Leita í fréttum mbl.is

50 einkenni sem líkja eftir ADHD sem geta orsakað ranga greiningu

ADHD er greint af sérfræðingum sem mynda sér sínar skoðanir út frá hegðun barnsins.
Það er ekki gert heilaskann, blóðrannsóknir eða annað sem skýrir greininguna sem gerð er/var.

Vandamálið er að það er margt annað sem sýnir sömu einkenni og ADHD.
Margir foreldrar, sætta sig við ADHD greininguna án þess að skoða nokkuð annað, vegna þess að þau vita ekki betur og trúa því sem læknirinn segir blint.

T.d. öll vandamál sem lúta að eldsneyti líkamans:
Vatn, matur, blóð og loft getur orskað hegðunarvandamál.
Vatn, matur, blóð og loft eru fyrir líkamann sem olía er fyrir bílinn.
( við förum oft betur með bílinn en okkur..)

Ef þú setur lélegt bensín á bílinn eða ranga olíu , þá má segja að það hafi sömu áhrif á bílinn og það er fyrir barnið að borða fæðu sem það hefur ofnæmi fyrir eða drukkið mengað vatn,
eða hefur blóðóreglu, þá getur það eða líkamsstarfsemin ekki virkað rétt.


Einkenni sem mest er horft framhjá sem eftirlíkja ADHD:
(! 1.)
Hypoglycemia
Lágur blóðsykur getur stafað af skjaldkirtils óreglu, lifrar eða bris vandamálum, afbrigðilegum nýrnahettum eða ófullnægjandi mataræði.
Lágt blóðsykurs hlutfall getur sýnt sömu einkenni og ADHD

2 (!2 )
Ofnæmi.
15-20% af heiminum hafa sömu tegund ofnæmis.
Manneskja getur haft ofnæmi fyrir svo gott sem öllu. Þannig kannið allar hliðar þar.
Fæða er einn mesti orsakavaldur ofnæmisviðbragða.
Ef að barn borðar fæðu sem það er með ofnæmi fyrir mun líkaminn ekki virka/vinna rétt og það getur haft áhrif á hegðun.
Allir eru misjafnlega viðkvæmir fyrir ofnæmi, þannig að þó að þú verðir ekki fyrir áhrifum, eða ofnæmi sé ekki þekkt í fjölskyldunni, þá þýðir það ekki að barnið þitt geti ekki verið það.
Dæmi:  matarlitur, mjólk, súkkulaði og korn, MSG o.fl.

3 (! 3.)
Námsörðugleikar:
Ef að aðal staðurinn sem að hegðunarvandamálin koma upp á er í skólanum, þá gæti vanmáttur eða vanhæfni gagnvart náminu verið orsök slæmrar hegðunar.
Eitt af megin þáttum sem hefur áhrif á sjálfsmynd barnsins er hversu vel því gengur í skólanum.
Ef að barnið hefur ógreinda námsörðugleika, þá gerir það skólaveruna miklu erfiðari, og stundum ómögulega.
Börn með ógreinda námsörðuleika eru oft stimpluð sem löt, heimsk, og margt annað, sem brýtur niður sjálfsímyndina.
Oft á tíðum þegar sjálfsímynd barnsins er í hættu, þá reyna þau að vinna það upp með öðrum aðferðum eins og leiklist, sem hrekkjusvín eða verða bekkjartrúðurinn.

4. ( ! 4. )
Of eða vanvirkur skjaldkirtill:
Ójafnvægi í efnaskiftum sem orsakast af offramleiðslu eða skorts á skjaldkirtils hormóninu.
Þetta ójafnvægi getur orsakað margvíslega hegðun og getur haft áhrif á alla líkamsstarfsemina.

5.( !. 5. )
Heyrnar eða sjónræn vandamál.:
Ef að barn getur ekki séð eða heyrt eðlilega, verða daglegir hlutir í lífii og skóla nær ómögulegir,
og það getur orsakað einkenni/ hegðun sem líkjist ADHD.

6. (!. 6. )
Vægt til hátt blý magn:
jafnvel þó að ekki sé beint um blýeitrun að ræða:
Rannsóknir sýna að börn sem eru með jafnvel vægt útreiknað blý hlutfall eru með skerta greindarvísitölu (IQ, ) athyglisbrest, og lélega skóla frammistöðu..
Blý er aðal sökudólgurinní í ofvirkni/ADHD orsakaðri af eiturefnum.
Þýðandi Agný.

Þetta hér að ofan er talið vera aðal orsakavaldarnir af þessum 50 einkennum.
Langar til að biðja fólk að skoða þetta hér vel, því að ef að eitthvað af ofantöldu er til staðar,
þá er það ekki rétta aðferðin að gefa viðkomandi Ritalín eða geðlyf.


Ef að manni væri sagt að maður væri með krabbamein eftir eitt viðtal og smá líkamlegt tékk, þá held ég að flest mundum við leita álits annars sérfræðings.
Það er enginn óskeikull og læknar eru ekki guðir þó svo að margir trúi á þá sem væru þeir slíkir.


Hér er slóðin inn á síðuna 50 condictions mimicing ADHD
http://adhdparentssupportgroup.homestead.c...micingADHD.html

http://alvaran.com/forum/

Hér er frétt sem ég þýddi og sendi líka inn á mbl.is sem frétt.

Virtur geðlæknir viðurkennir að heilbrigð börn séu greind með geðraskanir.

http://www.agny.blog.is/blog/agny/entry/151211/

Þeim virtist ekki finnast þetta vera nægilega fréttnæmt...

en þetta hér er úrdráttur úr greininni  sem ég þýddi:

brautryðjandi geðskjúkdóma greininga, guðfaðir ADHD  Dr. Robert Spitzer, hefur núna viðurkennt að heilbrigð börn séu “stimpluð”.   Spitzer sem er  geðlæknir við Columbía háskóla skýrði BBC2 frá því að börn sem sýndu fullkomlega eðlileg hamingju og sorgar viðbrögð væru  stimpluð veik á geði.

Á meðan að hann viðurkenndi þetta, þá upplýsti hann áhorfendur BBC2  um það, að það væru engar vísindalegar sannanir fyrir því að nokkurt af þeim miljónum barna með þessa greiningu,  væru með einhverjar  geðraskanir sem að réttlættu greininguna.
Né heldur geta geðlæknar  komist að niðurstöðu um það hver sé veikur eða hver sé heilbrigður.


mbl.is Aukaefni í matvælum ýta undir ofvirkni samkvæmt rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Ef að manni væri sagt að maður væri með krabbamein eftir eitt viðtal og smá líkamlegt tékk, þá held ég að flest mundum við leita álits annars sérfræðings."

Fólki er ekki sagt að börn þeirra séu með ADHD eftir eitt viðtal og smá líkamlegt tékk.

Hélstu það?

Og síðan hvenær hefur ADHD verið talið geðröskun?

Helga (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 01:47

2 Smámynd: Agný

Greinilega gerir þessi virti geðlæknir það samkvæmt þessu hér:

brautryðjandi geðskjúkdóma greininga, “ guðfaðir ADHD”  Dr. Robert Spitzer, hefur núna viðurkennt að heilbrigð börn séu “stimpluð”.   Spitzer sem er  geðlæknir við Columbía háskóla skýrði BBC2 frá því að börn sem sýndu fullkomlega eðlileg hamingju og sorgar viðbrögð væru  “stimpluð” veik á geði.

Agný, 7.9.2007 kl. 01:55

3 Smámynd: Agný

 

Góður pistill hjá þér Agný.

Raunin er sú og hefur verið nokkuð lengi að um ofgreiningar er að ræða hvað varðar misþroska rétt eins og ýmsa sjúkdóma, þar sem oftar en ekki er lagt til grundvallar afar takmarkaðar upplýsingar sem ekki byggja á líffræðilegum rannsóknum endilega.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.9.2007 kl. 01:31

Agný, 7.9.2007 kl. 01:56

4 Smámynd: Agný

Ákvað að færa athugasemdina þína hingað gmaria  þar sem ég hafði óvart skrifað sama pistilinn tvisvar...Ýmist er þetta of eða van hjá manni

Agný, 7.9.2007 kl. 01:57

5 identicon

þú ert að vísa í sjálfa þig og eigin þýðingu á einhverju sem Spitzer sagði, hann notaði orðin: medically disordered, sem þýðir ekki geðröskun,heldur einfaldlega röskun af einhverju tagi.

Á öðrum stað segir hann almennt að kannski séu um einhverjar ofgreiningar á geðrænum vandamálum að ræða í heiminum, og á þá vil alla geðsjúkdóma. Hann hefur ekki bara stundað sín fræði í kirngum ADHD heldur marga aðra kvilla.

Og það er mjög slæmt þegar fólk kemur með svona rangar fullyrðingar eins og þú gerir þarna að ofan, " eitt tékk"..hvað?

Hel (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 09:54

6 Smámynd: halkatla

góður pistill Agný, ég skil vel að þú fáir svona komment einsog sumir hafa skilið eftir sig hér. fólk nennir ekki að rannsaka þetta sjálft og vill trúa læknum.

halkatla, 7.9.2007 kl. 10:34

7 identicon

Þekkir þú mig Anna Karen?

Veist þú hversu mikið ég hef rannsakað þetta?

Ég hef sjálf farið í gegnum greiningarferli með son minn og það er langt langt langt frá því að sú mynd ( "eitt tékk") sem blogghöfundur heldur fram, sé rétt.

Hvað varðar ofgreiningar á GEÐSJÚKDÓMUM eða adhd er svo annað mál, enda hef ég ekki gefið hér til kynna mína skoðun á því en get þó sagt að ég hef aldrei nokkur tíman skilið hvers vegna einhverjum ætti að þykja það gaman að fara með barn í gegnum langt og mjög strangt greiningarferli, sem kostar mikinn tíma og peninga og vinnutap.

hvað ætti að fást með því ef ekki er um alvarlegan og rökstuddan vanda að ræða? 

Helga (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 10:55

8 Smámynd: Agný

Já Anna Karen því miður er það svo. Fólk nennir ekki að skoða hlutina þannig er nú bara staðreyndin þó svo fólk haldi kanski öðru fram þá er efirfylgnin engin....

Tilgangur minn með því að birta fréttir og greinar af hinum ýmsu heilsumálum eða heilsu vandamálum er að veita upplýsingar..mínar að vísu virðast halla mikið á lyfjaiðnaðinn og sjúkdómavæðingu og ofurgreiningar sem mér persónulega finnst allt í lagi að gera.Ég er nokkuð viss að það stóra batertíi sem lyfjaiðnaðurinn er geti alveg varið sig sjálfir..

Börnin okkar geta ekki varið sig sjálf.Foreldrar fá öllu jöfnu ekki nema upplýsingar sem komnar eru frá læknum sem hafa þær frá lyfjaiðnaðinum....Það vilja allir selja sína framleiðslu..lyfjafyrirtækin vilja það að sjálfsögðu líka..börn eru ótrúlega góður markhópur.. 

Agný, 7.9.2007 kl. 11:00

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Takk fyrir fræðsluna Agný mín.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 7.9.2007 kl. 11:06

10 Smámynd: Agný

Hvar sérð þú þessa setningu "medically disordered,"

í þessum skrifum?

even the pioneer of psychiatry’s billing bible and “godfather of ADHD," Dr. Robert Spitzer, has now admitted that normal children are being labeled. Spitzer, a Columbia University psychiatrist, told BBC2 that children experiencing perfectly normal signs of being happy and sad are being labeled as mentally ill.

jú ..reyndar kemur það fram hér...

Such was the case with homosexuality, which, while found in earlier versions of the DSM, ceased to be called a "mental disorder" after gay activists picketed an APA conference in 1973. Meira að segja samkynhneigð var skilgreind sem sálrænn sjúkdómur um tíma..

http://www.cchr.org/index.cfm/9027/19686

Hér eru nokkur video "GEÐSJÚKDÓMAR" arðbær iðnaður, lyfjamafíunnar & stjórntæki stjórnvalda VIDEO

http://alvaran.com/forum/index.php?showtopic=5508 

Það er allavega fróðlegt að horfa á þessi video hlusta á lýsingar lækna, vísindamanna og hins almenna borgara...  merkilegt að geðlæknar viðurkenna það að þeir hafa ekki læknað neinn geðsjúkdóm..til hvers þá öll þessi lyfjanotkun....

Agný, 7.9.2007 kl. 11:40

11 identicon

http://www.abc.net.au/mediawatch/transcripts/s1882075.htm

þarna eru allar þínar fullyrðingar (og annara) um það sem Spitser "sagði" hraktar.

Each and every one of these reports was wrong. And each and every mistake could have been avoided with a simple phone call to Dr Spitzer.





Dr Robert Spitzer: I never said that. It's just absurd.



Media Watch: Did any of the journalists in the articles we've discussed contact you?



Dr Robert Spitzer: Of course not.



— Statement from Dr Robert Spitzer to Media Watch

Helga (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 11:53

12 identicon

og best að hafa lokaorðin frá Spitzer sjálfum, þetta er einmitt kjarni málsins:

"I'm more concerned at people missing the diagnosis than it being overdiagnosed."

— Statement from Dr Robert Spitzer to Media Watch

svona æsifréttamennska byggð á mistúlkunum og rangfærslum þjóna börnum og foreldrum ekki og það er miður að fólk skuli láta glepjast svona illa. 

Helga (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 11:58

13 Smámynd: Agný

Kæra Helga.

Þú hefur ekki einu sinni spurt mig hvort ég hafi einhverja persónulega reynslu af ADHD /ADD .....Málið er að það geri ég og ætla ekkert að fara að útlista það mikið nema það að 2 fóstursynir mínir hafa fengið þennan stimpil ( já ég kalla það stimpil! ) 

En svo skrítið sem það nú er þá var annar þeirra (þeir eru ekki sammæðra) greindur ofvirkur í því bæjarfélagi sem hann og mamma hans búa í en ekki hér sem ég og pabbi hans búum og gekk hann hér í skóla einn vetur....

Þannig..annað hvort spilar umhverfið meiri þátt í því hvort einstaklingur er sagður/" greindur"  ADHD  eða þá að greiningar aðferðirnar eru akkúrat eins og kemur fram í pistlinum.. Það er enginn læknir eins og ekkert barn heldur eins þannig að þetta er ekki svona einfalt..

Nú á ég son sem er með Asperger syndrome og áður en það kom í ljós hvað var að honum þá var hann í 5 daga líkamlegum testum inni  á Landakoti,, til þess að ganga úr skugga hvort að það væru einhverjar lífræðilegar ástæður fyrir hendi. Blóðprufur, þvagprufur, heilalínurit og fleira...

Hvers vegna er þetta ekki gert með þá einstaklinga sem er grunur um að eigi að vera ADHD samkvæmt greiningar Biblíunni góðu?

Afhverju ekki byrja á að kanna hvort að eitthvað af því sem ég taldi upp hér geti verið orsakavaldur fyrir hegðun barnsins? 

Ég veit til dæmis um tilfelli þar sem foreldrar stelpu  ( þetta var í USA) sem var nýbyrjuð í skóla fengu skipun frá kennaranum um að fara með hana til geðlæknis því að hún væri sko pottþétt ofvirk, hún gæti aldrei verið kyrr og truflaði krakkana.. Út frá geðlækninum komu þeim með uppá skrift á lyf handa stelpunni við ofvirkninni....

Ekkert breyttist ástandið við það..manneskjan sem sagði mér þetta  fjölskylduráðgjafi  var beðin af foreldrunum að koma inn í bekkinn og fylgjast með stelpunni.. Jú það var rétt stelpan gat ekki setið kyrr, iðaði sér í sætinu og útaf stólnum og var líka togandi í buxurnar á rassinum.. og truflaði kennsluna þannig..

Fjölskylduráðgjafinn spyr stelpuna hvort að buxurnar meiði hana og játti hún því.....Ráðgjafinn spyr svo foreldrana hvort að ekki hafi verið farið með hana til  heimilislæknis, nei ekki hafði það verið gert, við áttum bara að fara með hana til geðlæknis... ráðgjafinnn biður þau að fara með hana til heimilislæknis og í almenna skoðun.. Kom þá í ljós að ADHD stúlkunnar hét njálgur!! 

Þannig að ég held að það sé réttara að byrja á almennum rannsóknum áður en haldið er lengra..  Byrja utanfrá og en ekki öfugt...

Agný, 8.9.2007 kl. 01:14

14 Smámynd: Sigríður Jónsdóttir

Ég á vinkonu í USA sem að telur að of oft sé verið að greina fólk með ADHD en það sem viðkomandi gæti í raun verið að glíma við sé skjalkyrtilsóregla, og ýmislegt annað sem að tengist líffræðini. Hún er að taka saman bók um þetta.

kv sirry 

Sigríður Jónsdóttir, 9.9.2007 kl. 15:39

15 Smámynd: Agný

Já Sirrý, það þarf að skoða mikið betur líkamlegt ástand þessarra einstaklinga sem "greindir" eru ADHD/ADD hvort sem um börn eða fullorðna er að ræða.  Langar að benda á þessa færslu hér

ADHD, Langar að segja ykkur...

Mar 31 2007, 17:03 : 54 http://alvaran.com/forum/index.php?showtopic=4406

Smá úrdráttur úr færslunni  

En þetta segir móðir drengs sem var greindur ADHD.... 

Ég á strák sem er greindur með Adhd sem er kannski ekki frásögu færandi, en mér var bent á að gefa honum OMEGA 3,6,9 og hákarlalýsi og það er þvílík breyting á barninu. Mér fannst ég bara verða koma þessu á framfæri til ykkar foreldra barna með ADHD. Þetta Omega fæst í heilsubúðum. 

Þar að auki segir hún þetta. 

Ranglega greindur ....hmm!!

Ég veit það ekki, hann er bara greindur eftir spurningalistum fyrir kennara og okkur foreldra og svo var hann látin taka einhver próf hjá barnasálfræðingi og niðurstaðan var þessi.

En ég ætla að lesa þetta.

Kveðja

******************************************************* 

ÞÞað sem mig langar að bæta við þetta er að hér segir hún hvaða test voru gerð sem voru til að ákvarða hvort drengurinn væri ADHD eðaur ei... Þannig að það passar vel við það sem ég segi í upphafi færslunnar hér...... þó svo að sumir héldu öðru fram..

Agný, 11.9.2007 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nota bene

Translate your website into 52 languages

We The People Will Not Be Chipped!

NO VERICHIP INSIDE ME! I WILL NOT BE MARKED AS I WERE A BEAST!

We The People Will Not Be Chipped!
http://www.wethepeoplewillnotbechipped.com/main/news.php
We The People Will Not Be Chipped!

Höfundur

Agný
Agný

Betra er að vita "lítið" en um "mikið", frekar en að vita mikið um lítið... 

agnyrose@gmail.com

CHEMTRAILS OR?/EFNARÁKIR EÐA?

http://www.flickr.com/photos/32781077@N02/show/

Chemtrail-Related Illnesses  SJÚKDÓMSEINKENNI TENGD EFNARÁKUM

http://globalskywatch.com 

"Better to know little about a lot..than lot about one thing"

"Betra að vita lítið en um mikið...heldur en mikið um lítið.. "

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • https  bucketeer-e05bbc84-baa3-437e-9518-adb32be77984.s3.amazonaws.com public images 9fc4e144-1976-445f-9505-142c462106fc 800x577
  • 12717675 10207211077647579 3269554484766683045 n
  • Inga-2
  • Inga-2
  • ...19_131709-1

Nýjustu myndböndin

Bólusetningarþvingun

JFK  /  BUSH

Capitalist_Conspriracy

911  A  CLOSER  LOOK

THE HIDDEN HISTORY OF 9-11-2001: Prof. Paul Zarembka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband