Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
14.1.2007 | 09:24
Hitt og þetta........
Bloggar | Breytt 17.9.2024 kl. 02:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.1.2007 | 22:03
Hvað er "blogg" í rauninni?
Bloggar | Breytt 22.3.2007 kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.1.2007 | 11:57
Mínar hugmyndir að menntastefnu...
Í sambandi við grunnskóla sem allir eru jú skyldaðir til að vera í af ríkinu, þó svo sumir hætti fyrr en honum er lokið, oft vegna eineltis þó svo ýmsar aðrar ástæður séu líka fyrir hendi....
Það sem mér finnst rangt er þetta:
Það átti ALDREI að setja grunnskólana á sveitarfélögin, þar sem einstaklingurinn er SKYLDAÐUR af ríkinu til að vera í grunnskóla í 10 ár, þá á ríkið, sem er náttúrulega við öll sem búum hér á landi, þó svo oft látum við sem ríkið sé eitthvað batterí sem reki sig sjálft, að standa straum af þeim kostnaði, öll viljum við jú að börnin okkar mennti sig eða eins og sagt var í gamla daga "verði að manni."
Ef við viljum á einhvern hátt hafa jafnræði og jafnvægi, þá er menntun á jafnréttisgrundvelli óháð búsetu
og mannfægð eða vöntun á góðum kennurum, ekki tækið til þess að svo megi verða.
Annað sem mér finnst að mætti alveg skoða og ég tel að þegar upp verði staðið myndi skila þjóðarbúinu meiri arði en það er af þessum forsendum sem ég gef hér:
Það er mikið atvinnuleysi, ungt fólk fær ekki vinnu , það á ekki/hefur ekki réttinda til atvinnuleysisbóta ,hefur heldur ekki efni á að fara í skóla þó að vilji væri fyrir hendi.
Hvað haldið þið að þetta fólk komi til með að leiðast út í eða lenda í.? Kanski vændi ? Dópneysla /sala.? Rán og innbrot.?
ER það þetta sem við viljum sjá?
Því hvar á liðið að fá peninga ef engin er vinnan og ekki hægt að fá bætur nema frá féló.
Það sem mér persónulega finndist réttara að gera því ég tel að það kæmi betur út fyrir þjóðfélagið í heild þegar upp yrði staðið er þetta:
Að ríkið myndi borga einstaklingum fyrir að vera í skóla eftir að grunnskólanámi lýkur.
Það myndi þýða það að þegar atvinnuástand batnar þá væru til einstaklingar sem eru menntaðir en ekki búnir að mæla göturnar og í ýmsu misjöfnu jafnt konur sem karlar. Tel að það yrði ódýrara fyrir ríkið þegar til lengri tíma er litið.
Kæmi betur út fyrir alla og ríkið ( sem er við!!!!) ef farið yrði að borga nemendum " laun " það er að segja tilvonandi nemendum í fjölbraut, verkmenntaskóla og menntaskóla.
Þá tel ég að við myndum fá einstaklinga út í þjóðfélagið eftir að námi í framhaldsskóla lýkur sem síður hefðu leiðst út í óreglu og eitulyfjaneyslu og annað miður gott.
Ég á einungis við að þetta yrði gert til þess að viðkomandi komist í framhaldskóla eftir að grunnskóla lýkur.
Sumir myndu að vísu líta á það sem ágæta vinnu að vera endalaust í skóla og falla kanski reglulega í þessu eða hinu til að vera " áfram á launum " en stúdentinn og verkmenntabrautir eru síður til þess fallnar að ofnota það.
Það eru nú ansi margir eilífaðarstúdentar í háskólum bæði hér og annars staðar og tel ég að ef að þeir fengu laun á meðan sé ekki rétt.
En það er alltaf meiri hætta á að einstaklingar leiðist út í þetta sem ég taldi upp ef viðkomandi hefur hvorki vinnu eða er í námi. Það þurfa allir að fá útrás fyrir sína orku sem öllu jöfnu fer í nám og vinnu en ef þú hefur hvorugt þá fer hún bara í eitthvað miður gott. Má kanski líkja þessu við þetta " betra er slæm athygli en engin".
Þessir einstaklingar myndu síður leiðast út í það sem ég taldi upp fyrr og þetta fólk yrði þjóðfélasvænni þegn heldur en sá sem hvorki hefur haft menntun eða vinnu.
Það nefnilega kostar ekkert smá fyrir ríkið afleiðingarnar af afbrotum, hvaða nafni sem þau nefnast, sem skapar þörf á stærri fangelsum, fleiri meðferðarheimili fyrir þá sem lenda í eiturlyfjaneyslu, meiri félagslegan og fjárhagslegan stuðning fyrir þá sem leiðast út í vændi og meiri lyfja og lækniskostnaður myndi örrugglega verða líka.
'Eg tel að það myndi spara stórlega til lengri tíma litið og við eiga til fólk sem gæti gengið inn á vinnumarkaðinn þegar atvinnuástand yrði gott, þegar það kæmi nú þetta svokallaða góðæri..fyrir alla...
Þeir sem eru búnir að vera án atvinnu í langan tíma, hafa jafnvel aldrei fengið vinnu eftir að grunnskóla er lokið, eru ekki einstaklingar sem vinnuveitendur vilja fá í vinnu því miður.Atvinnurekendur vilja heldur ekki einstaklinga sem eru búnir að vera á atvinnuleysisbótum lengi. Þetta fólk gengur ekki fyrir í vinnu, ég hef verið í fyrirtækjarekstri og þó að vantaði mannskap þá var það ekki fólkið sem var búið að vera á atvinnuleysisskrá lengi sem þú vildir fá í vinnu. Þú leitaðir annars staðar fyrst, áður en þú fórst að skoða þá sem eru skráðir á atvinnuleysisskrá.
Þá myndu atvinnurekendur frekar leita eftir erlendu vinnuafli.
En þetta er jú bara mín hugmynd um hvernig þjóðfélagið megi breytast, til hins betra að mínu mati, þegar á heildina er litið.
Bloggar | Breytt 22.3.2007 kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.1.2007 | 17:35
12. MERKI UM FASÍSKT STJÓRNARFAR.
Fasista stjórn hættir til að nota stöðugt þjóðrækna ímynd, slagorð og merki-
Þjóðfáninn er allstaðar opinberlegur.
Það er þetta sérkennilega megin inntak ábyrgðartilfinningar sem að núna vekur fyrst og fremst upp fascista ríki, þrátt fyrir undanfarandi þvinganir, ekki lengur bundin af alþjóða-skuldbindingum, milliríkja samningum eða lögum.
2. Borið kennsl á óvininn.
Þessi þjóðerniskennd er þekkt sem eining gegn óvininum
Almenning er safnað saman, sameinaðir í föðurlandsást og/eða gegn einhverri sameiginlegri ógn:
Skilaboð fylkisins eru stundum sett fram á þann hátt að sem auðveldast er að bera kennsl á trúarlega þemað.
3. Réttindi hverfa.
Lítisvirðing fyrir mann- og sjórnmálalegum réttindum-
Fasista stjórnarfar hlúir að tilbúnu óttakenndu andrúmslofti af ásettu ráði, með því að magna upp stress og hræðslu.
Dómskerfinu hættir til að verða aðgerðarsinni til stuðnings sjónarmiða ríkisins.
Almenningur horfir oftast framhjá eða jafnvel samþykkir af ákafa að réttindi séu afnumin. Hugtakinu um einstaklingsbundin grundvallar réttindi, er skift út gegn loforðum alræðis ríkisins um öryggi.
4. Launungar krafist.
Þráhyggja í sambandi launung og þjóðaröryggi-
Störf stjórnvalda verða í auknum mæli falin.
5. Hervald lofsungið.
Yfirburðir hervalds-
6. Fyrirtækjum hlíft.
Vald fyrirtækjanna verndað
Að jafnaði spilar þáttur viðskiftajöfra stóran hlut í því að koma fasistum að í stjórn landsins, oft með óþverra brögðum.
Þetta hjónaband mikilla auðæfa og grófs ofbeldis, telja sagnfræðingar að sé aðalsmerki og uppistaða fasista.
Þegar þetta viðskifta- ríkisstjórnar hervald sameinast, verður augljós sú ógn sem stafar af launþega samtökum..
Verkalýðsfélög og stuðnings samtök þeirra eru annað hvort innlimuð fullkomlega eða vægðarlaust bæld niður og upprætt eins fljótt og mögulegt er.
Siðspilling fær að vaxa hömlulaust-
Fasista ríki halda utan um vald sitt í gegnum tiltölulega litla hópa sem hafa sameinast, sem kjósa eða útnefna hvern annan innbyrðis í stjórnunarstöður í ríkisstjórninni, viðskiftum eða hernum.
8. Fjölmiðlum stjórnað.
Eftirlit með fjölmiðlum
Stundum er fjölmiðlum stýrt beint af ríkisstjórninni af klaufalegum undirtyllum.
Á öðrum tímum eru það viðkunnalegir innanfélagsmenn sameiginlegs fjölmiðils sem að mótar stefnuna óbeint og þess vegna faglegri.
Með ásetningi verður málfarið sjálft og starfsfólkið ákaflega samdauna og mun framfylgja því að ýta almennum skoðunum út úr aðal umræðunni.
Allar umræður sem eftir eru, lúta skilmálum og eru naumlega útskýrðar, til hagsbóta fyrir stjórnina.
Ritskoðun og sjálfs-ritskoðun, sérstaklega á stríðstímum er algeng.
9.Stjórnlaust kynjamisrétti.
Stjórnlaust kynjamisrétti-
Ríkisstjórnum fasista ríkja hættir til að vera svo til alger karlaveldi.
Fordæming fóstureyðinga og samkynhneigðar, er yfirleitt innrætt á breiðum grundvelli í stefnumálum.
10.Menntafólk kúgað.
Fyrirlitning á velgefnum einstaklingum
Fasista ríkjum hættir til að skapa öfgakennt og óvinveitt umhverfi gegn almennum gagnrýnum skoðunum, sérstaklega akademískum.
Hugmyndafræðilega rekin vísindi eru hafin til metorða og styrkt rausanarlega, á meðan framsetning sem samræmist ekki sjónarmiðum ríkisins er fyrst hunsað, síðan véfengt og gert að athlægi og að lokum rutt í burt.
Það er ekki óalgengt fyrir akademíur að þær séu þvingaðar til að ráðast á vinnu samstarfsmanna sinna.
Ritverk eru ritskoðuð; kennarar reknir og handteknir.
Frjáls listræn túlkun í verkum er ráðist á opinberlega, það sem til er, talið óþjóðernislegt og oft eyðilagt opinberlega.
11. Lögreglan hervæðist.
Þráhyggja í sambandi við glæpi og refsingu
Fasista ríki eru oft gjörn á að líta framhjá misþyrmingu lögreglu og fórna réttindum borgaranna í nafni þjóðerniskenndar.
Eftirlitskerfi og uppljóstrarar eru hafðir í vinnu, bæði til að fylgjast með samkomum mennntafólks og eins til þess að einangra nágranna og samstarfsmenn og skapa vantraust þeirra á milli.
12. Atkvæðum stolið.
Fölsuð atkvæði
Í ringulreiðinni sem skapast þegar fasistar eru að rísa upp til valda, þá verður kosninga umhverfið verulega ruglandi, spillt og hagrætt.
Fasistar við völd hafa verið þekktir fyrir að nota þessa ringulreið sem réttlætingu til að fresta
kosningum um óákveðinn tíma.
Þýð. Agný.
https://ratical.org/ratville/CAH/fasci14chars.html
WHAT IS FASCISM: IS THERE ANY FASCISM LEFT?
http://www.aetherometry.com/Electronic_Publications/Philosophy/AS1-06/AS1-06.html
FascismUSA.com
Where Big Corporations Have Become Our Government -
Bloggar | Breytt 17.10.2023 kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.1.2007 | 12:00
Smá pælingar um blogg og spjallborð ..
Smá pælingar um það sem býr að baki nikkum á spjallborðum almennt...Eða bloggi, þó að þar sé ekki sama nafnleyndin ..
Sumir eru að skrifa það sem þeir fá ekki tækifæri á að tjá sig um svona dagsdaglega og ná að gera það á netinu í skjóli nafnleyndar. Aðrir leyfa þeim karakter sem er innra með þeim en viðkomandi ekki alveg tilbúinn að viðurkenna að sé partur af viðkomandi, hann kemur kanski hér fram..
í skjóli nafnleyndar.. svona svipað og þegar sumir nota vínið sem afsökun fyrir því að gera hluti sem viðkomandi þorir ekki að viðurkenna að hann langi til. Alltaf hægt að segja eftir helgina "ég gerði þetta af því að ég var svo fullur/full"..
Vínið notað sem afsökun til að gera það sem viðkomandi kanski langaði til að gera, en getur ekki útaf persónulegum ástæðum og/eða þjóðfélagslegum.. Svo eru sumir sem í skjóli eigin nafnleyndar rakka þá niður sem þora að koma undir raunheimanafni, er það öfund sem knýr viðkomandi, eða þorir viðkomandi að rakka fólk niður í skjóli eigin nafnleyndar en smjaðrar svo fyrir sama aðila dagsdaglega?
Gleymum ekki einu, hvað við erum öll viðkvæm fyrir baktali og slúðri, það spilar stóran þátt og líka að "ég ætla sko ekki að vera fyrri til að segja eitthvað við þessa eða heilsa henni/honum" því að ég ætla sko ekki að gera mig að fífli ef að viðkomandi vildi sko alls ekki tala við mig .
Hvað ef að hinn aðilinn hugsar það sama, báðir fastir í fordómunum um að vera fífl.
Til eru tvennskonar "fífl" annað sem þegir en hitt sem talar (blaðrar), málið er að þú veist ekkert um þegjandi/þumbaralega fíflið, en því sem talar gæti haft ýmislegt til málanna að leggja. Þannig séð að þá skiftir í raun ekki máli á hvorn háttinn maður gerir sig að "fífli"...Sóa kanski mörgum árum í það að bíða eftir að hinn aðilinn sé fyrri til að brjóta ísinn sem endar svo á því að útkoman er ísöld þeirra á milli..
Afhverju ekki að taka sénsinn á því að vera fífl í annarra augum og geta kanski átt vin til æfiloka fyrir að brjóta ísinn í stað þess að skapa ísöld?
Hvort viljum við gera okkur að þegjandi fíflum eða talandi, er kanski stærsta spurningin hér..
Kanski eru sumir hér sem skrifa að fá útrás fyrir þátt í sínum persónuleika sem þeir eiga ekki auðvelt með annarsstaðar, en þora því í skjóli nafnleynda. Svo eru líka sumir sem virðast gjörsamlega verða að vefnum (kóngulóarvefnum) samlagast og samlitast og viti ekki hvað eru netheimar eða raunheimar. Svona álíka og sumt fólk sem er með einhvern sjúkdóm, það er ekki bara með sjúkdóm heldur verður sjukdómurinn og sjúkdómurinn eini og besti vinurinn og þetta fólk keppist við að næra og fæða þennan vin sem best þeir geta .
Svo er til fólk sem er algjörlega allt annar karakter á netinu og í netheimum.
Verður svona þriðja persóna , talar aldrei nema í þriðju persónu.
Ég tel að það sé vegna þess að viðkomandi finnst hann einskis verður og ekki eiga neinn tilverurétt.
Viðkomandi verður að standa fyrir utan sjálfan sig til að geta talað um sín persónulegu mál, sem að ansi margir túlka þá oft að viðkomandi sé að djóka, þegar raunin er allt önnur...
Ástæðan getur verið sú að viðkomandi hafi aldrei upplifað að vera velkominn neins staðar, allavega ekki á sínum forsendum.
Þá getur hann fallið inn í það að fara út í það að leika svona cg tala alltaf/oftast um sjálfan sig í þriðju persónu.. Þessum aðila finnst kanski aldrei að hann eigi rétt á að vera í fyrsta sæti..
Gefum okkur að við segjum vissa hluti hér um og við vissa aðila sem að við myndum kanski ekki gera augliti til auglitis og í eigin persónu.
Erum við kanski frakkari að dæma aðra og áætla persónugerð þessa eða hins, í skjóli eigin nafnleyndar? Leyfum okkur kanski að vera frakkari og kjaftforari? Stundum því miður bara dónaleg. Við sem flokkumst undir að vera fullorðin hegðum okkur því miður bara alls ekki alltaf þannig að við myndum kæra okkur um að börnin eða barnabörnin okkar læsu það sem við/þeir láta frá sér fara..
Það að vera fullorðinn þýðir ekki að maður sé fullkomin/nn ..
Það er svo sem í lagi að fá útrás fyrir hitt og þetta en reynum að meiða engan á sálinni með orðum okkar.
Munum að aðgát skal höfð í nærveru sálar, hvort sem er í net- eða raunheimum .
Megi allir finna frið í sínu hjarta og sál, fyrr verður ekki friður í heiminum almennt...
Hann þarf að koma innan frá og dreifast út á við...
Agný.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.1.2007 | 03:28
ÞARFTU AÐ SJÓÐA EGG? NOTAÐU ÞÁ FARSÍMANN ÞINN...
ÞARFTU AÐ SJÓÐA EGG? NOTAÐU ÞÁ FARSÍMANN ÞINN...
Vladimir Lagovski og Andrei Moiseynko from Komsomolskaya Pravda Newspaper in Moskow ákváðu að finna út hversu hættulegir farsímar væru í rauninni.
Það eru engir töfrar faldir í því að sjóða egg með farsímum. Leyndarmálið felst í örbylgjunum sem síminn sendir frá sér.
Þýð. Agný.
Bloggar | Breytt 18.5.2013 kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.1.2007 | 04:07
Þá hefur enn eitt árið runnið sitt skeið..
Misjafnt hefur sennilega árið verið hjá okkur öllum. Sumum gott ár öðrum því miður ekki. En svona er þetta jú bara.. Við endum flest öll með þá ósk í hjarta að nýja árið verði betra en það sem er að ljúka..
En ég verð að viðurkenna að politískt séð þá finnst mér nú ansi mikið hafa borið á misræmi í loforðum og efndum hjá ráðamönnum þjóðarinnar og ansi mikill munur á því hvað þeim finnst eðlilegt að hinn almenni íslendingur eigi að vera með í laun miðað við þá sjálfa.. Meðan stór hópur fólks á að sætta sig við um 100.000kr á mán þá finnst þeim sjálfum ekkert athugavert við að vera með á bilinu 500.000 og ríflega miljón á mánuði í laun.......
Þannig að ég reikna með að margir endi ekki árið með neitt alltof fallegum hugsunum til þessara aðila sem sjá ekkert athugavert við það að fá hátt í mánaðar laun öryrkja/ellilífeyrisþega og annarra minnihlutahópa. Það eru greinilega orðnir miðað við þennan mikla launamun 2 þjóðfélagshópar í landinu, en það er hástétt og lágstétt. Það er ekki lengur orðið til millistétt en það var það jú einu sinni...
Svo eiga þessir aðilar enn lengri frí en hinn almenni íslendingur allt út frá gömlum lögum sem voru jú barn síns tíma, þ.e. á meðan að meiri hluti alþingismanna voru bændur..Þeir þurftu jú að komast í sauðburðinn á vorin og þinglok miðuð út frá því. Upphaf þings á haustinu tóku mið af því að þeir þyrftu nú að klára að smala og slátra áður en þing var sett.. Svo miðast jú jólafríið við fengitíma blessaðar sauðkindarinnar.. Það þarf jú að "hleypa" til svo að fæðist fín og flott lömb..
En væri nú ekki eðlilegt að henda þessum lögum út?
Ekki síst vegna þess að það er eiginlega bæði búið að útrýma bændum og rollum? Það finnst mér allavega...
Þetta finnst mér að eigi að vera ein af lagabreytingum á nýju ári.
Það er að alþingismenn sitji jafn lengi á þingi og börnin okkar á skólabekk og þeir komi saman aftur á sama tíma og skólarnir byrja og að jóla og páskafrí hjá þeim séu jafn "stutt" og er hjá börnunum okkar..Finnst það helvíti hart að þeir ætlast til af yngstu kynslóð landsins meira en af sjálfum sér ..
Svo þegar þetta lið kemur saman núna eftir jólafrí þá fer mestur tíminn fram að kosningum að lofa gjörðir stjórnarinnar frá síðustu kosningum og rakka niður hina...
Komið með nýja kosninga/loforða svika þulu, sem við jú flest gleypum allt hrátt..enn á ný..
Minni okkar er ekki lengra en þessi 4 ár..öll gömlu /sömu loforðin gleypa flestir hrátt...aftur og aftur...En ég verð að segja að Davíð var klókur..hann kann sko á minni eða óminni okkar íslendinga.. Hann hafði vit á því að labba út akkúrat núna og rétta Halldóri stýrið á þjóðarskútunni...
Þannig að við munum bara eftir Halldóri við stýrið á skútunni þegar hún sökk...
Fyrsti stýrimaður býður jú yfirleitt eftir því að fá tækifæri til að verða skipstjóri á skútunni..
En það er svolítið ljótt af skipstjóranum að rétta honum stýrið er skútan er við að steyta á skeri og er að stranda...En það getur enginn vænt Davíð um heimsku...margt annað en ekki það...
þannig að ég tel að sjálfstæðisflokkurinn eigi þegar upp er staðið eftir að græða á útgöngu Davíðs..en framsókn tapa..því langtímaminni fólks er jú svo lélegt..Það mun bara muna eftir Halldóri í vor þegar að verður kosið...
Tek það fram að ég er hvorugum þessum flokkum hlynnt...Finnst venjulega sama skítafýlan að báðum...
Politískt séð er ég ekki ánægð með árið 2005..en þetta lið hefur jú að vísu staðið sig nokkuð vel í einu..en það er að svíkja lítilmagnann og traðaka á honum á skítugum skónum alveg upp í kok..
Réttara nota þann hóp sem fótaþurrku...Segi bara svei attan...
Þannig að ég er reið fyrir hönd þeirra sem minna mega sín hér á landi..
Það þýðir ekki fyrir þetta lið að koma með einhverjar fallegar innihaldslausar lofrullur fyrir mig núna við lok þessa árs.Það væri held ég mál til komið að þessir aðilar segi minna og standi við öll fallegu loforðin um betri tíð og blóm í haga handa lítilmagnanum, sem þeir telja okkur trú um að sé að renna upp..
Alltaf 1. jan hvert ár...sama gamla þulan..því miður gleypa flestir það hrátt.. aftur og aftur..
Agný.
sem átti ágætt ár en ég ætla ekki að þakka ríkisstjórninni það..
skattar, tollar og gjöld.
Viskunni ei það beri vott,
vandamálin sem hún er völd.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nýjustu færslur
- DAUÐSFÖLL AF VÖLDUM GRAPHENE OXIDE ÖREINDARHLUTUM.
- RADDKLÓNUN HLJÓMAR EINS OG VÍSINDASKÁLDSAGA EN ER NÚ ÞEGAR AÐ...
- Ríkisstjórnir og herinn úða eitruðum efnum yfir íbúa til að b...
- Viðbrögð við heimsfaraldrinum voru völd að fleiri dauðsföllum...
- LOFTSLAG - KALDUR SANNLEIKURINN. Vísindamenn sýna hvernig lof...
Bloggvinir
- 666
- annasteinunn
- artboy
- athena
- berglindnanna
- bergthora
- biddam
- birgitta
- bofs
- brylli
- coke
- daystar
- dofri
- doriborg
- ea
- ellyarmanns
- estersv
- fridaeyland
- gammon
- gmaria
- gudrunmagnea
- gullvagninn
- gunnipallikokkur
- habbakriss
- halkatla
- hallarut
- halldorbaldursson
- hallurg
- handtoskuserian
- heida
- heidathord
- heidistrand
- heimskringla
- hjolagarpur
- hlynurh
- hlynurha
- id
- ingo
- ipanama
- ippa
- jensgud
- joninaben
- jorunn
- josira
- kallimatt
- ketilas08
- kiddih
- kiddijoi
- kiddip
- killerjoe
- killjoker
- kiza
- kollaogjosep
- konur
- limped
- lovelikeblood
- lydurarnason
- malacai
- mia-donalega
- molta
- morgunstjarna
- nonniblogg
- ofurbaldur
- olafurfa
- omar
- omarragnarsson
- overmaster
- perlaheim
- poppoli
- prakkarinn
- predikarinn
- proletariat
- ragnargests
- rheidur
- rosabla
- saethorhelgi
- salist
- sigurjonn
- sigurjonth
- sirrycoach
- sjos
- stebbifr
- svarthamar
- sveinnhj
- tharfagreinir
- trollchild
- tru
- upplystur
- vertu
- vglilja
- vitale
- alla
- dufa65
- andres08
- gumpurinn
- danna
- arit-bloggar
- apalsson
- taoistinn
- asgrimurhartmannsson
- heiddal
- brahim
- gattin
- brandarar
- rafdrottinn
- saxi
- eysi
- fafnisbani
- fiskurinn
- geiragustsson
- morgunn
- gudjonelias
- gjonsson
- lostintime
- tilveran-i-esb
- conspiracy
- skodun
- holi
- vulkan
- heim
- hildurhelgas
- drum
- truthseeker
- holmdish
- don
- danjensen
- ingaghall
- johannvegas
- jonasg-egi
- jonasg-eg
- joningic
- jonmagnusson
- alda111
- bisowich
- andmenning
- kristinthormar
- lotta
- ludvikludviksson
- astroblog
- vistarband
- marinomm
- manisvans
- minnhugur
- bylting-strax
- olafur-62
- pallvil
- ljosmyndarinn
- perlaoghvolparnir
- sviss
- bjornbondi99
- shhalldor
- infowarrioreggeiri
- sigvardur
- thorthunder
- thee
- tigercopper
- vefritid
- zordis
- tsiglaugsson
- thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 6
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 272
- Frá upphafi: 316586
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 205
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
327 dagar til jóla
Um bloggið
Hitt og þetta...aðallega hitt...
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Uppáhalds síður
Margvísleg málefni.
Ýmsir vefir.
- Velvirk börn Félag hæfileikaríkra og skapandi einstaklinga
- Heilsubankinn Meðferðar og þjónustuaðilar
- Sannleikurinn minn Fróðleikur um ýmis heilsumál
- Heimasíðan mín Ýmislegt efni.
- Gagnauga Gagnauga er upplýsingavefur um alþjóðamál
- MSSPJALLIÐ Opið Spjallborð um MS
- Ablechild.org Parents for Label and Drug Free Education
- ASPARTAME KILLS Rumsfeld og Aspartame
- Óvenjuleg og umdeild mál 9/11, samsæriskenningar...
- The National Foundation for Gifted and Creative Children Samtök hæfileikaríkra og skapandi barna
- Upplýsingasíða um MSG If MSG isn´t harmful, why is it hidden?
- Spjallborð um 911 og ýmislegt plott
- Þessi síða er alveg must read ýmislegt sem þú sérð bara hér
- The SPECTRUM Ýmsar greinar
- Label Me Sane Fjallað um ofnotkun lyfja.
- Alliance for Human Research Protection Samtök gegn tilraunum á fólki
- Organic Consumers Association Neytendasamtök fyrir lífrænt
- Freedom Or Facism ? Frelsi eða Facismi?
- Health Truth Revealed Hulunni svipt af heilsu málefnum
- Quackpot Watch "The last days of the Quackbusters "
- True Torah Jews/Jews Against Zionism Traditional Jews Are Not Zionists
- Question 911.com Free DVD download / frítt niðurhal
Talnaspeki / Numerology
Fróðleikur um þessa speki
- Sun - Angel Numerology Frítt dæmi þarna
- Free Numerology Reading Meira en bara talnaspeki..
- Your Reading / Agny Lýsingin á mér...
- INDIGO intentions Tarot, numerology, Indigo children, Reiki, Angels reading
Fyndið stuff.
Myndir, brandarar og glens.
- Cartoons Teiknimyndir
Andleg málefni
Allt sem tengist þeim málum.
- AEROSOL OPERATION CRIMES & COVER-UP SPRAYING US AS A BUG..
- Crystalinks Þessi síða er hreinlega með allt.
- Tarot Cards & Free Readings Frí Tarot spá
- Mind Power News Kraftur hugans.
- Progressive Awareness Research Allt mögulegt andans stuff.
- Tilvitnanir / quotes Ýmsar tilvitnanir
- New Jersey ghost hunter center Drauga "veiðar"
- The Tree of the Golden Light Ýmis andleg mál
- Mayan Calendar Articles Tímatal Mayanna
Stjörnuspeki / Astrology
Fróðleikur um þessa speki.
- The Future Minders Frítt dæmi þarna
Síður um ADD / ADHD
Upplýsingar um athyglisbrest / ofvirkni.
- Dr. Mary Ann Block ,, Find the course, fix the problem".
- A Multisensory Learning Program Kennslugögn fyrir ADD / Autism / Dyslexia
- Exposing the Fraud of ADD and ADHD Fred A. Baughman Jr., MD Neurologist, Pediatric Neurology
- Stimulant Drugs for ADHD and ADD Örvandi lyf við ADHD og ADD
- "Are Psychiatrists Betraying Their Patients?" Eru geðlæknar að svíkja sjúklingana sína?
- "Our Toxic World" " Okkar eitraði heimur"
- No proof mental illness rooted in biology Engin líffræðileg sönnun fyrir geðsjúkdómum
- Death From Ritalin Snannleikurinn á bak við ADHD
- Methylphenidate ( virka efnið í Ritalin) Drug and Chemical Evaluation Section
- What Drugmakers of ADD & ADHD Drugs vilja ekki að þú vitir
- Answers for ADHD Questions Svör við ADHD spurningum.
SSRI lyf og önnur þunglyndislyf
Ýmsar síður um hugarfars breytandi lyf.
- Dangerous Medicine forum Spjallborð
- Antidepressants Facts Staðreyndir um þunglyndislyf.
- SSRI Stories Ekki er sannleikurinn fallegur...
- International Coalition For Drug Awareness Verum meðvituð ...
- PROTECT YOUR CHILDREN NOW Verndum börnin okkar!!
- THE DARK SIDE OF PSYCHIATRY Dökka hlið geðlækninganna
- How psychiatry is making drug addicts out of America´s shool children Amerísk skólabörn gerð að læknadóps fíklum.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine.
- Psyhchiatric Drug Side Effects Search Engine. SEARCH ENGINE
Asperger syndrome og Autism
Síður sem fjalla um Asperger og einhverfu
- Aspergers Syndrome in Children Góð síða (mín skoðun)
Blogg úr ýmsum áttum..
Vinir / áhugaverðir einstaklingar.
- Sigurjón Þórðar.
- Nornin
- Tigra
- Anna panna
- Þarfagreinir
- Katrín ódæla
- Klisja
- Olasteina "Fjarskyld frænka"
- Nornin Vinkona af Baggalút.
- Geiri 3d.
- Laramin
- Sigunzo
- Ditto bloggar Yndisleg og spes manneskja.
AGLOCO
- AGLOCO Borgað fyrir að browsa..
http://skorrdal.com/
MICROCHIP - RFID
- Microchip Implants News Articles MIND CONTROL; ÖRFLÖGUMERKINGAR; RFID
UMDEILD MÁLEFNI
- WIDE EYE CINEMA WIDE EYE CINEMA is dedicated to showcasing the very best alternative truth-related documentaries & cinema uploaded onto the World-Wide Web.
MY FAVORITE SITES
- This site is number 1 on 10 black list sites of US gov. Here you find it all.Specially what the elite do not want you to find
- Alvaran Forum about what some call conspiracy
- Prophecies of Sollog Sollog is a POLITICAL PRISONER of the USA!
- Ingaoramas video VIDEOS
- So you wanna talk conspiracies? try this on for size. JUST GO THERE...
- ConCen An eye openinger
- What you should not know...is here.. Knowing litle about lot is better than know lot about a little...
HAARP
- Chemtrails Data Page Chemtrails - Frequently Asked Questions
CHEMTRAILS
- CHEMTRAIL CENTRAL Þetta er forum um Chemtrails og málefni tengd efna úðun úr lofti..
- Chemtrails news, articles and information Cemtrails=Efnarákir
- CHEMTRAILS -HAARP-GEOENGIERING-DEPOPULATION AT WORK CHEMTRAILS síða- fyrrverandi FBI starfsmaður leysir t.d. frá skjóðunni- núna látinn..
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir- Ísland er ekki undanskilið þessu ógeði!
- Chemtrails = Aerosol spraying to change the atmosphere. Chemtrails = Aerosol spraying of barium, "fibers", pathogens.
- Efnaúðun -veðurfarsstjórnun í gegnum chemtrails Cemtrails=Efnarákir
TRANSLATE-ÞÝÐA
- Translate your website into 52 languages Just copy and paste the Translate This Button anywhere on your site, it's free and easy. There are no files to upload and it works on almost any website. The Translate This Button is a lightweight JavaScript translation widget. It translates any page quickly using Ajax and the brilliant Google Translate.
VERICHIP-WE THE PEOPLE WILL NOT BE CHIPPED!
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heilsumálefni
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Óvenjuleg og umdeild mál
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði