni á því að fara í Framhaldskóla að Grunnskólanámi loknu og því miður sé ég ekki betur en við séum að sigla inn í þær aðstæður núna-foreldrar hafa hreinlega ekki efni á að kosta börnin sín til náms þar sem margir hafa jú ekki vinnu..
Ég get ekki séð að það sé búið að vera "góð"æri hér síðustu 10 ár..held verði að flokka það sem "hall"æri ef á að kalla það eitthvað..ja kanski þá góð"æði" sem fittar best allir búnir að vera sem óðir væru að elta gullkálfinn fræga..en sá kálfur hefur fyllti engann maga á dögum Krists og svo mun ekki verða heldur í dag..
Og svo er eitt, að unglingar sem eru búin að ljúka grunnskóla en fá enga vinnu fá engar atvinnuleysisbætur þar sem grunnskólanám telst ekki sem vinna ..
Þannig..unglingurinn atvinnulaus allt sumarið eftir að grunnskóla lýkur og viðkomandi orðinn of gamall í unglingavinnuna..Þú þarft að vera búinn að vera x lengi í vinnu til aðeiga rétt á bótum
En ég held líka að það verði hreinlega að fara aftur á bak í einu atriði en það er að skólagögn voru ókeypis -ja sko "við" = ríkið borgaði þau þegar ég var í því sem kallast í dag grunnskóli.. En reyndar myndi ég viljað námsgögn væru líka frí á meðan á framhaldskóla stendur..Það myndi kanski hjálpa mörgum mikið ..
En til þess að fá þessi námslaun eins og ég vil kalla það þá verður viðkomandi að sýna fram á ástundun og árangur alveg eins og er í dag..Það myndi ekki þýða að einstaklingurinn skráði sig í framhaldskóla og borgaði kanski staðfestingargjaldið og myndi svo aldrei mæta..og fá svo namslaun um hver mánaðar mót.
Upphæðin sem umræðir verður að vera sú sama og ef að viðkomandi væri að fá mánaðarlegar bætur frá Féló..því það er jú þaðan sem þessir einstaklingar sem eru atvinnulausir, -ekki í skóla-ekki á atvinnuleysisbótum-eru að fá pening til þess að skrimta hvern mánuð..
Þetta eru sem sé mínar pælingar -voru fyrir 10 árum síðan og enn er ég sömu skoðunar að þetta sé eina leiðin ef við ætlum ekki að ala upp "loosers"/tapara.
Það er jú kanski stefna allra stjórnmálaflokka þegar upp er staðið ?
Verið að búa til "loosers" and "winners" ..se-m sé draga í 2 dilka.. 2 þjóðfélagsflokka en það eru fátækir og forríkir...? Það er ekki orðið neitt sem heitir "meðal" Jón í dag..engin millistétt til lengur..
Held það sé kominn tími til að við förum að horfa á hlutina ins og þeir eru en ekki eins og við vildum að þeir væru!
En enn hef ég ekki sé neinn flokk síðustu 10 ára afreka það..þannig að ég skal játa að ég hef ekki mikla trú að að einhver hafi þann kjark núna ..kjaftagleiðir eru þeir sem bjóða sig fram allir sem einn..En hefur svo einhver virkilega kjarkinn til að fylgja sinni stefnu eftir þegar á hólminn er komið?
Vona allavega að slagorðið yfir okkur Íslensku þjóðina sé ekki þetta
,, kjafta-gleiðir kjark-leysingjar"...
Bloggar | Breytt 18.9.2014 kl. 03:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.12.2008 | 04:02
Pólitikín sú lóðatík og umhverfi hennar ekkert breyst síðan 2005 samkvæmt þessu...
Misjafnt hefur sennilega árið verið hjá okkur öllum. Sumum gott ár öðrum því miður ekki. En svona er þetta jú bara.. Við endum flest öll með þá ósk í hjarta að nýja árið verði betra en það sem er að ljúka..
En ég verð að viðurkenna að politískt séð þá finnst mér nú ansi mikið hafa borið á misræmi í loforðum og efndum hjá ráðamönnum þjóðarinnar og ansi mikill munur á því hvað þeim finnst eðlilegt að hinn almenni íslendingur eigi að vera með í laun miðað við þá sjálfa..
Þannig að ég reikna með að margir endi ekki árið með neitt alltof fallegum hugsunum til þessara aðila sem sjá ekkert athugavert við það að fá hátt í mánaðar laun, það sem eru árstekjur öryrkja/ellilífeyrisþega og annarra minnihlutahópa.
Svo eiga þessir aðilar enn lengri frí en hinn almenni íslendingur allt út frá gömlum lögum sem voru jú barn síns tíma, þ.e. á meðan að meiri hluti alþingismanna voru bændur..
En væri nú ekki eðlilegt að henda þessum lögum út?
Ekki síst vegna þess að það er eiginlega bæði búið að útrýma bændum og rollum? Það finnst mér allavega...
Þetta finnst mér að eigi að vera ein af lagabreytingum á nýju ári.
Það er að alþingismenn sitji jafn lengi á þingi og börnin okkar á skólabekk og þeir komi saman aftur á sama tíma og skólarnir byrja og að jóla og páskafrí hjá þeim séu jafn "stutt" og er hjá börnunum okkar..
Svo þegar þetta lið kemur saman núna eftir jólafrí þá fer mestur tíminn fram að kosningum að lofa gjörðir stjórnarinnar frá síðustu kosningum og rakka niður hina...
Komið með nýja kosninga/loforða svika þulu, sem við jú flest gleypum allt hrátt..enn á ný..
Minni okkar er ekki lengra en þessi 4 ár..öll gömlu /sömu loforðin gleypa flestir hrátt...aftur og aftur...
Þannig að við munum bara eftir Halldóri við stýrið á skútunni þegar hún sökk...
Fyrsti stýrimaður býður jú yfirleitt eftir því að fá tækifæri til að verða skipstjóri á skútunni..
En það er svolítið ljótt af skipstjóranum að rétta honum stýrið er skútan er við að steyta á skeri og er að stranda...
þannig að ég tel að sjálfstæðisflokkurinn eigi þegar upp er staðið eftir að græða á útgöngu Davíðs..en framsókn tapa..því langtíma minni fólks er jú svo lélegt..
Tek það fram að ég er hvorugum þessum flokkum hlynnt...Finnst venjulega sama skítafýlan að báðum...
Politískt séð er ég ekki ánægð með árið 2005..en þetta lið hefur jú að vísu staðið sig nokkuð vel í einu..en það er að svíkja lítilmagnann og traðaka á honum á skítugum skónum alveg upp í kok..
Réttara nota þann hóp sem fótaþurrku...Segi bara svei attan...

Þannig að ég er reið fyrir hönd þeirra sem minna mega sín hér á landi..
Það þýðir ekki fyrir þetta lið að koma með einhverjar fallegar innihaldslausar lofrullur fyrir mig núna við lok þessa árs.
Alltaf 1. jan hvert ár...sama gamla þulan..því miður gleypa flestir það hrátt.. aftur og aftur..
Agný.
sem átti ágætt ár en ég ætla ekki að þakka ríkisstjórninni það..
skattar, tollar og gjöld.
Viskunni ei það beri vott,
vandamálin sem hún er völd.
Bloggar | Breytt 22.10.2013 kl. 04:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Bill Gates eyðir 1,6 milljörðum dala til að bólusetja öll bör...
- Viðvörun frá Þýskalandi: Dauðsföll vegna "bóluefnis" gegn KÓv...
- Hvítir trefjalíkir blóðtappar finnast í miljónum þeirra sem t...
- Japan varar við mikilli aukningu dauðsfalla meðal bólusettra ...
- Slóvakía varar við því að banvæn ótilgreind efni fundust í Co...
Bloggvinir
-
666
-
annasteinunn
-
artboy
-
athena
-
berglindnanna
-
bergthora
-
biddam
-
birgitta
-
bofs
-
brylli
-
coke
-
daystar
-
dofri
-
doriborg
-
ea
-
ellyarmanns
-
estersv
-
fridaeyland
-
gammon
-
gmaria
-
gudrunmagnea
-
gullvagninn
-
gunnipallikokkur
-
habbakriss
-
halkatla
-
hallarut
-
halldorbaldursson
-
hallurg
-
handtoskuserian
-
heida
-
heidathord
-
heidistrand
-
heimskringla
-
hjolagarpur
-
hlynurh
-
hlynurha
-
id
-
ingo
-
ipanama
-
ippa
-
jensgud
-
joninaben
-
jorunn
-
josira
-
kallimatt
-
ketilas08
-
kiddih
-
kiddijoi
-
kiddip
-
killerjoe
-
killjoker
-
kiza
-
kollaogjosep
-
konur
-
limped
-
lovelikeblood
-
lydurarnason
-
malacai
-
mia-donalega
-
molta
-
morgunstjarna
-
nonniblogg
-
ofurbaldur
-
olafurfa
-
omar
-
omarragnarsson
-
overmaster
-
perlaheim
-
poppoli
-
prakkarinn
-
predikarinn
-
proletariat
-
ragnargests
-
rheidur
-
rosabla
-
saethorhelgi
-
salist
-
sigurjonn
-
sigurjonth
-
sirrycoach
-
sjos
-
stebbifr
-
svarthamar
-
sveinnhj
-
tharfagreinir
-
trollchild
-
tru
-
upplystur
-
vertu
-
vglilja
-
vitale
-
alla
-
dufa65
-
andres08
-
gumpurinn
-
danna
-
arit-bloggar
-
apalsson
-
taoistinn
-
asgrimurhartmannsson
-
heiddal
-
brahim
-
gattin
-
brandarar
-
rafdrottinn
-
saxi
-
eysi
-
fafnisbani
-
fiskurinn
-
geiragustsson
-
morgunn
-
gudjonelias
-
gjonsson
-
lostintime
-
tilveran-i-esb
-
conspiracy
-
skodun
-
holi
-
vulkan
-
heim
-
hildurhelgas
-
drum
-
truthseeker
-
holmdish
-
don
-
danjensen
-
ingaghall
-
johannvegas
-
jonasg-eg
-
jonasg-egi
-
joningic
-
jonmagnusson
-
alda111
-
bisowich
-
andmenning
-
kristinthormar
-
lotta
-
ludvikludviksson
-
astroblog
-
vistarband
-
marinomm
-
manisvans
-
minnhugur
-
bylting-strax
-
olafur-62
-
pallvil
-
ljosmyndarinn
-
perlaoghvolparnir
-
bjornbondi99
-
shhalldor
-
infowarrioreggeiri
-
sigvardur
-
thorthunder
-
thee
-
tigercopper
-
vefritid
-
zordis
-
tsiglaugsson
-
thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.7.): 2
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 63
- Frá upphafi: 319733
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 50
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
158 dagar til jóla
Um bloggið
Hitt og þetta...aðallega hitt...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Nýjustu albúmin
Tenglar
Uppáhalds síður
Margvísleg málefni.
Ýmsir vefir.
- Velvirk börn Félag hæfileikaríkra og skapandi einstaklinga
- Heilsubankinn Meðferðar og þjónustuaðilar
- Sannleikurinn minn Fróðleikur um ýmis heilsumál
- Heimasíðan mín Ýmislegt efni.
- Gagnauga Gagnauga er upplýsingavefur um alþjóðamál
- MSSPJALLIÐ Opið Spjallborð um MS
- Ablechild.org Parents for Label and Drug Free Education
- ASPARTAME KILLS Rumsfeld og Aspartame
- Óvenjuleg og umdeild mál 9/11, samsæriskenningar...
- The National Foundation for Gifted and Creative Children Samtök hæfileikaríkra og skapandi barna
- Upplýsingasíða um MSG If MSG isn´t harmful, why is it hidden?
- Spjallborð um 911 og ýmislegt plott
- Þessi síða er alveg must read ýmislegt sem þú sérð bara hér
- The SPECTRUM Ýmsar greinar
- Label Me Sane Fjallað um ofnotkun lyfja.
- Alliance for Human Research Protection Samtök gegn tilraunum á fólki
- Organic Consumers Association Neytendasamtök fyrir lífrænt
- Freedom Or Facism ? Frelsi eða Facismi?
- Health Truth Revealed Hulunni svipt af heilsu málefnum
- Quackpot Watch "The last days of the Quackbusters "
- True Torah Jews/Jews Against Zionism Traditional Jews Are Not Zionists
- Question 911.com Free DVD download / frítt niðurhal
Talnaspeki / Numerology
Fróðleikur um þessa speki
- Sun - Angel Numerology Frítt dæmi þarna
- Free Numerology Reading Meira en bara talnaspeki..
- Your Reading / Agny Lýsingin á mér...
- INDIGO intentions Tarot, numerology, Indigo children, Reiki, Angels reading
Fyndið stuff.
Myndir, brandarar og glens.
- Cartoons Teiknimyndir
Andleg málefni
Allt sem tengist þeim málum.
- AEROSOL OPERATION CRIMES & COVER-UP SPRAYING US AS A BUG..
- Crystalinks Þessi síða er hreinlega með allt.
- Tarot Cards & Free Readings Frí Tarot spá
- Mind Power News Kraftur hugans.
- Progressive Awareness Research Allt mögulegt andans stuff.
- Tilvitnanir / quotes Ýmsar tilvitnanir
- New Jersey ghost hunter center Drauga "veiðar"
- The Tree of the Golden Light Ýmis andleg mál
- Mayan Calendar Articles Tímatal Mayanna
Stjörnuspeki / Astrology
Fróðleikur um þessa speki.
- The Future Minders Frítt dæmi þarna
Síður um ADD / ADHD
Upplýsingar um athyglisbrest / ofvirkni.
- Dr. Mary Ann Block ,, Find the course, fix the problem".
- A Multisensory Learning Program Kennslugögn fyrir ADD / Autism / Dyslexia
- Exposing the Fraud of ADD and ADHD Fred A. Baughman Jr., MD Neurologist, Pediatric Neurology
- Stimulant Drugs for ADHD and ADD Örvandi lyf við ADHD og ADD
- "Are Psychiatrists Betraying Their Patients?" Eru geðlæknar að svíkja sjúklingana sína?
- "Our Toxic World" " Okkar eitraði heimur"
- No proof mental illness rooted in biology Engin líffræðileg sönnun fyrir geðsjúkdómum
- Death From Ritalin Snannleikurinn á bak við ADHD
- Methylphenidate ( virka efnið í Ritalin) Drug and Chemical Evaluation Section
- What Drugmakers of ADD & ADHD Drugs vilja ekki að þú vitir
- Answers for ADHD Questions Svör við ADHD spurningum.
SSRI lyf og önnur þunglyndislyf
Ýmsar síður um hugarfars breytandi lyf.
- Dangerous Medicine forum Spjallborð
- Antidepressants Facts Staðreyndir um þunglyndislyf.
- SSRI Stories Ekki er sannleikurinn fallegur...
- International Coalition For Drug Awareness Verum meðvituð ...
- PROTECT YOUR CHILDREN NOW Verndum börnin okkar!!
- THE DARK SIDE OF PSYCHIATRY Dökka hlið geðlækninganna
- How psychiatry is making drug addicts out of America´s shool children Amerísk skólabörn gerð að læknadóps fíklum.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine. SEARCH ENGINE
Asperger syndrome og Autism
Síður sem fjalla um Asperger og einhverfu
- Aspergers Syndrome in Children Góð síða (mín skoðun)
Blogg úr ýmsum áttum..
Vinir / áhugaverðir einstaklingar.
- Sigurjón Þórðar.
- Nornin
- Tigra
- Anna panna
- Þarfagreinir
- Katrín ódæla
- Klisja
- Olasteina "Fjarskyld frænka"
- Nornin Vinkona af Baggalút.
- Geiri 3d.
- Laramin
- Sigunzo
- Ditto bloggar Yndisleg og spes manneskja.
AGLOCO
- AGLOCO Borgað fyrir að browsa..
http://skorrdal.com/
MICROCHIP - RFID
- Microchip Implants News Articles MIND CONTROL; ÖRFLÖGUMERKINGAR; RFID
UMDEILD MÁLEFNI
- WIDE EYE CINEMA WIDE EYE CINEMA is dedicated to showcasing the very best alternative truth-related documentaries & cinema uploaded onto the World-Wide Web.
MY FAVORITE SITES
- This site is number 1 on 10 black list sites of US gov. Here you find it all.Specially what the elite do not want you to find
- Alvaran Forum about what some call conspiracy
- Prophecies of Sollog Sollog is a POLITICAL PRISONER of the USA!
- Ingaoramas video VIDEOS
- So you wanna talk conspiracies? try this on for size. JUST GO THERE...
- ConCen An eye openinger
- What you should not know...is here.. Knowing litle about lot is better than know lot about a little...
HAARP
- Chemtrails Data Page Chemtrails - Frequently Asked Questions
CHEMTRAILS
- CHEMTRAIL CENTRAL Þetta er forum um Chemtrails og málefni tengd efna úðun úr lofti..
- Chemtrails news, articles and information Cemtrails=Efnarákir
- CHEMTRAILS -HAARP-GEOENGIERING-DEPOPULATION AT WORK CHEMTRAILS síða- fyrrverandi FBI starfsmaður leysir t.d. frá skjóðunni- núna látinn..
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir- Ísland er ekki undanskilið þessu ógeði!
- Chemtrails = Aerosol spraying to change the atmosphere. Chemtrails = Aerosol spraying of barium, "fibers", pathogens.
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir
TRANSLATE-ÞÝÐA
- Translate your website into 52 languages Just copy and paste the Translate This Button anywhere on your site, it's free and easy. There are no files to upload and it works on almost any website. The Translate This Button is a lightweight JavaScript translation widget. It translates any page quickly using Ajax and the brilliant Google Translate.
VERICHIP-WE THE PEOPLE WILL NOT BE CHIPPED!
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heilsumálefni
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Óvenjuleg og umdeild mál
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði