Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
31.12.2015 | 17:36
2015 AÐ LEIÐARLOKUM KOMIÐ...VISKUKORN & BRANDARA BLAND Í POKA...
Vonum að upphafið á nýja árinu verði ekki svona hjá sumum "jólasveinum"
Ég læt hér fylgja svona hin og þessi heilræði, orðatiltæki, hugleiðingar.. brandara.. svona eitthvað andlegt "bland í poka" ....það verður að hafa balance í því sem maður treður í kroppinn af góðgæti...verður líka að næra sálartetrið....
VISKUKORN
DÝRMÆTUSTU GJAFIRNAR SEM ÞÚ GETUR GEFIÐ ÁSTVINUM ÞÍNUM ERU FALLEG ORÐ OG GJÖRÐIR, SAMÚÐ, FYRIRGEFNING, ÞAKKLÆTI, SKILNINGUR OG VIÐURKENNING...
LEIÐIN AÐ VISKUNNI OG HAMINGJUNNI ER INN Á VIÐ. GERÐU ÞAÐ EKKI AÐ MARKMIÐI AÐ VERÐA HAMINGJUSAMUR, VERTU HELDUR HAMINGJUSAMUR FYRIR MARKMIÐIN..
AUGNABLIKIÐ ER ÞAÐ EINA SEM VIÐ EIGUM MEÐ VISSU...
ÞÍN ÆF ER EITT ANDARTAK, EITT UNDURSAMLEGT NÚ OG ANDARTAKSINS EILÍFT LÍF ÁTT ÞÚ..
EINA GLEÐISTUNDIN SEM OKKUR ER ÖRUGGLEGA GEFIN ER HÉR OG NÚ, ANDARTAKIÐ SEM VIÐ HRÆRUMST Í HVERJU SINNI..
ÁSTIN VILL FYRST OG FREMST GLEÐJA AÐRA, EN EIGINGIRNIN VILL FYRST OG FREMST GLEÐJA SJÁLFAN SIG..
SÁ SEM EKKI KANN EÐA GETUR TEKIÐ Á MÓTI GJÖFUM ÁSTARINNAR, GETUR HELDUR ALDREI LÆRT AÐ ELSKA.
BREYTTU SÁRSAUKANUM Í SIGUR OG MISTÖKUNUM Í MÁTT..
AUÐMENN VERÐA ALDREI SVO RÍKIR AÐ ÞEIR ÓTTIST EKKI UM AUÐÆFI SÍN..
BRANDARAR
BETRI SAMVISKA.
Þau voru á leiðinni heim eftir dansleikinn. Kalli, ef þú leitar á mig, æpi ég. Ha,ha, æptu bara. það er ekki nokkur sála í mílu fjarlægð. Nei, ég veit það, en ég hef betri samvisku, ef ég veiti einhverja mótspyrnu
AÐ FARA NIÐUR.
- Læknir, ég vildi gjarnan biðja þig um að færa niður kynlöngunina hjá mér, sagði sjötugur karl sem var nýgiftur einni tvítugri . Færa niður? Það var svei mér einkennileg bón. ,, Ekki svo mjög .Sjáðu til..hún er öll í höfðinu á mér kynlöngunin og þessvegna villdi ég færa hana neðar, þar sem ég get haft meiri ánægju og gleði af henni!!!
LÉTTUR.
-Mig langar að vita eitthvað um framtíðina, sagði unga, feimna konan við spákonununa. Látum okkur nú sjá . Maður mun koma inn í líf þitt fljótlega, mjög ungur maður. Segðu mér hvernig hann lítur út. ,, Það einast sem ég get séð , er að hann vegur aðeins 2,8 kg."
HEYRT Á KVENNAKLÓINU:
Hvernig var hann sá sem þú fórst með heim í gærkvöldi? -Eins og fyrsti vetrarsnjórinn. Kalda,, týpan"? Nei, hann ,, kom" óvænt og alltof fljótt
Ég óska ykkur svo gleðilegs nýs árs með þakklæti fyrir það sem er að líða og allar samverustundir á því... og einhveru stundir líka ..maður þarf ekki síður á þeim að halda ...
AGNÝ...
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 03:16
KYNLÍFSKÚRINN & BJÓRKÚRINN -2 GÓÐIR TIL ÞESS AÐ HALDA SÉR Í FORMI YFIR JÓLIN ;-)...
KYNLÍFSKÚRINN & BJÓRKÚRINN
Það hefur verið vitað frá örófi alda að kynlíf er hin fínasta heilsubót.
Fólk er að brenna umtalsverðum kaloríum og eru flestir sammála um að þetta sé einn skemmtilegasti æfingarmátinn samanborið við stigvél, tröppu eða hlaup.
Það er komin út splunkuný könnun þar sem þetta æfingarform var kannað niður í kjölinn og reiknað út nákvæmlega hversu mörgum kaloríum við værum eiginlega að brenna miðað við hinar ýmsu athafnir.
Hér eru niðurstöðurnar:
Að klæða hana/hann úr fötunum:
Með hennar/hans samþykki................ 12 kaloríur
Án hennar/hans samþykkis................ 187 kaloríur
Að opna brjóstahaldarann:
Með báðum höndum.................. 8 kaloríur
Með annarri hendi..................... 12 kaloríur
Með tönnunum........................ 85 kaloríur
Að setja á sig getnaðarvörn:
Með stinningu........................ 6 kaloríur
Án stinningar........................ 315 kaloríur
Undirbúningurinn!
Reynt að finna snípinn.............. 8 kaloríur
Reynt að finna G blettinn.......... 127 kaloríur
Stellingar:
Trúboðastellingin.....................12 kaloríur
69 liggjandi........................... 78 kaloríur
69 standandi......................... 112 kaloríur
Hundastellingin...................... 216 kaloríur
Hjólbörurnar......................... 326 kaloríur
Ítalska ljósakrónan................ 923 kaloríur
Fullnægingin:
Alvöru................................. 112 kaloríur
Að fake-a það........................ 345 kaloríur
Eftir fullnæginguna:
Liggja í rúminu og faðmast........ 18 kaloríur
Standa strax upp................... 36 kaloríur
Útskýra af hverju þú stóðst strax upp..823 kaloríur
Að fá stinningu númer 2 / Ef þú ert:
20 - 29 ára.......................... 36 kaloríur
30 - 39 ára....................... 80 kaloríur
40 - 49 ára.........................124 kaloríur
50 - 59 ára..........................972 kaloríur
60 - 69 ára.........................2915 kaloríur
70 ára og eldri...Enn verið að reikna kaloríurnar
Að klæða sig í á eftir:
Rólega................................ 32 kaloríur
Í flýti................................ 98 kaloríur
Með pabba hennar á hurðinni..... 1218 kaloríur
Með konuna þína á hurðinni....... 3521 kaloríur
BJÓRKÚRINN
Þeir sem eru af einhverjum ástæðum ekki eins hrifnir af kynlífi og þeir eru af bjór, ja eða fá bara aldrei neitt gott í kroppinn svona kynlífslega séð, þá er bjórkúrinn kanski lausnin... Allir vilja jú vera flottir og fitt.
Því hefur verið fleygt að bjórneysla sé grennandi og hafa eftirfarandi röksemdir verið nefndar því til stuðnings:Ø Bjór inniheldur nánast eingöngu vatn.
Ø Bjór inniheldur nokkuð magn áfengis, en það er bæði hreinsandi og þvagræsandi. Það leiðir til tíðra klósettferða, en slíkar ferðir geta jafnast á við bestu heilsurækt, sé rétt að málum staðið, hnébeygjur og hröð hlaup sé þörfin virkilega sterk.
Ø Bjórneysla fer títt fram á börum eða álíka stöðum þar sem ýmis hreyfing er stunduð. Sem dæmi um það má nefna dans, að standa upp og sækja meiri bjór og eltingarleikur við álitlega einstaklinga.
Ø Bjórneysla stuðlar að dýpri og lengri svefn og eins og alþjóð veit er ekki hægt að sofa og borða á sama tíma. Það getur þó hent fólk, neyti það of mikils bjórs, að það viti ekki hvar það er niðurkomið eða hvernig það komst á téðan stað þegar vaknað er. En slíkar uppákomur leiða gjarnan til öflugrar líkamsræktar, sé ástandið á þann veg að það þurfi að forða sér í snarhasti á hlaupum.
ÞÝÐANDI AGNÝ....
Vinir og fjölskylda | Breytt 17.12.2013 kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.12.2013 | 03:13
BLÖÐRUHÁLSKIRTILS MISTÖKIN SEM MILJÓNIR KARLMANNA GERA
http://preventdisease.com/news/13/112813_Prostate-Mistake-Millions-of-Men-Make.shtml
The Prostate Mistake Millions of Men Make
Nov 28, 2013 by JOSHUA CORN
Saðreyndin er sú að 1 af 2 bandarískum karlmönnum mun þjást af blöðruhálskirtils vandamálum um 50 ára aldurinn, og undravert sem það er 9 af 10 um sjötugs aldurinn..
.Það er goðsögn að þetta sé óhjákvæmilegur þáttur í öldrun karla..Hvað sem því líður gætir þú verið einn af þessum heppnu mönnum sem hafa engin blöðruhálskirtilsvandamál!Það er vel þekkt staðreynd að margir af okkur karlmönnum erum kærulausir þegar kemur að heilsu okkar. Kanski er það okkkar töff gaur viðhorf, eða það að við erum svo uppteknir.
En alltof oft hættir okkur til að hunsa minni háttar heilbrigðis vandamál þar til þau verða að meiri háttar mál. Það á sérstaklega við þegar kemur að blöðruhálskirtils vandamálum.
Þú gætir enn hugsað sem svo að þetta kemur ekki fyrir mig, en líkurnar eru ekki góðar.
Og trúðu mér, þú munt ekki vilja bíða þar til það er of seint vegna þess að almennu nálganirnar til að takast á við blöðruhálskirtils vandamál eru ekki síður vandamál. Þær taka ekki á orsökinni fyrir vandanum og geta jafnvel gert hlutina mikið verri.
STÓRA vandamálið með PSA prófið og blöruhálskirtils lyfin.
Á hverju ári gangast um 30 miljónir karlmanna undir prófun fyrir sérstöku blóðruhálskirtils mótefnavaka, ensím sem blöðruhálskirtillinn framleiðir. Viðurkennt af FDA árið 1994 hefur PSA prófið það sem almennt er notað til þess að leita að blöðruhálskirtils krabbameinim (Innskot Agný-Afhverju vera að leita því það er örugglega að lokum hægt að finna allt mögulegt ef alltaf er verið að tékka og þá er fjandinn líka oft laus- farið að meðhöndla með lyfjum sem jafnvel eru sko verri en sjúkdómurinn sjálfur-).
Blöðruhálskirtils krabbamein hefur fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum, en íhugaðu tölurnar:
Það eru 16% líkur á því að Bandarískir karlmenn muni vera greindir með blöðruhálskirtils krabbamein en einungis 3% möguleiki á því að þeir látist af völdum hans..Það er vegna þess að meirihluti blöðruhálskirtils krabbameins vex hægt.
Með öðrum orðum, þeir karlmenn sem eru það heppnir að ná hárri elli eru mikið lílegri til þess að deyja með en ekki af krabbameininu.....
Jafnvel þá er prófið varla meira virkt en að kasta upp krónu...
Eins og svo margir hafa reynt að benda á í mörg ár núna, þá getur PSA prófið ekki fundið blöðruhálskirtils krabbamein- og það sem er mikilvægast, þá getur það ekki greint á milli þessarra tveggja tegunda af blöðruhálskirtils krabbameini- það sem mun drepa þig og það sem mun ekki ...
Í staðinn sýnir prófið einungis hversu mikinn blöðruhálskirtils mótefnavaka karlmaðurinn hefur í blóði sínu.
Sýkingar, og lausasölu lyf eins ibuprofen og góðkynja bólga í blöðruhálskirtlinum, getur allt valdið hækkun á PSA í blóði mannsins, en engir þessi faktorar þýða krabbamein. Karlmenn sem fá lága tölu gætu samt verið að þróa með sér hættulegt krabbamein, á meðan að þeir sem fá háa tölu gætu verið algjörlega heilbrigðir.
Læknisfræði samfélagið er smá saman að snúast gegn PSA skimuninni.
Á siðasta ári, birti The New England Journal of Medicine niðurstöður úr tveimur stærstu rannsóknunum af skimunar málsmeðferð, einni gerðri í Evrópu og eini í Bandaríkjunum. Niðurstöðurnar úr Bandaríku rannssókninni sýndi að yfir 7-10 ára tímabili, minnkaði skimunin ekki dánartíðnina hjá karlmönnum 55 ára og eldri.Evrópska rannsóknin sýndi örlitla lækkun á dánartíðni, en fundu líka að það þyrfti að meðhöndla 48 menn til þess að bjarga einu lífi.
Það þýðir að 47 karlmenn geta að öllum líkindum ekki virkað kynferðislega lengur eða verið langt frá baðheberginu ( lausheldni á þvagi).
Ef þú ferð til læknisins þíns og kvartar undan því að þú þurfir alltaf að vera að fara að pissa, eða að þú eigir við vandamála að stríða í svefnherberginu ( í kynlífinu), þá mun hann að öllum líkindum skrifa upp á lyf sem gæti hjálpað við að minnka eitthvað af þínum einkennum, en það hefur í för með sér mjög alvarlegar aukaverkanir.
Staðreyndin er ú að FDA varaði við því fyrir stuttu síðan að þessi lyf gætu í reynd aukið líkurnar á því að þú þróir með þér blöðruhálskirtils krabbamein. Til að byrja með, hér er svona grunn vitneskja um það hvernig þetta virkar.
Í áratugi, hefur kenningin verið sú að blöðruhálskirtilsvandamál stafi af því að venjulegt testosterone breytist í testoterone sem er þekkt sem dihydrotestosterone, eða DHT, sem veldur því að kirtillinn bólgnar. Þessi viðsnúningur skeður á eðlilegan hátt þegar menn verða eldri og er hvati frá ensími sem kallast 5-alpha reductase.
Þannig, lyfjafyrirtækin bjuggu til lyf sem stöðvar þetta náttúrulega ferli ( Innskot Agný-Kanski þetta sé bara svona breytingarskeiðið karlmannanna sem búið er að sjúkdómsvæða hummm?) með því að blokkera 5-alpha reductase.
En eins og svo oft er tilfellið með þröngsýna lyfjafræði nálgun við að leysa heilsufars vandamál, þá missir þessi meðferð marks.
Niðurstaðan er sú að blokkera 5-alpha reductase ensímið eitt og sér, getur gert málið verra vegna þess að annað ensím, sem kallast aromatase, kemur í staðinn og byrjar á að breyta testasteroninu ( karlhormoninum) þínu í estrogen (kvenkyns hormón).
Svona bara ef að tilfellið er að þú vitir ekki, þá er fjöldinn allur af ástæðum fyrir því að þú sem karlmaður VILT EKKI auka estrogen magn.
Hversvegna karlmenn ættu að forðast estrogen:
( Innskot Agný- SOY inniheldur plöntu estrogen sem hermir eftir estrogen/kvenhormoninu )
- Það veldur stækkun á blöðruhálskirtlinum
- Slekkur á kynhvötinni og veldur getuleysi
- Veldur brjóstastækkun
- Ýtir undir þyngdaraukningu og hármissi.
Svo þú getur séð hversvegna blöðrhálskirtils lyf eru ekki góð langtíma lausn til að blöðruhálskirtillin sé heilbrigður! Til þess að leysa vandamálið, þá yrði að blokkera BÆÐI 5-alpha reductase ensímið OG aromatase ensímið.
Náttúrulegar lausnir (smá hængur þar á samt...)
Ef að þú hefur skoðað náttúrulegar meðferðir til að bæta og stuyrkja heilbrigði kirtilsins, þá hefur þú án efa rekist á saw palmetto þykkni. Þessi mikið rannsakaða hjálparhella fyrir kirtilinn er unnin úr erjum saw palmette jurtarinnar.
Saw Palmetto er himnasending þegar lýtur að heilbrigði blöðruhálskirtilsins vegna þess að það er vísindalega sannað að hún hamli bæði 5-alpha reductase og aromatase, hindri framleiðslu bæði DHT og etrógen ( kvenhormon)
Gullnir staðlar í klínískum prófunum hafa sýnt fram á það að Saw Palmetto:
· Nærir og verndar blöðruhálskirtilinn
· Hjálpar til við að minnka bólgu í blöðruhálskirtlinum
· Stuðlar að heilbrigðri kynhvöt
· Flýtir fyrir bata eftir æfingar
· Örvar heilbrigðan hárvöxt.
· Og það sem er best af öllu er, að Saw Palmetto er virkar hjá um 90% notenda, hefur engar aukaverkanir eða víxilverkun og það er öruggt, jafnvel í mjög stórum skömmtum
Því miður eru flest af Saw Palmetto fæðubótarefnunum drasl.
Láttu ekki blekkja þig með því að allt Saw Palmetto sé eins. Nýlegar prófanir frá viðurkenndri rannsókarstofu sýndi að nærri því helmingur leiðandi vörumerkja fyrir saw palmetto jurtakraft vantaði marktæka skilvirkni. Þannig...hvernig ferð þú að því að vita hvort að þú ert að fá góða vöru eða bara flösku af einhverju sulli?
Ég ætla að ljóstra upp sumum iðnaðarleyndarmálum um saw palmetto sem mun láta þig hugsa þig tvisvar um í sambandi við þú kaupir hvaða þekkta Saw Palmetto fæðubótaefni sem er.. Hér er listi yfir það sem þú vilt pottþétt forðast þegar þú kaupir Saw Palmetto fæðubótaefni:
SKORTIR STYRKLEIKA: Virka efnið sem gerir saw palmetto svona skilvrkt finnst eingöngu í þroskuðum berjum plöntunnar, og þessi ber verða að vera með mikinn styrk En mörg saw palmetto fæðubótaefni eru unnin úr heilum, óþroskuðum berjum ný sprottnum, ásamt öðrum hlutum plöntunar, sem innihalda lítið sem ekkkert af virku efnunum!
KEMÍSK LEYSIEFNI: Mikill meirihluti berjanna er unninn með sterkum leysiefnum en þau eru notuð til að vinna virka efnið úr berjunum.Þessi leysiefni eru hugsanlega eitruð og enda í hráefninu sem notað er til að búa til fæðubótaefnið.
VARNAREFNI OG EITUREFNI: Það eru miklir fjármunir sem fara í ræktun Saw Palmetto og ræktendur gera allt sem þeir geta til þess að ná sem mestri uppskeru.Margir þeirra nota gríðarlegt magn af varnarefnum og illgresiseyðum sem enda í plöntunni sem notuð er til að búa til saw palmetto fæðubótaefnið...
BER FRÁ FJARLÆGUM LÖNDUM: Saw Palmetto plantan er frumbyggi í Suðausturhluta Bandaríkjanna en samkvæmt útreikningum mínum þá er 99% af saw palmetto fæðubótaefninu sem selt er í Bandaríkjunum unnið úr saw palmetto berjum ræktuðum í Kína, þar sem eru eiginlega engar reglur til staðar sem tryggja örugga ræktun og vinnslu aðferðir.
6 Ráð til þess að finna góð fæðubótarefni
1. 1. Vertu viss um að fæðubótaefnið innihaldi daglegan skammt í það minnsta 300 mg af sterku saw palmetto berja þykkni.
2. 2. Ef það er mögulegt, skaltu hringja í fyrirtækið og spyrja hvert sé upprunalegt land berjanna. Gakktu úr skugga um að það sé EKKI frá Kína.
3. 3. Finndu fæðubótaefni sem notar lífræn Saw Palmetto ber. Það útilokar möguleika á mengun frá varnarefnum og öðrum eiturefnum.
4. 4. Ef að fæðubótaefnið var framleitt með því að nota sterk leysiefni, þá gæti það valdið meiri skaða en ávinningi. Bestu fæðubótaefnin eru unnin með því að nota engin leysiefni .
5. 5. Ódýr fæðubótaefni hafa litla virkni, svo að þú endar á því að þurfa að taka 4-6 pillur á dag. Samanþjöppuð bætiefnimun gefa í það minnsta 300mg í 1-2 pillum á dag. Það eykur þá líka líkurnar á því að þú munir eftir að taka þær daglega!
6. 6. Það er engin ástæða fyrir því að vera að yfirborga hágæða saw palmetto bætiefni. Mín ráðlegging er að eyða ekki meira en 20 dollurum fyrir glasið.
Byrjaðu á að vernda blöðruhálskirtilinn þinn áður en það er of seint!
Má eg biðja þig um að vera ekki einn af þeim karlmönnum sem hunsa blöðruhálskirtils málefni. Mundu. 90% af karlmönnum munu þjást af blöðruhálskirtilsvandamálum um sjötugt. Það að grípa ekki til aðgerða núna getur leitt til seinni tíma vandamála, svo ekki sé minnst á óþægindin, sársaukann og minnkaða getu.
Ef að þú hefur prófað saw palmetto áður og sást engan árangur, kanski er ástæðan sú að þú ert einn af þem miljónum manna sem varst blekktur til þess að taka einskis nýt bætiefni. Má ég biðja þig um að nota þær ráleggingar sem ég gef hér að ofan og reyna aftur!
ÞÝÐANDI AGNÝ.
Editor's Choice:
HEALING MALE PROSTATE BY LIFE CHOICE
http://www.life-choice.net/product/00/2640012/Healing-Male-Prostate-90-Vs
Vinir og fjölskylda | Breytt 23.5.2024 kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
11.7.2009 | 18:25
HJÁLP..4 kettlinga vantar heimili..2 strákar og 2 stelpur..Myndir
Þau fæddust 15 maí og eru algjörar dúllur...Öll orðin kassavön og éta og drekka þó þeim þyki enn góður sopinn hjá mömmu.. Mala og kurra og mjög kelin.. Rúfus heitir sá rauði ..Alexander er mikið hvítur og gra/svart bröndóttur en stelpurnar eru þrílitar og heita Doppa og Loppa...
En málið er að það er sko von á fleiri kettlingum næstu daga og miðað við að Sóta virðist sko vera að springa þá er alveg pottþétt að það koma fleiri en 4 stk og síðast átti hún 6...
Þannig...en ok..veit að ég þarf að vara að taka læðurnar úr sambandi og pabbann líka....en þessi blöndun virðist samt gefa einstaklega geðgóða, blíða og kelna ketti og mannelskandi..
þEIR SEM HAFA ÁHUGA SENDIÐ MÉR EMAIL EÐA SKRIFIÐ HÉR...
Jæja þá hefur enn einu sinni fjölgað í katta fjölskyldunni hér...Þær eru að þessu til skiftis en sem betur fer komu bara 4 hjá Blíðu ..hún virðist halda sig við þá tölu en hún eignaðist 4 stk 2 ágúst 2008..
Sóta eignaðist 5 stk 19 og 20 júlí 2008 og svo aftur 23 og 24 nóv 2008 heil 6 stk...en allur þessi hópur eignuðust ný heimili og vona ég bara að allir séu sáttir...
Hér sjáið þið allavega myndir af nýjustu meðlimunum... en það eru 2 stelpur sem eru svona skrautlega litar, en hitt 2 strákar og sonur minn er búinn að gefa þeim nöfn og heitir sá gulbröndótti Rúfus og sá sem er mikið hvítur og svar/grábröndóttur heitir Alexander...
Hér er fyrri daman að koma í heiminn...
En erum ekki alveg með það á tæru hvað við eigum að kalla dömurnar en aðra vill sonur minn kalla Loppu því hún er með stórar loppur og treður þeim í fésið á manni..
Hina vill hann kalla Doppu en hún er með svartar doppur á nebbanum..
Hér er svo Rúfus kominn í heiminn
Hér er svo seinni daman komin í heiminn.
Hér hefur svo Alexander bæst í hópinn..þreytt mamma þarna..
Læðurnar eru algjörar kelurófur og byrjuðu að mala um leið og þær opnuðu augun, strákarnir eru enn aðeins tilbaka en eru samt byrjaðir að mala og öll blíð en það er þá bara eins og hefur verið í öll hin skiftin sem læðurnar hafa gotið ..
Hér verið að fá sér mjólkurdreitil..
Allir byrjaðir að mala svona snemma og mjög mannelsk og vilja láta vera með sig en enn sem komið er þá eru það dömurnar sem hafa fengið meiri athygli því þær eru kröfuharðari ..
Blíða heldur vel utan um börnin sín..
Hér þurfti mamman að skreppa frá og þau eru
dags gömul..
Vinir og fjölskylda | Breytt 6.7.2009 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2009 | 13:41
ÞETTA ER SKO ALTÆKUR KÆRLEIKUR! Ég fæ tár í augun.Video
Ég varð bara að að setja þetta video hér. Það segir sko meira en nokkur orð um að kærleikur á sér engin landamæri og ekki bundinn við neitt eða heftur af neinu, nema þá helst af fordómum okkar mann"skepnunnar".
Þetta myndbrot hér af dádýrskálfi og kettlingi segir allt sem segja þarf um það.
Njótið vel
8.1.2009 | 10:39
LÍFSINS LÆRDÓMUR..
Ég er þakklát/ur öllumsem hafa komið fram við mig af hörku, þeir hafa kennt mér að vera mildur og hugulsamur.
Sem hafa vanmetið mig og talið lítilsvirði, þeir hafa kennt mér að standa með sjálfum mér.
Sem töldu mig einskis verðugan, þeir hafa neytt mig til þess að leita að fjársjóðnum innra með mér.
Sem komu fram við mig á ólöglegan hátt, þeir hafa kennt mér að vera einlægur.
sem aldrei hafa sýnt mér væntumþykju, þeir hafa sýnt mér mikilvægi kærleikans.
Sem öfunduðu mig, börðust við mig og særðu,þeir hafa kennt mér sjálfs gagnrýni og varkárni.
Sem aldrei hafa veitt mér neina athygli, þeir hafa kennt mér að koma fram við alla án fordóma.
Sem sært hafa mína virðingu, þeir hafa kennt mér að veita fyrirgefningu.
Sem aldrei tóku eftir því að ég væri hjálpar þurfi,þeir hafa kennt mér að leita hjálpar og stuðnings.
Sem hafa yfirgefið mig og skilið eftir einan,þeir hafa kennt mér hvað raunveruleg vinátta er.
Sem hafa hindrað mig og bælt,þeir hafa kennt mér að verja sjálfan mig.
Sem hafa valdið mér sársauka og sorg, þeir hafa kennt mér að þekkja andstæðu þjáningar, huggunar.
Sem hafa tekið þátt í þessu, hafa gefið lífi mínu merkingu og tilgang.
Ég ber þakklæti til hvers og eins ykkar.
Þið eruð ástæðan fyrir því hvernig og hversvegna ég hef lært svona mikið, og kennt mér að skilja hvað er mikilvægt fyrir mig í dag og að vera fær um að gefa það allt frá mér!
Vinir og fjölskylda | Breytt 9.1.2009 kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.12.2008 | 01:16
BLAND Í POKA...
Jæja ...þá eru þessi blessuð jól loksins komin sem maður kanski bæði hlakkar til og kvíðir fyrir.. Akkurat svona "bland í poka"...Alltaf ætlar maður að vera búin að gera x þetta og x hitt nógu tímanlega fyrir "þessi" jól...
Hlakkar til að setjast loks niður og snæða góðan mat með fjölskyldu og vinum..og dýrunum sínum.. Svo að gefa og þiggja hinar ýmsu gjafir, sem þurfa ekki endilega að vera x tuga/hundraða þúsund kalla virði nú eða x miljóna eða x miljarða eins og hjá vissum "útrásar" gaurum...(giljagaurum)...En "mín" jólastemming er, að þegar búið er að gefa og þiggja, að setjast með bók, konfekt og kaffi (og sígó...suss ekki segja frá..) og flatmaga í sófanum...hafa kveikt á kertunum og reykelsi...En þessi jól get ég ekki flatmagað..rifbeinadraslið sér fyrir því
Kvíðir fyrir að vera nú ekki búinn að öllu sem maður setti á "gera þetta" listann...Ja ..ég kláraði allavega ekki minn..ég get að vísu notað rifbeinsbrot sem orsakavald í þetta sinn...Ég er loks farin að skilja það að ég á ekki að vera að príla í stigum rétt fyrir jól...En ég verð að játa að verkirnir eru það þokkalegir að ég vildi alveg vera laus við svoleiðis afsökun .....Það er allavega nokkuð pottþétt að ég dansa ekki inn í nýja árið um þessi áramót..og .ég elska að dansa.. Verð líka að afþakka faðmlög og knús...ég sem er svo mikið fyrir knús..ja það verður þá að fara mjöööög varlega að mér..ekki nein kraftajötna faðmlög ...sussu nei...
Jamm...svo ætlar maður líka að vera búinn að kaupa gjafirnar löngu fyrir jól...réttast er að kaupa engar gjafir fyrr en eftir áramót á útsölunum...og halda þá svona "gefa og þiggja" dag.... Gott tilefni líka til að hitta vini og ættingja oftar...Jólin geta þá loks fengið að vera svona hátíð eins og alltaf er verið að syngja og segja.." kærleiks- og friðar jól"...
Ég læt hér fylgja svona hin og þessi heilræði, orðatiltæki, hugleiðingar.. brandara.. svona eitthvað andlegt "bland í poka" ....það verður að hafa balance í því sem maður treður í kroppinn af góðgæti...verður líka að næra sálartetrið....
DÝRMÆTUSTU GJAFIRNAR SEM ÞÚ GETUR GEFIÐ ÁSTVINUM ÞÍNUM ERU FALLEG ORÐ OG GJÖRÐIR, SAMÚÐ, FYRIRGEFNING, ÞAKKLÆTI, SKILNINGUR OG VIÐURKENNING...
LEIÐIN AÐ VISKUNNI OG HAMINGJUNNI ER INN´ Á VIÐ. GERÐU ÞAÐ EKKI AÐ MARKMIÐI AÐ VERÐA HAMINGJUSAMUR, VERTU HELDUR HAMINGJUSAMUR FYRIR MARKMIÐIN..
AUGNABLIKIÐ ER ÞAÐ EINA SEM VIÐ EIGUM MEÐ VISSU...
ÞÍN ÆFI ER EITT ANDARTAK , EITT UNDURSAMLEGT NÚ. OG ANDARTAKSINS EILÍFT LÍF ÁTT ÞÚ..
EINA GLEÐISTUNDIN SEM OKKUR ER ÖRUGGLEGA GEFIN ER HÉR OG NÚ, ANDARTAKIÐ SEM VIÐ HRÆRUMST Í HVERJU SINNI..
ÁSTIN VILL FYRST OG FREMST GLEÐJA AÐRA, EN EIGINGIRNIN VILL FYRST OG FREMST GLEÐJA SJÁLFAN SIG..
SÁ SEM EKKI KANN EÐA GETUR TEKIÐ Á MÓTI GJÖFUM ÁSTARINNAR, GETUR HELDUR ALDREI LÆRT AÐ ELSKA.
BREYTTU SÁRSAUKANUM Í SIGUR OG MISTÖKUNUM Í MÁTT..
AUÐMENN VERÐA ALDREI SVO RÍKIR AÐ ÞEIR ÓTTIST EKKI UM AUÐÆFI SÍN..
BRANDARAR
BETRI SAMVISKA.
Þau voru á leiðinni heim eftir dansleikinn. Kalli, ef þú leitar á mig, æpi ég. Ha,ha, æptu bara. það er ekki nokkur sála í mílu fjarlægð. Nei´, ég veit það , en ég hef betri samvisku, ef ég veiti einhverja mótspyrnu
AÐ FARA NIÐUR.
- Læknir, ég vildi gjarnan biðja þig um að færa niður kynlöngunina hjá mér, sagði sjötugur karl sem var nýgiftur einni tvítugri . Færa niður? Það var svei mér einkennileg bón. ,, Ekki svo mjög . Sjáðu til..hún er öll í höfðinu á mér kynlöngunin og þessvegna villdi ég færa hana neðar, þar sem ég get haft meiri ánægju og gleði af henni!!!
LÉTTUR.
-Mig langar að vita eitthvað um framtíðina, sagði unga, feimna konan við spákonununa. Látum okkur nú sjá . Maður mun koma inn í líf þitt fljótlega, mjög ungur maður. Segðu mér hvernig hann lítur út. ,, Það einast sem ég get séð , er að hann vegur aðeins 2,8 kg."
HEYRT Á KVENNAKLÓINU:
Hvernig var hann sá sem þú fórst með heim í gærkvöldi? -Eins og fyrsti vetrarsnjórinn. Kalda,, týpan"? Nei, hann ,, kom" óvænt og alltof fljótt
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 03:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Passar það sem fer hér á eftir ekki nokkuð vel við ástandið í dag?
Ég skrifaði reyndar þetta upphaflega inn á http://www.alvaran.com árið 2003..en það spjallborð hefur verið lagt niður.. og svona uppfært x aftur og aftur..ástandið hefur því miður ekkert breyst til batnaðar...Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið sannspá fyrir 10 árum síðan
Í sambandi við grunnskóla sem allir eru skyldaðir til að vera í af ríkinu, þó svo sumir hætti fyrr en honum er lokið, oft vegna eineltis.
Það sem mér finnst rangt er þetta:
Það átti ALDREI að setja grunnskólana á sveitarfélögin, þar sem einstaklingurinn er SKYLDAÐUR af ríkinu til að vera í grunnskóla í 10ár, þá á ríkið sem er náttúrulega við öll sem búum hér á landi, þó svo oft látum við sem ríkið sé eitthvað batterí sem reki sig sjálft að standa straum af þeim kostnaði , öll viljum við jú að börnin okkar mennti sig eða eins og sagt var í gamla daga "verði að manni."
Ef við viljum á einhvern hátt hafa jafnræði og jafnvægi þá er menntun á jafnréttisgrundvelli óháð búsetu og mannfægð eða vöntun á góðum kennurum, ekki tækið til þess að svo megi verða!
Annað sem mér finnst að mætti alveg skoða og ég tel að þegar upp verði staðið myndi skila þjóðarbúinu meiri arði, en það er af þessum forsendum sem ég gef hér:
Það er mikið atvinnuleysi, ungt fólk fær ekki vinnu, það á ekki/hefur ekki réttindi til atvinnuleysisbóta, hefur heldur ekki efni á að fara í skóla þó að vilji væri fyrir hendi.
Hvað haldið þið að þetta fólk komi til með að leiðast út í eða lenda í?
Kanski þetta margumrædda vændi ?
Dópneysla /sala.? Rán og innbrot?
ER það þetta sem við viljum sjá?
Því hvar á liðið að fá peninga ef engin er vinnan og ekki hægt að fá bætur nema frá féló.
Það sem mér persónulega finndist réttara að gera, því ég tel að það kæmi betur út fyrir þjóðfélagið í heild þegar upp yrði staðið er þetta:
Að ríkið myndi borga einstaklingum fyrir að vera í skóla eftir að grunnskólanámi lýkur.
Það myndi þýða það að þegar atvinnuástand batnar þá væru til einstaklingar sem eru menntaðir en ekki búnir að mæla göturnar og vera í ýmsu misjöfnu, jafnt konur sem karlar.
Það yrði að mínu mati ódýrara fyrir ríkið þegar til lengri tím er litið.
Þessir einstaklingar myndu síður leiðast út í það sem ég taldi upp fyrr og þetta fólk yrði þjóðfélasvænni þegn, heldur en sá sem hvorki hefur haft menntun eða vinnu.
Það nefnilega kostar ekkert smá fyrir ríkið ef að eru sífelld innbrot, sem skapar þörf á stærri fangelsum, fleiri meðferðarheimili fyrir þá sem lenda í eiturlyfjaneyslu, meiri félagslegan og fjárhagslegan stuðning fyrir þá sem leiðast út í vændi og meiri lyfja og lækniskostnaður myndi örrugglega verða líka.
Þannig að ég tel að það myndi spara stórlega til lengri tíma litið og við eiga til fólk sem gæti gengið inn á vinnumarkaðinn þegar atvinnuástand yrði gott, þegar það kæmi þetta virkilega svokallaða góðæri.
Þeir sem eru búnir að vera án atvinnu í langan tíma, hafa jafnvel aldrei fengið vinnu eftir að grunnskóla er lokið, eru ekki einstaklingar sem vinnuveitendur vilja fá í vinnu því miður.
Þá myndu atvinnurekendur frekar leita eftir erlendu vinnuafli.(þekki það persónuleg þar sem ég hef átt fyrirtæki með mínum x).
Ég veit ekki betur en að i Danmörk sé það þannig að ríkið borgi einstaklingum " laun" á meðan þeir eru í námi eftir grunnskólanámi er lokið.
Þetta tel ég að sé það sem við Íslendingar ættum að taka upp eins og Danir frændur okkar.
En þetta er jú bara mín hugmynd um hvernig þjóðfélagið megi breytast, til hins betra að mínu mati þegar á heildina er litið.
Kveðja Agný.
þessi skrif sem fara hér á eftir eru svör inni á Alvaran..en ég setti bara svör mín hér...
Kæri .....
Það sem ég átti við með því að ungmenni fengju borgað fyrir að vera í skóla, þá átti ég EKKI við til háskólanáms.
Heldur þeirra sem fara í fjölbraut, verkmenntaskóla eða menntaskóla. Það yrði síður til að þessir einstaklingar tækju sér pásu frá námi sem oft vill verða of löng eða það löng að viðkomandi hefur sig ekki upp í það að fara í nám síðar meir.
Þetta myndi líka skapa meira jafnræði og jafnvægi milli einstaklinga ef þessi háttur væri hafður.
Ég gaf líka þær forsendur að væri mikið atvinnuleysi að þá myndi þessi aðferð skila betri þjóðfélagsþegnum út í þjóðfélagið síðar, heldur en ef að viðkomandi einstaklingar mældu göturnar og lentu í hinu eða þessu.
Þannig fólk vilja engir atvinnurekendur fá og atvinnurekendur vilja heldur ekki einstaklinga sem eru búnir að vera á atvinnuleysisbótum lengi. Þetta fólk gengur ekki fyrir í vinnu, ég hef verið í fyrirtækjarekstri og þó að vantaði mannskap þá leitar þú eftir fólki annars staðar fyrst áður en þú fórst að skoða þá sem eru skráðir á atvinnuleysisskrá. Þannig er bara raunveruleikinn í þessu!!!
Það eru nú ansi margir eilífaðarstúdentar í háskólum bæði hér og annars staðar, og tel ég að ef að þeir fengu laun á meðan sé ekki rétt. Sumir myndu líta á það sem ágæta vinnu að vera endalaust í skóla og falla kanski reglulega í þessu eða hinu til að vera " áfram á launum " en stúdentinn og verkmenntabrautir eru síður til þess fallnar að ofnota það.
Annað, það eru ansi margir sem hafa ekkert það góð fjárráð þó svo kanski þú þekkir það ekki, og eiga kanski mörg börn að það er hægra sagt en gert að kosta ungmennin til náms og ekki er neitt auðvelt í dag að fá vinnu þennan stutta tíma sem er núna frá að skóla lýkur að vori og byrjar svo aftur um 25 ágúst.
Þó að einstaklingurinn fái vinnu þá er það ekki mikið sem viðkomandi fær í vasann frá miðjum júni til miðs ágústs. Yfirleitt líka lélega launað og langlægstu taxtarnir og svo ef að er atvinnuleysi þá getur þú bara gleymt því að þú fáir vinnu því að það eru ekki óharðnaðir unglingar sem vinnuveitendur vilja þá fá , yfirleitt hæfari einstaklingum þannig séð, úr að velja þegar svoleiðis ástand er.
Hver heldur þú annars að sé ástæðan fyrir öllum þessum erlendu aðilum í fiskivinnu hér á landi .....?Fróðlegt væri að lesa um þína skoðun á því. Kveðja Agný.
Oct 18 2003, 20:30
Kæri ........
Í sambandi við fiskivinnuna þá veit ég það frá Íslendingum sem ég þekki í fiskivinnu, nánar til tekið suður með sjó eins og sagt er að fiskverkunareigendur og útgerðir vilja ekki Íslendinga í vinnuna í dag á þeirri forsendu að þeir eru að borga erlendu aðilunum um það bil helmingi lægra á timann en Íslendingurinn á rétt á.
Þannig að það kemur víst fyrir að Íslendingum er oft vísað frá en á sama tíma sóttur til útlanda vinnukraftur.
En þetta er fínt, svo skeður það sama og skeði í danmörk um "74-75 ég bjó þá úti, en það er að þá kom upp atvinnuleysi en ekki mikið og þá heyrðist sko í Dönunum þetta " forbannede fremmede arbejdere kom og stjal vores arbejde." = ,,Helvítis útlendingarnir komu og stálu vinnunni okkar....
Málið var bara það að vinnan sem útlendingarnir voru í var drullu versksmiðjuvinna sem Danirnir vildu ekki sjá og í raun nákvæmlega það sama og er hér nú í sambandi við fiskivinnuna.
En það eru í raun bæði Dönum og okkur Íslendingum sjálfum um að kenna að ástandið varð og er svona.
En við erum bara flest okkar alltof góð í því að ásaka og skella skuldinni á annað eða annað.
En í sambandi við þessa konukind sem þú vísar í þarna í restina, þá myndi ég ekki telja hana með fulle fem ekki fjóra einu sinni, það er nú hægt að vera heimskur en SVONA forheimskaður..... nei fjárinn að ég trúi því.
Kveðja Agný.
Kæri/kæra .........
Það sem þú segir hér, er einmitt ástæðan fyrir því að ég vil að einstaklingar fái " laun " á meðan skólanámi stendur eftir að grunnskólanámi líkur.
Til að gefa þessum aðilum tækifæri til að halda áfram námi.
Annað sem myndi ske þá líka, er að það væru fleiri störf í boði fyrir aðra aldurshópa á móti þeim sem héldu áfram námi, í staðinn fyrir að fara út á vinnumarkað þarna strax að grunnskóla loknum. En hvort að öllum fyndist þessi eða hin störf nógu góð er svo önnur saga.
Ég er bara svo gamaldags að ég tel að vera atvinnulaus til lengri eða skemmri tíma sé bæði mannskemmandi og sálardrepandi. Margir hafa t.d. framið sjálfsmorð vegna þessa. Heilsu almennt hrakar, sem leiðir til lyfjagjafa, sérstaklega þá þunglyndislyfja.
Þannig að ég vísa aftur í það sem ég sagði í byrjun greinarinnar, en það er að til lengri tíma litið ef horft yrði á alla kostnaðarliði / útgjöld fyrir ríkið, sem koma af atvinnuleysi, heilsuleysi og sjálfsmorðum, því að þetta hefur aukin útgjöld fyrir aðstendendur allra aðila sem tengjast þeim sem lenda í þessu.
Á móti segi ég að til lengri tíma litið kæmi betur út fyrir alla og ríkið (sem er við!!!!) ef farið yrði að borga nemendum " laun " það er að segja tilvonandi nemendum í fjölbraut, verkmenntaskóla og menntaskóla að þá myndi hinn útgjaldaliðurinn lækka og ég segi aftur....
Við myndum fá einstaklinga út í þjóðfélagið eftir að námi í framhaldsskóla lýkur sem síður hefðu leiðst út í óreglu og eitulyfjaneyslu og annað miður gott.
Sem sé þegna sem væru færari að koma út á vinnumarkaðinn en þeir sem hefðu mælt göturnar allan tímann.....Báðir þessir liðir kosta okkur skattborgarana x mikið....en í hvorn hópinn viljum við að aurarnir okkar fari?
Frekar vil ég að það sem skattpeningarnir mínir fari í séu "viðveru" /"náms"laun mætti kanski kalla þetta, heldur en að sömu einstaklingar væru að fá sömu krónu tölur frá Féló -..
Það er alltaf meiri hætta á að einstaklingar leiðist út í þetta sem ég taldi upp, ef viðkomandi hefur hvorki vinnu eða er í námi.
Það þurfa allir að fá útrás fyrir sína orku sem öllu jöfnu fer í nám og vinnu, en ef þú hefur hvorugt, þá fer hún bara í eitthvað miður gott.
Má kanski líkja þessu við þetta " betra er slæm athygli en engin".
Kveðja Agný.
Kæri ..........
Ég lenti í því þegar ég er tæplega tvítug og var að koma fyrst út á vinnumarkað að vinna hjá fyrtæki sem var stórt þar sem ég bjó. Málið er að það svindlaði verulega á launum síns starfsfólks og ef að einhver sagði eitthvað við eigendurna, þá var svarið á þá leið að viðkomandi gæti bara farið, það væri nóg um aðra sem vildu fá vinnu. Það var mikið af konum sem áttu börn sem unnu þarna og þær þorðu ekkert að gera eftir þessi svör.
Svo fór ég í félagið sem við vorum í og kvartaði undan röngum launatöxtum og þá var mér sagt að þetta færi í " skúffuna" og ég spyr hvað væri verið að meina, en var þá sagt að það væri þangað sem kvartanir á hendur þessu fyrirtæki færu.
Þannig að stór fyrirtæki stjórna ansi miklu í minni bæjarfélögum og fólk þorir oft ekki að rísa upp út af því. En þetta leiðréttist ekki fyrr en konurnar fóru í vinnustopp fáum árum seinna, en ég efast um að þær hafi fengið leiðréttingu " aftur í tímann". En við höfðum launa leiðréttingu fram.....Ég var ekki í fullri vinnu þar þá...það var bara aukavinnan mín..
*******************************************
Bætti þessu við núna 23 Febrúar 2013
Ég tel reyndar min "Menntastefnu" hugmynd alls ekki vera verri en hver önnur..en numer eitt þá gagnast lítið þessi eða hin stefnan í menntamálum ef að enginn hefur svo efni á því að fara í Framhaldskóla að Grunnskólanámi loknu og því miður sé ég ekki betur en við séum að sigla inn í þær aðstæður núna-foreldrar hafa hreinlega ekki efni á að kosta börnin sín til náms þar sem margir hafa jú ekki vinnu..
Ég get ekki séð að það sé búið að vera "góð"æri hér síðustu 10 ár..held verði að flokka það sem "hall"æri ef á að kalla það eitthvað..ja kanski þá góð"æði" sem fittar best allir búnir að vera sem óðir væru að elta gullkálfinn fræga..en sá kálfur hefur fyllti engann maga á dögum Krists og svo mun ekki verða heldur í dag..
Og svo er eitt, að unglingar sem eru búin að ljúka grunnskóla en fá enga vinnu fá engar atvinnuleysisbætur þar sem grunnskólanám telst ekki sem vinna ..
Þannig..unglingurinn atvinnulaus allt sumarið eftir að grunnskóla lýkur og viðkomandi orðinn of gamall í unglingavinnuna..Þú þarft að vera búinn að vera x lengi í vinnu til aðeiga rétt á bótum
En ég held líka að það verði hreinlega að fara aftur á bak í einu atriði en það er að skólagögn voru ókeypis -ja sko "við" = ríkið borgaði þau þegar ég var í því sem kallast í dag grunnskóli.. En reyndar myndi ég viljað námsgögn væru líka frí á meðan á framhaldskóla stendur..Það myndi kanski hjálpa mörgum mikið ..
En til þess að fá þessi námslaun eins og ég vil kalla það þá verður viðkomandi að sýna fram á ástundun og árangur alveg eins og er í dag..Það myndi ekki þýða að einstaklingurinn skráði sig í framhaldskóla og borgaði kanski staðfestingargjaldið og myndi svo aldrei mæta..og fá svo namslaun um hver mánaðar mót.
Upphæðin sem umræðir verður að vera sú sama og ef að viðkomandi væri að fá mánaðarlegar bætur frá Féló..því það er jú þaðan sem þessir einstaklingar sem eru atvinnulausir, -ekki í skóla-ekki á atvinnuleysisbótum-eru að fá pening til þess að skrimta hvern mánuð..
Þetta eru sem sé mínar pælingar -voru fyrir 10 árum síðan og enn er ég sömu skoðunar að þetta sé eina leiðin ef við ætlum ekki að ala upp "loosers"/tapara.
Það er jú kanski stefna allra stjórnmálaflokka þegar upp er staðið ?
Verið að búa til "loosers" and "winners" ..se-m sé draga í 2 dilka.. 2 þjóðfélagsflokka en það eru fátækir og forríkir...? Það er ekki orðið neitt sem heitir "meðal" Jón í dag..engin millistétt til lengur..
Held það sé kominn tími til að við förum að horfa á hlutina ins og þeir eru en ekki eins og við vildum að þeir væru!
En enn hef ég ekki sé neinn flokk síðustu 10 ára afreka það..þannig að ég skal játa að ég hef ekki mikla trú að að einhver hafi þann kjark núna ..kjaftagleiðir eru þeir sem bjóða sig fram allir sem einn..En hefur svo einhver virkilega kjarkinn til að fylgja sinni stefnu eftir þegar á hólminn er komið?
Vona allavega að slagorðið yfir okkur Íslensku þjóðina sé ekki þetta
,, kjafta-gleiðir kjark-leysingjar"...
Vinir og fjölskylda | Breytt 18.9.2014 kl. 03:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.11.2008 | 03:30
KETTLINGARNIR STÆKKA OG STÆKKA...MYNDIR
Þá læt ég loks verða af því að setja inn fleiri myndir af nýjustu meðlimum kattafjölskyldunnar. Þeir tútna sko út þó að Gosi eldri bróðir þeirra sé nú duglegur við að stela sér sopa með þeim..
Ja og hjálpa mömmu að þrífa systkinin og svona stundum heldur hann að þetta seu mýs sem eigi að leika sér við..Ég var nú stundum smeik um að honum dytti í hug að éta þau svona fyrst...
Bloggvinir
- 666
- annasteinunn
- artboy
- athena
- berglindnanna
- bergthora
- biddam
- birgitta
- bofs
- brylli
- coke
- daystar
- dofri
- doriborg
- ea
- ellyarmanns
- estersv
- fridaeyland
- gammon
- gmaria
- gudrunmagnea
- gullvagninn
- gunnipallikokkur
- habbakriss
- halkatla
- hallarut
- halldorbaldursson
- hallurg
- handtoskuserian
- heida
- heidathord
- heidistrand
- heimskringla
- hjolagarpur
- hlynurh
- hlynurha
- id
- ingo
- ipanama
- ippa
- jensgud
- joninaben
- jorunn
- josira
- kallimatt
- ketilas08
- kiddih
- kiddijoi
- kiddip
- killerjoe
- killjoker
- kiza
- kollaogjosep
- konur
- limped
- lovelikeblood
- lydurarnason
- malacai
- mia-donalega
- molta
- morgunstjarna
- nonniblogg
- ofurbaldur
- olafurfa
- omar
- omarragnarsson
- overmaster
- perlaheim
- poppoli
- prakkarinn
- predikarinn
- proletariat
- ragnargests
- rheidur
- rosabla
- saethorhelgi
- salist
- sigurjonn
- sigurjonth
- sirrycoach
- sjos
- stebbifr
- svarthamar
- sveinnhj
- tharfagreinir
- trollchild
- tru
- upplystur
- vertu
- vglilja
- vitale
- alla
- dufa65
- andres08
- gumpurinn
- danna
- arit-bloggar
- apalsson
- taoistinn
- asgrimurhartmannsson
- heiddal
- brahim
- gattin
- brandarar
- rafdrottinn
- saxi
- eysi
- fafnisbani
- fiskurinn
- geiragustsson
- morgunn
- gudjonelias
- gjonsson
- lostintime
- tilveran-i-esb
- conspiracy
- skodun
- holi
- vulkan
- heim
- hildurhelgas
- drum
- truthseeker
- holmdish
- don
- danjensen
- ingaghall
- johannvegas
- jonasg-egi
- jonasg-eg
- joningic
- jonmagnusson
- alda111
- bisowich
- andmenning
- kristinthormar
- lotta
- ludvikludviksson
- astroblog
- vistarband
- marinomm
- manisvans
- minnhugur
- bylting-strax
- olafur-62
- pallvil
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- sviss
- bjornbondi99
- shhalldor
- infowarrioreggeiri
- sigvardur
- thorthunder
- thee
- tigercopper
- vefritid
- zordis
- tsiglaugsson
- thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 316020
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
2 dagar til jóla
Um bloggið
Hitt og þetta...aðallega hitt...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Uppáhalds síður
Margvísleg málefni.
Ýmsir vefir.
- Velvirk börn Félag hæfileikaríkra og skapandi einstaklinga
- Heilsubankinn Meðferðar og þjónustuaðilar
- Sannleikurinn minn Fróðleikur um ýmis heilsumál
- Heimasíðan mín Ýmislegt efni.
- Gagnauga Gagnauga er upplýsingavefur um alþjóðamál
- MSSPJALLIÐ Opið Spjallborð um MS
- Ablechild.org Parents for Label and Drug Free Education
- ASPARTAME KILLS Rumsfeld og Aspartame
- Óvenjuleg og umdeild mál 9/11, samsæriskenningar...
- The National Foundation for Gifted and Creative Children Samtök hæfileikaríkra og skapandi barna
- Upplýsingasíða um MSG If MSG isn´t harmful, why is it hidden?
- Spjallborð um 911 og ýmislegt plott
- Þessi síða er alveg must read ýmislegt sem þú sérð bara hér
- The SPECTRUM Ýmsar greinar
- Label Me Sane Fjallað um ofnotkun lyfja.
- Alliance for Human Research Protection Samtök gegn tilraunum á fólki
- Organic Consumers Association Neytendasamtök fyrir lífrænt
- Freedom Or Facism ? Frelsi eða Facismi?
- Health Truth Revealed Hulunni svipt af heilsu málefnum
- Quackpot Watch "The last days of the Quackbusters "
- True Torah Jews/Jews Against Zionism Traditional Jews Are Not Zionists
- Question 911.com Free DVD download / frítt niðurhal
Talnaspeki / Numerology
Fróðleikur um þessa speki
- Sun - Angel Numerology Frítt dæmi þarna
- Free Numerology Reading Meira en bara talnaspeki..
- Your Reading / Agny Lýsingin á mér...
- INDIGO intentions Tarot, numerology, Indigo children, Reiki, Angels reading
Fyndið stuff.
Myndir, brandarar og glens.
- Cartoons Teiknimyndir
Andleg málefni
Allt sem tengist þeim málum.
- AEROSOL OPERATION CRIMES & COVER-UP SPRAYING US AS A BUG..
- Crystalinks Þessi síða er hreinlega með allt.
- Tarot Cards & Free Readings Frí Tarot spá
- Mind Power News Kraftur hugans.
- Progressive Awareness Research Allt mögulegt andans stuff.
- Tilvitnanir / quotes Ýmsar tilvitnanir
- New Jersey ghost hunter center Drauga "veiðar"
- The Tree of the Golden Light Ýmis andleg mál
- Mayan Calendar Articles Tímatal Mayanna
Stjörnuspeki / Astrology
Fróðleikur um þessa speki.
- The Future Minders Frítt dæmi þarna
Síður um ADD / ADHD
Upplýsingar um athyglisbrest / ofvirkni.
- Dr. Mary Ann Block ,, Find the course, fix the problem".
- A Multisensory Learning Program Kennslugögn fyrir ADD / Autism / Dyslexia
- Exposing the Fraud of ADD and ADHD Fred A. Baughman Jr., MD Neurologist, Pediatric Neurology
- Stimulant Drugs for ADHD and ADD Örvandi lyf við ADHD og ADD
- "Are Psychiatrists Betraying Their Patients?" Eru geðlæknar að svíkja sjúklingana sína?
- "Our Toxic World" " Okkar eitraði heimur"
- No proof mental illness rooted in biology Engin líffræðileg sönnun fyrir geðsjúkdómum
- Death From Ritalin Snannleikurinn á bak við ADHD
- Methylphenidate ( virka efnið í Ritalin) Drug and Chemical Evaluation Section
- What Drugmakers of ADD & ADHD Drugs vilja ekki að þú vitir
- Answers for ADHD Questions Svör við ADHD spurningum.
SSRI lyf og önnur þunglyndislyf
Ýmsar síður um hugarfars breytandi lyf.
- Dangerous Medicine forum Spjallborð
- Antidepressants Facts Staðreyndir um þunglyndislyf.
- SSRI Stories Ekki er sannleikurinn fallegur...
- International Coalition For Drug Awareness Verum meðvituð ...
- PROTECT YOUR CHILDREN NOW Verndum börnin okkar!!
- THE DARK SIDE OF PSYCHIATRY Dökka hlið geðlækninganna
- How psychiatry is making drug addicts out of America´s shool children Amerísk skólabörn gerð að læknadóps fíklum.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine. SEARCH ENGINE
Asperger syndrome og Autism
Síður sem fjalla um Asperger og einhverfu
- Aspergers Syndrome in Children Góð síða (mín skoðun)
Blogg úr ýmsum áttum..
Vinir / áhugaverðir einstaklingar.
- Sigurjón Þórðar.
- Nornin
- Tigra
- Anna panna
- Þarfagreinir
- Katrín ódæla
- Klisja
- Olasteina "Fjarskyld frænka"
- Nornin Vinkona af Baggalút.
- Geiri 3d.
- Laramin
- Sigunzo
- Ditto bloggar Yndisleg og spes manneskja.
AGLOCO
- AGLOCO Borgað fyrir að browsa..
http://skorrdal.com/
MICROCHIP - RFID
- Microchip Implants News Articles MIND CONTROL; ÖRFLÖGUMERKINGAR; RFID
UMDEILD MÁLEFNI
- WIDE EYE CINEMA WIDE EYE CINEMA is dedicated to showcasing the very best alternative truth-related documentaries & cinema uploaded onto the World-Wide Web.
MY FAVORITE SITES
- This site is number 1 on 10 black list sites of US gov. Here you find it all.Specially what the elite do not want you to find
- Alvaran Forum about what some call conspiracy
- Prophecies of Sollog Sollog is a POLITICAL PRISONER of the USA!
- Ingaoramas video VIDEOS
- So you wanna talk conspiracies? try this on for size. JUST GO THERE...
- ConCen An eye openinger
- What you should not know...is here.. Knowing litle about lot is better than know lot about a little...
HAARP
- Chemtrails Data Page Chemtrails - Frequently Asked Questions
CHEMTRAILS
- CHEMTRAIL CENTRAL Þetta er forum um Chemtrails og málefni tengd efna úðun úr lofti..
- Chemtrails news, articles and information Cemtrails=Efnarákir
- CHEMTRAILS -HAARP-GEOENGIERING-DEPOPULATION AT WORK CHEMTRAILS síða- fyrrverandi FBI starfsmaður leysir t.d. frá skjóðunni- núna látinn..
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir- Ísland er ekki undanskilið þessu ógeði!
- Chemtrails = Aerosol spraying to change the atmosphere. Chemtrails = Aerosol spraying of barium, "fibers", pathogens.
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir
TRANSLATE-ÞÝÐA
- Translate your website into 52 languages Just copy and paste the Translate This Button anywhere on your site, it's free and easy. There are no files to upload and it works on almost any website. The Translate This Button is a lightweight JavaScript translation widget. It translates any page quickly using Ajax and the brilliant Google Translate.
VERICHIP-WE THE PEOPLE WILL NOT BE CHIPPED!
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heilsumálefni
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Óvenjuleg og umdeild mál
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði