Færsluflokkur: Mannréttindi
23.4.2008 | 20:31
FASCISM/ POLICE STATE /RÍKIÐ ÍSLAND...VIDEOS-ER ÞAÐ SEM SKEÐI Í DAG EKKI AKKÚRAT SÝNISHORN AF ÞVÍ?
Hvað var það sem við sáum í beinni annað en merki um að Björn Bjarna ætli sér að koma á fót fascista lögregluríki.... Undarlegt að heyra svo í auglýsingum á eftir fréttunum auglýsingum þar sem sagt er frá hvernig þú sækir um eða umsóknir inn í lögregluskólann...
Þessi aðgerð lögreglunnar er held ég gerð til þessa réttlæta það að komið verði á fót hér á landi sérdeildinni hans Björns Bjarna... Held að það sé kominn tími til að hinn almenni borgari fari að taka hausinn upp úr sandhrúgunni áður en að hann fær sparkið í afturendann og neyðist til þess!!!
Það verður of seint þegar að öll réttindi hins almenna borgara verður búið að afnema... Það getur verið að mörgum muni finnast ég sé að mála skrattann á vegginn en því miður tel ég að svo sé ekki...
Set líka með færslu og video sem ég setti í síðasta mánuði sem má segja að sé bara nákvæmlega það sem við vorum að horfa á raungerast hér í dag....They have removed I do not know how many times links I posted here on the day I posted this blog...So I have had to did again and agin to find it...
ÞESSI SLÓÐ EKKI LENGUR TIL-2 ÁGÚST 2016..ÞANNIG..FINNA NÝJA..
http://newsgroups.derkeiler.com/Archive/Alt/alt.politics/2005-08/msg02329.html
HÉR ER NÝJA SLÓÐIN...
http://therightstuff.biz/2014/01/22/fascism-no-one-a-response-to-dr-laurence-britt/
Held að sé kominn tími aftur á að setja inn þessi 12 merki
(REYNDAR ORÐIN 14 EFTIR ÞVÍ SEM ÉG FINN NÚNA- VORU 12 ÞEGAR ÉG ÞÝDDI ÞETTA)sem sýna tilhneigingu til fasiskra stjórnarhátta.
Held að við íslendingar séum að verða komin með öll 12 merkin, þökk sé Birni Bjarna, sem er í mínum huga ekkert annað en fasisti í dularklæðum sjálfstæðismanna!
12 varúðar merki um fascisma.
1.Upprifinn Þjóðerniskennd.
Facista stjórn hættir til að nota stöðugt þjóðrækna ímynd, slagorð og merki-
Þjóðfáninn er allstaðar opinberlegur. Yfirgangur heimastjórnarinnar er aftur útskýrður semhlutskifti/örlög óbeðnum mikilleika þröngvað upp á þjóðina með sagnfræði.
Það er þetta sérkennilega megin inntak ábyrgðartilfinningar sem að núna vekur fyrst og fremst upp fascista ríki, þrátt fyrir undanfarandi þvinganir, ekki lengur bundin af alþjóða-skuldbindingum, milliríkja samningum eða lögum.
2. Borið kennsl á óvininn.
Þessi þjóðerniskennd er þekkt sem eining gegn óvininum
Almenning er safnað saman, sameinaðir í föðurlandsást og/eða gegn einhverri sameiginlegri ógn:
Kommunistum, frjálslyndum, kynþáttum, þjóðfræðislegum eða trúarlegum minnihlutahópum, þeim sem eru meira menntaðir, samkynhneigðum, hryðjuverkahópum o.s. frv. Skilaboð fylkisins eru stundum sett fram á þann hátt að sem auðveldast er að bera kennsl á trúarlega þemað. Þótt ótrúlegt sé þá er þetta tungumál notað jafnvel þegar kenningin sýnir til fullnustu að merkingin sé gjörsamlega hið gagnstæða. Allur ágreiningur er skilgreindur sem tekur afstöðu með óvininum, og þessvegna landráðamaður.
3. Réttindi hverfa.
Lítisvirðing fyrir mann- og sjórnmálalegum réttindum-
Fasista stjórnarfar hlúir að tilbúnu óttakenndu andrúmslofti af ásettu ráði, með því að magna upp stress og hræðslu.
Borgaranir fyllast eðlilega þörf fyrir öryggi og eru auðveldlega taldir á að hunsa misþyrmingu í nafni öryggis.
Þeir fáu sem enn efast, verða fyrir yfirgangi og rógburði með þvingandi aðgerðum.
Lagaleg réttindi, ef að einhver eru enn til staðar, eru notuð til kúga fólk til samþykktar möglunarlaust, með einstaka formlegri mótspyrnu.
Dómskerfinu hættir til að verða aðgerðarsinni til stuðnings sjónarmiða ríkisins.
Almenningur horfir oftast framhjá eða jafnvel samþykkir af ákafa að réttindi séu afnumin.
Hugtakið um einstaklingsbundin grundvallarréttindi, er skift út gegn loforðum alræðis ríkisins um öryggi.
4.Launungar krafist.
Þráhyggja í sambandi launung og þjóðaröryggi-
Störf stjórnvalda verða í auknum mæli falin.
Dregið er úr efasemdum í sambandi við hið opinbera. Frá skrifstofu tali við vatnskælinn og upp allan valdastigann, kemur varfærni í máli og launung að lokum sjálfkrafa. Vandræða spurningar eru þaggaðar niður og allt umhverfið sætir nákvæmri rannsókn af einni ástæðu, þjóðaröryggi.
5.Hervald lofsungið.
Yfirburðir hervalds-
Stofnsetning hervalds fær í röngu hlutfalli, hlut af auðlindalögsögu ríkisins, jafnvel þannig, að brýnar þarfir fjölskyldunnar eru vanræktar.
Þetta tryggir tilgang bæði til vegsamar opinberlega, sem og skarprar viðvörunar, gegn mögulegum óróa borgaranna, það að veldi ríkisins er nálægt, tilbúið til að nota sína stórkostlegu yfirburði til ofbeldis.
6.Fyrirtækjum hlíft.
Vald fyrirtækjanna er verndað
Að jafnaði er það hluti af heldra fólki sem leikur aðalhlutverkið í viðskiftunum, við að koma fasistum til forystu yfir þjóðinni, oft með óþverra brögðum.
Hjónaband mikilla auðæfa og hreins ofbeldis, er oft talið af sagnfræðingum,aðalsmerki og uppistaða fasisma.
Þegar þessi viðskifta- stjórnvalda hernaðar hagsmunir sameinast, þá verður sú ógn þegar að verkalýðurinn sameinist greinilega augljós.
Verkalýðsfélög og þeirra stuðningssamtök velja sér aðstoðarmenn sem hallast að þessum stjórnunaraðferðum, ef ekki, þá eru þau miskunnarlaust bæld niður og upprætt eins fljótt og mögulegt er.
7.Spilling látin viðgangast.
Siðspilling fær að vaxa hömlulaust-
Fasista ríki halda utan um vald sitt í gegnum tiltölulega litla hópa sem hafa sameinast, sem kjósa eða útnefna hvern annan innbyrðis í stjórnunarstöður í ríkisstjórninni, viðskiftum eða hernum.
8.Fjölmiðlum stjórnað.
Eftirlit með fjölmiðlum
Stundum er fjölmiðlum stýrt beint af ríkisstjórninni af klaufalegum undirtyllum.
Á öðrum tímum eru það viðkunnalegir innanfélagsmenn sameiginlegs fjölmiðils sem að mótar stefnuna óbeint og þess vegna faglegri.
Reglulega eru ímyndanir/myndir spunnar upp sem fréttir og eru kynntar með öndina í hálsinum og með leiftrandi fyrirsögnum.
Æfð þula af fastheldinni endurtekningu gerir jafnvel augljósustu lygi mjög ásættanlega með tímanum.
Með ásetningi verður málfarið sjálft og starfsfólkið ákaflega samdauna og mun framfylgja því að ýta almennum skoðunum út úr aðal umræðunni.
Allar umræður sem eftir eru, lúta skilmálum og eru naumlega útskýrðar, til hagsbóta fyrir stjórnina.
Auðveldara verður að hafa yfirsýn með þeim sem eru ósammála og frábrugðnir. Ritskoðun og sjálf-ritskoðun ,sérstaklega á stríðstímum er algeng.
9.Stjórnlaust kynjamisrétti.
Stjórnlaust kynjamisrétti-
Ríkisstjórnum fasista ríkja hættir til að vera svo til algjer karlaveldi.Hefðbundnar kynjaímyndir eru skapaðar, jafnvel gerðar enn strangari og ýktari. Fordæming fóstureyðinga og samkynhneigðar, er yfirleitt innrætt á breiðum grundvelli í stefnumálum.
10.Menntafólk kúgað.
Fyrirlitning á velgefnum einstaklingum
Fasista ríkjum hættir til að skapa öfgakennt og óvinveitt umhverfi gegn almennum gagnrýnum skoðunum, sérstaklega akademískum. Hugmyndafræðilega rekin vísindi eru hafin til metorða og styrkt rausanarlega, á meðan framsetning sem samræmist ekki sjónarmiðum ríkisins er fyrst hunsað, síðan véfengt og gert að athlægi og að lokum rutt í burt.
Það er ekki óalgengt fyrir akademíur að þær séu þvingaðar til að ráðast á vinnu samstarfsmanna sinna.
Ritverk eru ritskoðuð; kennarar reknir og handteknir.
Frjálsa og listræna túlkun í verkum er ráðist á opinberlega, það sem til er, talið óþjóðernislegt og oft eyðilagt opinberlega.
11. Lögreglan hervæðist.
Þráhyggja í sambandi við glæpi og refsingu
Fasista ríki eru oft gjörn á að líta framhjá misþyrmingu lögreglu og fórna réttindum borgaranna í nafni þjóðerniskenndar.
Langar fangelsisvisstir fyrir það eitt að móðga stjórnmálamann, pyntingar og síðan aftökur eru fyrst "óþægindi" og eru látin viðgangast,og verður að lokum litið á sem reglu.
Oft er alríkislögreglunni veitt ótakmarkað vald til að snuðra/njósna um borgarana
Eftirlitskerfi og uppljóstrarar eru hafðir í vinnu, bæði til að fylgjast með samkomum mennntafólks og eins til þess að einangra nágranna og samstarfsmenn og skapa vantraust þeirra á milli.
12.Atkvæðum stolið.
Fölsuð atkvæði
Í ringulreiðinni sem skapast þegar fasistar eru að rísa upp til valda, þá verður kosninga umhverfið verulega ruglandi, spillt og hagrætt. (minnir á svokallaða kosningu Bush 2000. Agný).
Það er rísandi opinbert vantraust yfir því sem almennt er talið vera fölsuð og hagrædd atkvæði með áhrifamætti peninga,greininlegrar hlutdrægni fjölmiðla, rógburða herferðum, hagræðingu atkvæða,dómsíhlutun, þvinganir, eða afdráttarlaust úthlutað stjórnarstöðum.
Fasistar við völd hafa verið þekktir fyrir að nota þessa ringulreið sem réttlætingu til að fresta kosningum um óákveðinn tíma.
Þýðandi Agný.
America : Freedom to Fascism
The Signs of Fascism
18.2.2008 | 17:25
SVONA LÍTUR LÖGREGLURÍKI ÚT!! VIDEO
This is What A Police State Looks Like
Búið að fjarlægja þetta video 2 Ágúst 2016!! THIS VIDEO HAD BEEN REMOVED ON 2ND AUGUST 2016...
Sé að það er búið að fjarlæga þetta video af youtube (enn eitt merki um police state..) en hér getið þið séð það http://www.truthnews.us/?p=1650
FINNST EKKI LENGUR ÞESSI SLÓÐ...
http://www.blacklistednews.com/view.asp?ID=5266
EN ÞESSI ER TIL...
http://www.blacklistednews.com/
CORPORATE FASCISM:
The Destruction of America's Middle Class
AMERICAFrom Freedom To Fascism
(Full Length Documentary)
Er það svona sem hinn vestræni heimur er orðinn?
Ekkert nema fasista ríki og lögregluofbeldi og eins og fram kemur hér, njósnir um hinn almenna borgara..
Hvernig stendur á því að fólk má ekki mótmæla eða fara í kröfugöngur án þess að lögregla eða her birtist vígbúinn?... Ég hélt að það væri einn af þeim þáttum sem flokkast umdir mál og tjáninga frelsi... Horfið á þetta video en því miður er það scary að svona sé það orðið ....
Fólk má ekki mótmæla stjórnvöldum eða aðgerðum þeirra án þess að eiga það sem þú sérð hér á hættu... Þetta minnir mann á einræðisstjórnarfar....skyldu einhverjir sem eru hér á videoinu lenda í fangabúðum bandarískra stjórnvalda? Þær eru nefnilega til...held ég sé búin að pósta um þau fyrr en gæti verið að rugla því saman við alvaran..
En ég held að við hinn almenni borgari verðum að fara að opna augun áður en það er orðið of seint!!
Þessi mynd er tekin í US fasistaríkinu hans Bush... en passar mjög vel við atburðina í dag/gær...
Mannréttindi | Breytt 18.9.2016 kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
7.3.2008 | 02:54
Algeng meðferð gegn blöðruhálskirtils krabbameini veldur því að krabbameinið breiðist út um líkamann!!
http://www.naturalnews.com/022772.html
Meðferð sem veldur skorti á androgen, sem almennt er notuð sem meðferð gegn blöðruhálskirtilskrabbameini, getur í reynd ollið því að krabbameinið verður líklegra til að dreifast til annarra líkamsparta, samkvæmt rannsókn framkvæmdri á Johns Hopkins University School of Medicine og birt er í tímaritinu Cancer Research.
Vegna þess að vöxtur blöðruhálskirtils æxlis er venjulega örvað af karlhormónum, er androgen "bælingar" meðferð, þar sem þessir hormónar eru bældir, oft notuð við þessa sjúklinga í þeim tilgangi að hægja á vexti æxlisins.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt það að prótein sem kallast Nestin hefur sýnt sig að framleiðast af blöðruhálsirtils krabbameins frumunum sem hafa dreifst um líkamann.
Nestin virðist samt sem áður ekki framleiðast af krabbameinsfrumunum, í þeim tilfellum þar sem krabbameinið hefur ekki dreift sér.
Rannsóknaraðilarnir gerðu tilraunir á androgen-sveltum blöðruhálskirtils krabbameinsfrumum á rannsóknarstofum. Þegar þeir klipptu á aðgengi frumnanna til androgens, þá juku frumurnar framleiðsluna á nestin.
Rannsóknaraðilarnir beittu því næst tækni sem þekkt er sem RNA truflanir til að gera krabbameinsfrumurnar ófærari um að framleiða nestin.
Þegar frumurnar voru græddar í líkama músa, þá kom það í ljós að það breiddist síður út til annara svæða, samanborið við óbreyttar blöðruhálskirtils krabbameins frumur.
Rannsóknaraðilarnir fundu engar sannanir fyrir því að magn nestin hefði einhver áhrif á vöxt æxlisins.
" Það sem allt þetta gefur í skyn er að magn nestin jókst þegar að blöðruhálskirtils krabbameins frumurnar voru androgen sveltar og að það ýtti undir að frumurnar dreifðu sér."
Rannsóknin var styrkt af Evensen Family Foundation, the German Cancer Foundation, the National Cancer Institute, the National Institutes of Health.
Þýð Inga/Agný.
Pepper Component Hot Enough to Trigger Suicide in Prostate Cancer Cells (press release)
http://www.naturalnews.com/019964.html
Pomegranate Extracts Found to Inhibit Prostate Cancer Tumor Growth
http://www.naturalnews.com/022495.html
Herbal Tonic Recipe for Prostate Cancer and Prevention
http://www.naturalnews.com/tumor_growth.html
For prostate cancer, doing nothing is often just as good as seeking immediate treatment
http://www.naturalnews.com/021689.html
Mannréttindi | Breytt 1.11.2013 kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2007 | 03:35
FÓSTUREYÐINGAR OG BÓLUSETNINGAR - ABORTION- dobbelt moral ....
Mér finnst hinir ítölsku ströng trúuðu kaþólikkar vera miklir dobbelt moral lið...
Páfagarður vill ekki að konur taki pilluna....en það má eyða fóstrum og svo mega konur þar fara í glasafrjóvganir komnar um og yfir fimmtugt...
En ég verð nú að spyrja þann sem skrifar fréttina hvað hann/hún eigi við með því sem segir hér "arfbætur"?
Er þetta nýyrði fréttamanna á mbl.is yfir "kynbætur" eða tilraunir á eyddum fósturvísum?
Þeir eru kanski að ná sér í stofnfrumur með þessum hætti..
Hver veit....
Fróðlegt væri að vita hvort að konan sjálf hafi rauninni viljað láta eyða því fóstri sem læknarnir sögðu að væri eftir þeirra mælingum ekki "heilbrigt" (hvað er svo sem heilbrigt í dag mætti svo búa til heila bloggfærslu um)....
Hver segir svo að allar mælingar séu pottþéttar....
Hvað skyldi konan til dæmis hafa verið langt gengin þegar að þarna er komið? Það finnst mér vanta í fréttina....
Þegar ég varð ófrísk að mínum yngsta þá var ég kominn á þann aldur að ég hefði getað farið í legvatnsástungu en ég vildi það ekki því ég vissi það að ég myndi alls ekki hafa getað "hent" þessum einstakling sem spriklaði og sparkaði þarna inni í mér.....
Þar fyrir utan er (var allavega þá ) legvatnsástunga ekki gerð fyrr en í 13 viku meðgöngu sem þýðir að komið er fram yfir löglegan fóstureyðingar tíma og ekki nóg með það að niðurstöðurnar koma ekki fyrr í 16 viku..
Frænka mín fór í þetta þannig að ég hef það frá henni hvernig þetta var..... Þannig það er sko ekkert verið að eyða einhverjum fósturvísi það er sko orðið barn þarna!!!! ( allavega í mínum huga) ..
Skyldi elsta syni mínum sem er með Asperger syndrome hafa verið hent ef að það hefði komið í ljós við svona rannsóknir að hann væri eða ætti á hættu að vera eins og hann er ef að ég hefði farið í legvatnsástungu þegar ég gekk með hann? Sennilega hefði mér verið "hent" ef ég hefði verið fóstur í dag..það vantar nefnilega bein í mig á einum stað og auka bein var annarsstaðar....En ég er þó með bein í nefinu, svona stundum allavega...;-)..
Ég tel eftir því sem ég hef rannsakað og aflað mér upplýsingar um, (er líka búin að þýða mikið af efni um bólusetningar) að því miður hafi hann orðið svona út frá bólusetningum því hann var alveg eðlilegur, sem er svo aftur afstætt, en samkvæmt því sem sagt var við mig áður en bóluefna eitursullinu var dælt í hann þá var hann það ..
Það er til dæmis ekki langt síðan að ég komst að því að í bóluefninu við kíghósta (pertussis) er efni sem er notað til að framkalla heilabólgu hjá tilraunadýrum á rannsóknarstofum!!!!
Eru börnin okkar kanski bara einhverjar tilraunakanínur? Skyldi þarna kanski vera komin að einhverjum hluta til orsök allra þessarra svokallaðra "geðraskana"?
Ég held við ættum að fara að stansa aðeins við áður en við látum læknana eða heilbrigðis batteríið alveg ráða því hvort að þessi einstaklingur sé velkominn eða ekki velkominn í heiminn....eða hvort við viljum láta gera þetta eða hitt við okkur eða afkvæmin okkar ófædd sem fædd! Er ekki alltaf verið að segja að við´höfum "frelsi" til að velja og hafna í öllum málum ? Það er jú það sem mér hefur skilist að sé aðalsmerki lýðræðislegrar stjórnunar en það er kanski bara misskilningur hjá mér...
Mistök við fóstureyðingu vekja mikið umtal á Ítalíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt 23.7.2015 kl. 05:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.7.2007 | 03:19
Örflöguígræðsla sem veitir upplýsingar um þig samþykkt af FDA /Implantable Medical ID Approved By FDA.
Implantable Medical ID Approved By FDA.
Örflöguígræðsla sem veitir upplýsingar um þig samþykkt af FDA í fyrradag.
Frétt á http://www.alvaran.com
Ég þýddi þetta upphflega strax haustið 2004 og setti á alvaran.com en það spjallborð er því miður ekki lengur til..
On Tue, 19 Oct 2004 04:42:12 -0000
Implantable Medical ID Approved By FDA
http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/articles/A29954-2004Oct13.html
The Washington Post Thursday, October 14, 2004; Page A01 Implantable Medical ID Approved By FDA By Rob SteinWashington Post Staff Writer
Örflaga sem hægt er að græða undir húð, ætluð til að gefa læknum á augabragði aðgang að sjúkraskýrslum viðkomandi sjúklings, var samþykkt í fyrradag af stjórnvöldum.
Skref sem gæti umbreytt heilbrigðisþjónustunni en vekur upp skelfingu í sambandi við persónuvernd.
Örsmá (ör)flaga, sem er sú fyrsta til að fá samþykki hjá Fæðu og lyfjaeftirlitinu ( FDA ) flytur einstakan kóða yfir í skanna sem gerir læknum kleyft að staðfesta kennimark viðkomandi einstaklings/sjúklings og ná í upplýsingar úr sjúkraskrám viðkomandi einstaklings/sjúklings.
Fólk er sem sé skannað eins og vara í verslun við afgreiðsluborðið...
Applied Digital Soulutions Inc. of Delray Beach FLA. áætlar að markaðsetjaVeri Chip systems-- flöguna, skanna og tölvuvætt gagnasafn-- til spítala, lækna og sjúklinga sem leið til að bæta heilsugæslu og koma í veg fyrir mistök svo að tryggt sé að læknar séu vissir um hvern þeir eru að meðhöndla og vera með beinan aðgang að sjúkraskýrslum viðkomandi sjúklings.
Læknar munu skanna sjúklinga sem væru þeir niðursuðudós í verslun, en í staðinn fyrir verð, þá þá mun koma á skjáinn sjúkraskýrsla og persónuupplýsingar viðkomandi...
Bráðamóttöku læknar munu geta skannað meðvitundarlaus fórnarlömb slysa til að tékka þeirra blóðflokk, lyfjagjöf og ganga úr skugga um lyfjaofnæmi.
Skurðlæknar myndu geta skannað fólk á skurðstofunni, til að ganga úr skugga um að þeir væru nú að fara að krukka í réttan aðila...(Innskot Agný- vonandi líka í réttan stað á líkamanum og réttan útlim ..)
Flögur væri hægt að græða í Alzheimer´s sjúklinga í þeim tilgangi að finna þá ef að þeir villast...
(Innskot Agný- það var fyrst byrjað á að græða svona í heimilisdýr...svona til að finna þau ...ef þau strykju að heiman...næst voru það fangar-allt snýst þetta um "öryggi" spurningin er jú bara hverra..)
Á spítulum í dag verða mörg dauðsföll vegna þess að fólk er ekki fært um að koma með sjúkrasögu sína tímanlega. (Innskot Agný-Það sem bjargar lífi getur líka eytt því...Tvær hliðar eru á öllum málum...)
Eða af völdum rangra upplýsinga sagði Scott Silverman, formaður fyrirtækisins. Með VeriChip, munt þú hafa nákvæmar upplýsingar, jafnvel þó að sjúklingurinn sé ófær um að tjá sig.
Þetta er leið til að færa í nútímalegt horf úr okkar frumstæða formi sem sjúkraskýrslur eru núna í.
Samþykkið var undir eins fordæmt af málsvörðum persónuverndar, sem óttast að þetta geti stofnað í hættu einkalífi sjúklingsins og markað hættulegt spor í átt til "Framtíðar með Stóra Bróður" þar sem muni vera fylgst með fólki með ígræðslunni eða að því verði skipað að láta setja það í sig, til eftirlits, sakbendingar eða í öðrum tilgangi.
Alríkisfulltrúi Mexico tilkynnti í Júlí að hann hefði eina af þessum ígræðslum í handleggnum, einnig hefðu um 160 af hans undirmönnum, en það var til þess að veita þeim sér aðgang að topp öryggisskrifstofum og gögnum.
Á börum í Amsterdam og Barcelona, geta fastagestir fengið flögu ígrædda tilað veita þeim aðgang að sérstökum svæðum og hafa eftirlit með reikningi þeirra.
Fyrirtækið er að rannsaka aðrar umsóknir, þar á meðal notkunar á örflögum sem "rafmagns hunda merki" fyrir hermenn, til útnefningar á "smart guns" með innbyggðum skanna, sem tryggir að það séu einungis þeir sem eru með samsvarandi ígræðslu, og geri verslunum kleyft að sannreyna skilríki viðskiftavinarins áður en þeir samþykkja kreditkort.
"Sami skanner í Wal-Mart sem er notaður til að skanna vörurnar getur verið notaður til að staðfesta kreditkortið þitt og ganga úr skugga um að einhver hafi ekki stolið því og þínum skilríkjum" sagði Silverman.
Hvattir af S- Ameríkskum stjórnvöldum sem leita leiða til að rekja fórnarlöm mannræningja, hefur fyrirtækið hannað tæki sem gerir gerfihnöttum kleyft að stinga út staðsetningu örflögunnar... en hefur engar áætlanir sem stendur um að markaðsetja það tæki.. (Innskot Agný...trúlegt eða..).
Fyrirtækið vonar samt sem áður, að samþykki FDA fyrir notkun flögunnar í læknisfræðilegum tilgangi, muni það verða til að útbreiða notkun örflögunnar til annarra nota..
"Við trúum því að þessi umsókn muni verða til að ýta undir viðurkenningu á framleiðslunni" sagði Angela Fulcher, varaformaður markaðssetningu og miðlunar.
"Ef að þú hefur einhvern krónískan sjúkdóm, þar sem að upplýsingar til starfsfólks heilsugæslna, gæti þýtt spursmál um líf þitt eða dauða, þá mun almenningur verða tilbúnari til að samþykkja þessa tækni."
Fyrirtækið vonast til að geta komið notkun VeriChip örflögunnar af stað með góðu forskoti, með því að gefa um 200 skanna ($ 650) til áfallahhjálparstöðva.
Flagan sem er á stærð við hrísgrjón, mun kosta um það bil $ 200 stykkið.
Búnaðinum er sprautað með sprautu undir húð á upphandlegg, í fljótlegri sársaukalausri aðferð. (Innskot Agný-Síðan hvenær finnur maður ekki fyrir sparutu? )
Skannerinn og hugbúnaðurinn sem fylgir með tryggir að persónulegar upplýsingar, opnanlegar með 16-digit kóða, verði aðeins veittar þeim sem að sjúklingurinn sjálfur hefur gefið leyfi til, sagði Silverman.
" Jafnvel þó að fólk fá aðgang að þínu kennitölu númeri, sem mun verða sérstaklega erfitt að gera, þá mun það samt ekki veita þeim aðgang að þínum skrám. Við eru sannfærð um öryggismælikvarðana sem við höfum gert", sagði Silverman.
Andstæðingarnir færa rök fyrir því að heilsufars kostirnir séu í lágmarki þegar best láti.
Sjúklingar geti nú þegar borið armband sem að geri læknum kleyft að sjá þeirra kennitölu og sérstakrar umönnunar sem þeir þurfa. Þessi fáeinu mistök hafa orsakast vegna þess að ekki hefur verið hægt að bera kennsl á sjúklinginn, segja þeir.
En möguleikinn á misnotkun sé mikill, vara þeir við.
"Þegar til lengri tíma er litið, miðað við eftirlitsmyndavélar, eftir 5-10 ár munum við hafa þessa lesara í staðin. Þú munt labba inn í 10-11 og það mun verða tekin af þér mynd og skönnuð kennitalan þín" sagði Richard M. Smith, Internet öryggis- og einkaráðgjafi í Boston.
" Ef að við byrjum á því að bera þessi strikamerki, skapar það örugga leið, annaðhvort fyrir einka öryggisfyrirtæki eða stjórnvöld, til að hafa eftirlit með okkur."
Marc Rotenberg, stjórnarformaður Electron Privacy Information Center íWashingthom sagði, að hann væri hræddur um að fólk yrði neytt til að láta setja ígræðsluna í sig.
" Þegar þú setur (kenni)strikamerki undir húð á fólki, þá gerir þú fólki ókleift að fjarlægja strikamerkið, svona eins og með brennimerkta nautgripi.," sagði Rotenberg.
"Líklegasta umsóknin mundi fela í ser fanga og fanga á reynslulausn,hver veit nema að einn daginn þeir sem eru ekki ríkisborgarar í USA".
"Ég held að það þurfi að koma til einhver löggjöf til að koma í veg fyrir misnotkun".
Silverman lét þessa áhyggjur framhjá sér fara, hann sagði að tæknilega mundi misnotkun vera mjög erfið..
(Innskot Agný-Var það ekki líka sagt um tölvumisnotkun í denn? Og að jákvæðu þættirnir vægju meira en áhættan...)?
Þýðandi. Inga/Agný.
Related story on Reuters:
http://www.reuters.com/audi/newsArticle.jhtmltype=technologyNews&storyID=6492915
Mannréttindi | Breytt 26.5.2016 kl. 04:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.5.2007 | 16:35
Mín reynsla af mistökum lækna og heilbrigðis starfsfólks.....að vísu get ég því miður skrifað fleiri..
Tók þá ákvörðun að birta mína reynslusögu hér ......
(margir búnir að biðja mig um það)
ja þessa- þær eru því miður fleiri og ef ég læsi ekki áður um x lyf sem hafa verið skrifuð upp á fyrir mig - ja þá væri ég ekkert að pikka þetta núna- ég væri undir grænni torfu eða slefandi inni á einhverri stofnun)
Mun samt ekki nafngreina neina sem að málinu komu.
Þið verðið að afsaka það að ég er ekkert voðalega góð í því að segja frá einhverju í stuttu máli .
*******************************************+
Ég úlnliðsbrotna 3 feb"02 en það er á sunnudegi og dagana á undan hafði verið alveg brjálað rok og fylgdi rosaleg sjávarselta því.
Ég var í heimsókn hjá vinkonu minni sem leigir í blokk og þar tók liðið upp á því að fara að þvo gluggana utan en það var 6 stiga frost og autt.
Sennilega sama liðið og dettur í hug að þvo bílinn sinn í frosti.
Ég man eftir að ég segi við vinkonu mína " er ekki í lagi með þetta lið", hver fer að þvo utan glugga í frosti?" Eins gott að enginn detti og slasi sig og brotni.
2-3 tímum sinna fór ég út og þá hafði vatnið myndað þessa fínu ísingu og ég dett og brotna.
Fór upp á bráðamóttöku í Fossvoginum og voru teknar 2 myndir og kom i ljós að ég er úlnliðsbrotin og þegar ég skoða myndirnar þá spyr ég lækninn hvort að þetta sé eðlilegt , fannst ég sjá eitthvað skrítið ( var 2 mán áður búið að taka mynd af þessari sömu hendi þannig að ég vissi hvernig hún leit út óbrotin) sagt að það sé bara venjulegt úlnliðsbrot.
Málið er að ég dofnaði aldrei og var ekki verkjalaus einn dag frá því og þar til eftir x langan tíma eftir aðgerðina á hendinni sem ég varð að fara í ..
Svo er ég gifsuð af hjúkrunarlærling. Kom síðar í ljós að ég hafði verið gifsuð vitlaust.
Ég var alveg frá af kvölum alltaf og litli putti var klemmdur inn í lófann en það var radius sem brotnaði en ekki ulna en samt var verkurinn á ulnunni sá sem var að drepa mig en ekki þeim megin sem ég brotna.
Svo kem ég í endurkomu 11 feb og það fyrsta sem bæklunarlæknirinn segir við mig er að hann viti að ég hafi verið í góðum höndum fyrst að það hafi verið "frændi sinn " sem tók á móti mér þarna í upphafi, eitthvað var ég ekki sammála því og segi að það fari nú tvennar sögur af því, þekki annan aðila sem hafði lent á þeim manni og ekki góð saga.
Kanski ljótt að segja það en ef að sá sem tók á móti mér í upphafi hefði verið hestur, þá myndi hann drukkna í rigningu... ( myndi rigna upp í nasirnar á honum..) en sumir sem eru mjög lágvaxnir reyna að gera sig "stærri " með hroka og rembingi.....þessi var í þeim hópi.....
Ég reyndi svo að segja honum að ég væri að kálast í handarjaðrinum /ulna og spyr hvort að hann geti ekki losað gifsið en það var ekki viðlit að fá hann til þess.
Hann átti náttúrulega ekki auðvelt með að viðurkenna að eitthvað væri að þar sem það var frændi hans sem tók á móti mér.
Að vísu var sagað aðeins framan af gifsinu, og segir hjúkrunarfræðingurinn við mig að ef það fari að losna eitthvað þá geti ég bara bleytt það og þrýst saman sjálf, ég segi henni að það detti mér ekki í hug þar sem að það sé eitthvað ekki í lagi, og að þá ætli ég ekki að láta klína því á mig og miðað við ástæður brotsins.
Hef að vísu aldrei fyrr heyrt að fólk eigi sjálft sem brotnar að vera eitthvað að káklast í gifsumbúðum fyrr en þarna og enginn sem ég þekki hefur heldur heyrt það.....
Það endaði með því að ég gafst upp á þessum verkjum og fór til læknis , um miðjan feb, venjulegs heimilislæknis hér sem ég bý og hann tók gifsið og tók 4 myndir, (bara teknar 2 í hvort skifti áður,) með græjum sem eru alltaf sagt að séu ekki nógu góðar eða fullkomnar en hann sér beinflís og segir að það sé ca 5 % skekkja í hendinni en enginn af hinum tók eftir þessu.
Hann sagði að þetta væri að vísu það lítil skekkja að það væri oft að hún lagaðist sjálf, gæti versnað við inngrip. Verkurinn hætti svo sem ekki en minnkaði við að hann setti annað gifs og rétt sett á hendina.
Hendin á mér var þannig snúin að það var eins og ég væri að fara að heilsa fólki.
Ég fór svo næst til annars bæklunarlæknis í næstu endurkomu sem var um miðjan mars og var þá skekkjan orðin 15% og sendir hann mig til handarsérfræðings sem segir mér að væri ég eldri, um 70,
þá væri kúlan á ulnunni tekin og hendin gerð að staur. Hann sagði að á þeim aldri hefði þetta verið flokkað sem beinþynningarbrot en þar sem ég væri ekki eldri en ég er, þá væri eina ráðið til að rétta hendina að skera og setja bein úr mjöðminni í og stálplötu.
Hann sagði að þetta flokkaðist undir mjög stóra aðgerð og sagðist vísa mér á þann sem væri bestur í að gera þær aðgerðir, til læknis sem væri meiri sérfræðingur í handaskurðlækningum en hann.
Ég skal viðurkenna að sá aðili sem hann sendi mig til er góður í sínu fagi.
Sá læknir er allavega ekki einn af þeim sem hefur fengið diplomað sitt í Cheerios pakka í Bónus eins og mér fannst með frændurnar sem að ég lenti á í upphafi...
Til hans kemst ég svo í byrjun maí og hann segir að beinflísin hafi sést strax á fyrstu myndunum.
Hann flokkaði þessa aðgerð undir bráðaaðgerð og átti að reyna að koma mér í hana fyrir lokanir á deildum sem yrði í júni. Hvað flokkast undir "bráða" er mér svo sem spurn því þessi blessaða " bráða" aðgerð varð svo ekki fyrr en 26 mars "03.
Ég lenti í því að vakna upp í aðgerðinni, hélt fyrst að ég hefði bara verið svona berdreymin en svo var ekki, það veit ég núna, þó svo að ég sé ekki búin að lesa skýrslurnar.
Í þessum undarlega draum þá finn ég alveg hrikalegan sársauka í mjöðminni, svona eins og þegar maður sker sig á pappa eða blaði nema það var eins og væri verið að skera aftur og aftur..
Ég beit saman vörunum vegna kvalanna, en hef sennilega lent undir túbunni með neðri vörina því að ég var með skurð innan á henni og dofin þegar að aðgerðinni er lokið.
Ég sá útundan mér upp á grænklætt lið og hendina á mér og horfði beint í skurðinn og það voru stálkrókar sem héldu sárabörmunum opnum.
Man að ég hugsaði að þetta væri eins og krókarnir sem voru notaðir til að færa kjötskrokkana til á sláturhúsinu...
Ég fór svo að reyna að snúa mér og vinda til þess að losna og svo man ég ekki neitt meir fyrr en uppi á vöknun....
Þegar ég lýsti þessu fyrir vinkonu minni sem hafði unnið á spítala í um 15 ár þá segir hún að það séu akkúrat svona krókar sem væru notaðir...og að það sé alveg pottþétt að ég hafi vaknað upp af svæfingunni..
Aðgerðin var kl 13 og mér sagt að hún væri 1 tími, væri styttri af því að sá sem tók beinið úr mjöðminni gat unnið um leið ogsá sem skar í hendina en það var ekki sömu megin..
En aðgerðin var ekki lokið, hvað sem flokkast undir aðgerðina hvort það er bara tíminn frá því að byrjað er að skera og búið að sauma saman en henni var lokið 14:45 og er ég vel vöknuð milli 15:30 og 16 rúmið var beint á móti klukkunni þannig að ég sá vel á hana.
Hef farið í aðrar minni aðgerðir en aldrei verið svona fljót að vakna og né svona með það sem ég kalla fljótt með fulle fem, sem er svo sem afstætt kanski.
En ekki fékk ég að fara af vöknun fyrr en kl 7 um kvöldið og aldrei nein svör eða útskýringar þegar ég spurði afhverju ég mætti ekki fara þar sem ég væri vel vöknuð..
Karlinum mínum var sagt að hann gæti komið eftir þennan klukkutíma sem að aðgerðin átti að taka en þegar hann kom og spurði um mig þá er honum sagt að ég sé enn í aðgerð og hann spyr afhverju það sé þar sem aðgerðin átti bara að taka 1 tíma.
Honum er sagt að það hafi eitthvað komið upp á í aðgerðinni og með það er hann skilinn eftir og engin skýring.
Hann svo bara látinn bíða án þess að fá að vita neitt meir..þannig að hann sat og beið án þess að vita eitt eða neitt....
Morguninn eftir aðgerðina þá er ég orðin með meiri verki í hendinni sem að ekki var krukkað í og ég ég þurfti að halda hendinni upp í loft svo að salvatnið og sýklalyfið kæmust inn...
Það varð að setja sýklalyfið með í drippið því að það komst ekki inn í æðina vegna bólgu ( veit það núna) en varinar á mér voru sko þvílíkt rauðar og brennandi að það lá við að heyrðist hviss þegar ég setti ískaldan blautan þvottapoka á þær.. Þar fyrir utan að þær hefðu betur passað á svertingja .....nema fyrir litinn.....
Ég lenti svo á hjúkrunarfræðing kvöldinu eftir aðgerðina sem vildi meina að ég væri með ofnæmi fyrir parkodín en ég hef ofnæmi fyrir acetiýlsalicýlsýru og nikkel, það stóð alveg rétt í minni skýrslu, en hún var sko ekki til umræðu með að hlusta á það sem ég sagði og ég ekki nógu hörð að heimta að fá að sjá þessa svokölluðu mína skýrslu enda að drepast úr kvölum og orðin rauðflekkótt eins og skarlatsóttar sjúklingur og æðin þar sem drippið var í orðin rauð og bólgin nærri upp undir handveg...
Ég fékk líka ofnæmi fyrir sýklalyfinu sem ég fékk í æð og bláæðabólgu ( fylgist víst oft saman með því ofnæmi) Þegar kvalirnar í hendinni voru orðnar meiri í þeirri sem ekki var skorið í þá er held ég örugglega eitthvað mikið sé að.
Mér er spurn hvernig svo manneskjunni sem var með parkodin ofnæmið hafi reitt af því að trúlega hefur henni þá verið gefið það sem ég átti að fá.
Skyldi hún hafa látist af völdum rangrar lyfjagjafar eða hvernig reiddi henni af?
Þegar ég var að sýna þessum sama hjúkrunarfræðingi útbrotin og asnast til að spyrja hvort þetta geti verið út af sýklalyfinu, segi að þessi útbrot séu lík því sem ég hafi fengið þegar mér hefur verið gefið Doxýtab.
Hún segir þá að Doxýtab sé ekki sýklalyf, ég segi þá við hana að mér hafi nú allavega verið gefið það sem slíkt nokkrum sinnum.....
Nei það átti sko ekki að vera það, kom með einhverja romsu um að það virkaði svona og hinsegin á frumurnar.
Halló! Það virka öll lyf á einhvern hátt á frumur.......
hemjandi, hvetjandi...lamandi, drepandi...!!!
Í lyfjabókinni segir allavega þetta:
Doxýtab er sýklalyf af flokki tetracýklinlyfja.
Hún bauð mér svo að ég gæti fengið lyf við ofnæmi en ég afþakkaði, sagðist ekki fara að taka lyf við bara " einhverju" ofnæmi, vildi fyrst fá að vita ástæðuna fyrir þessu.
Morguninn sem ég fer heim þá er ég enn með þessi útbrot og sýndi þá lækni á stofugang það og hann kom með sömu lausnina bara lyf við ofnæmi án þess að skoða ástæðuna fyrir þeim.
Minn lækni sá ég ekki nema morguninn eftir aðgerð.
Hann hafði sagt mér að ég ætti að fá resept og endurkomutíma með mér þér ég færi heim.
Segi ég þetta við þann hjúkrunarfræðing sem ég var með þá og hún hreytir í mig að ég geti bara farið út í apotek og keypt parkodín og ég segi við hana að það sé að koma helgi og maður fái ekki keypt nema 1 pk af því og ég kveið fyrir því að fara að sitja í bíl þó að leiðin væri ekki lengri en upp í Borgarnes...
Enda voru kvalirnar þokkalegar í mjöðminni þar sem beinið var sagað úr ofan á hina verkina...
Hún rauk svo burt og kom með resept og kom svo í ljós að það var venjulegt parkodín en fékk að vita seinna að það átti að vera parkodín forte sem læknirinn ætlaði mér.
Þessi hjúkka vissi þó allavega að ég hafði ekki ofnæmi fyrir þessu lyfi.
Stálplötuna þurfti svo að fjarlægja ári seinna vegna þess að taugarnar voru farnar að sargast á plötubrúninni...Mér skilst að ég geti ekki búist við því að verða án verkja í hendinni í framtíðinni samt sem áður, en er svo sem farin að venjast því.
Ég lenti sem betur fer ekki á neinum eftirlíkingum af lækna og hjúkrunarliði þegar að platan var tekin eins og síðast.
Það má segja að sá hjúkrunarfræðingur sem ég hafði núna hafi gefið mér smá trú aftur á þeim sem vinna í þessum geira. Hún var virkilega góð og mannleg en það er ekki alveg hægt að segja um hinar 2 í fyrra skiftið. Voru að vísu fleiri en þær sem ég hafði samskifti við og voru þær í lagi að mínu mati.
Mér finnst samt ég verða vör við að sumt af þessu fólk mætti alveg fara á námskeið í mannlegum samskiftum og ekki vera í þvi að gera lítið úr sjuklingum, það er alveg nógu illa sem sumum líður, þó að það sé ekki komið fram eins og viðkomandi sé ekki með fullu viti ofan á það að vera veikur.
Margir segja að ég eigi að kæra þessa aðila og hef ég svo sem velt því fyrir mér.
Þó ekki nema fyrir það að það hljóta að vera líkur á að einhverjir aðrir lendi á þessum sömu aðilum og eigi þá í hættu með að lenda í einhverju veseni eins og ég.
Ég slapp þó lifandi en það er ekki víst að allir hafi verið og séu svo heppnir.....
Þetta er svona megin sagan af mínum hrakföllum og hrakförum í heilbrigðiskerfinu, en ég verð bara að segja að þarna lenti ég á manneskjum sem væru held ég betur komanar í vinnu annar staðar en í heilbrigðisgeiranum.
Það er allavega lágmark að koma fram við sjúklinga eins og fólk, en það endaði með því að ég sagði að það mætti halda eftir framkomu sumra við mann, ekki bara mig, ég hlustaði á hvernig talað var til gamals fólks af mikilli vanvirðingu og hroka, af sumum sem á þessum spítala vinna, að maður hefði skilið þessa litlu vitglóru sem að maður taldi sig hafa eftir á þröskuldinumáður en maður fór inn.
Það hlýtur að vera kominn viskubrunnur fyrir utan Borgarspítalann .
Ég hef að vísu sleppt fáeinum atriðum úr þessari sögu en læt þetta duga.....
Mannréttindi | Breytt 31.3.2016 kl. 03:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggvinir
- 666
- annasteinunn
- artboy
- athena
- berglindnanna
- bergthora
- biddam
- birgitta
- bofs
- brylli
- coke
- daystar
- dofri
- doriborg
- ea
- ellyarmanns
- estersv
- fridaeyland
- gammon
- gmaria
- gudrunmagnea
- gullvagninn
- gunnipallikokkur
- habbakriss
- halkatla
- hallarut
- halldorbaldursson
- hallurg
- handtoskuserian
- heida
- heidathord
- heidistrand
- heimskringla
- hjolagarpur
- hlynurh
- hlynurha
- id
- ingo
- ipanama
- ippa
- jensgud
- joninaben
- jorunn
- josira
- kallimatt
- ketilas08
- kiddih
- kiddijoi
- kiddip
- killerjoe
- killjoker
- kiza
- kollaogjosep
- konur
- limped
- lovelikeblood
- lydurarnason
- malacai
- mia-donalega
- molta
- morgunstjarna
- nonniblogg
- ofurbaldur
- olafurfa
- omar
- omarragnarsson
- overmaster
- perlaheim
- poppoli
- prakkarinn
- predikarinn
- proletariat
- ragnargests
- rheidur
- rosabla
- saethorhelgi
- salist
- sigurjonn
- sigurjonth
- sirrycoach
- sjos
- stebbifr
- svarthamar
- sveinnhj
- tharfagreinir
- trollchild
- tru
- upplystur
- vertu
- vglilja
- vitale
- alla
- dufa65
- andres08
- gumpurinn
- danna
- arit-bloggar
- apalsson
- taoistinn
- asgrimurhartmannsson
- heiddal
- brahim
- gattin
- brandarar
- rafdrottinn
- saxi
- eysi
- fafnisbani
- fiskurinn
- geiragustsson
- morgunn
- gudjonelias
- gjonsson
- lostintime
- tilveran-i-esb
- conspiracy
- skodun
- holi
- vulkan
- heim
- hildurhelgas
- drum
- truthseeker
- holmdish
- don
- danjensen
- ingaghall
- johannvegas
- jonasg-egi
- jonasg-eg
- joningic
- jonmagnusson
- alda111
- bisowich
- andmenning
- kristinthormar
- lotta
- ludvikludviksson
- astroblog
- vistarband
- marinomm
- manisvans
- minnhugur
- bylting-strax
- olafur-62
- pallvil
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- sviss
- bjornbondi99
- shhalldor
- infowarrioreggeiri
- sigvardur
- thorthunder
- thee
- tigercopper
- vefritid
- zordis
- tsiglaugsson
- thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
2 dagar til jóla
Um bloggið
Hitt og þetta...aðallega hitt...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Nýjustu færslurnar
Nýjustu albúmin
Tenglar
Uppáhalds síður
Margvísleg málefni.
Ýmsir vefir.
- Velvirk börn Félag hæfileikaríkra og skapandi einstaklinga
- Heilsubankinn Meðferðar og þjónustuaðilar
- Sannleikurinn minn Fróðleikur um ýmis heilsumál
- Heimasíðan mín Ýmislegt efni.
- Gagnauga Gagnauga er upplýsingavefur um alþjóðamál
- MSSPJALLIÐ Opið Spjallborð um MS
- Ablechild.org Parents for Label and Drug Free Education
- ASPARTAME KILLS Rumsfeld og Aspartame
- Óvenjuleg og umdeild mál 9/11, samsæriskenningar...
- The National Foundation for Gifted and Creative Children Samtök hæfileikaríkra og skapandi barna
- Upplýsingasíða um MSG If MSG isn´t harmful, why is it hidden?
- Spjallborð um 911 og ýmislegt plott
- Þessi síða er alveg must read ýmislegt sem þú sérð bara hér
- The SPECTRUM Ýmsar greinar
- Label Me Sane Fjallað um ofnotkun lyfja.
- Alliance for Human Research Protection Samtök gegn tilraunum á fólki
- Organic Consumers Association Neytendasamtök fyrir lífrænt
- Freedom Or Facism ? Frelsi eða Facismi?
- Health Truth Revealed Hulunni svipt af heilsu málefnum
- Quackpot Watch "The last days of the Quackbusters "
- True Torah Jews/Jews Against Zionism Traditional Jews Are Not Zionists
- Question 911.com Free DVD download / frítt niðurhal
Talnaspeki / Numerology
Fróðleikur um þessa speki
- Sun - Angel Numerology Frítt dæmi þarna
- Free Numerology Reading Meira en bara talnaspeki..
- Your Reading / Agny Lýsingin á mér...
- INDIGO intentions Tarot, numerology, Indigo children, Reiki, Angels reading
Fyndið stuff.
Myndir, brandarar og glens.
- Cartoons Teiknimyndir
Andleg málefni
Allt sem tengist þeim málum.
- AEROSOL OPERATION CRIMES & COVER-UP SPRAYING US AS A BUG..
- Crystalinks Þessi síða er hreinlega með allt.
- Tarot Cards & Free Readings Frí Tarot spá
- Mind Power News Kraftur hugans.
- Progressive Awareness Research Allt mögulegt andans stuff.
- Tilvitnanir / quotes Ýmsar tilvitnanir
- New Jersey ghost hunter center Drauga "veiðar"
- The Tree of the Golden Light Ýmis andleg mál
- Mayan Calendar Articles Tímatal Mayanna
Stjörnuspeki / Astrology
Fróðleikur um þessa speki.
- The Future Minders Frítt dæmi þarna
Síður um ADD / ADHD
Upplýsingar um athyglisbrest / ofvirkni.
- Dr. Mary Ann Block ,, Find the course, fix the problem".
- A Multisensory Learning Program Kennslugögn fyrir ADD / Autism / Dyslexia
- Exposing the Fraud of ADD and ADHD Fred A. Baughman Jr., MD Neurologist, Pediatric Neurology
- Stimulant Drugs for ADHD and ADD Örvandi lyf við ADHD og ADD
- "Are Psychiatrists Betraying Their Patients?" Eru geðlæknar að svíkja sjúklingana sína?
- "Our Toxic World" " Okkar eitraði heimur"
- No proof mental illness rooted in biology Engin líffræðileg sönnun fyrir geðsjúkdómum
- Death From Ritalin Snannleikurinn á bak við ADHD
- Methylphenidate ( virka efnið í Ritalin) Drug and Chemical Evaluation Section
- What Drugmakers of ADD & ADHD Drugs vilja ekki að þú vitir
- Answers for ADHD Questions Svör við ADHD spurningum.
SSRI lyf og önnur þunglyndislyf
Ýmsar síður um hugarfars breytandi lyf.
- Dangerous Medicine forum Spjallborð
- Antidepressants Facts Staðreyndir um þunglyndislyf.
- SSRI Stories Ekki er sannleikurinn fallegur...
- International Coalition For Drug Awareness Verum meðvituð ...
- PROTECT YOUR CHILDREN NOW Verndum börnin okkar!!
- THE DARK SIDE OF PSYCHIATRY Dökka hlið geðlækninganna
- How psychiatry is making drug addicts out of America´s shool children Amerísk skólabörn gerð að læknadóps fíklum.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine. SEARCH ENGINE
Asperger syndrome og Autism
Síður sem fjalla um Asperger og einhverfu
- Aspergers Syndrome in Children Góð síða (mín skoðun)
Blogg úr ýmsum áttum..
Vinir / áhugaverðir einstaklingar.
- Sigurjón Þórðar.
- Nornin
- Tigra
- Anna panna
- Þarfagreinir
- Katrín ódæla
- Klisja
- Olasteina "Fjarskyld frænka"
- Nornin Vinkona af Baggalút.
- Geiri 3d.
- Laramin
- Sigunzo
- Ditto bloggar Yndisleg og spes manneskja.
AGLOCO
- AGLOCO Borgað fyrir að browsa..
http://skorrdal.com/
MICROCHIP - RFID
- Microchip Implants News Articles MIND CONTROL; ÖRFLÖGUMERKINGAR; RFID
UMDEILD MÁLEFNI
- WIDE EYE CINEMA WIDE EYE CINEMA is dedicated to showcasing the very best alternative truth-related documentaries & cinema uploaded onto the World-Wide Web.
MY FAVORITE SITES
- This site is number 1 on 10 black list sites of US gov. Here you find it all.Specially what the elite do not want you to find
- Alvaran Forum about what some call conspiracy
- Prophecies of Sollog Sollog is a POLITICAL PRISONER of the USA!
- Ingaoramas video VIDEOS
- So you wanna talk conspiracies? try this on for size. JUST GO THERE...
- ConCen An eye openinger
- What you should not know...is here.. Knowing litle about lot is better than know lot about a little...
HAARP
- Chemtrails Data Page Chemtrails - Frequently Asked Questions
CHEMTRAILS
- CHEMTRAIL CENTRAL Þetta er forum um Chemtrails og málefni tengd efna úðun úr lofti..
- Chemtrails news, articles and information Cemtrails=Efnarákir
- CHEMTRAILS -HAARP-GEOENGIERING-DEPOPULATION AT WORK CHEMTRAILS síða- fyrrverandi FBI starfsmaður leysir t.d. frá skjóðunni- núna látinn..
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir- Ísland er ekki undanskilið þessu ógeði!
- Chemtrails = Aerosol spraying to change the atmosphere. Chemtrails = Aerosol spraying of barium, "fibers", pathogens.
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir
TRANSLATE-ÞÝÐA
- Translate your website into 52 languages Just copy and paste the Translate This Button anywhere on your site, it's free and easy. There are no files to upload and it works on almost any website. The Translate This Button is a lightweight JavaScript translation widget. It translates any page quickly using Ajax and the brilliant Google Translate.
VERICHIP-WE THE PEOPLE WILL NOT BE CHIPPED!
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heilsumálefni
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Óvenjuleg og umdeild mál
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði